Þjóðviljinn - 14.09.1990, Page 8
NÝTI
þJÓOVILJINN
Utgefandi; Otgálufélag bjóðviljans
Framkvæmdasíóri: Hailur Páll Jónsson
Ritstjórar. Ámi Bergmann, ÓlafurJJ. Torfason
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson
Útlit: Pröstur Haraldsson
Auglýsingastjóri: Steinar Haröareon
Afgreiðsla: * 68 13 33
Augiýsingadetid: ® 661310 - 6813 31
Sfmfax: 68 19 35
Verð: 150 krönur f lausasölu
hf.
Prentun: Oddi hf.
Aðsetur: Slöumúla 37,108 Reykjavlk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Evrópa
Evrópa eftirstríösáranna er að kveðja. Heims-
styijöldinni síðari er formlega lokið. Fulltrúar fjór-
veldanna, sigurvegara stríðsins, undirrituðu í
Moskvu í fyrradag ásamt fulltrúum þýsku ríkj-
anna samning sem felur í sér formlega viður-
kenningu á sameiningu Þýskalands á ný. 1. októ-
ber næstkomandi verður síðan undirritaður (
New York samningur sem staðfestir endapunkt-
inn á þeim réttindum og skyldum sem Ijórveldin
hafa haft í Þýskalandi undanfarin 45 ár. Og 3.
október sameinast Austur- og Vestur- Þýska-
land.
Aðdragandi þessara miklu tímamóta hefur
verið hraður. Þrátt fyrir ýmiss konar aðlögunarerf-
iðleika og vandamál sem upp koma vegna sam-
einingarinnar, bæði varðandi efnahagsmál, lög-
gjöf og stefnu í ýmsum málaflokkum, þarf enginn
að efast um að af Þjóðverjum er þungu fargi létt.
Endursameiningin hefur verið eitt einlægasta
hjartans mál þýsku þjóðarinnar. Hins vegar er á
það að líta, að víða í öðrum evrópskum löndum
eru stórir þýskumælandi íbúahópar, sem sumir
hverjir líta enn nokkrum vonaraugum til þess að
geta komist í einhvers konar sterkari tengsl við
Þýskaland framtíðar.
Vestur-Þýskaland hefur gegnt lykilhlutverki í
efnahagsmálum Evrópu að undanfömu. Staða
þýska marksins og stefna þýska seðlabankans
hafa markað framvinduna, svo mjög að sumum
þjóðum Evrópubandalagsins hefur þótt nóg um.
Ýmsum gengur erfiðlega að sætta sig við það
forystuhlutverk. Og þrátt fyrir kostnað þann sem
fellur á Þjóðverja af ýmsum orsökum vegna end-
ursameiningarinnar, er Ijóst að sameinað Þýska-
land verður risinn í Evrópu. Það er því vanda-
samt og ábyrgðarmikið hlutverk sem bíður
þýskra stjómmálamanna. Aðrar þjóðir munu
fylgjast af mikilli athygli með öllum þeim sveiflum
og tilhneigingum sem fram munu koma hjá Þjóð-
veijum.
Rækilegt uppgjör þýsku þjóðarinnar við fasis-
mann og harmleik síðari heimsstyrjaldarinnar
hefur þrátt fyrir allt ekki útrýmt allri tortryggni í
garð hennar. Þess er því að vænta, að öfga-
kennd viðbrögð gagnvart minnsta vötti af raun-
verulegum eða ímynduðum stórmennskutilburð-
um Þýskalands næstu ára eigi eftir að koma fram
víða um heim. Þjóðverjar verða að lifa við þá tor-
tryggni um nokkurt skeið með umburðariyndi og
reyna eflaust einnig að skapa sér sterka og já-
kvæða ímynd á vettvangi þjóðanna. Vestur-
Þýskaland hefur vissulega rutt brautir í ffamfara-
málum undanfama áratugi og er nærtækt að
benda á skelegga frammistöðu þeirra í umhverf-
ismálum, bæði hvað varðar löggjöf og fram-
kvæmdir. Framlag þeirra í menningannálum hef-
ur líka verið athyglisvert. Islendingar hafa notið
góðs af slíkri samvinnu við Þjóðveija með ýms-
um hætti, t.d. á sviði sjónvarps og kvikmynda,
svo ekki sé minnst á starfsemi Goethe-stofnunar-
innar í Reykjavík. Og um þessar mundir fer fram
viðamikil kynning á íslenskum bókmenntum og
menningu í Þýskalandi.
Það er væntanlega öllum gleðiefni að Evrópa
skuli á ný geta lifað og dafnað við eðlileg skilyrði,
með frjálsum samskiptum í öllum málaflokkum,
ferðalögum og samvinnu. Ástæða er til að ætla,
að hennar geti beðið nýtt blómaskeið, enda mun
ekki af veita nú þegar viðskiptablokkir Ameríku
og Asíu festast í sessi.
Á þessum tímamótum leitar hugur margra (s-
lendinga eflaust til vordaga 1940, þegar óljóst
var, hvort ísland gæti lent á áhrifasvæði Þjóð-
verja eða Breta. Þór Whitehead sagnfræðingur
riflar það upp í nýjasta tölublaði Nýrrar sögu, að
1939 taldi breska herráðið nær þarflaust með öllu
að skapa sér aðstöðu á íslandi. En tæpu ári síð-
ar hemámu 850 Bretar ísland með 10 fallbyssur
og létt handvopn í farteskinu. Og þar með
slöngvaðist (sland inn í Evrópu með nýjum hætti
og í þann hóp sigurvegara sem nú álíta sögulegu
hluverki sínu á því sviði lokið.
8 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. september 1990