Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 3
Þegar Daníel var rekinn og allt varð vitlaust Þrjátíu ár liðin frá uppþotum í pólitíkinni á Akranesi þegar bæjarstjórinn var rekinn, en nýr meirihluti sat í blóra við vilja kjósenda Daníel Ágústfnusson þrjátfu árum sfðar. Þjóðviljinn lýsti honum þannig árið 1960 að hann væri duglegurog samviskusamur bæjarstjóri, en ekki alltaf þjáll og stundum heldur ráðríkur. Mynd gg. etta var erfiður tími. Mér þótti sérstaklega þungbært að ganga atvinnulaus. En ég hafði alltaf góða samvisku í þessu máli og tel mig hafa feng- ið af því fullan heiður. Þetta segir Daníel Agústínus- son, aðalpersónan í þeirri frægu pólitísku vargöld sem varð á Akranesi fyrir réttum þijátíu ár- um þegar bæjarstjórinn var rekinn og viðreisn gekk í garð þar í bæ. Þegar íhaldið og kratamir skriðu saman, eins og Þjóðviljinn orðaði það á sínum tíma. Nú lifir Daníel rólegu lífi eft- irlaunamannsins. Hann hefur dregið sig út úr pólitík og félags- málavafstri eftir langan feril og stormasaman. Hann er orðinn 77 ára gamall og nýtur þess að fara í langar gönguferðir. Bæjarstjóramálið skók mann- lífið á Akranesi um langt skeið og riðlaði pólitískum fylkingum. Daníel var þá farinn að nálgast fimmtugt og ýmsu vanur í pólitík, en bæjarstjóramálið var honum erfitt. Hann var sakaður um að hafa ráðstafað fé bæjarbúa án heimild- ar og að hafa haldið eftir fé íbúa á Elliheimilinu. Blaðamenn og ritstjórar flokksblaðanna í Reykjavík höm- uðust við það svo dögum og vik- um skipti að sannfæra lesendur um hvemig málum var háttað, þar var Daníel ýmist varinn eða veg- inn. Ritstjóri Þjóðviljans gekk svo langt að tala um valdarán og ofbeldi, en skribentar Alþýðu- blaðsins og Morgunblaðsins tóku upp hanskann fyrir sína menn í bæjarstjóm. Flokksblaðamennsk- an var hreinræktuð í þá daga. A Akranesi var hart sótt að þeim sem stóðu að aftöku bæjar- stjórans, eins og Daníel kallar það. Þrífpturirm Daníel Agústínusson varð bæjarstjóri á Akranesi árið 1954, þegar Framsóknarflokkurinn, Al- þýðuflokkurinn og Sósíalista- flokkurinn náðu meirihluta í bæj- arstjóm. Þann meirihluta kölluðu Sjálfstæðismenn „þrífótinn“. Framsóknarmenn fengu að ráða bæjarstjóra meirihlutans og költuðu á Daníel til starfans. Hann var þá kennari við Gagn- fræðaskóla Austurbæjar, en hafði starfað mikið innan Framsóknar- flokksins. Hann hafði verið erind- reki flokksins um árabil og átt ná- ið samstarf við Jónas frá Hriflu, Eystein, Hermann og aðra for- ystumenn flokksins. Skýringarí landspólKík Þrífætinum famaðist vel og flokkamir þrír buðu ffam sameig- inlega í bæjarstjómarkosningun- um 1958. Framboðið fékk mjög góða kosningu og Daníel varð áfram bæjarstjóri. En meirihluta- samstarfinu og ferli Daníels sem bæjarstjóra lauk með sviplegum hætti í lok ágúst árið 1960. Daníel leitar skýringanna á þessum atburðum i landspólitík- inni. Þannig er mál með vexti að Framsóknarmenn og Alþýðu- flokksmenn mynduðu kosninga- bandalag í þingkosningunum árið 