Þjóðviljinn - 11.05.1990, Side 8
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjórí: Hallur Páll Jónsson
Ritstjórar: Ámi Bergmann, Ólafur H. Torfason
Umsjónarmaður Helgarfolaðs: Ólafur Gíslason
Fréttastjóri: Sigurður A. Friðþjófsson
Útlit: Þröstur Haraldsson
Auglýsingastjórí: Olga Clausen
Afgreiðsla: « 68 13 33
Auglýsingadeild: ** 68 13 10-68 13 31
Símfax: 68 19 35
Verð: 150 krónur í lausasölu
Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Oddi hf.
Málgagn sósíalisma, verkaiýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Síðumúla 37,108 Reykjavík
Dounreay
og við
Um langa hríð hafa einstaklingar og samtök með þjóðum við
Norður-Atlantshaf mótmælt áformum og framkvæmdum Breta
við kjamorkuverið í Dounreay nyrst á Skotlandi. Gagnrýnendur
hafa bent á hve stórfelldar afleiðingar gætu orðið í lífríki hafsins,
ef óhapp gerðist á einhverju stigi vinnslunnar í þessu veri, sem
m.a. er ætlað að endurvinna plútoníum. Rökstutt hefur verið,
að Dounreay-kjamorkuverið væri eitt hættulegasta mannvirki á
þessum slóðum.
Það er því ills viti og vekur verstu grunsemdir, að þagað
skuli hafa verið allt þar til í fyrradag um þá staðreynd, að einum
af kjamaofnum Dounreay-versins var lokað vegna natríum-leka
úr kælikerfi hans fyrir hálfum mánuði. Vitaskuld halda forsvars-
menn kjamorkuversins því fram, að engin hætta hafi verið á
ferðum og geislavirk efni ekki sloppiö út. Samt sem áður
reyndu þeir að fela staðreyndir um þetta óhapp fyrir almenningi.
Allt staðfestir þetta gagnrýni þeirra sem vilja stöðva fram-
kvæmdir í Dounreay og finna starfseminni heppilegri og ömgg-
ari stað en við jaðar eggjahvítubankans í Norður-Atlantshafinu.
Ennfremur er þetta skýr ábending um að tækni og öryggisráö-
stöfunum í Dounreay hefur verið ábótavant.
Allt leiðir þetta að þeim sama bmnni sem umhverfisvemdar-
sinnar hafa stöðugt bent á: Tæknin er dýrari en menn vilja vera
láta. Hingað til hafa stjómmálamenn og fyrirtæki í flestum tilvik-
um sætt sig við ódýrari og einfaldari framleiðsluaðferðir en rétt-
lætanlegt er. Það er t.d. dýrara að framleiða hollan og næring-
arríkan mat en verksmiðjukássur iðnríkjanna, sem byggjast oft á
stríðeldi búrdýra. Umhverfisspjöllin sem afkastamikill landbún-
aður hefur valdið erlendis greiðast einfaldlega af næstu kynslóð-
um. Endurheimt skóga, sem skaðast hafa af súm regni eða
verið mtt burt vegna skyndigróðasjónarmiða, kostar feiknariega
Ijánmuni, sem ekki vom reiknaðir með til kostnaðar í byrjun.
I Austur-Evrópu em nú að opnast augum manna nánast í
hvenri viku áður óþekktar afleiðingar mengunar og umhverfis-
spjalla, þar sem nánast engu hefur verið til kostað að bægja frá
hættum. Þar var sparað til dauðs. Við (slendingar eigum langt í
land með að girða fyrir umhverfisspjöll af ýmsum völdum. Við
spömm. Við uröum og brennum sorp, sem þykir í nágranna-
löndum fomaldarlegt og ekki samrýmast nútíma kröfum. En
það er dýrara að endurvinna það.
Á síðasta ári kom út í Sviss bók um svissneska fyrirtækið
Alusuisse, þar sem höfundar rekja skýrt og greinilega þann tví-
skinnung, sem Alusuisse, eins og obbinn af öðmm auðhringum,
hefur gert sig sekan um í skiptum við önnur lönd hvað varðar
umhverfismálin. Varðandi mengunarvamir og alla aðstöðu hef-
ur fyrirtækið í verksmiðjum sínum I öðmm löndum notfært sér
tæknilausnir, sem enginn vogaði sér að bjóða upp á í Sviss, og
þannig nýtt sér út í ystu æsar andvaraleysi og reynsluleysi
minna þróaðra þjóða. [ stað þess að hífa þessar þjóðir upp á
heilsusamlegra plan hefur stórfyrirtækið látið gróðasjónarmiðið
ráða.
Að þessu leyti var stefna Alusuisse um langan aldur um
margt hliðstæða þeirrar miskunnarlausu miðstýringar sem vald-
ið hefur tjóninu í löndum Austur-Evrópu. Með skammtíma hag-
kvæmni fyrir augum var litið fram hjá öryggisþáttum sem kost-
uðu peninga, hvar sem það var hægt. Menn muna fáránlegar
deilurnar milli íslenskra stjórnmálamanna hérlendis á sínum
tíma, þegar talsmenn Alþýðubandalagsins gerðu harða hríð að
(SAL vegna ófullkominna mengunarvama. Allt sem Alþýðu-
bandalagið barðist fyrir í þessum efnum reyndist rétt og nú
mundi enginn íslenskur stjórnmálamaður voga sér aftur að
þybbast við jafn sjálfsögðum endurbótum á útblæstri og lokun
kerja, sem þá gat verið deiluefni manna, þótt nú megi furðulegt
þykja.
