Þjóðviljinn - 12.10.1990, Page 21

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Page 21
Ingileif Thorlacius og Haraldur Jónsson uppi I gamla SÚM-salnum I Nýlistasafninu. Þrlvlðu verkin á vegg og gólfi eru svonefndir kammerskúlptúrar Haraldar. Myndir: Kristinn. Kammerskúlptúrar og málverk Einfaldleikinn er okkur sameiginlegur, segja þau Ingileif Thorlacius og Haraldur Jónsson, sem sýna í Nýlistasafninu Eitt verka Ingileifar: Egg og sjónvarp I gryfju. - Það er tilviljun ein að við sýnum hér saman. Við sáum ekki verk hvors annars fyrr en nokkrum dögum fyrir sýn- ingaropnun. Þá varð okkur Ijóst að þótt verk okkar séu mjög ólík eru þau andlega skyld, segja þau Ingileif Thorlacius og Haraldur Jóns- son listamenn sem nú sýna í Hinmörgu andlit sálarinnar Anna S. Gunnlaugs- dóttir opnar málverka- sýningu í FÍM-salnum á morgun Anna S. Gunnlaugsdóttir opnar á morgun kl. 16 sýningu í FÍM- salnum við Garðastræti. Þema sýningarinnar er hin mörgu andlit sálarinnar sem lista- maðurinn dregur fram í dagsljósið, segir í fréttatilkynningu. Anna sýn- ir persónur í þreifanlegu tómi, í kuldanæðingi einsemdarinnar eða í birtu baráttuhugans, en oftast sem óljós svipbrigði hinna duldu til- fmninga, segir ennfremur. Anna stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1974-1978, eftir það dvaldi hún nokkur ár í Parísarborg. Síðar stundaði hún nám í MHÍ á ný, og útskrifaðist þá úr auglýsingadeild. Þetta er fjórða einkasýning Önnu, og er hún opin frá kl. 14-18 daglega og lýkur 28. október. öllum sölum Nýlistasafnsins. Ingileif sýnir málverk, bæði olíu- og vatnslitamyndir i forsal og gryfju. Haraldur sýnir þrivíð verk í efri sölum safnsins. Hann er nýkominn heim ífá námi við Kunstakadeiwuna í Duesseldorf í Þýskalandi, þaðan sem hann út- skrifaðist sem Meisterschueler síðastliðið vor, og er þessi sýning önnur einkasýning hans hérlend- is. Ingileif útskrifaðist ffá Jan van Eyck Akademíunni í Maastricht Hollandi fyrir tveimur árum, og er þetta önnur einkasýning henn- ar, sú fyrri var haldin í Asmundar- sal árið 1989. Blaðamaður Nýs Helgarblaðs byijar á því að virða fyrir sér myndir Ingileifar, og spyr hana út í málverk sem hún kallar Sjón- varp og egg. Sjónvarpið leitaði á mig, og ég gerði margar tilraunir áður en mér tókst að búa til almennilega mynd. Eggin í myndinni komu einnig fremur ómeðvitað, mér fannst þau passa vel við sjónvarp- ið. Eg er dálítið hrifin af því sem er lokað. I útfærslunni verða þetta ennffemur einhverskonar form- pælingar, þótt myndimar byrji ekki þannig. Fyrst kvikna ein- hveijar hugmyndir sem ég vinn úr. A sýningunni em bæði mál- verk og vatnslitamyndir, við- fangsefni myndanna er svipað, en það er allt öðruvísi tilfinning að mála með vatnslitum. Ég býst við að ég treysti þeim betur en ol- íunni, og mér finnst gaman þegar þeir taka af mér völdin. Ég geri ótal vatnslitamyndir áður en ein heppnast að mér finnst. Hvað því ræður hvort ég er ánægð með mynd eða ekki er dálítið flókið. Ég er ánægð þegar mér fmnst öll myndin miðla einni hugmynd eða einni tilfmningu. Maður getur þurft að gera voða Htið. Hugmyndir að myndum em lengi að geijast, ég geri margar skissur og teikna mikið áður en ég byija að mála. Það getur liðið langur tími áður en ég byija, og oft fer í raun minnstur tími í sjálfl málverkið. Leiðin liggur upp á loft þar sem Haraldur sýnir þrívíð verk, flest úr spónaplötum. - Ég byrja yfirleitt á því að teikna og skrifa texta áður en ég vinn verkin. Efhið fellur síðan að hugmyndinni, en ég reyni að koma sjálfum mér á óvart. Þegar ég byija að vinna í efni skiptir snertingin máli, ég káfa á hugsun- um mínum. Þetta eru ekki stór verk, þau miðast fremur við stærð manns- ins. Kammerskúlptúrar er kann- ski skilgreining við hæfi. Það má segja að ég geri allt, annað en að mála, skúlptúra, gjöminga o.fl. Aö venjast Kjarval Þið eruð bæði nýkomin heim úr námi, finnst ykkur listamenn einangrast eftir að heim er kom- ið? Ingileif: Hér heima sér fólk ekki eins mikið af sýningum, og þær sýningar sem í boði eru eru fremur einsleitar. Haraldur: Uppspretta verka minna liggur ekki frekar í mynd- list en einhveiju öðru. Allt hefúr áhrif á mann. Ég fæ meiri örvun frá öðrum hlutum en myndlist. Ingileif: En það getur samt sem áður verið örvandi að sjá sýningar. Mér finnst þó gott að vera búin með skólann, það er ekki hægt að vera í námi enda- laust. Maður þarf ekki að einangr- ast hér heima, en það er meiri vinna að fylgjast með hér en í út- löndum. Sést á list manna hvar þeir hafa lœrt? Haraldur: Það sést dálítið, maður getur ekki verið saklaus. Auk þess velja listamenn sér skóla og land eftir því hvemig þeir em innstilltir fyrir. Þar sem þeir finna einhverja samsvömn með því sem þeir em sjálfir að gera, þar sem þeir halda að sé svipað veðurfar þá stundina. Ingileif: Hér þykir oft nei- kvætt að verða fyrir áhrifum, en annað er ekki hægt. Menn segja stundum þegar þeir heyra að ég er málari: Málaðu nú eitthvað ís- lenskt. En fólk ber þvi oft við að það skilji ekki hvað listamenn eru að gera nú á dögum. Ingileif: Það er sérhæfing í öllu. Eg opna ekki tímarit í eðlis- fræði og furða mig á því af hveiju ég skilji ekkert án þess að kynna mér fræðin eitthvað áður. Ég held að það sé misskilningur að fólk skilji Kjarval betur en aðra lista- menn, það er bara búið að venjast honum. En svo þarf maður náttúr- lega ekki að skilja hlutina til að njóta þeirra. Haraldur: Svo kannast menn við fjallið sem er á myndinni, og finnur þannig e.t.v. samsvömn við sinn reynsluheim. Ingileif: Fólk verður að venj- ast því að nota skynfærin. Haraldur: Já, það notar hægra heilahvelið ekki nógu mik- ið, best er að láta bæði heilahvel- in núast saman. Ingileif: Sumt fólk vill aldrei láta setja sig úr jafnvægi. Einkasýningar þeirra Harald- ar og Ingileifar i Nýlistasafninu standa til 21. október, og em opn- ar alla daga milli klukkan fjórtán og átján. BE Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.