Þjóðviljinn - 12.10.1990, Page 25
Jazzvakning 15 ára
Poppmaskínunni tókst að org-
anísera unglingamassana og
klassíkin beit sig fasta á ríkis-
spenann, efvesalings djasstónlist-
in var of háfleyg fyrir íjöldann og
of plebbaleg fyrir Ríkismat mús-
úkafurða. Þannig stóðu málin á
áttunda áratugnum, svona sirka á
bát, og til að breyta því ástandi og
sameina flokk sveifluvina til
slórra átaka, var Jazzvakning
stofnuð árið 1975. Það hefur
kannski ekki orðið bylting, enda
áhuginn á ríkisvaldinu takmark-
aður, en mikið grasrótarstarf unn-
ið meðal ijöldans og margir feng-
ið ný eyru sem áður stóðu ber-
skjaldaðir fyrir vinsældalistajukk-
inu. Jazzvakning hefur gefið út
fimm hljómplötur með íslenskum
djassi, haldið óteljandi djasskvöld
með innlendum hljóðfæraleikur-
um og listinn yfir þau stórmenni
erlend sem hingað hafa komið á
hennar vegum
ekki langt firá
14. styrkleika-
flokki, því sem
næst tómir
stórmeistarar. Tónleikahald af
þessu tagi er stundum eins og að
spila póker, og þvi er ekki að neita
að stundum hafa undirtektir við
kalli byltingarinnar verið dræmar
af hálfu almennings. En fyrir
seiglu félagsmanna og góðan
stuðning listunnenda hefur þó
alltaf tekist að koma skipinu á
réttan kjöl.
Afmælishátíðin stendur frá
fimmtudeginum 11. október til
laugardagsins 13. á splunkunýj-
um og aðlaðandi stað, Púlsinum á
Vitastíg 3, og koma þar fram fleiri
tungir hljóðfæraleikara. Á
Dizzy Gillespie útblásinn í Há-
skólabíói á Jassvakningartónleik-
um 1979.
fimmtudagskvöldi spila hljóm-
sveit Áma Scheving, tríó gítar-
leikarans Ara Einarssonar, pían-
istans Ólafs Stephensens og sveit
Guðmundanna, Steingrímssonar
og Ingólfssonar. Á fostudegi spila
kvartett Tómasar R. Einarssonar,
kvintett Ólafs
Gauks, Trega-
sveitin og
Gammar, auk
Austfjarða-
goðans Áma ísleifs, Stefáns Þor-
leifssonar, Áma Elfar, Jónatans
Ólafssonar, Aage Lorange og
fleiri góðra manna. Á laugardags-
kvöldið koma svo fram kvartett
Kristjáns Magnússonar, hljóm-
sveit Bjöms R. Einarssonar,
Harmoníkuhljómsveit Islands og
Kuran Swing.
Islenskir djassmúsíkantar láta
ekki sitt efiir liggja til að gera
þessa hátíð sem mesta, og er nú
kjörið tækifæri fyrir djassvini að
skemmta sér um helgina, tónleik-
amir hefjast öll kvöldin stundvís-
lega klukkan 21.
Tómas R. Einarsson
skrifar
Ásmundarsalur
13 málverk
Hjördís Frímann sýnir akrýl á striga
Hjördís Frímann myndlistar-
maður opnar málverkasýn-
ingu í Ásmundarsal við
Freyjugötu 41 á
kl. 14.
Á sýningunni em 13 málverk
unnin með akrýl á striga. Enn-
fremur stendur yfir kynning á
verkum Hjördísar í Gallerí Aust-
urstræti 8.
Hjördís Frímann stundaði
nám við Myndlistarskóla Reykja-
víkur vetuma 1978-81, en síðan
við School of the Museum of
Fine Arts í Boston í Bandaríkjun-
um, þaðan sem hún útskrifaðist
vorið 1986. Sýningin í Ásmund-
arsal er þriðja einkasýning Hjör-
dísar.
Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 14-20 til 23. október.
Hjördls Frímann myndlistarmaður
opnar einkasýningu á morgun.
