Þjóðviljinn - 14.09.1990, Page 26

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Page 26
KVIKMYNDIR Þreytandi 48 stundir Háskólabíó Aðrar 48 stundir (Another 48 HRS) Leikstjóri: Walter Hill Handrit: John Fasano Framleiðandi: Lawrence Gordon Aðalleikarar: Eddie Murphy. Nick Nolte Árið 1982 gerði leikstjórinn Walter Hill gamansama spennu- mynd eða spennandi gaman- mynd sem hét 48 HRS. 1 henni léíc Nolte löggu sem fékk fanga (Murphy) lánaðan í 48 klukku- stundir til að hjálpa sér úr klípu. Myndin var ágæt og Nolte og Murphy skemmtilegar andstæð- ur. Þetta var fyrsta myndin sem Eddie Murphy lék í og síðan er hann orðinn stórstjarna eins og ailir vita. 48 HRS fannst manni ekki vera mynd sem bauð upp á framhald, eftir 48 stundir skildu leiðir söguhetjanna og úti var ævintýri. En framhaldsmyndir eru í tísku og Hill hefur áreiðan- lega hugsað með sér, að fyrst að allir aðrir eru að gera framhalds- myndir því skyldi hann ekki fá að vera með. Nolte og Murphy vilja örugglega endurtaka leikinn og það besta er að Murphy er orðinn svo frægur að það þarf engan söguþráð í mynd sem hann leikur í (sbr. The Golden Child). í Aðrar 48 stundir sleppir Hill alveg að hafa söguþráð og lætur þess í stað hetjurnar og bófana (sem eru mjög litríkir mótor- hjólatöffarar) endasendast um San Francisco og skjóta á allt sem hreyfist (en þeir eru allir rosalega lélegar skyttur því það tekur þá tæpa tvo tíma að hitta nokkurn skapaðan hlut). Svo þegar Hill heldur að áhorfandinn sé alveg að sofna úr leiðindum lætur hann einhvern hoppa afturábak í gegn- um glerrúðu, hægt (í slow moti- on). Þá er nefnilega ekki hægt að sofna fyrir látum. Þetta skeður reglulega með 5 mín. millibili út alla myndina. Það deyja líka allir í slow motion. Kannski er Hill nýbúinn að læra að stilla á slow motion á vélinni sinni eða kann- ski er hann svona dyggur aðdá- andi Sam Peckinpah. Það er greinilegt að bæði Nolte og Murphy hundleiðist, enda eru þessar örfáu línur sem þeir fá að segja á milli skothríða ósköp slappar. Murphy hefur að vísu mikinn tjald-sjarma og það er pínulítið fyndið að sjá hann taka lag eftir James Brown, en það er engan veginn aðgöngumiðans virði. Maður vonar bara að Aðr- ar 48 stundir verði ekki svo óhemju vinsæl að það verði gerð mynd nr. 3. Skrímsli meö skopskyn Bíóborgin Hrekkjalómarnir 2 (Grcmlins 2) Leikstjóri: Joe Dante Framleiðandi: Steven Spielberg Aðalleikarar: Zach Galligan, Phœbe Cates, John Glover, Robert Prosky, Christopher Lee Jæja, þá er það enn ein fram- haldsmyndin, Hrekkjalómarnir 2. Núna get ég ekki byrjað á uppáhaldsklisjunni minni, fyrri myndin var betri, af því að ég hef ekki séð hana. En fróðir menn segja mér að nr. 2 sé alveg eins og nr. 1, það er bara búið að skipta um sögusvið. Fyrri myndin gerð- ist í smábæ í Bandaríkjunum en þessi gerist í Clamp húsinu sem er „sjálfvirkt háhýsi" á Manhattan. Fyrir þá sem vita ekkert um Hrekkjalóma ætla ég að rekja stuttlega sögu þeirra. Það er einn aðalhrekkjalómur sem er voða sætur og heitir Gismo. Hann er loðinn og með stór brún augu, annað eins krútt hefur ekki sést síðan Bambi var og hét. En það sem skiptir mestu máli er, að hann er góður. En ef þetta kríli blotnar þá fæðir hann af sér fullt af nýjum hrekkjalómum sem eru agalega vondir, sérstaklega ef þeir borða eftir miðnætti. Svo geta þessir hrekkjalómar líka fjölfaldaðsigef þeirblotna. Þetta er náttúrlega það sem gerist og háhýsið er orðið fullt af þessum kvikindum áður en maður veit af. Myndin gengur síðan út á það að útrýma þeim áður en þau ráðast á og taka yfir New York. Fyrsta hálftímann af myndinni var ég að velta því fyrir mér fyrir hverja svona mynd væri gerð, hver markhópurinn væri. Ef þetta er fyrst og fremst barna- mynd þá finnst mér hún ansi ógeðsleg. Að vísu fannst mér Síð- asti bærinn í dalnum svo ógeðsleg þegar ég sá hana sem barn, að þá skreið ég á bak við stól, en hún þykir eflaust ekki mikið á þessum síðustu Rambo-tfmum. En ef markhópurinn eru fullorðnir skrímslaaðdáendur, fannst mér hún ívið barnaleg. Svo verð ég nú að játa það að þegar á leið fór ég að hafa lúmskt gaman af henni. Það eru þrælfyndin atriði inn á milli og tæknibrellurnar allar mjög góðar. Þó eru þau atriði sem eru bara til að sýna hvað Danton og félagar geta gert svakalegar tæknibrellur ósköp þreytandi. En ég verð að segja að égskemmti mér ágætlega. Christ- opher Lee, (sem hefur leikið í annarri hverri hryllingsmynd sem hefur nokkurn tíma verið gerð) leikur hér einkennilegan vísinda- mann