1956, Hræðslubandalagið svo- nefnda. Daníel og aðrir Fram- sóknarmenn í Borgarfjarðarsýslu settu þá atkvæði sitt á Benedikt Gröndal, en sveið það sárt þegar ríkisstjóm Hermanns Jónassonar sprakk í desember árið 1958. Næstu mánuði þar á eftir hafði Emil Jónsson forsæti fýrir minni- hlutastjóm Alþýðuflokksins, sem Sjálfstæðisflokkurinn varði falli, en haustið 1959 mynduðu Al- þýðuflokkur og Sjálfstæðisflokk- ur ríkisstjóm undir forsæti Bjama Benediktssonar. Viðreisnartíma- bilið var hafið. Persónudegur sigur Daníels - Mér þótti það algjört sið- leysi af Benedikt að fara með at- kvæði okkar yfir til íhaldsins. Uppffá því fór fólk að nefna við mig að bjóða mig ffam í Borgar- fjarðarsýslu, segir Daníel. Það varð úr að Daníel fór ffam gegn Benedikt og fleirum í Borgarfj arðarsýslu i vorkosning- unum 1959. Hann komst ekki á þing, en vann mikinn persónuleg- an sigur. Jón Amason, Sjálfstæð- isflokki, varð þingmaður sýslunn- ar með 880 atkvæði, en Daníel fylgdi fast á hæla honum með 846 atkvæði. Daniel fékk fleiri per- sónuleg atkvæði en Jón, en Jón fór á þing þar sem hann fékk fleiri landslistaatkvæði. Benedikt Gröndal varð varla hálfdrættingur á við þá tvo. Daníel telur að Alþýðuflokks- menn á Akranesi hafi aldrei getað fyrirgefið honum þessi úrslit. - Þeir tóku algjörlega nýjan pól í hæðina eftir þessi kosninga- úrslit og viðhorfið gagnvart mér gjörbreyttist, segir Daníel. Dió til stórtíðinda Þegar Þjóðviljinn fjallaði um málið síðar vom þessi átök í landsmálunum einnig nefnd sem meginorsök bæjarstjóramálsins. Meirihlutasamstarfið á Akra- nesi varð heldur ekki langlíft úr þessu. Það dró til stórtíðinda á bæjarstjómarfundi 24. ágúst árið 1960. Bæjarráð hafði þá samþykkt að kaupa þá ffægu vömbiffeið E- 170. Sá hængur var á að bæjar- stjóm hafði ekki staðfest kaupin formlega. Bæjarstjómarfundir vom þá haldnir í litlum sal í húsinu númer átta við Kirkjubraut. Bæjarbúar vissu hvað til stóð og sóttu fund- inn eins og húsrými leyfði og rúmlega það raunar. Daníel tafði fundinn með óskyldum málum. Seint um kvöldið bám þrír bæjar- fulltrúar Alþýðuflokksins þó upp tillögu um að vísa bæjarstjóran- um úr starfi og vom nefndar tvær sakir sem fyrr segir: Kaup á vöm- bíl án samþykkis bæjarstjómar og meðferð fjár íbúa Elliheimilisins. Daníel ftytur skrifboröið! Fjórir bæjarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins greiddu tillög- unni atkvæði, en bæjarfulltrúar sósialista og Framsóknarmanna vom andvígir. Daníel lýsti þegar yfir því að hann myndi sitja áffam þrátt fyrir þessa samþykkt, en hann varð að gefa sig með það nokkrum dögum síðar. Alþýðu- blaðið sagði sérstaklega frá því á forsíðu þegar Daníel flutti einka- skrifborð sitt „svo og einhveijar aðrar pjönkur“ af skrifstofu sinni. Pólitískri sprengju hafði verið varpað á bæinn og vargöld mikil fór í hönd. Reykjavíkurblöðin fóm þegar í málið og þar upphófst mikið áróðursstríð. Bæjarbúar tóku jafnframt rösklega við sér og 26. ágúst þyrptust bæjarbúar í Bíó- höllina að fylgjast með borgara- fundi um málið. Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks létu sig vanta á fundinn, sem samþykkti að skora á hinn nýja bæjarstjómarmeirihluta að falla frá brottrekstrinum, en fara ella ffá og efna til nýrra kosninga. A annað þúsund bæjarbúa skrif- uðu undir yfirlýsingu þessa efhis, en það jafngildir rúmlega 60 af hundraði þeirra sem tóku þátt í kosningunum 1958. Jafnvel sann- færðum krötum blöskraði svo vinnubrögð bæjarstjómar að þeir sáu sig knúna til að fordæma þau á prenti. Rætt var um pólitískar ofsóknir. Upp ffá þessu tókst samstarf Alþýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks sem entist út sjöunda ára- tuginn. ’ Deilan um bæjarstjórann snenst upp í harkaleg málaferli sem lauk ekki fyrr en hæstiréttur dæmdi Daníel háar miskabætur. Málið setti mjög svip sinn á pólit- ískar deilur í bænum ámm saman. Daníel gekk atvinnulaus um tíma, en það var öðm nær en að hann hrökklaðist burt úr bænum vegna þessara atburða. Árið 1961 varð hann aðalbókari hjá bæjar- fógeta og í kosningunum ári síðar fór hann inn í bæjarstjóm við ann- an Framsóknarmann. Alþýðu- flokkurinn bar hins vegar ekki barr sitt lengi á effir. Það var fyrst í kosningunum nú í vor sem Al- þýðuflokkurinn náði aftur fyrri styrk á Akranesi, þremur bæjar- fulltrúum. Óþjáll og váðríkur Daníel sat í bæjarstjóm til árs- ins 1982 og var forseti bæjar- stjómar um tíma. Hann hefur jafnffamt gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum Framsóknarflokksins, Ungmennasambands Islands og annarra. Hann var varaþingmaður Framsóknarflokksins á Vestur- landi allan sjöunda áratuginn. Hann hefur alla tíð verið um- deild persóna og pólitíkus, af mörgum talinn óprúttinn áróðurs- maður. Þjóðviljinn lýsti honum svo í grein 27. ágúst 1960: „Daniel hefur verið atorku- samur bæjarstjóri, samvizkusam- ur og ósérhlífinn, en ekki alltaf þjáll og stundum helzti ráðríkur.“ Svo segir Þjóðviljinn: „En Daníel er ffamsóknar- maður og óvæginn í sínu pólitíska starfi." -gg Flokksblöðin um bæjarstjóramálið Skrif flokksblaðanna um bæjarstjóra- málið á Akranesi eru verðugt rannsókn- arefni út af fyrir sig. Þá var flokksblaða- mennskan hreinræktuð og ekkert pláss fyr- ir önnur sjónarmið í fréttum og leiðurum. Hér gefst aðeins rúm til þess að stikla á stóru í umfjöllun Reykjavíkurblaðanna. Al- þýðublaðið og Morgunblaðið fúndu Daníel allt til foráttu, en studdu aðgerðir Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. Allt annað hljóð var í strokknum hjá Þjóðviljanum og Tímanum, enda stóðu bæjarfulltrúar sósíalista og Fram- sóknarmanna með Daníel. Þjóðviljinn var aldrei í vafa um hvor aðilinn hefði réttlætið sín megin. í frétt á forsíðu blaðsins 26. ágúst segir að kratar hafi rofið samstarfið við Framsókn og sósíalista og skriðið „undir pilsfald íhaldsins“. Ástæður Al- þýðuflokksmanna fyrir brottvikningunni voru kallaðar tylliástæður, en bæjarstjórnarfundinum lýst svona: „Fyrr á fundinum höfðu íhaldsmenn óg kratar haldið uppi dólgs- legum árásum á bæjar- stjórann en hann hafði hrist þá af sér hvem af öðmm við mikla kátínu fúndarmanna.