Þjóðviljinn - 05.10.1990, Side 15
Handbolti
Nærri sextíu landsleikir
á sextán mánuðum
Þrír leikir á móti
Svíum á milli
jóla og nýárs
Áhugamenn um handknattleik
fá trúlega eitthvað fyrir sinn
snúð í vetur og næsta ár fram
að B- keppninni sem fram fer í
Austurríki. Þegar hefur verið
ákveðið að Svíar leiki þrjá leiki
hér á landi á milli jóla og nýárs
og mun Kristján Arason leika
með íslenska liðinu í þeim leikj-
um.
Stjóm Handknattleikssam-
bands Islands og Þorbergur Aðal-
steinsson landsliðsþjálfari hafa að
undanfömu verið að reyna að fá
verðuga æfingaleiki fyrir lands-
liðið, en það heíur reynst erfítt að
fá leiki hingað heim.
Tékkar koma fyrst
Fyrstu landsleikimir í vetur
verða 22.-26. nóvember við
Tékka. I lok þess mánaðar,
30.nóvember til 2. desember, tek-
ur landsliðið þátt í móti í Dan-
mörku þar sem Bandaríkjamenn
og Frakkar verða einnig með.
Rétt fyrir jólin, 19.- 20. desember,
kemur landslið hins sameinaða
Þýskalands og á milli jóla og ný-
árs verða síðan þrír leikir við
heimsmeistara Svía. Um svipað
leyti koma Japanir og leika bæði
við A-landsliðið og unglinga-
landsliðið.
í byijun janúar, 9.-13., mun
íslenska landsliðið taka þátt í
fímasterku móti á Spáni. Auk
heimamanna, A og B lið, munu
mæta þar til leiks Svíar, Rúmenar
og jaftivel Sovétmenn. í febrúar,
11.- 12., munu svo Ungveijar
sækja okkur heim og leika hér tvo
leiki.
Það er því næsta víst að mik-
Krístján Arason f landsliðið á nýjan leik.
ið mun mæða á landsliðsstrákun-
um okkar í vetur, því auk lands-
leikjanna verða verkeíhin ærin í
deildakeppninni í íslandsmótinu.
Auk þessa hefúr verið ákveð-
ið að karlalandsliðið verði við æf-
ingar ffá 10. maí í vor til loka júlí-
mánaðar.
-grh
Kvennahandbolti
Mörg járn í eldinum
Norðurlandamót stúlkna, C-keppnin á Ítalíu og forkeppni HM-stúlkna
Eftir frækilega frammistöðu
stúlknanna í Fram á móti
sænsku meisturunum Stock-
holmspolisen á dögunum er
flestir á því að kvennahand-
boltinn sé á uppleið. Það verður
því fróðlegt að fylgjast með því í
vetur hvort það skilar sér í góð-
um árangri unglinga- og A-
landsliða kvenna.
Stærstu verkefnin framundan
eru C- keppnin á Italíu í mars-apr-
íl og forkeppni HM-stúlkna i maí-
júní. Sameiginlegar æfingar lið-
anna eru þegar hafnar og æfa þau
á hverjum sunnudegi í Kaplakrika
fram að áramótum.
Um miðjan þennan mánuð fer
unglingalandsliðið í æfingabúðir
til að búa sig undir „Kwantum“
mótið sem fram fer í Hollandi
dagana 17.-23. október. And-
stæðingar íslensku stúlknanna
verða, auk heimamanna, Pólveij-
ar, Rúmenar, Nprðmenn og
landslið Angólu. Á þessu móti
verður íslenska liðið styrkt með
eldri stúlkum.
Norðurlandamót
stúlkna
1 desember mun unglinga-
landsliðið fara i æfingabúðir á
nýjan leik til að undirbúa sig fyrir
Saltfiskmótið sem haldið verður
ÍÞRÓTTIR
hér á Iandi. Auk þeirra taka þátt í
mótinu Spánveijar, Portúgalar og
A-Iandslið íslands í kvenna-
flokki.
Strax að þessu móti loknu
taka við æfingar hjá unglinga-
landsliðinu fyrir Norðurlandamót
stúlkna sem haldið verður hér.
Handknattleikssamband ís-
lands og Adidas hafa gert með
sér nýjan auglýsingasamning til
sex ára að verðmæti um 30 mi-
ljónir króna.
