Þjóðviljinn - 11.05.1990, Qupperneq 6
Ég grét alltaf
í sturtunni
Hvers vegna kenna aðstandendur sjálfum sér um drykkju alkó-
hólista? Hvað er gert í A1 Anon? Hvað er „kóalkóhólismi”?
Getur fjölskyldan í sameiningu tekist á við drykkjusýkina?
„Ég vakti alitaf eftir honum...” Myndin er eftir viðmælanda blaðsins og heitir
Svartnætti.
AAI Anon-samtökin þekkja
margir af afspurn. „Sam-
tök fyrir aðstandendur alkó-
hólista” er algengasta svarið
þegar spurt er. En fyrir mörg-
um standa Al Anon-samtökin
fyrir nýtt líf, nýjan hugsunar-
hátt. Þau benda fjölskyldum
drykkjusjúklinga á leið til að
ná áttum í erfiðu lífi og aðferð-
ir til að hugsa upp á nýtt.
„Það var hrein tilviljun að ég
gekk í A1 Anon, sá samtökin
nefnd í SAA-blaði og eftir að
hafa talað við ráðgjafa fór ég á
fund sama kvöld. Eg var orðin
fuli örvæntingar,” segir Guðrún,
eiginkona alkóhólista sem ekki
hefur drukkið í þrjú ár. Nafn
hennar er reyndar annað en
vegna nafnleyndarreglu AI Anon
er það ekki nefnt hér. Hún hefur
sótt fundi reglulega í tólf ár. A
þeim tíma hefur maður hennar
margsinnis farið í meðferð.
Fyrstu meðferðina fór hann í
tveimur árum eftir að Guðrún
byrjaði í A1 Anon.
„Það var mikið grátið á þess-
um árum. Ég held að ég hafi
varla farið í sturtu þennan tíma
án þess að gráta þar. En í dag
erum við ástfangnari en nokkru
sinni fyrr. Mér líður vel, bömin
okkar tvö skilja hvað alkóhólismi
er og þótt pabbi þeirra hafi fallið
þetta oft þá vitum við öll að hann
er alltaf að reyna,” segir hún.
Ástandið var
ömurlegt
„Ég kynntist A1 Anon þegar
við höfðum verið saman í um tvö
ár. Þegar við kynntumst notaði
hann ýmis efni sem ég þekkti
ekki og honum tókst lengi að
leyna því fyrir mér. Síðan fór
hann að drekka allar helgar og
nota flest þau eiturlyf sem eru á
boðstólum hér. Astandið var öm-
urlegt. Ég var orðin heltekin af
því og allar mínar hugsanir
gengu út á það hvar alkóhólistinn
væri og hvað hann væri að gera.
Ég var búin að missa alla stjóm á
lífi mínu. Ég var andvaka allar
helgar og vakti eftir honum til
þess að geta hellt mér yfir hann
og tekið reiðina út á honum.
Ég byrjaði mjög fljótt í felu-
leiknum, leyndi ástandinu pg
hylmdi yfir með honum. Ég
reyndi fyrst að treysta vinkonum
minum fyrir vandamálunum en
þá var bara sagt við mig: „Til
hvers ertu að púkka upp á þetta
fífl?” Ég fann til hræðilegrar
skammar yfir að elska mann sem
hagaði sér svona og var sífellt að
verja allar hans gerðir og fela
hvað var um að vera. Og það var
mikil vinna sem fór í það en auð-
vitað sáu margir hann blindfullan
niðri í bæ þegar ég hélt að enginn
vissi neitt. Meðgangan að fyrra
baminu okkar var mjög dapurleg,
það gekk allt illa.” Guðrún þagn-
ar um stund, það er ekki auðvelt
að riíja þetta upp.
Eiturlyfja-
neyslan jókst
Síðan heldur hún áfram:
„Hassneyslan jókst hjá hon-
um og síðan fór hann út í spítt og
þá kom ofsóknaræðið með því.
Það var hryllilegt.
Um það leyti sem ég gekk í
A1 Anon fann ég að ég var í raun
orðin háð þessu ástandi. Maður
er fastur í þessu mynstri og það
er útilokað að komast út úr þess-
um vítahring. Einhvern veginn
aðlagar maður sig að því að vera
sífellt að fást við vandamálin og
á endanum verður maður háður
þeim.
Alkóhólistinn var oft at-
vinnulaus, það vom litlir pening-
ar til og þegar ég áttaði mig á að
ég hafði minni áhyggjur af bam-
inu, sem var mjög óvært, en
alkóhólistanum, þá sá ég að ég
varð að gera eitthvað í málun-
um.”
AI Anon em algjörlega óháð
samtök og hver deild heldur
fundi reglulega. Reyndur félagi
leiðir fundina og nýliðum er boð-
ið upp á byrjendaiúndi. A fund-
unum er farið í prógramm sem
byggir á tólf reynslusporum,
þeim sömu og alkóhólistar nota á
AA-fundum. Fyrsta sporið, sem
mörgum reynist það erfíðasta,
beinist að því að fá fólk til að
skilja að alkóhólisminn hefur
tekið öll völd og því er um megn
að stjóma eigin lífi.
Hann var ekki
aumingi
„í spomnum sem við fömm
yfir á fundunum er talað um æðri
máttarvöld. En það er skýrt tekið
fram að hver og einn getur valið
um hvaða máttarvöld það eru,
hvað sem er. Það eina sem skiptir
máli er að geta viðurkennt að
eitthvað sé til manni sjálfum
æðra,” segir Guðrún. „Og þegar
ég byrjaði í A1 Anon setti ég
samtökin sjálf í þetta sæti, „æðri
máttarvöld.” Ég var eiginlega
hætt að trúa á Guð, mér fannst
hann hafa yfirgefið mig. En þeg-
ar ég fór að pæla í þessu og lesa
mér til þá fór ég að öðlast trú á
ný. Það var mikili léttir að koma
á fyrsta fundinn og hitta fólk sem
svipað var ástatt fyrir. í deildinni
sem ég fór í fyrst vom flestir fé-
lagarnir konur giftar mönnum
sem vom búnir að fara í meðferð
og vom óvirkir þannig að I fyrstu
var ég ekki viss um að ég ætti er-
indi þarna inn en lærði fljótt að
það var misskilningur. Það var
mjög gott að heyra að þetta væri
sjúkdómur og það róaði mig svo-
lítið að heyra að maðurinn sem
ég elskaði væri ekki sá „aum-
ingi” sem ég hélt að hann væri.
Þegar ég gekk í A1 Anon
fyrst var það með því hugarfari
að finna patentlausn til að þurrka
alkóhólistann upp. En ég Iærði
það fijótlega að slík lausn er ekki
til og þetta er fjölskyldusjúkdóm-
ur sem ég var orðin mjög sjúk af
sjálf.”
Ég var sjúk sjálf
„Það tók mig 3-4 mánuði að
átta mig á að það eina sem ég
gæti gert væri að breyta sjálfri
mér. Enginn getur breytt alkó-
hólistanum nema hann sjálfur en
með því að breyta sjálffi mér gat
ég bætt ástandið mikið. Ég sá að
minn þáttur í þessu sjúklega á-
standi var mikill. I samtökunum
finnur maður sér trúnaðarmann,
reyndan félaga sem er manni inn-
an handar og gefur góð ráð. Og
fyrsti veturinn fór mikið í að
vinna með trúnaðarmanninum í
að breyta mínum viðhorfum
gagnvart manninum mínum og
að læra að hætta að reyna að
stjóma honum.
Stjómsemin er mikil og það
tók langan tíma að losna við
hana og viðurkenna að ég var
vanmáttug gagnvart þessum
sjúkdómi. Mér fannst auðvelt að
viðurkenna að þetta væri sjúk-
dómur, það var svo þægilegt, en
aflur á móti var svolítið erfitt að
sætta sig við það. Það er þetta
sem prógrammið gengur út á: Að
taka sjálfan sig í gegn. Þetta þýð-
ir ekki eigingirni heldur aðeins
að hugsa vel um sjálfan sig og
iðka samtímis stöðuga sjálfs-
gagnrýni. Ég fór að rilja upp mín
gömlu áhugamál og einbeita mér
að starfinu mínu, móðurhlutverk-
inu og hvíldinni.
Smám saman fór ég að sjá
mína litlu sigra og sjálfsvirðingin
kom aftur. Eg fór að geta tekíð
ákvarðanir aftur og á endanum
lét ég gamlan draum rætast og
fór í ljögurra ára nám á háskóla-
stigi.”
Grátur og
píslarvætti
„Ég svaf lítið á þessum fyrstu
árum og vakti heilu helgamar á
meðan alkóhólistinn var úti. Ég
gekk um gólf á nóttunni og beið
alltaf eftir honum, hvenær sem
hann kom. Ég grét, öskraði eða
setti upp píslarvættissvipinn.
Þessu þurfti ég að taka á strax og
með því að nota slökunaraðferðir
sem ég lærði á meðgöngunni
heppnaðist það fljótlega.
