Þjóðviljinn - 14.09.1990, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Qupperneq 18
Sigur Héðins á íslandsþinginu 1990 Keppni í landsliðsflokki á Skák- þingi Islands á Höfn í Hornafirði verður sennilega lengi í minnum höfð því úrslit urðu á þann veg sem engan gat órað fyrir. Að yngsti þátttakand- inn, hinn 15 ára gamli Héðinn Steingrímsson, skyldi skjóta aftur fyrir sig tveimur stórmeisturum og tveimur alþjóðlegum meisturum og vinna mótið með feiknarlegum yfir- burðum gerir menn hreint forviða. I>ó þeir félagar Margeir Pétursson og Jón L. Árnason vilja sjálfsagt gleyma mótinu sem allra fyrst er ég ansi hræddur um að þeir verði sífellt minntir á það. Niðurstaðan gefur ótvírætt til kynna að breiddin sé að aukast í íslensku skáklífi. Auk stór- meistaranna var Hannes Hlífar Stef- ánsson vel inn í myndinni sem lík- legur sigurvegari eftir hið frækilega afrek í Gausdal í Noregi en hvorki hann né Þröstur Þórhallsson komu neitt að ráði við sögu í baráttunni um efstu sætin. Þetta var mót þriggja ungra manna: Héðins Steingríms- sonar, Prastar Árnasonar og Björ- gvins Jónssonar. Lokaniðurstaðan: 1. Héðinn Steingrímsson 9 v. 2. Björgvin Jónsson 7VI v. 3. Þröstur Árnason 7 v. 4.-5. Jón L. Árnason og Hannes Hlífar Stefánsson 6Vi v. 6. Margeir Pétursson 6 v. 7. Þröstur Þórhallsson SV2 v. 8. Halldór G. Ein- arsson 5 v. 9. Snorri Bergsson 4 v. 10.-11. Sigurður D. Sigfússon og Tómas Björnsson 3Vi v. 12. Árni Á. Árnason 2 v. Sigurganga Héðins var ævintýri lík- ust. Er Jón L. Árnason stöðvaði hann í sjöundu umferð var almennt búist við að nú færi drengurinn að hægja á ferðinni en því var alls ekki að heilsa. Hann vann fjórar síðustu skákirnar þ.á m. Hannes Hlífar og Margeir Pét- ursson. Pað er ljóst að Héðinn hefur tekið stórstígum framförum í sumar og hlotið góða æfingu á opnu móti í Sviss í júlí og á Norðurlandamóti grunnskóla í Danmörku. Tafl- mennska hans var heilsteypt og ein- beitt og hann virtist þola vel áiagið sem er því samfara að taka þátt í svo harðri keppni. Fyrir allnokkru var vitað að Björg- vin Jónsson væri líklegur til afreka. Hann hefur geysilega yfirgripsmikla þekkingu á byrjunum og skarpan stíl en allmikið skortir á skilning hans á stöðubaráttu. Til þess eru þó veik- leikarnir að sigrast á þeim. Pröstur Árnason varð Skák- meistari Reykjavíkur árið 1986, sá yngsti á sögunni. Framfarir hans hafa verið hægari eftir því en uppganga nokkurra jafnaldra hans, Hannesar Hlífars og Sigurður Daða virðist hafa hert vilja hans. Er þetta tvímælalaust besti árangur sem hann hefur náð við skákborðið. Jón L. Árnason og Hannes Hh'far hlutu 6V2 vinning úr 11 skákum og var frammistaða þeirra vitaskuld talsvert undir því sem búist hafði verið við. Jón var raunar seinheppinn í mörgum skákum en hætti sér allt of oft út í tímahrak og gerði ýmsar skissur aðr- ar. Pað er mikið áfall fyrir Hannes Hlífar að missa að Ólympíusæti. Af