Þjóðviljinn - 24.08.1990, Page 19

Þjóðviljinn - 24.08.1990, Page 19
Fæðingarhríðir nýrrar vinstrihreyfingar á Ítalíu „Við lifum á tímum hraðra breytinga. Ósigur skrifræðissósí- alismans hefur opnað nýjar and- stæður í austri og vestri og hin sósíalíska hreyfing getur nú á ný orðið það alþjóðlega afl sem yfir- stígur landamæri gömlu blokk- anna...“ Þannig komst Achille Occ- hetto, formaður ítalska komm- únistaflokksins (PCI) m.a. að orði í langri ræðu sem hann flutti á miðnefndarfundi flokksins þann 23. júlí síðastliðinn. Þessi ræða formannsins markaði vissan áfanga í því dauðastríði og þeim fæðingarhríðum sem ítalskir kommúnistar ganga í gegnum þessa mánuðina, þar sem fram- kvæma á þau markmið 19. flokksþingsins frá síðasta ári að leggja flokkinn niður og stofna nýjan flokk á rústum hins gamla í samræmi við nýjan veruleika og kröfur nýrra tíma. Er stefnt að því að hinn nýi flokkur, sem í daglegu tali gengur nú undir nafninu „La Cosa“ - eða „það“ - verði stofnaður á 20. og síðasta flokksþinginu, sem halda á í jan- úar næstkomandi. Söguleg breyting Undirbúningur þessa afdrifa- ríka atburðar í sögu ítalskrar og evrópskrar verkalýðshreyfingar hefur staðið yfir undanfama mánuði með linnulausum um- ræðum, fundum og greinaskrif- um í flokksmálgagninu L'Unitá, og taka yfir 600 undirbúnings- nefndir og 110 klúbbar óflokks- bundinna vinstrimanna þátt í þessu starfi. Ágreiningsefnin eru mörg og oft sársaukafull, þannig að oft hefur legið við klofningi á milli já-manna og nei-manna - en já-menn era þau 65% flokksfé- laga sem samþykktu á síðasta flokksþingi að stíga þetta skref. Nei-menn vildu hins vegar tak- marka sig við það að gefa gamla flokknum nokkra andlitslyftingu án þess að gera róttækari upp- skurð á stefnu og starfsháttum flokksins. Rétt er að hafa í huga að þessi ákvörðun var tekin áður en Berlínarmúrinn féll, og því er ekki nema óbeint samband þar á milli. Þær aðstæður sem skapast höfðu á Ítalíu og í heiminum köll- uðu á þessa breytingu þegar í upphafi ársins 1989 og átti sér lengri aðdraganda. Hvaö er sósíalismi? En um hvað deila ítalskir vinstrimenn, og hvaða hlutverk ætla þeir hinum nýja flokki? Deilumar snúast í stuttu máli um inntak og eðli sósíalismans og lýðræðisins, tengsl lýðræðis og markaðshyggju, markaðshyggju og ríkisvalds og tengsl ríkisvalds og samfélagsins í heild. Síðast en ekki síst fjalla þessar deilur um þróun alþjóðamála í ljósi þeirra öru breytinga sem átt hafa sér stað á síðustu misserum og árum. í ræðu formannsins á mið- stjórnarfundinum er víða komið við, en áberandi er þó sú áhersla sem hann leggur á nýja alþjóða- hyggju í ljósi breyttra aðstæðna. Þannig telur hann að hernaðar- bandalög eftirstríðsáranna hafi nú runnið sitt skeið, en gera eigi Helsinki-ráðstefnuna um öryggi og samvinnu Evrópuþjóða að virkri stofnun er tryggt geti ör- yggi í álfunni með árangursríkari hætti á grundvelli þeirrar hug- sunar um sameiginlegt hús allra Evrópubúa frá Atlantshafi til Úr- alfjalla, sem Gorbatsjov Sovétl- eiðtogi mun fyrstur manna hafa sett fram. Nýjar andstæður Occhetto bendir jafnframt á að reynslan frá A-Evrópu sýni, að ekki sé hægt að horfa framhjá efnahagslegum lögmálum og hagkvæmniforsendum í nafni yfirlýstra félagslegra markmiða. Reynslan frá Vesturlöndum sé reyndar að leiða hið sama í ljós: það efnahagskerfi sem horfir framhjá umhverfisforsendum og félagslegum markmiðum muni á endanum eyðileggja þær efnis- legu, vitsmunalegu