Þjóðviljinn - 14.09.1990, Side 19

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Side 19
Landslag, ekki lengur verðugt myndefni? Hvers virði er náttúran í okkar nútímaþjóðfélagi? Er náttúran og landslagið eitthvað sem menn njóta aðeins á tyllidögum og þeg- ar nauðsynlegt þykir að sýna börnunum hvar amma og afi bjuggu? Hið sérstæða landslag okkar vekur áhuga útlendinga og ferðamanna; hverir, eldfjöll, sér- stakar bergmyndanir, svo dæmi sé tekið, þó að ógleymdu síb- reytilegu litamynstri náttúrunn- ar. Vitaskuld tíðkast einnig að það sem sýnist hrikalegt og stór- brotið fyrir ferðamanninn, þykir heimamanninum lítið til koma. En fyrir samfélag sem bundið er eins sterkum böndum við landið sjálft og veðurskilyrði, einvörð- ungu til þess að komast af, þá verður ósjálfráð persónugerð á náttúrunni og þar af leiðandi stjórnar hún að nokkru leyti gildi veruleikans, þ.e. framvindu og þróun landsins. Þessi trú var ráð- andi lengi vel meðal heimspek- inga, sérstaklega fyrir tíma vélar- innar þegar afdrif heimsins féllu í hendur mannsins og hentistefnu hans. En hvert er gildi náttúrunnar og upplifunar á henni? Gildi upp- lifunarinnar sjálfrar eru ótvíræð. Öll þekkjum við hvernig litir og ólík form orka á okkur, þó það væri ekki nema í klæðavali. Nærri liggur að hlutir geti haft annað hvort jákvæða eða neikvæða út- geislun. Að sjá og hafa séð, skiptir því miklu máli í okkar dag- lega lífi þegar allt kemur til alls. Sástu himininn í gærkvöldi og litinn í fjöllunum? Þeir eru einnig ófáir myndlistarmenn þjóðarinn- ar sem hafa minnst áhrifamikillar reynslu sinnar við að sjá ein- Halldóra Árnadóttir skrifar Fyrri hluti hverja tiltekna mynd eða sýningu meðan þeir voru enn á mótunar- skeiðinu. Sterk áhrif sem leiða af sér ferli hugsana, athafna og hug- mynda. Hin skapandi upplifun sem uppspretta nýsköpunar á sér rætur í mannssálinni. Ýmsar rannsóknir og . kenningar hafa verið settar fram hvernig fólk sér og upplifir hlutina. Eitt er víst að engir tveir sjá nákvæmlega eins vegna þess að það sem við sjáum byggist oft á tíðum á því hvað við höfum séð og upplifað áður, jafn- framt á því sem við höfum ekki séð heldur einungis borist til eyma. Það er því reynsla hvers og eins sem skiptir umtalsverðu máli í skynjun og þróun mannsins. Hvaða tilgangur er fyrir þessari umræðu? Er skynjun ekki ein- ungis í undirmeðvitundinni og því væri ekki grundvöllur fyrir umræðu í því skyni að varpa ljósi á það hvert gildi hennar er? Hvað um listamanninn sjálfan? Hvað veldur því að hann tekur eitt við- fangsefni fram yfir annað? Varð- andi franska myndlist þá er hún líkt og vogarskál. Annað hvort er langmesta áherslan lögð á hvern- ig hlutirnir birtast útbyrðis eða innbyrðis, hið andlega mikilvægi sem þeim er ákvarðað. Spurning- in er ekki aðeins að mála tré, eða hvernig ljósið leikur um greinar þess, heldur einnig hvaða tilfinn- ingar listamaðurinn ber til verks- ins, hvaða hughrif hann vill koma til skila í gegnum verkið til áhorf- andans. „Impressionisminn“ gerði tilkall til þeirra sem sóttu leiða til að túlka tilfinningar sínar gagnvart óblíðri og óspilltri náttúrunni. Listamennirnir unnu verk sfn yfirleitt úti í náttúrunni óbaldnir við veðrið. En helst þurfti myndinni að vera lokið áður en birtan breyttist, allavega að gera hlé á þeirri mynd uns sömu skilyrði birtust í náttúr- unni. í þessu samhengi mætti minnast þess að Kjarval sótti