Hastariegasta dæmið sem nú hefur vitnast á islandi í þess-
um efnum eru þær fregnir, að í tíð Viðreisnarstjómarinnar hafi
vamamnáladeild utanríkisráðuneytisins afsalað öllum rétti ís-
lenska ríkisins og einstaklinga hér á landi til skaðabóta, komi í
Ijós að Bandaríkjaher hafi mengað land eða spillt umhverfi
vegna ratstjárstöðvarinnar á Langanesi. Geta einstakir embætt-
ismenn í Reykjavík svipt frjálsa þegna í lýðveldinu þeim rétti að
krefjast skaðabóta fyrir tjón sem Bandaríkin, eða aðrir aðilar,
valda þeim? Því verður ekki trúað. Hér er einfaldlega um að
ræða sama dæmið og í viðskiptum mismunandi þróaðra þjóða
við Alusuisse og aðra stálslegna auðhringi áður fyrr og jafnvel
enn. Sá reyndari og sterkari notfærir sér til hins ítrasta veilur í
löggjöf, vanþekkingu eða fljótfæmi hjá fulltrúm viðskiptaland-
anna. Sumir kalla það viðskiptavit. Við köllum það siðferðis-
brest. Dounreay er bara nýjasta áminningin.
ÓHT
Útivistartiópurinn Hana nú á morgungöngu I Kópavogi.
Kópavogur 35 ára
Fjölbreytt dagskrá í tilefni dagsins
I dag, 11. maí er þess minnst
með margvíslegum hætti að
35 ár eru liðin frá stofnun bæj-
arfélagsins. Afmælishátíðin
verður í Félagsheimilinu,
Fannborg 2 kl. 16. Þar verða
bæjarlistamenn Kópavogs út-
nefndir fyrir næsta ár jafnframt
því sem fráfarandi bæjarlista-
menn, þeir Hjörtur Pálsson
skáld og Sigurður Bragason
söngvari kveðja. Þá verður
kynnt útgáfa á sögu Kópavogs
í þrem bindum, nýstaðfest
bæjarskipulag kynnt og haft til
sýnis í Félagsheimili og bóka-
safni.
Á laugardag kl. 10-16
stendur bæjarbúum og öðrum
gestum til boða að skoða ýmis
mannvirki og stofnanir í bæn-
um, nýja sundlaugin á Rútstúni
verður opin og sunddeild
Breiðabliks býður upp á kaffl
og meðlæti við gömlu sund-
Iaugina. Þá verður boðið upp á
stuttar bátsferðir frá Kársnes-
höfn. Sýning á verkum nem-
enda verður í Snælandsskóla í
Nemendur Tónlistarskóla
Kópavogs munu halda tónleika
af þessu tilefni í skólanum í dag
og á laugardag heldur Skólakór
Kársness 15 ára afmælistón-
leika sína í Langholtskirkju í
Reykjavík, þar sem um 200
böm og unglingar koma fram.
Þá munu bæjarfulltrúar og
forystumenn Iþróttafélags
Kópavogs undirrita ramma-
samning á afmælisdeginum um
íþrótta- og æfingasvæði IK í
Fossvogsdal.
-ólg
Fuglaskoðun í Kópavogi
Náttúrufræðistofa Kópavogs hyggst í vor bjóða almenningi upp á
þá þjónustu að hafa reynda fuglaskoðara tií að sýna fóiki fuglalífið
sem er sérstaklega líflegt á Kópavogsleiru og flörunni út með
voginum á þessum árstíma.
Leirumar i Kópavogi em einhverjar þær gróskumestu sem finn-
ast hér á landi og þær laða til sín mikinn fjölda fugla. Meðal þeirra
sem gista Kópavoginn í maímánuði eru umferðarfarfuglar sem
koma við hér á landi á leið sinni af vetrarstöðvunum á Irlandi og
Bretlandseyjum til varpstöðva á Grænlandi. Má þar nefna margæsir
og rauðbrystinga. I maílok halda þeir áfram ferð sinni vestur á
bóginn og því fara að verða síðustu forvöð að sjá þá.
Á morgun, laugardag, og sunnudag verða reyndir fúglaskoðarar
á vettvangi á mótum Urðarbrautar og Sunnubrautar í vesturbæ
Kópavogs og hefst leiðsögn þeirra kl. 13.30 báða dagana. Fólki er
bent á að hafa með sér sjónauka, fuglabók og skrifTæri.
-ÞH
tilefni dagsins.
Horfur á laugardag og sunnudag: Hæg SA-læg átt. Dálítil súld á SA-landi og
við A-ströndina. Þokuloft á annesjum N-lands og svalt í veðri. Þurrt og víða bjart veður með 7-
12 stiga hita í öðrum landshlutum.
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 11. maí 1990