Með þessum samningi verður
Adidas áfram eitt af helstu stuðn-
ingsfyrirtækjum HSÍ og landsliða
þess, bæði karla og kvenna, pilta
og stúlkna. Adidas mun því sjá
öllum átta landsliðunum í hand-
bolta fyrir skóm, búningum, æf-
ingagöllum, töskum og boltum
næstu sex árin, eins og það hefur
gert undanfarin sex ár. Verðmæti
samningsins er áætlað um fimm
miljónir króna á ári eða um þrjá-
tíu miljónir króna á samnings-
tímabilinu, auk peningaverðlauna
til landsliðsins, nái það einu af
Fyrir utan Saltfiskmótið er
fyrirhugað að A-landsliðið leiki
hér heima við Hollendinga dag-
ana 5.-10. febrúar á næsta ári.
Reynt var að fá Svía til að koma
hingað en þær sáu sér ekki fært að
mæta.
—grh
efstu sætunum í heimsmeistara-
keppnum og á ólympíuleikum.
Við undirritun samningsins í
vikunni sagði Jón H. Magnússon,
formaður HSI, að samningurinn
komi til með að auðvelda mjög
alla starfsemi landsliðanna næstu
árin. Hins vegar mun hann ekki
leysa svo mjög erfiða lausafjár-
stöðu sambandsins sem skuldar
um tíu miljónir króna. Mestur
hluti þeirrar fjárhæðar er til kom-
inn vegna skafmiðaævintýrsins
Fjarkans á sínum tíma.
Fyrir hönd Adidas-umboðsins
skrifaði undir samninginn Ólafúr
B. Schram, framkvæmdastjóri
Heildverslunar Björgvins
Schram.
-grh
HSÍ
Þrjátíu miljóna
króna samningur
r
HSI og Adidas hafa gert með sér nýjan
auglýsingasamning til næstu sex ára
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandlagið í Hafnarfirði
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn i
Skálanum mánudaginn 15. október nk. kl. 20.30.
Stjórnln
ák
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opið hús
Opið hús í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 6. október milli
kl. 10 og 12. Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi og Ásgeir Matt-
híasson fulltrúi ABK í bygginganefnd verða með heitt kaffi á
könnunni.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið
í Kópavogi
Felagsfundur
verður haldinn í
Þinghóli, Hamra-
borg 11, mánudag-
inn 8. október og
hefst kl. 20.30.
Dagskrá*
1. Inntaka nýrra félaga. s|flurWte Már
2. Kosning uppstillingamefndar fyrir aðalfund félagsins.
3. Samningur um nýtt álver.
Frummælendur verða þau Sigurbjörg Gísladóttir, efnaverk-
fræðingur og Már Guðmundsson, hagfræðingur.
4. Onnur mál.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálar áð
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn
Dagskrá:
1. Bæjarmálin.
2. önnuLmál.
. Mætum öll
8. október kl. 20.30 I Rein.
Stjórnln
-r
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Júlíusson
mæta á almennum opnum fundi á Húnavöllum, sunnudaginn 7.
október n.k. Fundurinn hefst kl. 15.00.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt I
framleiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? Á að
leyfa sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjan-
esi á byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning
landbúnaðarvara? Eru blikur á lofti I efnahagsmálum? Eða bjart-
ari tíð framundan?
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Keflavík og Njarðvík
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Keflavlkur og Njarðvíkur
verður haldinn laugardaginn 6. október nk.líflðnsveinahúsinu
Keflavík og hefst kl. 15.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Stjórnarkjör.
3. Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs AB I Reykjanes-
kjördæmi.
4. Onnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnin
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Opinn stjórnarfundur
Opinn stjórnarfundur verður sunnudaginn 7. október kl. 14 á
Hverfisgötu 105, risinu. Stjórn ÆFR
Steingrímur Sigfússon,
Ragnar Arnalds og
Gunnlaugur Júlíusson
mæta á almennum opnum fundi I Ásbyrgi, Laugarbakka sunnu-
daginn 7. október n.k.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Hvað líður gerð búvörusamnings? Verður landinu skipt I fram-
leiðslusvæði - eða miðað við landkosti hverrar jarðar? Á að leyfa
sölu fullvirðisréttar? Hver verða áhrif nýs álvers á Reykjanesi á
byggðaþróun? Er hætta á að opnað verði fyrir innflutning land-
búnaðarvara? Eru blikur á lofti í efnahagsmálum? Eða bjartari tíð
framundan?
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Opnunartími skrifstofunnar
Skrifstofa ABR, Hverfisgötu 105, verðuropin þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga á milli kl. 9 og 11. ABR
Föstudagur 5. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA15