Þjóðviljinn - 24.08.1990, Side 23
Róbotar
og salamöndrur
kom galdramaðurinn sjálfur á
síðustu stundu? Ég man það
ekki).
Uppreisn
gervimanna
Þetta þema er sterkt í verkum
Capeks. Árið 1921 var frumflutt
leikrit eftir þá bræður báða sem
hét RUR (Rossum‘s Universal
Robots - héðan er reyndar komið
alþjóðlega orðið yfir vélmenni,
robot, en orðið er dregið af
slavneskri sögn: að vinna). RUR
segir frá hópi vísindamanna sem
framleiða vélmenni eftir formúlu
sem sérvitur vísindamaður fann
upp í hrokafullri viðleitni sinni
við að leika guð. Vélmennin eru
alveg eins og fólk í útliti, nema
sálarlaus og kosta sama og ekkert
í rekstri (þurftu ekki einu sinni að
éta). Um leið og þau yfirtóku
smám saman erfið störf manna og
sköpuðu mikinn auð og velsæld,
urðu þau líkari mönnum, gerðu
að lokum uppreisn gegn þeim og
útrýmdu þeim sem eftir voru
Einnig ótti við uppreisn ör-
eiganna: uppreisn róbotanna
undir lokin ber reyndar ávæning
af byltingu bolsevíka í Rússlandi,
sem þá var nýlega af staðin. Og
sama margræðni er reyndar á
ferð í því verki Capeks sem ís-
lendingar þekkja best, en það er
skáldsagan Salamöndrustríðið,
sem birtist árið 1936. Sagan kom
út tíu árum síðar hjá Máli og
menningu í íslenskri þýðingu Jó-
hannesar úr Kötlum.
Skepnan vinnur á
skapara sínum
Salamöndrustríðið er giska
skemmtileg bók: þar er beitt í
senn brögðum reyfarans, blaða-
mennskunnar, skýrslunnar, rit-
gerðarinnar - um leið og allt
þetta er skopfært á hugvitssam-
legan hátt. Skipstjóri á hollen-
skum dalli, van Toch (sem
reyndar er Tékki og heitir Van-
toch), finnur í Suðurhöfum sal-
amöndrutegund, sem hægt er að
kenna að veiða pelur og nota ver-
I tilefni aldarafmælis
Karels Capeks
(mannkynið var reyndar orðið ó-
frjótt af iðjuleysi hvort eð var).
Og það sem verra var: töfraform-
úlan fyrir framleiðslu róbota var
líka týnd, vísindamennirnir gátu
ekki einu sinni keypt sér líf með
því að afhenda hana. Allt væri nú
dauðadæmt, menn og vélmenni -
ef ekki yrði þess vart að tvö vél-
menni, Helena og Primus, eru
farin að finna til „mennskrar“
ástar: Adam og Eva eru fædd á
ný, sagan getur byrjað á nýjan
leik....
Hér er Capek í félagsskap
þeirra ágætu höfunda sem sáu í
samtímaþróun fyrst og fremst
hrollvekju. Og fór þá saman
margt: ótti við tækni sem fer úr
böndum, ótti við ábyrgðarleysi
vísindamanna (þeir „barasta“
framleiða róbota en hugsa aldrei
um það til hvers er hægt að nota
þá), ótti við þægindagræðgina
(menn héldu áfram að fjölga vél-
mennum hvað sem á gekk, vegna
þess að það var svo miklu þægi-
legra að láta þá vinna verkin).
kfæri. Seinna meir er hægt að
kenna þessum gáfuðu litlu sæs-
krýmslum að tala og hugsa (ein af
mörgum hliðstæðum við leikritið
um vélmennin: hvorttveggja líkj-
ast mönnum æ meir eftir því sem
á líður). Blöð og kvikmynda-
menn hella sér yfir þessi undur
eins og vænta mátti (Capek fær
m.a. gott tækifæri til að skjóta á
starfsbræður sína í blaða-
mennsku). Vísindamenn krukka
í salamöndrur og gefa lærðar
skýrslur. En það sem mestu
skiptir er það, að bisnessmenn
renna á peningalyktina og stofna
salamöndruhringa til að ala upp
og höndla með það ódýra vinnu-
afl sem salamöndrurnar eru -
ekki aðeins við hafnagerð og stíf-
lugerð, heldur og við hverskyns
framkvæmdir og framleiðslu
aðra. Ríkisstjórnir taka salam-
öndrur í þjónustu herja sinna og
flota. Upp hefst mikil gullöld,
salamöndrutíð velgengni og
framfara og auðsældar. Allt þar
til salamöndrurnar, sem fyrir tils-
Hús Capekbræðra I Prag.
