Þjóðviljinn - 12.10.1990, Síða 7
Evrópska myntbanda-
lagið: ógnvaldur eða
öryggisventill?
Hvers vegna deila Bretar um aðild?
M ýverið kúventi forysta
■■ breska íhaldsflokksins í af-
stöðunni til samvinnu ríkja
Evrópubandalagsins í gengis-
og peningamálum. í stað beinn-
ar andstöðu við aðiid Bretiands
að Evrópska myntbandaiaginu
sagði Margaret Thatcher að
hún væri hlynnt slíkri aðild.
Þessi stefnubreyting kom
Verkamannaflokknum í opna
skjöldu, en hann lauk þingi sínu
í síðustu viku, sama daginn og
yfirlýsingin var gefín, án þess
að taka afgerandi afstöðu til
málsins.
En um hvað snýst þessi deila,
og hvaða þýðingu hefur hún íyrir
breskt efnahagslíf?
Ótti við verðbólgu
Breska tímaritið The Econ-
Savimbi viðurkenn-
ir Angólustjóm
Jonas Savimbi, leiðtogi an-
gólsku uppreisnarhreyfmgarinnar
UNITA, tilkynnti í gær í lok heim-
sóknar í Nígeriu að hann væri
reiðubúinn að viðurkenna rikis-
stjóm MPLA- hreyfingarinnar,
sem hann hefur átt í stríði við í
hálfan annan áratug, sem löglega
stjóm Angólu þangað til kosningar
hefðu farið þar fram. Nígería hefúr
verið eindregið á bandi MPLA.
Þessi viðurkenning Savimbis þykir
benda til þess að sættir geti tekist
innan skamms með stríðsaðilum í
Angólu.
Tréyfirgnæfir
hamarogsigð
Miðstjóm ítalska kommúnista-
flokksins, þess stærsta á Vestur-
löndum, ákvað á miðvikudag að
skipta um nafn á flokknum og
breyta tákni hans. Nýja nafnið er
Lýðræðislegi vinstriflokkurinn. I
flokkstákninu, eins og miðstjómin
nú vill hafa það, ber mest á lauf-
skrúðugu tré, og við rætur þess em
hamarinn og sigðin, tákn flokksins
í undangengin 69 ár. Breytingar
þessar öðlast því aðeins gildi að
þær verði samþykktar á þingi
flokksins, sem kemur saman í
janúar.
omist reifar þessi mál í síðasta
hefti sinu og ryíjar þar upp þau
rök John Majors, fjármálaráð-
herra í ríkisstjóm Thatchers, að
aðild að Myntbandalaginu komi
ekki til greina fyrr en Bretar hafi
komið verðbólgunni niður á það
stig sem rikir í Þýskalandi, en
þýska efnahagskerfið sé einmitt
þungamiðja bandalagsins. Ástæð-
an er sú að með því að binda
gengi Sterlingspundsins við Evr-
ópumyntir muni verðbólgan sjálf-
krafa grafa undan samkeppnis-
getu bresks iðnaðar. Við það bæt-
ist að bundið gengi sterlings-
pundsins mun leiða til samræm-
ingar vaxta á Bretlandi og í lönd-
um bandalagsins, er þýddi lækk-
un vaxta í Bretlandi og þar með
tilhneygingu til aukinnar verð-
bólgu. Bretar væm þannig rúnir
sínum hefðbundnu hagstjómar-
tækjum.
The Economist bendir hins
vegar á, að dæmið sé ekki svo
einfalt og ráðherran hefúr haldið
fram. Þvert á móti geti aðild að
myntbandalaginu orðið varanleg-
asta trygging Breta gegn verð-
bólgu og fyrir stöðugleika þegar
til lengdar lætur. Vissan um að
genginu verði ekki hnikað til þess
að leiðrétta fyrir verðbólgusamn-
ingum á launamarkaði eða óhóf-
legum verðhækkunum muni
sjálfkrafa leiða til skynsamlegri
kjarasamninga og verðlagningar
og auka trú manna á stöðugt verð-
lag til lengri tíma. Það sé í raun-
inni álíka viturlegt að setja lækk-
un verðbólgu sem skilyrði fyrir
inngöngu eins og að segja Arg-
entínustjóm að hún verði að ná
verðbólgunni niður áður en hún
dragi úr peningaútgáfunni.
Ólík Irfskjjör
Blaðið vekur síðan athygii á
þeim ummælum bankastjóra
þýska Seðlabankans, að samræm-
ing lífskjara í aðildarríkjunum sé
nauðsynleg til þess að mynt-
bandalagið gangi sársaukalaust
fyrir sig. Þar hafði bankastjórinn
fýrrverandi A-Þýskaland einkum
í huga. The Economist bendir
hins vegar á að lífskjör geti verið
mjög misjöfn innan eins og sama
ríkisins, og tekur Italíu sem
dæmi. Væri það kostur fyrir S-
Orðsending
frá
Bifreiðatryggingafélögunum
Frá og meö 1. október 1990 er tilkynning
um eigendaskipti ökutækis jafnframt beiðni
um lögboðnar ökutækjatryggingar.
