Þjóðviljinn - 14.09.1990, Síða 28

Þjóðviljinn - 14.09.1990, Síða 28
Gott samband við systkini skilar sér í ellinni Ef marka má bandaríska könnun skilar gott samband systkina í æsku sér í betra ævikvöldi Náið samband við systkini í æsku erein af forsendum þess að fólk eigi ánægjulegt ævi- kvöld. Það sem kom vísindamönn- unum minna á óvart var að þeir sem tóku þátt í rannsókninni og höfðu átt við áfengisvanda að Náið samband við systkini ( æsku virðist mikilvægt, eigi menn að búa við góða heils bæði líkamleg og andlega eins og það að búa við ör- yggi í æsku, segir ( skýrslu Banda- riskravísindamanna. stríða fyrir fimmtugt áttu ekki eins náðuga daga í ellinni og hin- ir sem höfðu umgengist Bakkus í hófi. Það sama var uppi á ten- ingnum hjá þeim sem þurft höfðu á lyfjameðferð að halda egna geð- rænna vandamála. Vísindamennimir undirstrika í skýrslu sinni að þessi hópur sé ekki dæmigerður fýrir bandaríska borgara. Allir hafi þeir verið við hestaheislu þegar rannsóknin hófst, gáfaðir og ekki hafi þeir þurft að hafa áhyggjur af fjár- hagnum. sgl Illustreret vitenskab. Þetta er ein af niðurstöðum bandarískrar rannsóknar sem 204 karlmenn tóku þátt í. Annað sem kom í Ijós í þessari könnun var að þeir sem sem hafa átt við geðræn vandamál að stríða einhvem tíma á ævinni gjalda þess í ellinni. Rannsókn þessi hófst þegar mennimir voru átján ára árið 1940 og stóð þar til nýlega er þeir urðu 65 ára. Upphaflega voru valdir 204 stúdentar við Harvard háskóla í Bandaríkjunum. Þeir vom allir heilbrigðir, bæði á lík- ama og sál, æska þeirra var könn- uð með viðtölunum við foreldra. Heilsufar þessara manna hef- ur síðan verið kannað með jöfhu millibili, bæði af læknum og sál- fræðingum. Heilsufar, andlegt ástand og félagsleg staða þeirra sem náðu 65 ára aldri var svo könnuð ítarlegar. Tuttugu og þrír af þeim sem upphaflega tóku þátt í þessari rannsókn vom annað hvort látnir eða vom ekki lengur með af ýms- um öðmm ástæðum. Niðurstöðum þessara rann- sókna hefur nú verið safnað sam- an og þegar er byrjað að vinna úr þeim. Þeim sem að þessari rann- sókn vinna kom mest á óvart að svo virðist sem náið samband systkina í bamæsku hafi afger- andi áhrif á líkamlegt og andlegt ástand í ellinni. Svo virðist sem þessi þáttur í lífi fólks skipti álíka miklu máli og það að fólk búi við öryggi í æsku. Rannsóknir' sem gerðar vom á mönnunum áður en þeir náðu fimmtugsaldri sýndu ekki þetta samband. Vísindamennimir segja að svo líti út sem náið sam- band við bræður eða systur fái aukið vægi þegar fólk eldist.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.