mjög í að vinna úti í náttúrunni. Það skipti hann litlu máli þó rigndi og blési norðangarra, hann einfaldlega bjó um trönur sínar með grjóti og lærði að mála í rign- ingu, hvort sem um var að ræða olíu- eða vatnsliti. Við þannig að- stæður eru hreyfingar lista- mannsins leystar á hraðan hátt. Uppbyggingu forms og lita er því stjómað af stöðugri skynjun á því sem fyrir augu ber, á upplifun umhverfisins á staðnum en ekki úthugsaðri hugmynd sem lista- maðurinn ber með sér á staðinn. Sú hugsun að vera trúr umhverfi sínu, hvernig það birtist fyrir augum manns, en einnig eru við- brögð viðkomandi málara mikil- væg í sambandi við framsetningu myndefnisins. Listamaðurinn býður ekki upp á vandlega skipu- lögð vinnubrögð, heldur er upp- bygging myndarinnar sköpuð af ósjálfráðum áhrifum og án með- vitaðrar hugsunar um formið. En þrátt fyrir þessa vinnuaðferð við að nálgast myndefnið þá em aðrir sem kjósa að líta á náttúruna sem formfasta tilveru. Hver dregin lína táknar nákvæma samsvömn við landslagið sem myndin upp- lýsir. Hvert atriði innan myndar- innar hefur áhrif, ekki á þann sem málar myndina, heldur á þann sem á hana horfir. Áhorf- andinn er leiddur í gegnum myndefnið sem væri það sögu- þráður um orsök og afleiðingu, sem til dæmis myndir franska málarans Poussin gefa til kynna. (Hann tók hugmyndir sínar frá Aristótel þar sem hann fjallaði um leikritagerð og mikilvægi söguþráðarins. Það að áhorfandi leikritsins gæti lært á sögunni, brygðist við söguhetjunum sem væru þær raunverulegar. Þar af leiðandi gætu atburðir, sem hentu þær, vel hent áhorfand- ann.) Þessi tilvitnun í söguat- burði er ekki alls ókunnug íslend- ingum í formi myndlistar. Mynd- efni tekið úr tröllasögum íslensku þjóðsagnanna bera vitni um hrærðar tilfinningar fólksins til harðbýls umhverfisins þegar það var algjörlega háð náttúrunni. Ásgrímur Jónsson útfærði ýmsar tröllasögur þar sem fjallað er um hið óþekkta og óvænta og hvern- ig bregðast skuli við því. Svo snúið sé aftur til landslags- ins þá virðist hvert sem horft er, sem það sé alltaf neðst á listan- um. Líkt og það sé álitið annars flokks myndefni af myndlistar- mönnum. Til þess að vera maður með mönnum og metinn að verð- leikum þá verði viðkomandi að mála „abstrakt"! Það er þó ekki fullkomlega nægilegt því obbi al- mennings skilur ef til vill ekki myndmál „abstraktinnar“. Hvað er þá til ráða? Svonefndir áhug- NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19 íslenska jámblendifélagið hf. auglýsir starf verkfræðings eða eðlis-/ efnafræðings í ofndeild laust til umsóknar. Starfið er einkum fólgið í umsjón með daglegum rekstri jámblendiofna. Ennfremur verður unnið að ýmiss konar sérverkefnum. Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu í stjómun. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Þór- hallsson framleiðslustjóri í síma 93-20200 á vinnu- tíma. Umsóknir skulu sendar Jámblendifélaginu eigi síð- ar en 1. október n.k. Umsókn fylgi ítarlegar upplýs- ingar um náms- og starfsferil ásamt prófskírteinum. Grundartanga, 11. september 1990 Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Hjúkrunarfræðingar Við viljum ráða hjúkrunarfræðinga á Svæfinga- deild. Æskileg menntun: Alm. hjúkrunarfræðingur með nám í svæfingahjúkrun og / eða starfsreynslu í svæfingahjúkrun. Byrjunartími: Strax eða eftir samkomulagi. Góð starfsskilyrði á nýlegri deild. Upplýsingar gefa hjúkrunarframkvæmdastjóri Svava Aradóttir, alla virka daga milli kl. 13.00 og 14.00 í síma 96-22100/274 og hjúkrunar- deildarstjóri Þórunn Birnir í síma 96-22100/301. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri m acnálarar nota náttúruna sem myndefni sitt. Oft á tíðum eru þessar myndir dregnar upp sem væru þær ljósmyndir. Engin óþarfa strikeðalínurerusj áanleg heldur falla t.d. fjallshlíðamar þráðbeinar niður. Ekkert líf virð- ist vera tengt landslaginu; fossinn er frosinn og krían hljóðlát og stöðnuð. Hugsanlegt er að hér liggi ástæðan fyrir vanrækslu „at- vinnumálaranna“ á landslaginu sem myndefni. Þeir vildu ekki „sverta“ og „niðurlægja" atvinnugrein sína með snögg- soðnum vinnubrögðum sem sumir áhugamálarar bera merki um. En gildi listamannsins er ekki svo einfalt. Ávallt vaknar sú spurning, hvað er list“? Fyrir fram „listaverk". Er hún hug- mynd, efni eða bæði? Ekki leyfist rúm til umfjöllunar að svo stöddu svo um þetta veigamikla efni verður fjallað síðar. Landið og náttúran er mjög tengd huga fólks - hvaða tilfinn- ingar það beri til landsins yfir- leitt. Aður fyrr ríkti mikil þjóð- ernishyggja í landinu, að vera stoltur af okkar þjóð og stór- brotnu landslaginu. Nú á tímum er stoltið ef til vill ekki efst í huga, þar sem nú eigum við í stríði við alþj óðahyggjuna, að sameining og hagsmunabandalög séu það sem koma skal og sé vænlegast fyrir alla aðila þegar fram í sækir. Ekki geta allir verið sammála um gildi framangreinds, en þó má fullyrða að þjóðerninu má ekki týna niður. Við erum ennþá ung þjóð og erum að byggja upp landið á nær öllum sviðum, ekki síst á sviði fjármagnsins. Það er bara svo auðvelt að grípa við er- lendum áhrifum, bæði hvað varð- ar strauma og stefnur. Þó mark- aðurinn sé ekki stór hér á landi þá er hann mjög fjölbreytilegur. Mörg dæmi eru til dæmis um ein- staklinga sem hafa umboð fyrir vel þekkt tískumerki utan úr heimi. En hvað kemur þessi hug- leiðing myndlist við? Að mínu mati er hugur myndlistarfólks ekki svo frábrugðinn því sem um getur í kringum það - þ.e. sá hug- ur sem rikir í landinu. Með það í huga er ef til vill ekki erfitt að komast að þeirri niðurstöðu að við „áhugamálara“ er ekki að sakast gagnvart viðhorfum „at- vinnumálara" til landslagsins og náttúru. Ástæðan er frekar sú að fólk horfir ekki lengur á náttúr- una, fjöllin og lækina með vel- þóknun í huga heldur hraða í vel smurðu bflunum sínum á malbik- uðu vegunum. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalag Ólafsvíkur Félagsfundur Almennur félagsfundur veröur haldinn I Mettubúð sunnudaginn 16. septem- berkl. 15. Dagskrá: 1. Störf bæjarstjómar. Ámi E. Albertsson bæjarfulltrúi. 2. Störf nefhda á vegum bæjarins. 3. Komandi Alþingiskosningar. 4. Önnur mál. Stjómin ABR Félagsfundur Félagsfundur ABR verður haldinn nk. miðvikudag, 19. september, kl. 20.30 að Hverfisgötu 105. Fundarefni: 1. Starfehættir og skipulag Alþýðubandalagsins (Reykjavík. 2. Önnur mál. Stióm ABR A.B.R. á Borginni Auðlindir íslands Verðmætasköpun með bættum vinnubrögðum í sjávarútvegi Laugardaginn 22. september nk. kl. 10 verður Skúli Alexandersson alþingis- maðurfrummælandi á fundi á Hótel Borg. Efni fundarins er spumingin um hvort hægt sé að auka hagvöxt með bættum vinnubrögðum (sjávarútvegi. Félagar fjölmennið á fundinn og takið þátt (umræðum. Stjóm ABR

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.