Vátryggingarnar taka gildi þegar gjald
vegna eigendaskiptanna er greitt á póst-
húsi.
Bifreiðatryggingafélögin
Ítalíu að búa við sjálfstæða mynt
og geta verðfellt hana gagnvart
norðurhlutanum til þess að bæta
samkeppnisaðstöðuna? spyr blað-
ið. Niðurstaðan er ótvírætt nei-
kvæð, aðskilnaður suðursins ffá
norðrinu væri ekki annað en ávís-
un á verðbólgu í suðrinu. Sama
gildi í raun um Evrópska mynt-
bandalagið í heild. Og blaðið
minnir á að ýmis ríki þriðja
heimsins og Pólland hafi með
góðum árangri bundið gjaldmiðil
sinn við gjaldmiðil hinna ríkari
iðnrikja með athyglisverðum ár-
angri.
Ólíktverólag
The Economist segir að það
sem mestu skipti um sársauka-
lausa aðlögun að evrópska mynt-
bandalaginu sé samræming á
verðlagi. Aðild hafi óhjákvæmi-
lega í för með sér að mismunur i
vöruverði þurrkist smám saman
út. Fyrir þjóð sem býr við hlut-
fallslega lágt vöruverð sé þetta
hagstætt fyrir útflytjendur en
verki til verðhækkana innanlands.
Hlutfallslega hátt vöruverð verkar
á gagnstæðan hátt.
Blaðið bætir svo við, að til
skamms tíma hafi það verið trú
hagfræðinga, að hinn frjálsi
markaður með fljótandi gengi
ynni sjálfkrafa að verðútjöfnun á
milli þjóða, en annað hafi komið í
ljós á síðasta áratug.
Að lokum segir The Econom-
ist í forystugrein sinni að mynt-
bandalagið feli í raun í sér eina
sameiginlega stefnu fyrir aðildar-
rikin í peningamálum
þannig að stjómvöld einstakra
rikja hafi ekki lengur svigrúm til
að skapa umffamverðbólgu eða
lækka gengi. Ytri áföll geti að
vísu snert aðildarríkin með mis-
jöfhum hætti (Bretar fara t.d. bet-
ur út úr olíukreppunni en Þjóð-
veijar) en þegar til lengdar lætur
tryggi sameiginlegt myntbanda-
lag ábyrgari efnahagsstjóm, þar
sem fast gengi eða sameiginleg
mynt muni endanlega verða besta
tryggingin fyrir stöðugu og jöfnu
verðlagi.
Flest bendir til þess að ekki
líði á löngu þar til Islendingar
þurfi að taka afstöðu til þessara
sömu spuminga og verður ekki
annað séð en að þessi umræða
eigi fúllt erindi inn í íslenska um-
ræðu um tengslin við Evrópu-
bandalagið.
-ólg.
Vesturþýska
markið verður
þyngdar-
punkturinn
Evrópska mynt-
bandalaginu.
Teikning úr
L'Express
Geimcfcasl
ógnar
geimferöum
I New Scientist, bresku tímariti
um vísindaleg efni, segir að svo
mikið af drasli sé nú úti í geimnum
af manna völdum, að haldi svo
áffam sem nú horfi verði menn að
hætta geimferðum með öllu innan
svo sem 30 ára. Brak þetta er úr
geimflaugum sem spmngu,
njósnahnöttum sem hafa verið
eyðilagðir o.fl. Er þegar farin að
stafa af þessu árekstrahætta fyrir
geimfara.
GEGN-
FROSIN
GAÐI
FRÁ
FÖNIX
GRAM frystikistur
FRYSTIKISTUR
234 Itr.
kr. 37.790 (kr. 35.900 stgr.)
348 Itr.
kr. 47.350 (kr. 44.980 stgr.)
462 Itr.
kr. 55.780 (kr. 52.990 stgr.)
576 Itr.
kr. 75.980 (kr. 72.180 stgr.)
GRAM frystiskápar
FRYSTISKÁPAR
100 Itr.
kr. 39.990 (kr. 37.990 stgr.)
146 Itr.
kr. 46.280 (kr. 46.280 stgr.)
175 Itr.
kr. 46.970 (kr. 44.620 stgr.)
240 Itr.
kr. 54.990 (kr. 52.240 stgr.)
330 Itr.
kr. 73.670 (kr. 69.990 stgr.)
Góðir skilmálar
Traust þjónusta
3ja ára ábyrgð
/FQmx
Hátúni 6a • Sími 91-24420
Föstudagur 12. október NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 7