taflmennsku hans fannst mér mega ráða að hann sé orðinn leiður á því að kljást við sömu mennina aftur og aft- ur. Á íslandsmóti 1987 og 1988 tefldi Margeir Pétursson 25 skakir án taps, vann 19 og gerði fimm jafntefli. Petta íslandsþing er hans lakasta frá upp- hafi og hann lék oft hrikalega af sér og virtist satt að segja hálf kærulaus í nokkrum skákum. Eða hvernig er hægt að skýra fjögur töp? Frammistöðu Héðins Steingríms- sonar hefur verið gerð ítarleg skil í fjölmiðlum en minna farið fyrir um- fjöllun um Björgvin Jónsson. Við gef- um honum orðið í einni af heilsteyptustu skákum fslandsþings- ins: . Björgvin Jonsson - Halldór G. Einarsson Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 c5 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Re7 7. Rf3 Bd7 8. a4 Da5 9. Bd2 Rbc6 10. Bb5 f6 Héðinn Steingrímsson yngsti Is- landsmeistari frá upphafi aðeins 15 ára gamall. (Petta afbrigði frönsku varnarinnar hefur ekki gefist svarti vel í seinni tíð. Dæmi um það mátti finna í skák Chandler og Ivantsjúk á millisvæð- amótinu í Manila í sumar. Par lék Ivantsjuk 10. .. 0-0-0 og eftir 11. 0-0 c4 12. Bcl f6 13. Del Hhe8 14. Ba3 Kb8 15. Bxc6 Rxc6 16. De3 Ka8 17. Hfbl Bc818. Bd6 og úr þessum miklu þrengingum slapp Ivantsjúk ékki. Hins vegar vann hann næstu fimm skákir í mótinu!) 11. c4Dc7 12. cxd5 Rxd5 13. exf6 gxf6 14. 0-0 0-0-0 15. c3 Hhg8 16. Hel Rf4? (Vanhugsaður leikur sem Björgvin notfærir sér út í ystu æsar. Athyglis- verður var möguleikinn 16. .. Ra5.) 17. Bxf4 Dxf4 18. De2! (Sterkur leikur sem setur mikla pressu á stöðu svarts.) 18. .. e5 19. dxe5 fxe5 (Vitaskuld ekki 19. .. Bg420. Bxc6 bxc6 21. Da6+ o.s.frv.) 20. g3 Hde8 (Og enn strandaði 20. .. Bg4 á 21. Bxc6! bxc6 22. Da6+ og síðan ein- faldlega 23. gxf4. Eins og Halldór Björgvin Jónsson tryggði sér sæti í Ólympíuliðinu með góðri frammi- stöðu. 23. Hxe3 a6 24. Bfl! (Framvörður í stöðu svarts, e4- peðið er dæmt til að falla og þar með staðan öll. Eftirleikurinn er auðveld- ur.) 24. .. Re5 25. Bg2 Bc6 26. Rxe4 Rc4 27. Heel Hd8 28. Rxc5 Bxg2 29. Kxg2 Hd5 30. Re4 Ha5 31. h4 Rb2 32. Rf6 Hg7 33. He8+ Kc7 34. He2 Hf7 35. Rxh7 Hxa4 36. Hxa4 Rxa4 37. Rg5 Hf6 38. Re4 Hh6 - og Halldór gafst upp um leið. hefur haldið á málum tekst Björgvini nú að notfæra sér veilurnar í peða- stöðu hans.) a b c d e f g h 21. Rd2 e4 (Svartur varð að andæfa hótuninni 22. Re4 o.s.frv.) 22. De3 Dxe3 Kamsky með vinningsforskot í Tilburg Undrabarnið Gata Kamsky hefur sannarlega komið á óvart á „ofurmótinu" í Tilburg en þar tefla átta þátttakendur tvöfalda umferð. Að loknum fimm um- ferðum hefur Kamskys unnið Nikolic, Timman og Gelfand og hefur gert jafntefli við Short og Ivantsjúk. Staðan að loknum fimm umferðum er þessi: 1. Kamsky 4 v. 2. Ivantsjúk 3 v. 3.-4. Andersson og Short 2Vi v. 5.-8. Timman, Gelfand, Nikolic og Seirawan 2 v. Helgi Ólafsson Fjölmenn landssamtök Stöðulisti áunninna meistara- stiga Bridgesambands íslands, þ.e. stig frá jan.