“ Alþýðublaðið hafði aðra sögu að segja af þessum fundi: „Mjög harðar umræður urðu á bæjarstjómarfúndinum og vakti það ekki sízt athygli hinna mörgu áheyrenda, hve málílutn- ingur Daníels var ofsafenginn. Reyndi hann með persónulegum svívirðingum að gera lítið úr bæjarfúlltrúum Alþýðuflokksins, en reið ekki feitum hesti frá þeirri viðureign.“ Þjóðviljinn tók mjög undir kröfur bæjarbúa um að brottvikningin yrði lýst ómerk, en nýjar kosningar látnar fara ffam ella. í leiðara Þjóð- viljans 4. október þá um haustið sagði: „Ekkert getur verið sjálfsagðari lýðræðis- skylda en að meirihluti kjósenda ráði því sjálf- ur hveijir fara með stjóm í bænum. Sé gengið gegn þeim ffumrétti er verið að ffemja valda- rán og ofbeldi sem getur haft hinar alvarleg- ustu afleiðingar.“ Alþýðublaðið var hins vegar aldrei í vafa um að brottvikningin væri fyllilega réttmæt. Blaðið tók það óstinnt upp þegar Daníel neitaði að víkja. Því var lýst í leiðara 27. ágúst með þessum orðum: „Landsfólkið er undrandi á þeirri furðulegu frekju Daníels að ögra meirihlutanum og sitja eftir löglega uppsögn. Hvem- ig væri stjómarfar í landinu, ef menn kæmu víðar ffam eins og Daníel gerir á Akranesi?“ Um ffamgöngu Alþýðuflokks- manna sagði blaðið í ffétt 30. ág- úst: „Alþýðuflokkurinn hefur tek- ið óhjákvæmilega og málefnalega afstöðu. Daníel Ágústínusson var búinn að gereyðileggja raunvem- legt samstarf við aðra flokka með framkomu sinni, og hann hunds- aði samþykktir bæjarráðs og bæj- arstjómar svo, að ekki kunni góðri lukku að stýra.“ -gg Sognlegni bajaisljiniatlBniui á Akitne»i: Ihald og kratar skriöa saman - Daniel nsitar aö vikja - Hálfdán bæjarstjðri án lyklavalda! Harkaleg málaferli hatin — Áki Jakobsson sendur til oð koma Hálfdáni inn i embœtfiS meS valdi 1 fyrrakvöld var haldlnn mjög söfiulegur bæjarstjómar- fundur Á Akranrsi. Kratar rufu samstarf sitt vlð Framsókn og sósíallsta fr& 1958, og skrifiu undir pilsfald Ihaldsins. Gufi- mundur Sveinbjörnsson, krati, flutti tlllögu tun afi víkja Dani- el Ágústínussyni bsejarstjóra úr starfl og kjósa llilfdún Sveinsson, krata, sem bæjar- stjóra. Þrssl tillaga var sam- þykkt mrfi þremur krata at- kvafium og fjórum íhaldsat- kvefiinn gegn atkvæðum sósi- alistans og Framsóknarmanns- ins. Þessi tiðiadi gerðu3t S lok fundarina en þá höföu bæjar- búar fjölmennt mjög og var troðfullt út' á götu. Fyrr á fundinum höfðu ihaldsmcnn og kratar haldið uppl dólgsiegum árÓBum á bsjarstjóra en hann ha'ði hrist þá af sér hvern af öðrum við mikla kátinu fund- armanna. Verður nánar sagt frá fundinum I blaðinu morgun. Um brottrekstrartillögu urfiu miklar og heitar umrn ur. Sigurður Guðmundsson b: arfulltrúi sósialista fiutti ri studda dagskrái- og frávisun; tillögu, sem var felld með 7 atkvæðum. | Forsiðufrétt Þjóðviljans um bæjarstjóramálið 26. ágúst 1960. NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.