Þjóðviljinn - 11.05.1990, Page 4

Þjóðviljinn - 11.05.1990, Page 4
Sigfus Jónsson bæjarstjórí á Akureyri er á beininu Menn treysta of mikið á álvinninginn Nýtt Helgarblað er í dag helgað höfuðstað Norður- lands að hluta. Af því tilefni er Sigfús Jónsson bæjar- stjóri á beininu, og við spyrjum hann um atvinnumálin Háar tölur um fjölda at- vinnulausra á Akureyri hafa vakið athygli. Hvað hefur verið gert af hálfu bæjarins til að hamla gegn atvinnuleysi á kjörtímabilinu? „Því er náttúrlega mjög erfitt að svara beint, en nefna má að bærinn hefur lagt mikla áherslu á byggingu félagslegra íbúða, ekki bara sem félagsmál, heldur hefur það líka í bland verið atvinnumál til að styðja við byggingariðnað- inn. Þá er ákveðið að byggja upp Krossanesverksmiðjuna, sem er bæjarfyrirtæki. Fyrir tveim þrem árum var tekið af skarið um að kaupa nýjan togara til Útgerðar- félagsins. Það hafa verið keypt hlutabréf í litlum fyrirtækjum og nokkrum smáfyrirtækjum komið af stað. Þau hafa fengið lán úr framkvæmdasjóði bæjarins. Veittar hafa verið ábyrgðir fyrir fyrirtæki sem annars hefðu lagst af eða horfið úr bænum. Bærinn veitti til dæmis 90 miljóna króna ábyrgð þegar einstaklingar hér í bænum keyptu loðnuskipið Súl- una, til að skipið yrði ekki selt úr bænum. Þegar skóverksmiðja SIS lagðist af keyptu nokkrir að- ilar verksmiðjuna og stofnuðu upp úr því skóverksmiðjuna Strikið. Bærinn hjálpaði til við það. Það er svona sitt lítið af hverju sem bærinn hefur gert. Atvinnuleysi núna skapast auðvitað af niðursveiflu í þjóðfé- laginu en það sem skiptir veru- legu máli er samdráttur í ullar- iðnaðinum, hjá Álafossi, sam- dráttur í Slippstöðinni og hjá Kaupfélaginu. Eg held að bærinn hafi engin tök á að spoma við hjá þessum stóm aðilum en bærinn hefur liðkað fyrir, t.d. þegar Ála- foss er að semja um greiðslur á opinberum gjöldum og eitthvað þess háttar.” Kom til álita þegar Krossa- nesverksmiðjan var brunnin að nota tryggingaféð til annarrar “PPbyggingar? „Það kom til álita að nota tryggingaféð til að borga skuldir en bæturnar hefðu jafnvel ekki dugað, vegna þess að verðmætin sem voru eftir í verksmiðjunni hefðu nýst svo illa. Við hefðum þurft að selja vélar og tæki til vélasala sem em að selja notaðar vélar, járnið í húsinu meira og minna til niðurrifs. Þetta var skoðað, en það hefði ekki orðið neitt fé afgangs, alveg ömgglega ekki.” Ertu með þessu að segja að Krossanesverksmiðjan hafi ekki átt fyrir skuldum. „Eg er nú kannski ekki að segja það en verðmætin í hálf- bmnnu húsi og hálfri loðnuverk- smiðju fara eftir því hvort ætlun- in er að byggja verksmiðjuna upp aftur eða selja til niðurrifs. Ef við hefðum valið þann kostinn að rífa rústirnar og selja leifarnar hefðum við ekki átt fyrir skuld- um, en með því að byggja verk- smiðjuna upp á nýtt, gerum við miklu meiri verðmæti úr þessu.” Margir sveitarstjórnar- menn á svæðinu virðast treysta því að álver verði byggt í firð- inum. Er ekki varasamt að leggja svo mikla áherslu á einn kost, sem þar að auki er ekki nema að litlu leyti á vaidi heimamanna? „Jú, ég held að það sé mjög varasamt og ég vil fyrst og fremst líta á álverið sem viðbót, sem happdrættisvinning, ef svo má að orði komast. Mér finnst að almennt verkafólk, iðnaðarmenn og aðrir slíkir, treysli allt of mik- ið á álverið og ég er hræddur um, að það verði óskaplegt spennufall hjá þessu fólki ef álverið verður ekki reist. Mér finnst erfitt að þurfa að hugsa til þess að margt fólk er eiginlega búið að missa trúna á og það er alveg voðalegt ef ástandið er orðið svona. En það er þannig að margir iðnaðar- menn sjá ekki fram á neitt annað. Þetta er ekki endilega fólk sem er atvinnulaust, en hefur orðið fyrir barðinu á samdrættinum, sem kemur fram í því að það er skorin niður öll yfirvinna. Þessu fólki er kannski bara boðið upp á 70 - 80 þúsund krónur á mánuði en iðn- aðarmenn virðast ekki sætta sig við það, þeir vilja uppgrip og eru tilbúnir að vinna mikið til að fá hærri laun.” í umræðum um hugsanlegt álver hefur verið rætt um að sveitarfélögin kosti sameigin- lega gerð hafnar. Hvað myndi slík höfn