Þjóðviljinn - 14.09.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Qupperneq 3
Margir um hituna Nú er útrunninn frestur til að skila inn umsóknum um stöðu leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur. Alls sóttu þrettán um stöðuna, og er vart á nokkurn hallað þótt Bryndís Schram sé sögð frægust um- sækjenda. Aðrir sem vonast til að taka við af Hallmari Sig- urðssyni núverandi leikhús- stjóra eru þau Bríet Héðins- dóttir leikstjóri, Viðar Egg- ertsson leikstjóri, Sigurður Hróarsson leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Signý Pálsdóttir, blaðafulltrúi Þjóð- leikhússins, Gunnar Gunn- arsson leikhúsráðunautur L.R., Jón Hjartarson leikari, Hlín Agnarsdóttir, leikstjóri, María Kristjánsdóttir leik- stjóri, Pétur Einarsson leikari, Þórhildur Þorleifs- dóttir, leikstjóri og þingkona Kvennalistans, Hafliði Arn- grímsson leikhúsfræðingur og Guðjón Pedersen leik- stjóri sóttu um saman, og Sig- rún Valbergsdóttir leikstjóri. Eftir helgi verða viðtöl við um- sækjendur, síðan verður gerð skoðanakönnun meðal starfsfólks Leikfélagsins um afstöðu þeirra til umsækj- enda. Þá fjallar stjórn félags- ins um málið, og fyrir lok októ- ber verður haldinn aðalfund- ur. Ákvörðun stjórnarinnar er síðan háð samþykki aðal- fundarips.B Atvinnulaus forseti bæjarstjórnar Einsog komið hefur fram í fréttum er Jóna Ósk Guð- jónsdóttir forseti bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar meðal fjölmargra umsækjenda um stöðu forstöðumanns hús- næðisnefndar í Hafnarfirði. Ljóst er að meirihluti húsnæð- isnefndarinnar er ekki með því að Jóna Ósk fái stöðuna en hinsvegar er meirihluti krata í bæjarstjórn með því að hún fái hana. Húsnæðis- nefndin hefur ekki enn tekið afstöðu til umsóknanna, en fyrr getur bæjarstjórn ekki af- greittmálið. Þráttfyrirþaðhef- ur Jóna Ósk sagt stöðu sinni á Þjóðminjasafninu lausri.B Apple Macintosh tölvur á afsláttarverði Nú er komið að næstu afgreiðslu Apple Macintosh-tölvanna, skv. ríkissamningi Innkaupastofnunar ríkisins og Apple-umboðsins, sem veitir kennurum, nemendum á háskólastigi, nemendum V.Í., ríkisíyrirtækjum, ríkisstofnunum, sveitarfélögum landsins og starfsmönnum þeirra allt að 36% afslátt. Tilboðsverð Listaverð Afsl. Tilboðsverð: Listaverð: Afsl. Tölvur: Macintosh n samstæður frh.: Macintosh Plus lMB/ldrif 67.000 72.000 7% Macintosh IIci 4/40 Macintosh SE 1/40 130.000 150.900 14% Litskjár, skjástandur,st. lyklab. 435.104 618.700 29% Macintosh SE 1MB/2 FDHD 141.773 198.000 28% Macintosh Ilfx 4/80 Macintosh SE 2/40/1 FDHD 194.291 274.000 29% Litskjár, spjald, skjástand.,st. lyklab. 626.204 892.800 30% Macintosh SE/30 2/40 209.966 296.000 29% Macintosh SE/30 4/40 234.231 328.000 29% Macintosh Portable 1/40 273.334 386.000 29% Prentarar: Dæmi um Macintosh n samstæður: ImageWriter II 44.042 59.000 25% Macintosh IIcx 2/40 Personal LaserWriter SC 123.132 162.000 24% Sv/hv skjár, spjald, skjástand., st. lyklab. 358.945 509.000 29% Personal LaserWriter NT 188.545 254..000 26% Macintosh IIci 4/40 LaserWriter IINT 253.958 348000 27% Sv/hv skjár, skjástandur, st. lyklaborð 397.723 565.000 29% LaserWriter II NTX 291.337 402.000 28% Við vekjum sérstaka athygli á verði Macintosh Plus- og Macintosh SE-tölvanna, sem gildir aðeins á meðan birgðir endast, en sala á þeim tölvum hefur verið gífurleg undanfarnar vikur. Pantanir berist Birni Guðjónssyni 1 A ~ r\*\±r\**% 1%r\j* \C\Í\ íInnkaupastofnunríkisinsfyrir \l). SCptCÍIlDCr 7U Innkaupastofnun ríkisins Borgartúni 7, sími 26844 Radíóbúðin hf. Sími: (91) 624 800 Apple-umboðið Skipholti 21,105 Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.