Föstudagur 24. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23
tilli manna og þess hlutverks sem
þær hafa fengið í heiminum, eru
orðnar margfróðar og vel tækni-
væddar, gera uppreisn gagn
mannkyninu. Þær sprengja
strendur meginlanda í sundur til
að mynda grunna flóa þar sem
„lífsrými" er fyrir sívaxandi
fjölda salamandra. Mannkynið
er í hættu og virðist dæmt til að
bíða ósigur. Ekki síst vegna þess
að ríkin geta ekki stillt saman
krafta sína og alltaf eru það ein-
hverjir sem ætla sér að græða á
því að láta salamöndrurnar fá
ýmsar þær mannlegar afurðir sem
þær geta ekki verið án. Fimmti
hluti Evrópu er kominn í kaf. Og
þótt Tékkar hafi alltaf haldið að
„þær komast aldrei hingað yfir
fjöllin" þá lýkur sögunni á að
gamall Tékki sér salamöndru
stinga upp sínum ljóta haus upp
úr Moldá í miðri Prag: og boðar
það ekkert gott fyrir þá gullnu
borg.
Nasisminn
og margræðnin
Eins og fyrr var getið er Salam-
öndrustríðið skrifað 1936, nas-
isminn þýski er í mesta uppgangi
og komst yfir fjöllin og til Prag
árið sem Capek dó - þá var í
Munchen búið að svíkja Tékkó-
slóvakíu, sem var svo endanlega
hemumin í ársbyrjun 1939. Vita-
skuld hafa menn vegna þessa til-
hneigingu til að líta svo á að sal-
amöndrurnar eigi fyrst og fremst
að tákna nasismann: það er ekki
síst viðbrögð manna við salam-
öndruháskanum í skáldsögunni
og fasismahættunni í veruleikan-
um sem eru mjög svipuð. En nú
kemur að því sem einna drýgst
verður til að halda lífi í bókum;
en það er margræðnin. Salam-
öndrustríðið mundi varla vekja
forvitni nú um stundir ef það
mætti einungis tengja við nasism-
ann þýska. Salamöndrurnar eru
hinsvegar miklu fleira.
Allar mennskar
dellur
Salamöndrurnar eru tækifæri
sem Capek nýtist prýðilega til að
fara með háð um allt mögulegt:
um tékkneska smáþjóðaránægju,
um kjaftháttinn í vinsælum dag-
blöðum, um góðgerðarstarfsemi
(kvenfélög til eflingar siðgæðis
meðal salamandra). Um tískuæs-
ingar í listum (um tíma er öll mús-
ík salamöndrumúsík) og um trú-
ardellur: fundin er upp trú á Stór-
salamöndruna sem fylgt er eftir
með miklum seremóníum - en
trúarbrögð þessi breiðast miklu
heldur út meðal manna en salam-
andra. Afskipti manna af salam-
öndrum eru og ádrepa á t.d.
grimmd vísindamannanna sem
hakka þessi greindu kvikindi í
spað og láta þau liggja í allskonar
eitri og ólyfjan til að kanna við-
brögð þeirra: eiginlega gerist
Capek sjaldan spámannlegri en í
vísindaskýrslunum í sögunni sem
eins og segja fyrir um tilraunir
þýskra nasista á lifandi gyðingum
í fangabúðum sínum.