kosta? „Hún kostar á að giska 420 miljónir samkvæmt nýjustu upp- lýsingum ef hún er einungis byggð með þarfir álversins í huga. Við höfum hins vegar ekki látið reikna út hvað frekari mannvirki kosta ef við ætlum að gera höfnina að almennri vöru- höfn, með plönum og öðru í kring um það.” Hefur komið til umræðu meðal sveitarfélaganna að leggja svipaða fjárupphæð í einhverja aðra atvinnuupp- byggingu? „Nei, það hefur ekki verið rætt. Sveitarfélögin líta ekki svo á að þau leggi til fé úr sveita- rsjóðum í þessu skyni. Það yrði tekið erlent lán fyrir höfninni til 20 ára og svo eiga haínargjöldin eða aðrir skattar af álverinu að bera kostnaðinn. Líklega yrði stofnað sérstakt félag sveitarfé- laganna um höfnina.” Þið eruð þá ekki að tala um að leggja álverinu höfnina til? „Við erum að tala um að við séum tilbúin að byggja og reka höfnina. Eigendur álversins eru náttúrlega ekki tilbúnir að leggja út fyrir þessari miklu íjárfestingu sjálfir í upphafi og hafa svo frían aðgang að henni. Þeir vilja frekar borga sín hafnargjöld. Sveitarfélögin eiga eftir að ræða sín á milli um íyrirkomu- lagið ef höfnin verður notuð íyrir almenna vöruflutninga, en það þýðir auðvitað lægri hafnargjöld fyrir álverið. Það er til dæmis ljóst að ef við ætluðum að byggja stóra og fina gámahöfn hér á Ak- ureyri þá er það mjög dýrt, því það fer óskaplegt landííæmi á Eyrinni undir gámasvæði. Olafs- firðingar eru heldur ekki vel sett- ir með sína flutninga. Þannig er þetta hugsanlega hagstætt fyrir Ólafsfirðinga og Akureyringa en það er ekki víst að það sé hag- stætt fyrir Dalvíkinga.” Hver yrðu að þinu viti á- hrifin af 400.000 tonna álveri í firðinum? „Ég er náttúrlega ekki búinn að sjá það koma fyrr en á næstu öld, en það verður allavega 200.000 tonn ef það kemur núna. Ég býst við að álverið yrði fyrir- tæki sem hefði alveg gífurleg ítök og svæðið verður auðvitað mjög háð því hvemig fyrirtækinu vegnar. Hlutdeild álversins í firð- inum verður kannski svipuð og hlutdeild Kaupfélagsins og Sam- bandsverksmiðjanna í bæjarlífinu íyrir einhverjum áratugum.” Hafið þið vissu fyrir því að mengunin frá 200.000 tonna ál- veri, að ekki sé talað um 400.000 tonn, sé innan hættu- marka? „Nei, við höfum ekki ennþá fengið þessa skýrslu, sem kemur frá norsku Ioftrannsóknastofnun- inni, en hún er væntanleg og það er meiningin að kynna hana fyrir Eyfirðingum í byijun næstu viku. Þegar hún liggur fyrir held ég að margir bændur hér í Eyjafirði séu fyrst tilbúnir að taka einhverja afstöðu í þessu máli. Ég finn á viðræðum við bændur hér í firð- inum að þótt þeir séu almennt hlynntir atvinnuuppbyggingu og því að héma rísi stórt fyrirtæki, þá eru þeir með vissa fyrirvara þangað til þeir fá meiri upplýs- ingar um mengunarmálin. Og ég held að það sama gildi um iðnaðarráðherra og sveitar- stjómarmenn almennt. Menn em ekki tilbúnir að fóma umhverfinu fyrir svona atvinnu.” Ef ákvörðun verður tekin um að reisa 200.000 tonna ál- ver, verður þá ekki að gera ráð fyrir að það tvöfaldist að stærð? „Jú, menn verða að vera und- ir það búnir og það er skilyrði af hálfu Atlantal að þeir geti stækk- að í 400.000 tonn.” Verði ekki af byggingu ál- vers, til hvaða ráða geta sveit- arfélögin og þá sérstaklega Ak- ureyri gripið til að sporna við þeirri óæskilegu byggðaþróun sem það myndi væntanlega hafa j för með sér? „Ég held að bæjarfélagið eitt og sér hafi ekki burði til að ráða við það. Það getur auðvitað lagt sitt lóð á vogarskálina en þama fara menn að spyrja sjálfa sig hvert sé hlutverk sveitarfélagsins. Umræðan um atvinnumál hér á Akureyri er dálítið sérkennileg. Bæjarbúar búast við og ætlast til að Akureyrarbær geri í raun og veru miklu meira í atvinnumálum heldur en krafa er gerð um í nokkru öðru bæjarfélagi á landinu. Menn em einhvemveg- inn famir að treysta allt of mikið á forsjá bæjarins í atvinnumálum, kannski vegna þess að bærinn er svo stór þátttakandi í atvinnulíf- inu. Ég held að bærinn eigi ekki að reka fyrirtæki en hann á að skapa íyrirtækjum góða aðstöðu. Bærinn getur reynt með ýmsum aðgerðum að auka ferðamanna- þjónustu en það dugar ekki