Þjóðviljinn - 12.10.1990, Side 16

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Side 16
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýöubandalagið á Akureyri Bæjarmálaráð Fundur verður í bæjarmálaráði mánudaginn 15. október n.k. kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: Fundagerðir nefnda. Stjórnin Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi Almennur félagsfundur Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi heldur almennan félagsfund miðvikudaginn 17. október kl. 20.30 í Félagsheimili Seltjarnar- ness. Dagskrá: Guðrún Helgadóttir alþingismaður ræðir stjórnmál á haustdögum. önnur mál. Stjórnin Alþýðubandalagið í Ólafsvík Félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn í Mettubúð fimmtudaginn 18. október kl. 20.30. Dagskrá: Kosning fulltrúa á aðalfund kjördæmisráðs og önnur mál. Stjórnin Alþýðubandalagið I Kópavogi Opið hús í Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 13. október milli kl. 10 og 12. Heitt kaffi á könnunni. Allir velkomnir. Stjórn ABK Alþýðubandalagið í Kópavogi Haustferð í Landmanna> laugar 27. októ- ber1990 Laugardaginn 27. októberferABk haustferð í Landmannalaugar. Farið verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur Hellisheiði. Farið verður um Ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, upþ Landveg að Tröllkonuhlaupi við Búrfell. Með viðkomu í Foss- brekkum verður farið um Sölvahraun á Landmannaleið. Skammt frá Landmannahelli verður ekið upp á Mógilshöfða og yfir í Hrafntinnusker og skoðaður íshellirinn þar sem jarðhitinn bræðir íshelluna án afláts. Allt um kring eru spúandi hverir á þessu mikla háhitasvæði. Þaðan verður aftur haldið á Dómadalsleið og hjá Frostastaðavatni í Landmannalaugar þar sem gist verður í skála Ferðafélags (slands eftir kvöldvöku og söng. Á sunnudeginum verður árdegis gengið á Bláhnjúk en sumir taka sér styttri göngu eða baða sig í lauginni Ijúfu. Laust eftir hádegið verður haldið af stað heimleiðis. Þá verður ekið hjá Hófsvaði á Tungnaá, niður með Vestur-Bjöllum, hjá Sigölduvirkjun og Hrauneyjarfossvirkjun, yfir Þjórsá hjá Sandafelli, niður Hrossa- tungur að Gjánni og Stöng í Þjórsárdal. Þaðan verður svo ekið að Hjálparfossi og heim um Gnúpverjahrepp og Skeið. Heimkoma er áætluð klukkan 20 að kvöldi sunnudagsins. Gistigjald í skála er kr. 550 og fargjald er kr. 2.500. Hálft fargjald er fyrir eftirlaunaþega og ófermda og ókeypis fyrir börn átta ára og yngri. Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gísla Ólafi Pét- urssyni í síma 42462. ATHUGIÐ að þátttaka er ÖLLUM velkominl! Ferðanefnd ABK AB á Suðurlandi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalags Suðurlands verður haldinn í Hvoli á Hvolsvelli 13. og 14. október. Fundurinn hefst kl. 16 á laugardag. Dagskrá: Aðalfundarstörf og undirbúningur kosninga. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðubandlagið í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn í Skálanum mánudaginn 15. október nk. kl. 20.30. Stjórnin Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs Norðurlandskjördæmis eystra verður haldinn í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, Akureyri, föstudaginn 12. október og hefst kl. 19. Dagskrá: 1. Setning. Kosning starfsmanna og -nefnda fundarins. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Stjórnmálaástandið - umræður. Framsaga Steingrímur J. Sigfússon. 4. Útgáfumál - umræður. Framsaga Brynjar Ingi Skaptason. 5. Kosningaundirbúningur. Framsaga Heimir Ingimarsson. 6. Afgreiðsla mála. Kjör stjórnar. 7. Þingslit. Stjórnin Persaflóadeilan Sporin frá Víetnam hræða Þann 17. september síðast- iiðinn var yfirrnanni bandaríska flughersins, Micha- el J. Dugan hershöfðingja, sagt i}pp störfum fyrirvaralaust. Astæðan var sögð opinskáar og digurbarkalegar yfirlýsingar herforingjans um áform flug- hersins um að varpa sprengjum á ákveðin skotmörk í miðborg Bagdad. Hin raunverulega ástæða fyrir brottvikningunni er þó talin vera sú, að stjórn- völd vildu draga úr þeirri bjartsýnu trú margra, að hægt væri að finna „snyrtilega" hernaðarlega lausn á deilunni með því að beita lofthernum einum, lausn sem kosta myndi fá eða engin bandarísk manns- líf. Fréttaskýrendur segja það al- mennt álit