Þjóðviljinn - 11.05.1990, Page 12

Þjóðviljinn - 11.05.1990, Page 12
Sigríður Stefánsdóttir Vongóð um myndun vinstri meirihluta Sigríður Stefánsdóttir, oddviti Alþýðubandalagsins: Munur vinstri oghægri meirihluta byggistáþátttöku Alþýðubandalagsins. Metnaðarleysi einkennirstarf meirihlutans. Alþýðubandalagið áAkureyri gengur samstillt til kosninga Munurinn á vinstri og hægri meirihluta í bæjarstjórn byggist á þátttöku Alþýðubanda- lagsins. Við erum ekki feimin við að segja að við viljum helst starfa í meirihluta með öðrum en Sjálf- stæðisflokknum, en útilokum ekkert. Við viljum stuðla að myndun vinstri meirihluta eftir þessar kosningar eins og eftir þær sfðustu. Þetta segir Sigríður Stefáns- dóttir, menntaskólakennari og bæjarfulltrúi Alþýðubandalags- ins á Akureyri. Sigríður var önnur á lista Al- þýðubandalagsins í kosningunum 1982, varð þá varamaður Helga Guðmundssonar í bæjarstjórn en tók sæti hans sem aðalmaður á miðju kjörtímabili. Þá störfuðu Alþýðubandalag, Kvennalisti og Framsóknarflokkur saman í meirihluta, en Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur mynduðu minnihluta. Eini vinstri flokkurinn f kosningunum 1986 fór Sig- ríður inn í bæjarstjórn við annan Alþýðubandalagsmann, Heimi Ingimarsson. Alþýðubandalagið reyndi þá að koma saman meiri- hluta án þátttöku Sjálfstæðis- flokksins, en Alþýðuflokkurinn kom í veg fyrir það. Hefur meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks á þessu kjörtímabili leitt í Ijós að það sé raunverulegur munur á vinstri sinnuðum meiri- hluta og hægri sinnuðum? „Já, það er enginn vafi á því. Þegar Alþýðubandalagið á aðild að meirihluta kemur þessi munur skýrast fram. Okkur finnst stundum að við séum eini vinstri flokkurinn í bæj- arstjórn. Við áttum reyndar mjög gott samstarf við Kvennalistann á síðasta kjörtímabili, en nú finnst okkur eins og við séum ein um að halda uppi vinstri stefnu í bæjar- stjórn,“ segir Sigríður. Metnaðarleysi meirihlutans Hún telur mikið skorta á áhuga og skilning hinna flokkanna á fé- lagsmálum, skólamálum og lýð- ræðislegum vinnubrögðum. Sigríður Stefánsdóttir: Ég er vongóð um að okkur takist að mynda vinstri meirihluta eftir þessar kosningar, en það byggist á því að Alþýðubandalagið fái góða kosningu. Mynd gg. „Nú þegar við erum í minnih- luta gætir sjónarmiða okkar mun síður, en þó náum við að hafa áhrif í sumum tilvikum. Dæmi um það er deilan um hvort börn í Síðuhverfi áttu að geta gengið í hverfisskólann sinn allt upp í níunda bekk. íbúar hverfisins börðust fyrir þessu og við höfðum sömu stefnu og íbúarnir í þessu. Hinir flokk- arnir þrjóskuðust við, en létu undan að lokum,“ segir Sigríður. Hvernig hefur meirihlutinn brugðist þannig að þörf er fyrir vinstri meirihluta að nýju? „Starf meirihlutans hefur ein- kennst sérstaklega af almennu metnaðarleysi, bæði í bæjar- stjórn og í nefndum bæjarins. Það hafa ekki orðið nein stórlys, þeir hafa t.d. ekki beinlínis Iagt niður þjónustu. Og um sum mál hefur náðst góð samstaða allra flokka.“ Atvinnuleysið „Metnaðarleysið er alvarlegast í atvinnumálum. Alþýðuflokkur- inn náði verulegri uppsveiflu síð- ast fyrst og fremst vegna ástands- ins í atvinnumálum, en nú er atvinnuleysið á Akureyri meira en áður hefur þekkst. Meirihlutinn hefur heldur eng- an metnað í menningarmálum og félagsmálum. Félagsleg þjónusta á Akureyri er að mörgu leyti langt á eftir tímanum eins og reyndar víðar á íslandi. Þjónusta við börn og barnafólk er algjörlega óviðunandi og það bíða margir lengi eftir dagvistun. Allir aðrir flokkar en Alþýðu- bandalagið lýstu sig samþykka þeirri stefnu að „fullnægja þörf“ fyrir vistun barna á aldrinum tveggja til sex ára. f þessu felst ekki meiri metnaður en að gera eitthvað fyrir alla á þessum aldri. Afleiðingin er m.a. sú að áhersl- an hefur verið lögð á leikskóla- pláss, en þörfin fyrir heilsdag- svistun er gífurleg. Það vantar sárlega dagvistun fyrir börn yngri en tveggja ára.“ Há þjónustugjöld „Við eigum aðeins eitt skóla- dagheimili á Akureyri. Það er í miðbænum, langt frá skólum. Þetta er lýsandi fyrir metnaðar- leysi meirihlutans. Afstaða meirihlutans til félags- legrar þjónustu og jöfnunar að- stöðu lýsir sér einnig vel í því að þjónustugjöld ýmiss konar hafa verið hækkuð verulega á kjörtím- abilinu. Dagvistargjöld hækkuðu til dæmis um 58 prósent á síðasta ári. Við höfum alltaf lagt áherslu á að bærinn eigi að nýta tekju- stofna sína til þess að geta veitt góða þjónustu, sem allir eiga greiðan aðgang að. Það er mjög skýr munur á af- stöðu flokkanna til félagslegrar þjónustu, þjónustu við aldraða og börn. Ef núverandi meirihluti heldur velli er ég hrædd um að hann muni halda lengra á þeirri braut að draga lappirnar í upp- byggingu félagslegrar þjónustu og jöfnun,“ segir Sigríður. Vaxtarbroddur í háskólanum Alþýðubandalagið leggur megináherslu á eflingu atvinnu- lífs. Sigríður varar við því að menn einblíni á álver, en bendir á aðra möguleika í eflingu atvinnu. „Akureyri býður upp á fjöl- Stóriðja Kvennalistinn einn gegn álveri Alþýðubandalagið mœlir ekki gegn stóriðju að uppfylltum skilyrðum. Sjálfstœðisflokkur- inn mun vinna aðþvíað stóriðja rísi við Eyjafjörð Kvennalistinn á Akureyri hefur einn flokka tekið afstöðu gegn byggingu álvers í Eyjafirði. Aðrir flokkar eru misjafnlega áfjáðir í álver, en hafa ekki mælt gegn því. I stefnuskrá Kvennalistans segir að það sé eindregin skoðun hans að stóriðja við Eyjafjörð „sé ekki hentug ieið í atvinnumál- um“. „Við viljum að lögð verði áhersla á að byggja upp og efla almennan iðnað, sem byggir á því sem fyrir er og notar heimafengin aðföng, þ.e. hráefni frá sjávarút- vegi og landbúnaði," segir í stefn- uskránni. Eins og fram kemur í viðtali við Heimi Ingimarsson leggst Al- þýðubandalagið ekki gegn bygg- ingu álvers, en setur þau skilyrði að forræði yfir því verði íslenskt, að það verði þjóðhagslega hag- kvæmt og að mengunarvarnir verði sem fullkomnastar. í stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins er það hins vegar skýrt tekið fram að flokkurinn muni vinna að því að stóriðja rísi við Eyjafjörð. -gg marga góða kosti í atvinnumál- um, en við þurfum að efla tiltrú fólks á staðnum. Við verðum að standa vörð um þann iðnað sem fyrir er og ég vil nefna skipasmíð- aiðnaðinn sérstaklega í því sam- bandi. Ef einhvers staðar á að halda uppi skipasmíðum á íslandi þá er það í Slippstöðinni. Það væri fáránlegt af fiskveiðiþjóð að glutra niður þeirri kunnáttu sem þar er fyrir hendi. Háskólinn á Akureyri er tví- „Þar sem flokkar hafa myndað samfylkingu, hafa þeir annað hvort átt gott samstarf í meiri- hluta eða starfað saman í minni- hluta gegn sterkum Sjálfstæðis- flokki. Þessar aðstæður eru ekki fyrir hendi hér. Alþýðuflokkurinn á Akureyri hefur lúrt í skjóli Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokkur- inn hefur ekki verið nægilega vinstri sinnaður fyrir okkar smekk. mælalaust einn stærsti vaxtar- sprotinn og vonarneistinn í at- vinnumálum okkar og þar bjóð- ast miklir möguleikar. Það er nauðsynlegt að efla skólann, þjónustu hans og rannsóknir á hans vegum. Annars blasa verkefnin við okkur hvarvetna og við viljum ólm fá aðstöðu til þess að takast á við þau. Það þarf að takast á við fjölmörg verkefni í félagsmálum, menningarmálum, húsnæðismál- um og umhverfismálum." Samstillt Alþýðubandalag Víða um land hafa flokkar á vinstri væng tekið höndum saman fyrir þessar kosningar. Kom sú umræða ekki upp á Akureyri? Alþýðubandalagið á Akureyri gengur samstillt til þessara kosn- inga, við þekkjum ekki þetta sundurlyndi sem rfkir sums stað- ar annars staðar. Ég er vongóð um að okkur tak- ist að mynda vinstri meirihluta eftir kosningar, en það byggist á því að Alþýðubandalagið fái góða kosningu þrátt fyrir ný framboð. Alþýðubandalagið er í raun og veru eini kosturinn fyrir þá sem vilja starfa í anda félags- hyggju. Það er lágmark að við höldum tveimur bæjarfulltrúum, en ég minni á að við vorum nálægt því síðast að ná inn þriðja manni. Það væri verðugt verkefni fyrir vinstra fólk á Akureyri að koma Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur í bæj- arstjórn,“ segir Sigríður Stefáns- dóttir. -gg ÍÞRÓTTASKÓLI VALS Hálfsmánadar íþróttanámskeið fyrir 6-13 ára börn. Innritun er í Valsheimilinu. Verð með hádegismat: Upplýsingasímar: 12187 og 623730 Kr. 8.900,- /990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.