og gerir það blindandi með annarri hendi. John Glover er bráðskemmtilegur í hlutverki Clamp sem virðist vera nokkurs konar skopstæling á Trump, alla vega byggði Trump svona sjálf- virka byggingu líka. Hrekkjalómar 2 markar engin tímamót í sögu kvikmyndanna, en þetta er ágæt skemmtun fyrir skrímslaaðdáendur á öllum aldri. Sif Heimilisiðnaðar- skólinn Laufásvegi 2, sími 17800 Vetrarstarf Heimilisiðnaðarskólans hefst 1. október nk. Námskeiðaskrá með námslýsingum er fáanleg í verslun íslensks heimilisiðnaðar, Hafnarstræti 3. Innritun fer fram á skrifstofu skólans, Laufásvegi 2, þriðjudaga til föstudaga frá 9.00-11.30 og í síma 17800. Stjörnubíó Stálblóm (Steel magnolias)*** Þetta er ekki „skemmtilegasta gaman- mynd allra tíma“ eins og stendur í auglýs- ingunni. Þetta er reglulega skemmtileg mynd um líf sex vinkvenna í smábae. En lífið er ekki alltaf tóm skemmtun svo að þið skuluð taka einn vasaklút með. /SIF Fram t rauöan dauðann (Love you to death)*** Stórskemmtileg gamanmynd um kvenn- abósann Joe Boca sem allir eru að reyna aö drepa. Það er úrvals leikaraliö sem sér um skemmtunina. Joan Plowright er ein miðavirði. Endilega að taka sér frí frá fram- haldsmyndum og bófahasar og sjá gam- anmynd sem tekst stundum að minna á Dario Fo í stuði./SIF Regnboginn í slæmum félagsskap (Bad Influence)*** Stórgóður tryllir með Rob Lowe og James Spader í aoalhlutverkum. Þeir sem líta Lowe hornauga fyrir allar lélegu myndirnar sem hann hefur leikið i ættu að gefa honum sjens því hér sýnir hann að hann getur meira en brosað fallega. Djöfullinn er enn- þá á lífi og býr í Los Angeles. /SIF TJALDIÐ Háskólabíó Pappírs Pési*** Ari Kristinsson kemur hér með alveg ágæta barnamynd. Pappírs Pési er skemmtileg fígúra. (íslenskur ET?) og krakkarnir alveg einstaklega krakkalegir. Lítil vinkona mín sagði að myndin væri al- veg sérstaklega skemmtileg af því að hún kenndi svo skemmtileg prakkarastrikll Drífið ykkur með börnin um helgina. /SIF Leitin að Rauða október (The hunt for Red October)** John McTiernan, sá sem gerði Die Hard, er nú kominn af fimmtugustu hæð og niður á fimmhundruð metra dýpi. Sean Connery f hlutverki rússnesks kafbátsforingja ákveð- ur að flýja til Bandarikjanna með kafbátinn. Fyrsta nostalgfumyndin um kalda stríðið en alveg örugglega ekki sú síðasta. /SIF Vlnstri fóturinn (My left foot)**** Algjörlega yndisleg mynd sem maður get- ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar óður til likamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni í hlutverki Christy Brown að vinstri fótur er allt sem maður þart til að vera sjarmerandi og sexy. /SIF I Laugarásbíó Aftur til framtíðar III (Back to the Future III) Marty og Doc eru hér komnir í þriöja og síðasta skiptið. Nú eru þeir félagar komnir í Villta vestrið og Doc orðinn ástfanginn. En söguþráðurinn er eins og venjulega um vandamál þeirra við að komast aftur til framtíðar. /SIF Bíóborgin Á tæpasta vaði 2 (Die Hard 29*** Bruce Willis er kominn aftaur í gervi lög- reglumannsins John McClane og i þetta skiptið fer hann ekki úr skyrtunni og bjargar alþjóðlegum flugvelli i Washington frá hryðjuverkamönnum. Það er Finninn Renny Harlin sem leikstýrir þessu fram- haldi og gerir það prýðilega. Ágæt spennu- mynd með fullt af sprengingum og smá gríni inni á milli. /SIF Fullkominn hugur (Total Recall)** Schwarzenegger er í súperformi og hegg- ur mann og annan. Skýtur þá, lemur þá og stingur þá. Öll þessi dráp eru tæknilega mjög vel gerð og fólk sem hefur gaman af svoleiðis ætti að vera ánægt. En sögu- þráðurinn drukknar í blóði og maður bjóst svo sem við meiru frá manninum sem gerði framtíðarþrillerinn Robocop. Vincent kuldaskór Stærðir: 36-41 Litir: svart brúnt og grænt vera 4.990 Moonboots barna rennilás að framan Stærðir: 23-34 Litir: rautt, blátt, grátt og svart Verð: 1.995 Vincent kuldaskór úr leðri Stærðir: 41-46 Litir: Svart og brúnt Verð: .650 Kúrekaskór barna Stærðjr: 28-35 Litir: Svart og brúnt Verð: 3.490 Leðurskór Stærðir: 36-41 Litir: svart og brúnt Verð: 5.450 Pomella Leðurskór m/mjúkum sóla Stærðir: 36-41 : blátt ogsvart Verð: .490 Men Leðurskór Stærðir: 41-46 Litir: svart Verð: 6.250 Men rúskinnsskór Stærðir: 41-46 Litir: Svart og brúnt Verð: 5.250 Eígum einnig mikíð úrval af hœlaskóm. Við seljum L.A. Gear, fótlagaskó frá Táp og gúmmístígvél frá Viking. Póstsendum. 5% staðgreiðsluafsláttur reiknast iíka af póstkröfum. mmmn nuii Laugaveg 95 S. 624590

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.