Margar syndir
mannkyns
Meiru varðar þó af hve mikilli
lævísi Capek lætur salamöndr-
umar sjálfar breyta um táknræna
stöðu í sögunni. Framan af em
þær eins og arðrændur nýlendul-
ýður, þrælar sem menn fara með
eins og þeim sýnist. Síðan eru
þeir iðnverkalýður í þróuðum
kapítalisma. Þessu næst verða
þeir Pjóðverjar sem hafa tekið
fagnaðarerindi nasismans og ætla
í stríð við mannkynið, svo sem
fyrr segir. En framar öllu era þeir
það sem gerist þegar mannfólkið
fer að leika guð - eða þá lærisvein
galdramannsins. Þær era við-
vöran um það hvað það kostar að
rjúfa lífkeðjuna í ábataskyni. Þær
eru viðvörun um tækni og fram-
farir sem snúast gegn tilgangi sín-
um: á okkar dögum gætum við
líkt bílamergðinni sem allt ætlar
að drepa við salamöndrar Cap-
eks, eða þá að þær era efnaiðnað-
urinn og mengun hans, eða at-
ómbomban ef vill. Þær eru
hrollvekja um hugsunarhátt, sem
lætur fyrri verðmæti lönd og leið
og trúir á magnið eitt saman. Eða
eins og í sögunni segir:
„Hinir sjálfsvissu menn salam-
öndratímabilsins munu ekki eyða
tímanum í bollaleggingar um eðli
hlutanna, þeir munu einungis fást
við tölur og múgframleiðslu. Öll
framtíð heimsins er undir því
komin að framleiðslan og neyslan
aukist í sífellu, þess vegna þarf
líka fleiri salamöndrur til þess að
þær geti framleitt meira og étið
meira...Nú fyrst getur mannleg
skarpskyggni notið sín til fulls,
því nú starfar hún í heildsölu með
þrautnýttum framleiðsluhæfi-
leikum og eftir mettæku hagfræð-
ikerfi...“
Merkilegt að hugsa til þess að
þessi orð era skrifuð fyrir um það
bil fimmtíu og fimm áram....
Capek um blaðamennsku
Ég lít svo á, að starf mitt við blaðamennsku hati
marga kosti: það neyðir mig til að sýna áhuga öllum
sköpuðum hlutum, stjórnmálum, atvinnulífi, (þrótt-
um, uppákomum dagsins osfrv. f þessu starfi er
víðtækt samband við mannlífið sem lætur þeim líða
vel sem situr við skrifboð sex-átta stundir á dag. Ég
kann vel að meta það, að blaðamennskan hlýtur að
krefjast þess að menn séu alltaf viðbúnir. Maður
getur ekki beðið eftir innblæstri eða þv( að komast (
hentugt skap til að skrifa: maður verður að skrifa og
gera sitt besta, eins þótt hugurinn standi til annars
þá stundina. Ég hefi alltaf tekið blaðamennsku m(na
jafn alvarlega og bókmenntaskrifin...
Ég óska öllum rithöfundum þess að þeir gangi í
gegnum skóla blaðamennskunnar til þess að læra
að hafa áhuga á öllu. Að því er bókmenntir varðar,
þá tek ég það nærri mér að rithöfundurinn er venju-
lega lokaður inni í sínum eigin afmarkaða heimi.
Maður verður að skima í allar áttir og sýna öllum
heimi áhuga, ekki aðeins tiltekinni sneið af honum.
Capek um bókmenntir
Það er alltaf verið að búa til forskrift fyrir bók-
menntirnar. Þær eiga að vera byltingarsinnaðar.
Eða standa vörð um þjóðleg verðmæti. Eða taka
innblástur sinn frá veruleikanum. Eða ná út fyrir
veruleikann. En enginn ber fram þá kröfu, að bók-
menntirnar eigi, þegar á heildina er litið, að vera jaf n
margbreytilegar og flóknar og veruleikinn, eins og
Manneskjan, eins og samtíminn, eins og heimurinn.
Og í þessum raunverulega heimi er einnig rúm fyrir
drauma og hugarflug, jafnvel flóttaleiðir; hvaða iög-
regla er það sem hafi rétt til að koma í veg fyrir það
að mennsk sál flýi inn í sjálfa sig, inn í bernsku sína,
inn ( víddir geimsins eða til Guðs? Við skulum af-
henda bókmenntunum ekki rétt heldur skyldu til að
halda augum opnum fyrir hvaða veruleika sem er,
einnig hinum persónulegasta innra heimi. Hlutverk
bókmenntanna er að vera sífellt að uppgötva Mann-
inn, dæma hann, verja hann og hylla hann; það eina
sem bókmenntir eiga að gera er að kynnast Mann-
inum á þúsund vegu. Ekkert má banna sem leiðir til
Mannsins. Og enga forskrift má gefa, ef menn vilja
komast hjá því að gera bókmenntirnar barasta að
farartæki til að renna á eftir troðnum slóðum.