til. Ferðamannaþjónusta verður bara ein af atvinnugreinunum sem við munum byggja á en virðist hafa verulega vaxtarmöguleika. Bær- inn getur auðvitað barist fyrir því að fá meira af opinberri þjónustu. Opinber þjónusta hefur vaxið gíf- urlega mikið á síðustu ámm og áratugum. Hún hefur kannski vaxið í allt of miklum mæli í Reykjavík. Það hefur verið litið svo á að stofnanir sem eiga að þjóna öllu landinu þurfi endilega að vera í Reykjavík en það þarf alls ekki að vera svo. Það er kannski leið númer tvö á eftir túrismanum. Hér em öflug sjávarútvegs- fyrirtæki og við getum auðvitað barist fyrir því að auka hlutdeild okkar í sjávarútvegi, en þá vakn- ar spumingin: þjónar það í sjálfu sér tilgangi að ná aukinni hlut- deild í sjávarútvegi hingað til Akureyrar, því við erum þá að draga það frá öðrum? Erum við eitthvað betur sett með því að ná hingað togumm frá öðmm stöð- um á Norðurlandi? Akureyri sem höfuðstaður Norðurlands verður auðvitað að hafa traust bakland. Við lifum ekki héma ef Norður- Iand fer í eyði. í fjórða lagi getur bæjarstjóm auðvitað beitt áhrifum sínum til að fá heils árs veg yfir Möðru- dalsöræfi og að flýta endurbótum á veginum yfir Oxnadalsheiði. Þetta myndi stækka upplandið fyrir Akureyri mjög mikið. Aust- firðingar, Skagfirðingar og Hún- vetningar gætu þá sótt ýmsa þjónustu til Akureyrar sem þeir geta ekki gert núna vegna þess að þessir vegir klippa landshlutana alveg frá Akureyri. I fimmta lagi má nefna að til em fleiri tegundir af orkufrekum iðnaði en álver. Jámblendiverk- smiðja er við Gmndartanga og það var hugsað um kísilmálm- verksmiðju á Reyðarfirði. Það em því til fleiri kostir í arðvæn- legum fyrirtækjum, þótt þau séu ekki jafn stór og álver, þannig að ég held að við eigum að halda á- fram að huga að orkufrekum iðn- aði.” Þú segir að bærinn eigi ekki að eiga og reka fyrirtæki. Nú á bærinn mikinn meirihluta í einu ríkasta útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki landsins, Út- gerðarfélagi Akureyringa h/f. Telurðu þá að bærinn ætti að selja hlut sinn í þessu félagi og nota peningana í annað? „Það er ekkert óeðlilegt að bærinn eigi hlut í fyrirtækjum, en ég tel það hins vegar ekki eðli- legt að bærirm sé varanlega, eða til frambúðar, langstærsti eignar- aðilinn. Ég held að það hafi sýnt sig annarsstaðar á landinu, að menn þurfa ekkert að vera hræddir um að það verði ein- hverjir „vondir menn að sunnan” sem kaupi til að flytja fyrirtækið suður, þó að þessi bréf séu seld á hlutabréfamarkaði og peningamir notaðir í aðra uppbyggingu. Það flytur enginn Útgerðarfé- lag Akureyringa. Hér er það með alla sína aðstöðu, og allt þetta góða vinnuafl og alla sína togara, og ég get ekki séð að það verði neitt verr rekið þó að bærinn seldi einhver tíu til þrjátíu pró- sent af sínum hlutabréfum, til dæmis til almennings í bænum. Það er búið að breyta skattalög- um, þannig að almenningur er farinn að verða miklu virkari þátltakandi í hlutabréfamarkaði. Hér í bænum var fullt af fólki sem var að leita eftir því fyrir síðustu áramót að kaupa hluta- bréf vegna skattafsláttar en það var ekki hægt að kaupa hlutabréf í einu einasta fyrirtæki á Akur- eyri. Ég er klár á því að ef við seldum hlutabréfin á markaði myndu margir Eyfirðingar og Akureyringar eignast bréfin.” Kemur til greina að þínu viti að selja hlut bæjarins í Landsvirkjun og nota féð til at- vinnuuppbyggingar eða að greiða niður skuldir hitaveit- unnar? „Aðeins á þeirri forsendu að með því sé verið að greiða niður gífurlegar skuldir Hitaveitunnar. En þetta mál er mjög vandmeð- farið því það er hætta á að ríkis- valdið leysi vanda annarra veitna á eftir og þá væm Akureyringar búnir að leysa vandann á sinn kostnað, og búnir að missa af lestinni ef svo má segja. En ég tel koma til greina að skoða málið.” Að Iokum. Verður Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri eftir næstu kosningar? „Um það vil ég ekki spá. Það er ekki nokkur leið. Það er eins og að spila í lóttói.” hágé 4 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. maí 1989

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.