og siðferði- legu auðlindir sem séu upp- spretta allrar siðmenningar. Því takmarkast alþjóðahyggjan ekki við það að skapa Evrópubúum nýtt sameiginiegt hús er byggi á lýðræðislegum grunni, heldur þurfi að innleiða lýðræðislega starfshætti í öll alþjóðasamskipti út frá þeirri hugsun að mannkynið sé eitt og eigi sér eitt sameiginlegt hús, þar sem hver íbúi sé jafn ómissandi og allir eigi að búa við sem jafnastan rétt. Þessi hugsun kalli svo aftur á al- heimsstjórn er tryggi lýðræðis- legar samskiptareglur þjóðanna. Verðugt verkefni slíkrar stjórnar væri, segir Occhetto, að sameina þjóðir heims í því verkefni að græða upp Sahara-eyðimörkina og aflétta þar með þeirri smán hungurs og umhverfiseyðingar sem þessi heimsálfa býr við. Occhetto gengur síðan enn lengra og segir ríku iðnaðarþjóð- irnar þurfa að endurskoða neyslumynstur sitt og markaðs- hagkerfi með tilliti til umhverfis- áhrifa og misskiptingar lífsgæða á milli norðurs og suðurs. Ný alþjóöa- hyggja Occhetto segir í ræðu sinni að á meðan verkalýðshreyfingin hafi um síðustu aldamót borið fram almennar kröfur um kosningarétt og lýðræði innan ramma hins frjálsa þjóðríkis, þá verði krafan um alþjóðlegan borgararétt bor- in fram um aldamótin 2000. Þjóð- legu böndin dugi ekki lengur og barátta verkalýðshreyfingarinnar geti ekki lengur takmarkast við landamæri. Occhetto leggur' þunga áherslu á að flokkurinn þurfi að leggja megináherslu á hina nýju alþjóðahyggju og vinna henni fylgi innan ítalskrar og evr- ópskrar vinstrihreyfingar, þannig að hinn nýi flokkur verði ekki bara gagnrýninn áhorfandi held- ur virkur þátttakandi í mótun ný- rrar Evrópu innan vettvangs Al- þjóðasambands sósíalista. í því sambandi bendir Occhetto á að þær sögulegu andstæður sem ríkt hafi á milli sósíalista og kommún- ista séu nú yfirstignar á grundvelli sameiginlegs skilnings beggja að- ila á lýðræði sem forsendu sósíal- ismans. Þessi sameiginlegi skiln- ingur á sósíalisma í anda lýðræðis standi jafnframt handan þess hefðbundna skilnings að sósíal- ismi og kapítalismi séu ósættan- legar andstæður. Andhverf ur um- bótaflokkur Þessi síðasta fullyrðing for- mannsins er trúlega sú sem hvað mest hefur farið fyrir brjóstið á gagnrýnendum hans úr nei- arminum, þeim armi sem við get- um kennt við hefðbundinn „marxisma“ innan flokksins. En í þeirri deilu hefur Occhetto mátt beita mikilli diplómatískri kurt- eisi, sem stundum verður á kostn- að skírleika í málflutningi. Þannig segir Occhetto um hinn nýja flokk að hann eigi í senn að vera umbótasinnaður og „and- hverfur" (antagónískur), að hann eigi að sameina umbótasinna og andstæðinga ríkjandi kerfis. Þessi jafnvægisdans í orðavali endurómaði síðan í uppkasti að stefnuskrá hins nýja flokks, sem birt var í L‘Unitá sunnudaginn 5. ágúst s.l. Þar segir berum orðum um hinn nýja flokk að hann eigi að vera „antagonista e riformat- ore“ - eða andhverfur kerfinu og umbótasinnaður. Hinn hefð- bundni skilningur á þessum orð- um er sá, að sá sem er „antagon- isti“ sé andvígur kerfinu í grund- vallaratriðum og trúi í raun ekki á árangur umbóta. Er kapítalismi forsenda lýö- ræöis? Gagnrýnendur til „hægri“ hafa ekki setið á sér að afhjúpa þetta tvíræða orðalag. Sá sem lengst hefur gengið í þessari gagnrýni er heimspekingurinn Biagio De Gi- ovanni, sem í nokkrum greinum í L'Unitá hefur gert í því að ganga fram af hinum hefðbundna marx- íska armi flokksins. Þannig skrif- aði hann nýlega