Þjóðviljinn - 24.08.1990, Qupperneq 25
Veitingastaðurinn 22, Inga Sólveig:
Ijósmyndasýningin „Hnignun". Opið
virka daga kl. 11:00-01:00 og um
helgarkl. 18:00-03:00.
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
má kl. 10-18. Prentminjasýning í Mið-
húsi, kaffi í Difenshúsi, Krambúð, og
stríðasárasýningin: „Og svo kom
blessaðstríðið“.
Ferstikluskáli Hvalfirði, RúnaGísla-
dóttir sýnir vatnslita-, akryl-, og klippi-
myndir. Opið fram til kl. 23 dag hvern.
Gallerí 11, Skólavörðustíg 4a, Dani-
elle Lescot opnar sýningu á málverk-
um og skúlptúrum á lau kl. 15. Opið
alladagafrákl. 14-18.
Gailerí 8, Austurstræti 8, sýnd og
seld verk e/um 60 listamenn, olíu-,
vatnslita-, og grafíkmyndir, teikning-
ar, keramík, glerverk, vefnaður, silf-
urskartgripir og bækur um íslenska
myndlist. Opið virka daga og lau kl.
10-18 og su 14-18.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opið lau 10-14.
Gallerí Nýhöfn, Eyjólfur Einarsson
sýnir málverk í tilefni af 50 ára afmæli
sínu. Opin virka daga nema má kl.
10-18 og um helgar kl. 14-18, til 5.9.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9: Halldóra Emilsdóttir sýnír myndir
unnar með gvasslitum á pappír. Sýn-
ingin er opin á verslunartíma kl. 9-18
ogstendurtil31.8.
Hafnarborg, nýr sýningarsalur;
Sverrissalur: sýning á verkum úr list-
averkasafni hjónanna Sverris
Magnússonarog IngibjargarSigur-
jónsdóttur, sem þau gáfu safninu.
Opið alla daga nema þri kl. 14-19, til
27.8. Ath. síðasta sýningarhelgi.
Kjarvalsstaðlr, September-Septem,
opnun yfirlitssýningar á verkum
Septem-hópsins á lau kl. 16. Yngri og
eldri verk alls 16 myndlistarmanna
bæði í austur- og vestursal. Opið
daglegafrákl. 11-18.
Llstasafn Einars Jónssonaropið
alla daga nema má 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-17.
Llstasafn Háskóla íslands, Odda.
Sýning á öllum hæðum á verkum í
eigu safnsins. Opið daglega kl.
14:00-18:00. Aðgangur ókeypis.
Hvað á að gera um helgina?
Listasafn íslands, sumarsýning á
íslenskum verkum í eigu safnsins.
Opið daglega kl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. áandlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau ogsukl. 14-18, má,þri,mi
og fi kl. 20-22. Tónleikar á þriðju-
dagskvöldum kl.20:30.
Menntamálaráðuneytið, Húbert Nói
og Þorvaldur Þorsteinsson. Út þenn-
an mánuð.
Minjasafn Akureyrar, Landnám í
Eyjafirði, heiti sýningar á fornminjum.
Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9. í
Laxdalshúsi Ijósmyndasýningin Ak-
ureyri, opið daglega kl. 15-17.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su
14-16.
Norræna húsið, kjallari: Snorri Arin-
bjarnar, málverk. Opin 14-19 dag-
lega, til 26.8. Ath. síðustu sýningar-
dagar.
Skálholtsskóli, Gunnar Örn Gunn-
arsson, sýningin SumaríSkálholti,
opinjúlí-ágústkl. 13-17.
Slúnkaríki, ísafirði: Páll Sólnes sýnir
ný málverk. Sýningin er opin fi-su kl.
16-18, til 2.9.
Smíðagalleríið Mjóstræti 2b og
Pizzaofninn Gerðubergi: Þorsteinn
Unnsteinsson með sýningu á báðum
stöðum. Olíupastel og akrýlmyndir.
Smíðagalleríiðopiðmá-fökl. 11-18
oglau kl. 11-15, Pizzaofninn alla
dagakl. 11:30-23:30, til 19.9.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, sumarsýning á olíu-
myndum og vatnslitamyndum. Opið
alladaganemamákl. 13:30-16.