MYNDLIST
Árbæjarsafn, lokað okt.-maí,
nema m/samkomulagi.
ASÍ-Listasafn, Grensásvegi
16A: Hin árlega fféttaljósmynda-
sýning (World Press Photo). Opið
alla daga kl. 14-19, til 14.10.
Ásmundarsalur við Freyjugötu
41, Hjördís Frímann opnar mál-
verkasýningu á lau kl 14. Opið
daglega kl. 14-20 til 23.10.
Björninn við Njálsgötu 4a, Krist-
ján Fr. Guðmundsson sýnir mál-
verk og vatnslitamyndir.
Djúpið, kjallara Homsins, Hafn-
arstræti 15. Teiknimyndir sex
höfúnda. Opið á sama tíma og
veitingastaðurinn.
FÍM-salurinn við Garðastræti 6,
Anna Gunnlaugsdóttir opnar sýn-
ingu á lau kl. 16, opið daglega kl.
14- 18, til 28.10.
Gallerí 1 1, Skólavörðusstíg 4a,
Ásgeir Lárasson, ný verk. Opið
alla daga frá kl. 14-18. Til 18.10
Gallerí 8, Austurstræti 8. Seld
verk e/um 60 listamenn, oliu-,
vatnslita- og grafíkmyndir, teikn-
ingar, keramík, glerverk, vefnað-
ur, silfúrskartgripir og bækur um
íslenska myndlist. Opið virka
dagaoglaukl. 10-18ogsu 14-18.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og
Síðumúla 32, grafík, vatnslita-,
pastel- og olíumyndir, keramik-
verk og módelskartgripir, opið
lau 10-14.
Gaiieri List, Skipholti 50 B.
Vatnslita- og grafikmyndir, ker-
amík og postulín auk handgerðra
ísl. skartgripa. Opiðkl. 10:30-18,
lau 10:30-14.
Gallerí Nýhöfn, Hörður Ágústs-
son sýnir Ljóðrænar fansanir frá
áranum 1957-1963 og 1973-
1977. Opin virka daga nema má
kl. 10-18 og um helgarkl. 14-18,
til 17.10.
Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar, sex
listamenn opna samsýningu á lau
kl. 16, olíumálverk, tréristur og
skúlptúrar. Opið alla daga nema
þrikl. 14-19, til 28.10.
Kjarvaisstaðir, vestursalur: ÓI-
aftir Lárasson sýnir þrívíð verk
og málverk. Austursalur: Sýning
á ljósmyndum Imogen Cunning-
hams. Til 21.10. Opið daglega frá
kl. 11-18.
Listasafn Borgarness, sýning á
verkum Ásgerðar Búadóttur, opin
alla virka daga til 21.10.
Listasafn Einars Jónssonar op-
ið lau og su 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-16.
Listasafn íslands, yfirlitssýning
á verkum Svavars Guðnasonar,
sem stendur til 4.11. Opið alla
daga nema má kl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Óiafssonar,
sýn. á andlitsmyndum Siguijóns.
Opið lau og su kl. 14-17, þri kl.
20-22.
Listhús við Vesturgötu 17, Bjöm
Bimir málverkasýningin Myndir
af sandinum. Opin daglega milli
kl. 14 og 18. Til 14.10. Ath. síð-
asta sýningarhelgi!
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna við Neshaga. Nena Allen
sýnir málverk og teikningar undir
yfirskriftinni Eilíf og tær birta.
Sýningin stendurtil 14.10.
Veðurhorfur laugardaginn 13. okt.
Horfur á laugardag: Nokkuð hvöss NA-átt, hiti nálægt frostmarki og éljagangur
um norðvestanvert landið. en um landið sunnan- og austanvert lítur út fyrir hægari
A-átt eða SA-átt með rigningu eða skúraveðri og 3-7 stiga hita.
Veðurhorfur sunnudaginn 14. okt.