hemaðarsérfræðinga, að þótt flugfloti Bandaríkjanna við Persaflóann, sem nemur nú um 400 herflugvélum, muni hafa tæknilega og hemaðarlega yfir- burði yfir 500 véla flota Saddams Husseins, þá muni lofthemaður- inn einn aldrei duga til sigurs. Bandaríkjamenn köstuðu þrefalt meira sprengjumagni úr lofti yfir Víetnam en þeir notuðu í allri síðari heimsstyijöldinni, án þess að það dygði þeim til sigurs. Richard Cheney vamamála- ráðherra Bandaríkjanna hefur lýst því yfir að hann hafi rekið yfir- mann flughersins úr starfi vegna vanmats hans á styrk andstæð- ingsins. „Ef við ætlum að hefja stríð í Persaflóanum verðum við einnig að búa okkur undir átök á Iandi,“ er haft eftir bandarískum hemað- arsérfræðingi. „Saddam Hussein mun ekki láta flugherinn sprengja sig í loft upp - það er ekki lausn sem hægt er að panta samkvæmt matseðli - vilji menn stríð, þá verða menn að taka á sig allan matseðilinn.“ Oljúfar minningar frá fyrri hemaðarævintýrum Bandaríkj- anna voru eins og bakgrunnur þeirrar umræðu sem átti sér stað í bandaríska þinginu nýverið, þar sem meðferð forsetans á málinu var til úmræðu. Fulltrúadeildin samþykkti reyndar með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða ákveð- inn stuðning við stefnu Bush for- seta (380 atkv. gegn 29), en í ályktuninni fólst ekkert bindandi samþykki fyrir framtíðina. „Þetta var engin Tonkinflóa- ályktun,“ sagði George Mitchell, leiðtogi hins demókratíska meiri- hluta í fulltrúadeildinni, og átti þá við ályktun fúlltrúadeildarinnar frá 1964, sem Bandaríkjaforseti studdist við þegar hann sagði stríð á hendur Víetnam. Samkvæmt núgildandi regl- um, sem settar vom 1973, verður forseti Bandaríkjanna að fá sam- þykki þingsins með 90 daga fyrir- vara, ætli hann að setja herlið á land þar sem vemleg stríðshætta er talin fyrir hendi. Þessar reglur em umdeildar, og í Persaflóa- dæminu vék forsetinn sér undan þeim með tilvísun til þess að ekki væri um yfirvofandi stríðshættu að ræða. Ýmsir hafa bent á að með þessu hafi bandarískir hermenn verið sendir til Persaflóans á aug- ljósum folskum forsendum. í yf- irlýsingu þingsins er talað um að báðar deildir þess Iýsi yfir stuðn- ingi sínum við forsetann í áfram- haldandi viðleitni hans við að „hræða Irak frá frekari yfirgangi og vemda bandaríska þegna og mikilvæga hagsmuni Bandaríkj- anna“. Því er síðan bætt við að þetta skuli gert í samræmi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna og bandarískar hefðir, þar með taldar nauðsynlegar samþykktir þingsins. 16 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Margir þingmenn á bandaríska þinginu hafa undanfarið lagt áherslu á að ekki megi Ifta á stuðningsyfirlýsingu þingsins til for- setans sem óútfyllta ávfsun á hemaðarævintýri á borð við Tonkin- flóasamþykktina frá 1964. Myndin sýnir bandarfska hermenn á æf- ingu í eyðimörk Saúdi Arabíu. Tillaga öldungardeildarþing- mannsins Mark Hatfields um að samþykkt þingsins yrði gefin til 90 daga hefur ekki fengið miklar undirtektir, en öldungardeildar- þingmaðurinn Sam Nun hefur einnig lagt til að forsetanum verði gert að hafa stöðug samráð við leiðtoga flokkanna tveggja í þing- inu. Öll þessi umræða sýnir, að óvissa og ótti ríkir meðal banda- rískra ráðamanna um framvindu mála. Breska vikuritið The Econ- omist hefúr látið sérfræðinga sína kanna áhrif viðskiptabannsins á efnahag íraks. Niðurstaða þeirra er sú, að bannið muni skaða Irak til lengdar, en áhrifanna fari ekki að gæta að ráði fyrr en næsta sumar. Þótt bannið muni til lengd- ar hafa alvarleg áhrif á efnahag landsins, þá muni það ekki duga til þess að knýja Iraka til að fylgja ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Komskortur mun verða í írak í mars á næsta ári, en ólíklegt er talið að Sameinuðu þjóðimar muni samþykkja að bannið verði til þess að böm verði svelt í hel. Niðurtaða sérfræðinga The Econ- omist er sú að hemaðarleg lausn á deilunni sé óumflýjanleg. Spum- ingunni um hvað hún muni kosta og hveijir eigi að greiða þær fóm- ir er hins vegar látið ósvarað. Hætt er við að þegar á hólminn er komið muni margir vilja fríja sig þeirri ábyrgð. ólg/Informatíon, The Economist. FYRR EÐA SEINNA VELUR ÞÚ RICOH FAX SÍMI: 91 27333 FAX 91 28622 acohf

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.