Þrastalundur, Aðalbjörg Jónsdóttir
sýnirolíuverk, pastel-og vatnslita-
myndir auk handprjónaðra kjóla úr
ísl. ull. Opið kl. 9-22.30 alla daga, til
26.8.
Eitt verka frönsku listakonunnar Danielle Lescot, sem opnar sýningu á
málverkum og skúlptúrum í Gallerí 1 1 við Skólavörðustíg 4a á morgun
kl. 15.
Tómas R. Einarsson
tónlistarmaður
Ég ætla að spila í Heita pottinum í Duus-húsi ásamt Frakkanum Olivier
Manouery og fleirum á sunnudagskvöldið. Á laugardag og sunnudag
verð ég trúlega á kafi í að fara yfir smásögur sem ég var að þýða og
ganga frá eftir Isabel Allende. Eva Luna segir frá heitir bókin og er safn
23 smásagna, sem komu út í mars síðastliðnum. Mál og menning
gefur bókina út í haust. Þaö er sem sagt kontrabassinn og bókin sem
eru á dagskrá helgarinnar hjá mér.
TÓNLISTIN
Sigurður Halldórsson selló og Dan-
íel Þorsteinsson píanó flytja kafla úr
verkum e/Beethoven, Brahms, Bocc-
herini, Fauré o.fl. í samkomusal
barnaskólans á Húsavík á su kl. 17.
Helti potturinn, Duus-húsi su kl.
21:30, fjölþjóðlegur kvartett: Olivier
Manouraybandoneonleikari.Tómas
R. Einarsson á kontrabassa, Kjartan
Valdimarsson á píanó og Marteen
van der Volk á trommur.
LEIKLISTIN-
Ferðaleikhúsið, Tjarnarbíói Tjarn-
argötu 10E, Light Nights, í kvöld, lau
ogsu kl. 21.
HITT OG ÞETTA
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni ámorgun lau, lagtaf staðfrá
Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum mola-
kaffi. Púttvöllurinn á Rútstúni öllum
opinn.
Útivlst, helgarferðir: Farið í Bása á
Goðalandi í kvöld kl. 20, brottför frá
BSl-bensínsölu. Dagsferð í Bása á su
kl. 08. Þórsmerkurgangan 14. áfangi
su kl. 08. Fjallahringsgöngur 8. ferðin
su kl. 13. Hjólreiðaferð sama dag kl.
13:30 um Elliðavatn.
Ferðafélag Islands, helgaferðir 24,-
26.8:1 .Þórsmörk (gist í Skagfjörðs-
skála). 2. Landmannalaugar-Kraka-
tindsleið-Álftavatn. Dagsferðir su:
Þórsmörk kl. 08. Geysir-Hólar-Sandá
kl. 09. Hagavatn-Ökuferð kl. 09.
Brottferðirfrá BSf-austanmegin.
Kvikmy ndaklúbbur fslands, Sýkt
blóð e/Leos Carax kornungan fransk-
an leikstjóra í Regnboganum á lau kl.
15ogmákl.21.
Nessöfnuður, árleg slðsumarsferð
lagt af staðfrá kirkju kl. 10álau. Farið
í Borgarfjörð og berjaspretta könnuð.
Áð að Reykholti. Fararstjóri erséra
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Norræna húsið, fyrirlestrar um mál-
efni Finnlandssvía á su kl. 16. Jan
Rosqvist talar um störf og verkef ni
Landsmálaþings Finnlandssvía, og
Chr. Brandt segir frá ýmsu varðandi
Finnlandssvía. Auk þess flytur Ralf
Nordgren frumsamin Ijóð, og Ijóð eftir
aðra höfunda. Tónlist verður flutt af
snældum og kvikmynd sýnd af mynd-
bandi.
Ari Trausti
Guðmundsson
Nú andar suðrið...
Síðastliðið sumar hagaði
veðri oft þannig til hér á landi að
allstíf suðvestanátt blés utan af
hafi á sunnan- og vestanverðu
landinu, gjaman með skúrum.
Hiti var ekki nógu þægilegur, ein
10 stig eða svo. En samtímis var
góðviðri hið mesta t.d. á NA-
landi, léttskýjað og 15-20 stiga
lofthiti. Aðalorsök þessa er ferli
sem fylgir svonefndum hnúkaþey
en það er íslenskun orðsins föhn í
veðurfræði.
Föhn er orð úr þýskumælandi
löndum og er langt komið með að
verða alþjóðlegt, en í öðrum lönd-
um er vindurinn einnig þekktur
undir öðrum nöfnum. Hnúkaþeyr
og það sem honum fylgir skiptir
verulegu máli, einkum í löndum
sem eru fremur hálend og þar sem
tiltekin vindátt er aðalúrkomuátt-
in.
Skoðum hvað gerist. Þegar
rakt hafloft kemur að suður-
ströndinni, leitar það upp vegna
hálendisins. Raki þéttist í því og
losnar þá vanni. Það er úrkoma á-
veðurs á landinu og loftið kólnar
aðeins um 0,6 stig fyrir hveija
100 metra sem það lyftist (ætti að
kólna hraðar en umræddur varmi
sér til að svo fer ekki). Hlémegin
sígur loftið af hálendinu til
strandar og nú hlýnar það sem
þurrt loft og þá um 1 stig fyrir
hveija 100 metra.
Loftið kemur því hlýrra til
Vopnafjarðar eftir salíbunu yfir
landið en það kom að Reykjavík.
Munurinn getur verið mörg stig.
Suðlægar áttir með tiltölulega
hlýju og mjög röku lofti skila þess
vegna verulegum hlýindum norð-
ur. Úrkomuáttin fyrir norðan, þ.e.
norðlæg átt, er bæði kaldari og
venjulega eitthvað þurrari en hin,
og því hefur hnúkaþeyrinn ekki
eins mikið gildi fyrir okkur á
sunnanverðri eyjunni.
Sunnlendingar sem koma
sjaldan norður fúrða sig á firemur
hvössum og funheitum fjallvindi í
norðlenskum fjörðum og dölum -
og sólskini með. Á móti geta þeir
sjaldfengnu úr norðlenska gesta-
hópnum fýrir sunnan lyft brúnum
vegna hrollkaldrar norðanáttar í
bjartviðrinu í
miðbæ Reykja-
víkur (hann ligg-
ur illa við vind-
streng af Esju-
slóðum).
Víða um
land má sjá eitt
og annað sem að
hluta má þakka
ferlum tengdum
hnúkaþey. Frem-
ur vöxtulegur
gróður hátt yfir
sjávarmáli norð-
austan Vatnajök-
uls er eitt dæmi, annað eru ágæt
vaxtarskilyrði barrskógar á Hér-
aði. Það þriðja gæti verið munur á
úrkomu og líklega fjölda sólar-
stunda í Skaftafelli annars vegar
og að Kviskeijum, austan Öræfa-
jökuls, hins vegar. Munur á gróð-
urfari er líka nokkur. Fleira mætti
nefna, en skal látið ógert.
Önnur vindgletta tengist upp-
hitun og kólnun lands og sjávar
við strendur. Flestir þekkja heldur
hvimleiða hafgolu sem fer oft
vaxandi er líða tekur á annars
prýðilega sólardaga við strönd.
Það sem hér um ræðir er þetta:
Land hitnar hraðar í sólarljósinu
en hafið. Þá stígur heita loftið
beint upp yfir landinu, en kaldara
sjávarloft leitar til jafnvægis inn
yfir ströndina. Úrþessu getur orð-
ið strekkingur sem gefur sig þeg-
ar sól tekur að lækka á lofti og
gerir þá stundum logn að kvöldi,
rétt eins og var fyrr um mcrgun-
inn.
Á nóttunni tapar jörðin varma
hraðar en haf og þá snýst dæmið
við: Golan blæs út yfír ströndina,
en flestir amast ekki við slíku því
þeir eru í fastasvefni. Áhrifa haf-
og landgolu gætir minna því
lengra sem dregur ffá ströndinni
og þess vegna finnst manni oft
hlýrra og notalegra t.d. á Þing-
völlum en í Reykjavík, 40 km frá
ströndu - þ.e.a.s. ef ekki gætir
„vatnsgolu” frá Þingvallavatni af
sömu ástæðu og fyrr er getið.
Föstudagur 24. ágúst 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25