Þjóðviljinn - 14.09.1990, Síða 25

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Síða 25
Hvað á að gera um helgina? MYNDLIST Árbæjarsafn, opið alla daga nema má kl. 10-18. Prentminjasýning í Miðhúsi, kaffi f Dillonshúsi, Kram- búð, og stríðasárasýningin: „og svo kom blessað stríðið“. Ásmundarsalur við Freyjugötu 41, Sævar Daníelsson opnar sýningu á málverkum og höggmyndum á lau kl. 14. Opið daglega kl. 14-19, til 24.9. Bókasafn Kópavogs, sýning á vatnslitamyndum (vars Magnússon- ar. Opið má til fö kl. 10-21. Djúpið, kjallara Homsins, Hafnar- straeti 15. Þorrí Hringsson sýnir klippimyndir. FÍM-salurinn við Garðastræti 6, Bryndls Jónsdóttir opnar sýningu á leirverkum á lau kl. 15. Opið daglega kl. 14-18, til 30.9. Gallerí 11, Skólavörðustíg 4a, Hulda Hrönn Ágústsdóttir sýnir veggverk. Opið alla daga ffá kl. 14- 18. Gallerí 8, Austurstraeti 8, Guðný Magnúsdóttir sýnir leirker og keram- ik frá 16-23.9 Sýnd og seld verk e/um 60 listamenn, olfu-, vatnslita-, og grafíkmyndir, teikningar, keramlk, glerverk, vefnaður, silfurskartgripir og bækur um Islenska myndlist. Op- ið virka daga og lau kl. 10-18 og su 14-18. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, Gestur og Rúna sýna málverk og skúlptúra. Opið virka daga kl. 10-18, um helgar 14-18, til 18.9. Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Slðumúla 32, grafík, vatnslita-, past- el- og olfumyndir, keramikverk og módelskartgripir, opið lau 10-14. Gallerí List, Skipholti 50 B, Bjami Þór Bjamason sýnir málverk. Opin virka daga kl. 10-18 og um helgarkl. 14-18, til 16.9. Gallerí Nýhöfn, Guðbjöng Lind sýn- ir málverk. Opin virka daga nema má kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18, til 26.9. Gallerí Sævars Karis, Bankastræti 9: Kees Visser sýnir þrívíð verk úr tré og stáli. Sýningin er opin á verslurv artíma kl. 9-18 virka daga, og 10-14 lau, til 5.10. Hafnarborg, menningar- og lista- stofhun Hafnarfjarðar, átta textíllista- konur sýna máluð og þrykkt mynd- verk, nytjalist o.fl. til 16.9. Anna Leós sýnir vatnslitamyndir í kaffistofu, til 16.9. Opið alla daga nema þri kl. 14- 19. Hlaðvarpinn, við Vesturgötu. Valdi- mar Bjamffeðsson, sýnir myndir úr bolla. Opið þri-fö kl. 12-18, lau kl. 10- 16. Kjarvalsstaðir, vestursalur Kristinn E. Hrafnsson opnar höggmyndasýn- ingu á lau kl. 14. Öm Magnússon leikur á píanó. Til 30.9. Vesturgang- ur Sæmundur Valdimarsson opnar sýningu á skúlptúr úr rekaviði á lau kl. 14, til 30.9. Austursalur og forsal- ur Sýning á verkum Kjarvals undir yfirskriftinni Land og fólk. Opið dag- lega fra kl. 11-18. Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16a, Sigurður Þórir sýnir málverk og teikningar. Opið alla daga kl. 14-19, til 23.9. Listasafn Einars Jónssonar opið alla daga nema má 13.30-16, högg- myndagarðurinn alla daga 11-17. Listasafrí íslands, sumarsýning á íslenskum verkum í eigu safnsins. Opið daglega kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns. Opið lau og su kl. 14-17, þri kl. 20- 22. Listhús við Vesturgötu 17, Bragi Ásgeirsson: Að hlusta með augun- um -mála með skynfærunum. Opin daglega milli kl. 14 og 18. Til 23.9. Minjasafn Akureyrar, Landnám í Eyjafirði, heiti sýningar á fomminj- um. Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9. I Laxdalshúsi Ijósmyndasýn- ingin Akureyri, opið daglega kl. 15- 17. Minjasafn Rafmagnsveitunnar, húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16. Nýlistasafríið við Vatnsstíg, Har- aldur Ingi opnar sýningu á vatnslita- myndum og grafíkmyndum í efri söl- um á lau. Engin boðskort voru send út, en allir ern velkomnir. Gryfja: Rakel Divine opnar á lau sýningu á Ijósmyndum undir yfirskriftinni: Ungir íslenskir listamenn. Opið virka daga kl. 16-20, um helgar kl. 14- 20. Norræna húsið, kjallari: Finnska listakonan Mari Rantanen sýnir mál- verk til 23.9. Anddyri: Sýningin Bam vatns og vinda, grafík eftir Kaljo Pollu frá Eistlandi. Opnar 14-19 dag- lega. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðarstræti 74, sumarsýning á olíu- myndum og vatnslitamyndum. Opið þri, fi, lau og su kl. 13:30-16. Sjóminjasafrí islands, Vesturgötu 8 Hf. Opið alla daga nema má kl. 14- 18. Smíðagalleríið Mjóstræti 2b og Pizzaofninn Gerðubergi: Þorsteinn Unnsteinsson með sýningu á báð- Sýningu átta textllkvenna I Hafnarborg lýkur um helgina. Olafur Tómasson póst- og símamálastjóri Ég hef nú ekki planlagt það algjörlega en ég veit að hluti af helginni fer í að vinna fyrir stofnunina, eins og margar aðrar helgar, til þess að undirbúa Evrópufund Póst- og símastjórnasem ég er að fara á. í öðru lagi verð ég að kveðja dóttur mína sem er héma heima ásamt eigin- manni sínum en þau eru bæði músíkantar og fara til London nú um helgina. Ég býst nú við og vonast til að ég geti farið svona einn hring í golfi. Ég vona það því ég vil nú helst sleppa sem fæstum helgum úr því, það heldur nú svona líftórunni í manni. um stöðum. Olíupastel og akrýl- myndir. Smíðagalleríið opið má-fö kl. 11-18 og lau kl. 11-15, Pizzaofninn alla daga kl. 11:30-23:30, til 19.9. Slunkaríki, fsafirði: Þoriákur Krist- insson -Tolli- Opið fi-su kl. 16-18. Þjóðminjasafnið, opið 15.5-15.9 alla daga nema má kl. 11-16. Boga- salun Frá Englum og Keltum. ÍÞRÓTTIR Sjá bls. 16. HITT OG ÞETTA Hana-nú f Kópavogi, samvera og súrefni á morgun lau, lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam- an upp úr hálftíu og drekkum mola- kaffi. Útivist, helgarferðir 14-16.9: Veið- vötn-Jökulheimar, Fimmvörðuháls- Básar, Básar I Goðalandi. Brottför I allar ferðir í kvöld kl. 20. Dagsferðirá su: Fjallganga á Heklu (1491 m) kl. 08. Seltangar, gömul verstöð kl. 13. Brottför frá BSl vestanverðri. Ferðafélag íslands, Afmælisgang- an: Reykjavík-Hvítámes 12. ferð á lau kl. 09. Bláfellsganga-Svartá (12 km) lau, brottför BSl austanmegin. Ferðir á su kl. 10:30 Söguferð, kl. 10:30 Fjall mánaðarins: Botnssúlur- Vestursúla (1086). Kl. 13 Botnsdal- ur-Brynjudalur. Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar hittast á morgun lau kl. 10 að Nóa- túni 17. Opið hús Goðheimum á su ffá kl. 14, frjálstspil og tafl. Dansleik- ur frá kl. 20. Textílkonumar átta sem sýna sam- an I Hafnarborg suður I Hafnarfirði. Þær sýna fjölbreytta textíllist, eins og máluð og þrykkt myndverk, og nytja- list. Þetta er síðasta sýningarhelgin og er opið frá kl. 14-19 alla dagana. Ari Trausti Guðmundsson Lægð á hægri hreyfingu... Einfölduð skýringarmynd af hnúkaþey og því sem honum fylgir Þær eru ófáar veðurspámar sem hljóða upp á lægðir á hreyf- ingu til landsins; margar verða til við Nýfundnaland. Algeng stefna er í NA til íslands. Lægðir myndast við árekstur heitra og kaldra loftmassa oftast við „landamærin“ milli hins raka tempraða lofts (sem er á milli u.þ.b. 30.og óO.breiddargráða) og kalda pólloftsins úr norðri. Skilin eða „landamærin“ áðumefndu hljóta að vera óstöðug og bylgjast en bylgjumar em einmitt lægðir sem færast úr stað í vindakerfi há- loftanna og verða um leið fyrir áhrifum af snúningi jarðar. Lægð er rúmsvæði (hluti loft- hjúpsins, séður í þrívídd) þar sem heitt og kalt loft er á hreyfmgu og loftþrýstingur er lægstur í miðju svæðisins. Ef dregin er lína um staði í rúmsvæðinu þar sem er sami loftþrýstingur verður til hringur fyrir tiltekið gildi, t.d. 995 mb. A korti em lægðir því eins og sett af sammiðja hringum og er auðvelt að hugsa sér fyrirbærið sem laut í loftinu en svæði með hæstum þrýstingi i miðjunni (hæð) lítur þá út eins og hóll. I lægð er hæstur þrýstingur við jaðrana og ætti þá loft að streyma (það nefríist auðvitað vindur) beint inn að miðjunni úr öllum áttum. Það gerist ekki og er um að kenna snúningi jarðar sem veldur því að vindur blæs rang- sælis (á móti úrvísum í klukku) og aðeins innávið í lægðunum á norðurhvelinu (öfugt á suðurhveli jarðar). Við árekstur heits og kalds loíls við upphaf lægðamyndunar hefjast eðlisfræðileg ferli. Heita loftið (sem inniheldur raka) lyftist upp á tungu úr köldu lofti sem smýgur undir hið fyrmefrída. Ra- kinn þéttist og skilar varma, skýjabakki verður til með úr- komu. Svo þróast lægðin áffam og nær kalda loftið smám saman að þrengja sé undir allt heita loft- ið og eyðist þá lægðin eftir því sem jafnvægi kemst á. Skil (kuldaskil, hitaskil og samskil) í lægðum eru bara hallandi mörkin milli misheits lofts. Hitaskil heita svo, af því þar er hlýtt loft í fram- rás (ffam og upp) nokkum veginn í vindstefríuna en með skilum þessum fylgir úrkomusvæði. Við kuldaskil er kalt loft i ffamrás og við samskil hefur kalt loft náð saman úr gagnstæðum áttum und- ir hlýrra lofti. Ef maður hugsar sér þver- skurð lægðar (sjá mynd) kemur sæmilega fram hvemig innviðir hennar em og láti maður kerfið renna yfir fastan punkt á yfirborð- inu, sést hvemig veðrið hlýtur að taka breytingum eftir því sem úr- komusvæði og skil ganga yfir (og um leið og lægðin breytir um yfir- bragð). Algengasta syrpan á ís- landi og þá einkum á syðri hluta landsins er þessi: SA-átt (landsynningur) og rigning og ffemur hlýtt, þá enn hlýrra, lág- skýjað S-læg átt og súld eða þokuloft og svo loks SV-átt (út- synningur), skúraveður og kóln- andi. Lægðir em oft 500 - 2000 km breiðar og „dýpið“ 950 - 990 mb en önnur gildi auðvitað til. Al- gengur hraði lægðar á braut sinni er af stærðargráðunni tugir km á klukkustund. Yfirleitt er hvassast rétt á undan hitaskilum eða sam- skilum, oft 7-9 vindstig, en alls konar öfgar þekktir á þeim bæn- um. Bæði háloftavindar og lega landa og annarra veðurkerfa (einkum hæða) ráða miklu um stefnu og hraða lægða. Myndun lægða ræðst líka af fleiri en einum þætti, m.a. dreifingu hitageislunar frá sólinni og upphitun loftmassa. Verði sú óheppilega þróun að hitastig taki að hækka vel merkj- anlega á norðurhveli jarðar má búast við breyttu lægðamynstri og breyttum vindum. Erfitt er að sjá afleiðingar slíks fyrir en víst er að lífsbaráttan myndi breytast í landinu og þá til hins verra á ein- hverjum sviðum. Föstudagur 14. september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.