Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 8
■■ NYII j||| -ssMij. Heltíar Útgefandi: Úlgáfufélag Þjóðviljans Framkvœmdastjóri: Hallur Pált Jónsson Rltstjórar: Ami Bergmann, Ólafur H, Torfaso Guðmundsson Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Katfsson Fréttastjórl: Sígurður Á. Friðþjófsson Auglýsingastjórt: Stein Afgrelðsla: sr 68 13 33 n.Helgt Auglýslngadeild: rr 68 Simfax: 68 19 36 Verð: 150 krónur f lausa Setnlng og umbrot: Pr Prentun: Oddi hf arHarðarson 13 10-88 13 31 sölu sntsmlðja Þjóðviljans hf. þlÓÐVILJINN I# Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Samvinnuverslun í Reykjavík Undanfarin ár hafa orðið miklar breyting- ar á verslunarháttum í landinu. í matvöru- versluninni hafa stórmarkaðir komið til sög- unnar og náð sífellt stærri hluta verslunar- innar til sín. Þetta fyrirkomulag hefur sína kosti en einnig galla. Kostirnir eru þeir að með stórmörkuðum eiga að skapast skilyrði til að halda vöruverði niðri, ef rétt er á hald- ið, en stærstu gallarnir felast í lakari þjón- ustu við þá sem ekki hafa bíl til afnota. Þannig verður erfiðara og oftast dýrara fyrir aldrað fólk að kaupa í matinn. Reynslan sýnir að kaupmaðurinn á horninu er sjaldn- ast samkeppnisfær við stórmarkaðina í verði. Þessar breytingar hafa að sjálfsögðu haft mikil áhrif á rekstur KRON, Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis. Áður fyrr hafði félagið fjölda verslana í Reykjavík og Kópa- vogi, það gegndi mikilvægu félagslegu hlut- verki og átti veigamikla hlutdeild í því að halda vöruverði niðri. Þróunin varð litlum verslunum óhagstæð, einkabílaflotinn stækkaði og skilyrðin fyrir stórmarkaði bötn- uðu. Þannig lagðist smátt og smátt allt á eitt og kallaði óhjákvæmilega á breytingar hjá félaginu sem hefur verið að leiða til þess að það hefur breyst í eignarhaldsfélag í stað hefðbundins kaupfélags. I fyrradag var svo tilkynnt að samband is- lenskra samvinnufélaga hefði eignast nærri 90% hlut í Miklagarði h/f, sem í reynd felur í sér að verslunarrekstri í eigu KRON er að miklu leyti hætt. Þetta eru talsverð tíðindi, sem þýða að sönnu ekki endalok samvinnu- verslunar á höfuðborgarsvæðinu, en virðast aftur á móti fela í sér að tími neytendakaup- félags sé liðinn, að minnsta kosti í bili. Nú á tímum markaðshyggjunnar hættir mörgum félagshyggjumanni til að vanmeta gildi samvinnuverslunar og samvinnustarfs og því er mjög haldið á lofti að samvinnu- hreyfingin hafi ekki staðið sig í samkeppni við fyrirtæki í einkaeign. Vissulega má finna að mörgu í samvinnurekstri, stundum er eins og samvinnumenn séu alls ekki nógu fljótir að bregðast við óhjákvæmilegum breytingum og hafi ekki nauðsynlega for- ystu fyrir hagkvæmum nýjungum. Þrátt fyrir þetta má ekki gleymast að samvinnuverslun er lífsnauðsynleg af mörgum ástæðum. Kaupmenn fyrri tíma höfðu fyllstu ástæðu til að óttast samvinnuverslunina, enda fór svo með árunum að kaupfélögin tóku næstum alla verslun á landsbyggðinni í sínar hendur og verulegan hluta hennar á Reykjavíkur- svæðinu. Kaupfélögin, vítt og breitt um landið, hafa átt við mikla erfiðleika að stríða og SÍS var um tíma svo illa leikið af taprekstri að ástæða var til að óttast um afdrif þess. Eftir erfiðleikatímabil undanfarinna ára virðast mörg kaupfélög hafa rétt nokkuð úr kútnum og fréttir hafa borist af batnandi hag SÍS. Því miður varð raunin önnur hjá KRON, með þeim afleiðingum sem nú ættu að vera öll- um Ijósar. Traust samvinnuverslun á höfuð- borgarsvæöinu er ákaflega mikilvæg; ef samvinnuverslun dæi með öllu út í Reykja- vík hefði orðið stórslys í verslunarsögunni. Á langfjölmennasta verslunar- og þjónustu- svæði landsins hefði einkaverslunin yfir- burðaaðstöðu, hugsanlega með þeim af- leiðingum að fljótlega réðu örfá einkafýrir- tæki öllu verðlagi á matvöru. Enda þótt Þjóðviljanum þyki nú skarð fyr- ir skildi hlýtur blaðið að óska þess að þeim, sem innan tíðar taka við verkefnum KRON, takist að halda eða auka hlut samvinnu- verslunar og veita þannig einkaversluninni nauðsynlega samkeppni og aðhald. Reynsl- an ein sker úr um það hvort hlutur KRON í þeim efnum á eftir að vaxa á ný. hágé. OAUT 8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.