Horfur á sunnudag: Búast má við vaxandi NA-átt um mestallt land með snjókomu
á Vestfjöröum og hita um eða rétt yfir frostmarki en rigningu og 3-8 stiga hita víöast
annars staðar.
Minjasafn Akureyrar, Landnám
í Eyjafirði, heiti sýningar á fom-
minjum. Opið su kl.14-16.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg,
su 14-16.
Nýiistasafnið við Vatnsstíg, Har-
aldur Jónsson og Ingileif Thorl-
acius sýna málverk og þrivíð verk
til 21.10. Opið daglegakl. 14-18.
Norræna húsið, kiallari: Sigrún
Eldjám og Guðrún Gunnarsdóttir
sýna málverk og vefnað. Opin kl.
14-19 daglega. Til 14.10.
Bókasafn: Maria Heed sýnir æt-
ingar, til 28.10.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti 74, lokað vegna við-
gerða um óákveðinn tíma.
Sjóminjasafn Islands, Vestur-
götu 8 Hf. Opið lau og su kl. 14-
18.
Slúnkaríki, ísafirði: Valgarður
Gunnarsson sýnir smámyndir.
Opið fi-sukl. 16-18, til 14.10.
TÓNLIST
Gerðuberg, Keith Reed baritón-
söngvari við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar á lau kl. 17.
Lög e/Beethoven, Sibelius, Stan-
ford, Ireland, Brahms og ísl. höf.
LEIKHÚS
Gamanleikhúsið, Lína langsokk-
ur í Iðnó á lau og su kl. 15.
Leikfélag Mosfellsbæjar, bama-
leikritið Elsku Míó minn, önnur
sýning lau kl. 14, þriðja sýning
lau kl. 16.
Þjóðleikhúsið, Örfá sæti laus ís-
lensku óperanni lau kl.20.
Borgarleikhúsið, stóra svið: Fló
á skinni, sýnd i kvöld, lau og su
kl. 20. Litla svið: Eg er meistarinn
í kvöld, lau og su kl. 20.
HfTT OG ÞETTA
Kvikmyndasýningar í MIR,
Vatnsstig 10. Solaris e/Tarkovskí,
gerð 1972. Sýnd á su kl. 16. Að-
gangur ókeypis og öllum heimill.
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni á morgun lau, lagt af stað
frá Digranesvegi 12 kl.10. Kom-
um saman upp úr hálftíu og
drekkum molakaffi.
Boivíkingafélagið, árlegur kaífi-
dagur félagsins í Sóknarsalnum
að Skipholti 50 B nk. sunnudag
kl. 15. Allir Bolvíkingar vel-
komnir.
ITC-deiidin Ýr heldur sinn ár-
lega kynningarfund mánudaginn
15. okt. kl. 20.30 að Siðumúla 17.
Stef fundarins er: Sá sem vill læra
finnur allsstaðar skóla. Fund-
urinn er öllum opinn. Anna s:
611413; Unnur s: 45119; Vigdis
s: 667622.
Ferðafélag íslands, dagsferðir
um helgina: Haustlitir við Þing-
vallavatn lau kl. 13. Á útilegu-
mannaslóðum í Eldvarpahrauni
su kl. 13, spennandi gönguferð
fyrir unga sem aldna. Brottfor frá
BSI- austamegin.
Útivist: Helgarferð 12.-14.10. á
rómaðar slóðir á suðurströndinni:
Vík-Hjörleifshöfði. Dagsferð su
kl. 13: Esjuhringurinn.
Félag eldri borgara, Göngu-
Hrólfar hittast á morgun lau kl.
10:30 að Nóatúni 17. Opið hús
Goðheimum á su frá kl. 14, fijálst
spil og tafl. Dansleikur frá kl. 20.
Fyrirlestur: Danski sagnfræð-
ingurinn og landslagsfræðingur-
inn dr. Erland Porsmose heldur
fyrirlestur undir heitinu De
danske kulturlandskaber og deres
bevaring í Norræna húsinu su kl.
17. Porsmose dvelst hér í boði
Norræna hússins og Listasafns
Siguijóns Ólafssonar.
Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 25