grein í flokks- málgagnið L'Unitá, sem bar heitið „Kapítalisminn er for- senda lýðræðisins". Þar bendir hann m.a. á að sagan geti ekki bent á neitt dæmi um lýðræðis- lega stjómarhætti án kapítalísks markaðshagkerfis. Þann 13. ágúst heldur Gio- vanni síðan áfram þessum hrell- ingum í garð hefðbundinna marx- ista með því að styðja fullyrðing- ar sínar rökum sem hann sækir beint í Karl Marx, nánar tiltekið ritgerð hans „um gyðingavanda- málið,“ þar sem Marx bendir á að hinn kapítalíski markaður hafi í fyrsta skipti í sögunni kallað á nauðsyn jafnræðis meðal manna í „himnaríki stjórnmálanna" og því liggi rætur réttarríkisins ein- mitt í þessu markaðshagkerfi. Giovanni segir að þessi um- ræða eigi sér tvær hliðar - eina pólitíska og eina fræðilega. Póli- tískt sé umræðan mikilvæg vegna þess að viðurkenning á þessari forsendu sé sá eini grundvöllur sem vinstriöflin geti sameinast um. Umbótaflokkur sé mark- leysa ef hann viðurkenni ekki að það þjóðfélagskerfi sem hann er ángi af sé bætanlegt. GuÖ og djöfull Og hann bætir um betur: Þeir sem ekki trúa á umbætur og líta á hið kapítalíska markaðshagkerfi sem djöfullegan óvin, þeir þurfa þá eitthvað annað en umbætur. Aðeins Guð almáttugur getur kveðið djöfulinn niður og hvem- ig eigum við þá að bera okkur að á þessum guðlausu og spámanns- lausu tímum? Og Giovanni vitnar í Gramsci, guðföður ítalska kommúnistafl- okksins, og segir hann hafa kennt flokksmönnum að veruleikinn væri flóknari en hin svarthvíta heimsmynd stalínismans hefði boðað með sínum djöflum og guðum. Giovanni líkir nei- mönnunum úr minnihlutaarmi flokksins við draumóramenn og dulspekinga sem hugsi sér mann- legt frelsi í tómarúmi og geti ekki skilið að lýðræðið er aldrei og verður aldrei altækt og fullkomið, heldur ávöxtur sí- felldrar baráttu, sem háð sé við ákveðnar sögulegar og hlutlægar aðstæður. Um leið og umbóta- hyggjan sé látin víkja fyrir „ant- agónisma“ dæmi flokkurinn sig úr leik, ekki bara við þann mögu- leika að binda enda á 50 ára valdaeinokun Kristilegra dem- ókrata á Ítalíu, heldur dæmi hann sig úr leik við veruleikann sjálf- an. Óforbotrovtlogur verukotki Þessi gagnrýni heimspekings- ins, sem hér hefur verið rakin, gengur trúlega lengra í bersögli en flokksformaðurinn Occhetto mundi játast opinberlega. En trú- lega er hann ánægður með fram- lagið á bak við tjöldin. Gagnrýnin hjálpar formanninum í raun í þeirri viðleitni hans að draga flokkinn niður á jörðina til átaka við nýjan veruleika. Því ábyrgðin á 50 ára stjómareinok- un Kristilega demókrataflokks- ins á Ítalíu hvflir kannski ekki síður á þeirri draumórakenndu áráttu ítalskrar verkalýðshreyf- ingar og leiðtoga hennar að líta á þjóðfélagsveruleikann sem „óforbetranlegan“, og því þurfi að skapa manninum frelsi, í því himnaríki sem kommúnistar kenndu við bóndann í Kreml, ka- þólikkar við Jesúm Krist. í augum gömlu kommúnistanna var það höfuðsynd ítalskra sósía- lista að trúa ekki á þetta himnar- íki frelsisins. Það er ekki síst verkefni Achille Occhetto að færa ítalska verkalýðshreyfingu af hinu himneska sviði trúar- bragðanna niður í jarðneskt sam- býli við syndum spillta og guð- lausa sósíalista. Árangur í því starfi er trúlega forsenda þess að ítalskt lýðræði komi úr blindgötu 50 ára valdaeinokunar. Porto Verde, 14. ágúst Ólafur Gíslason Frá Ólafi Gíslasyni fréttaritara Þjóðviljans i Porto Verde Föstudagur 24. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.