-maí 1990, til við- bótar heildarstigum frá í. mars 1976, hafa loks séð dagsins ljós. Á listanum er að finna nöfn alls 3649 spilara í yfir 50 félögum innan BSÍ. Lítum á nokkrar tölur úr listanum: Stigaefstu spilarar landsins eru: Jón Baldursson 1318, Valur Sigurðsson 1200, Guðlaugur R. Jóhannsson 1167, Örn Arnþórs- son 1155, Sigurður Sverrisson 1110, Þórarinn Sigþórsson 1106, Ásmundur Pálsson 1073, Karl Sigurhjartarson 972, Guð- mundur P. Arnarson 970, Símon Símonarson 916, Aðalsteinn Jörgensen 870 og Þorlákur Jóns- son 800. Þeir sem skora flest meistara- stig frá jan.-maí 1990 eru: Valur Sigurðsson 133, Sigurður Vil- hjálmsson 129, Hrólfur Hjalta- son 93 og Ásgeir P. Ásbjörnsson 88. Flest áunnin bronsstig á tíma- bilinu skora: Magnús Sverrisson 833 og Véný Viðarsdóttir 822. Fjölmennustu félögin innan BSI (með flesta á skrá) eru: Ak- ureyri 154, Bridgefélag Reykja- víkur 143 og Breiðfírðingar í Reykjavík 122. Góður frágangur er á stöðulist- anum, sem unninn er af Kristjáni Haukssyni, stjórnarmanni í BSÍ. Sveit Sigurðar Vilhjálmssonar komst í 32 sveita úrslit í Rosen- blum-sveitakeppninni í Sviss, en tapaði í þeirri umferð fyrir sveit frá USA (M. Moss). Áður hafði sveit Tryggingamiðstöðvarinnar fallið úr keppni. S.l. laugardag hófu svo íslensku keppendurnir þátttöku í heimsmeistaramótinu í tvímenning. Af 6 pörum komust 3 pör í undanrásir, 192 para. Björn Eysteinsson og Helgi Jó- hannsson eru í 74. sæti, Aðal- steinn Jöregnsen og Jón Baldurs- son eru í 120. sæti og Bragi Hauksson og Sigtryggur Sig- urðsson eru í 157. sæti. Sveit S. Ármanns Magnús- sonar Reykjavík sigraði sveit Verðbréfamarkaðar íslands- banka í 3. umferð Bikarkeppni Bridgesambandsins. Naumari gat þó sigurinn ekki orðið, eða 77 stig gegn 77... Sveit þeirra fyrrnefndu var yfir 71 gegn 36 fyrir síðustu 10 spilin og þar skildi á milli. Spilað verður við Siglfirðinga í 4. umferð. í heimsmeistaramóti kvenna í Sviss eru tíðindi að gerast. f undankeppni 92 para (þar sem 36 efstu pörin komast í úrslit) eru þær Hjördís Eyþórsdóttir og Jacqui McGreal í 2. sæti þegar keppnin er hálfnuð. Stórkostlega góður árangur enn á ný hjá Hjör- dísi, sem náði 10. sætinu á heims- meistaramótinu í parakeppni. Það var þýsk sveit sem sigraði sveit M. Moss (sem sló út Sigurð Vilhjálmsson í 32 sveita úrslitum) í úrslitum Rosenblum-keppn- innar (óopinber heimsmeistara- keppni sveita). Meðlimir þýsku sveitarinnar eru með öllu óþek- ktir og sá yngsti aðeins 23 ára (R. Rohowsky). Haustspilamennska hjá Skag- firðingum hófst sl. þriðjudag. Spilað var í einum riðli. Sigur- vegarar urðu Hjálmar S. Pálsson og Sveinn Þorvaldsson en Ágúst Helgason og Sigmundur Stefáns- son urðu í 2. sæti. Næsta þriðjudag verður á dag- skrá eins kvölds tvímennings- keppni og hefst spilamennska kl. 19.30. Spilað eríDrangey v/Síðu- múla 35. í nýjasta fréttablaði EBL- News (fréttablað Evrópusam- bandsins) er grein eftir José Damiani forseta sambandsins. í greininni kemur hann inn á heim- sókn sína á Bridgehátíð 1990. Minnist hann þar á Steingrím Hermannsson forsætisráðherra, sem setti bridgehátíð formlega. í setningarræðu ráðherrans kom m.a. fram að Steingrímur hafi stundað bridgespilamennsku um áraraðir. Damiani fer lofsam- legum orðum um hátíðina og get- ur þess sérstaklega að það sé eng- in furða að ísland sé handhafi Bláa borðans (sem táknar að við- komandi þjóð hafi mesta út- breiðslu í Bridge í Evrópu) miðað við þann áhuga sem Bridgehátíð 1990 hafi vakið á íslandi meðal þeirra mörgu áhorfenda sem mótið sóttu. í slíku umhverfi sé gott að stunda bridgeíþróttina. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um ágæti slíkrar greinar. EBL-News fara víða og eru lesin af öllum helstu spilurum og skipuleggjendum í heimi. Sem innlegg í þá umræðu að ísland taki að sér að halda mót á vegum Alþjóðasambandsins eða Evrópusambandsins, eru þessi orð José Damiani virði „vægis“ síns í gulli. Eins og áður hefur komið fram, sigraði sveit S. Ármanns Magnússonar sveit Verðbréfa ís- landsbanka (landslið í Opnum flokki) í 3. umferð Bikarkeppni BSÍ. Sannarlega nokkuð óvænt úrslit fyrir spilara síðarnefndu sveitarinnar. Fyrir síðustu lotu stóðu leikar 71 gegn 35 og nokk- uð öruggur sigur í höfn, eða hvað? Onei, landsliðið sýndi loks klærnar í síðustu lotunni og jafn- aði leikinn, í 77 gegn 77. Og tap- aði á reglugerðarákvæði, sem segir, að sú sveit sem ofar er fyrir síðustu spilin sigri ef jafnt verður í leikslok. Réttlætinu fullnægt. Leikurinn var nokkuð fjörugur á köflum og víða leyndust skemmtileg spil. Lítum á eitt lítið spil: S: K92 H: KDG4 T: 87 L: G654 S: 765 S: G4 H: Á109872 H: 3 T: K3 T: DG10654 L: Á2 L: KD73 S: ÁD1083 H: 65 T: Á92 L: 1098 Sami samningur á báðum borðum eða 2 spaðar í Suður. Guðmundur Páll lyfti hjartaás í byrjun og meira hjarta. Þorlákur trompaði og spilaði lágu laufi, yfir á ás hjá Guðmundi. Meira lauf og drottning hjá Þorláki. Nú kom laufakóngur og meira lauf frá Þorláki. Sagnhafi trompaði með spaðaás, lagði niður spaða- drottningu og spaði að kóng. Gosinn datt og sagnhafi vann sitt spil. Eitthvað athugavert við þetta? Ójá, því vörnin er fundin við borðið. Inni á laufa- drottningu verður Þorlákur að spila lágu laufi, sem Guðmundur Páll trompar og í þeirri stöðu spil- ar Guðmundur hjarta, sem Þor- lákur trompar og þar með er gjaf- ari á tígul hjá sagnhafa. Einn nið- ur. Á hinu borðinu kom út laufaás og þar með eru alltaf 8 slagir hjá sagnhafa, þegar hann trompar með spaðaás í sömu stöðu og áður er lýst. Eitt lítið og saklaust varnar- spil, sem reynist banvænt þegar upp er staðið. Skondinn leikur, bridge. Ólafur Lárusson 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. september 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.