Ég lærði að það breytti engu
fyrir manninn hvort ég var sof-
andi eða vakandi þegar hann
kom heim en hins vegar skipti
það miklu fyrir mig að geta
hvílst. I fyrsta sinn sem mér tókst
að sofna þegar hann var úti þá
var hann svo hissa að hann
kveikti öll ljós og vakti mig til að
athuga hvað hefði gerst. Ég gerði
mér grein fyrir því seinna að með
því að breyta hegðunarmynstrinu
á þennan hátt þá eyðilagði ég
heilmikið fyrir honum því á
heimleiðinni var hann vanur að
útbúa „söguna” í sem skemmstu
máli og undirbúa sig fyrir átökin
við mig.
Algengt sjúkdómseinkenni
aðstandenda er hroki. Ég var orð-
in þannig að ég var farin að þrasa
við alla, meira að segja við stúlk-
una á kassanum úti I búð. Sumir
verða píslarvottar og hugsa alltaf
um aumingja sig. En bömin fara
kannski verst út úr þessu. Það
verða allir sjúkir í fjölskyldunni.
Aðstandandinn pínir oft börnin
óbeint til að taka afstöðu með
öðru foreldrinu gegn hinu og oft-
ar en ekki vorkenna bömin alkó-
hólistanum en reiðast foreldrinu
sem er alltaf að skammast og ríf-
ast.”
Vandamálin
urðu að
verkefnum
„En með því að lifa eftir A1
Anon leiðinni fer lífið smám
saman að breytast. Mér fór að
líða betur, ég leit betur út og var
á allan hátt mun jákvæðari mann-
eskja í umgengni. Maðurinn
minn var mjög undrandi á þessari
breytingu á mér. Það fyrsta sem
ég prófaði var að sleppa vanalega
nöldrinu þegar hann fór út. Eg
kvaddi hann bara vel og sagði
„gangi þér vel.” Hann var á leið
á stað sem hann fór ekki á öðm-
vísi en að koma fúllur heim en í
þetta skipti kom hann edrú heim.
Ég hélt þá að ég gæti notað
svona aðferðir til að þurrka hann
upp en svo var ekki. Samt var ég
heppin að þetta virkaði þama því
það varð til þess að ég fékk á-
huga á að halda áfram í A1 Anon.
Ég hætti að líta á vandamálin
sem eitthvað óyfirstíganlegt og
vandamálin urðu að misþungum
verkefnum sem hægt var að
leysa.
Svona liðu tvö ár. Mér var
farið að þykja vænt um hann aft-
ur, var farin að þekkja sjúkdóms-
einkennin og geta aðskilið þau
frá honum og út spratt þessi
maður sem ég varð ástfangin af.
Ég fór að geta umgengist hann af
fullri virðingu á ný, sama í hvaða
ástandi hann var. Ég hætti að ríf-
ast við hann fullan og æsa hann
upp í fyllirí. Það er of seint að
stoppa alkóhólista af þegar hann
er á leiðinni út á föstudegi. Hann
er búinn að ákveða jafnvel á
mánudeginum áður að detta í það
um helgina og þú getur engu
breytt þar um. Þetta þekkja flestir
aðstandendur og þeir fyllast sekt-
arkennd og fara að velta sér upp
úr því hvað þeir geri rangt, hvort
alkóhólistinn elski þá ekki úr því
að hann hagar sér svona. En svo
einfalt er málið ekki.”
Eiginmaður Guðrúnar fór í
vikulanga meðferð tveimur árum
eftir að hún gekk í A1 Anon.
Hann féll þó fljótlega en fór aftur
í meðferð sjö mánuðum síðar.
„Mistökin voru þau að hann
hætti að sækja fundi og hélt sig
geta hætt að drekka en notað
hass áfram,” segir hún. A1 Anon
samtökin kenna okkur líka að
takast á við follin og vera undir
þau búin. Ég lærði að taka einn
dag fyrir í einu og lifði eftir orð-
unum: Þar sem líf er, þar er von.”
Og góðu tímarnir, þegar hann
stóð sig vel á milli „fallanna”
styrktu von mína um betra líf.
Það er líka mikilvægt að gera
sér grein fyrir því að alkóhólismi
er ekki bara drykkja og þó að
henni sé lokið er mikið eftir.
Alkóhólismi er ólæknandi sjúk-
dómur sem fer síversnandi sé
ekkert að gert, en hægt er að
halda niðri með mikilli vinnu í
AA-prógramminu. En enginn
alkóhólismi þrífst án stuðnings-
manns og þegar aðstandandinn
hættir í stuðningshlutverkinu þá
neyðist alkóhólistinn til að gera
eitthvað i málinu.”
Texti
Vilborg
Davíósdóttir
„Enginn alkóhólismi
þrífst án stuðnings-
manns og þegar að-
standandinn hættir
stuðningshlutverkinu
neyðist alkóhólistinn
til að gera eitthvað í
málinu.”
Mynd Jim Smart
Guð, það góða I öllu fólki eða
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. maí 1990