Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 22
UM HELGI MYNDUST Árbæjarsafn, lokað okt.-maí, nema m/samkomulagi. ASÍ-Listasafn, Grensásvegi 16A: Björg Þorsteinsdóttir opnar sýningu á lau kl. 14. Opið alla dagakl. 14-19, til 4.11. Ásmundarsalur við Freyjugötu 41, Hjördís Frimann, málverka- sýning. Opið daglega kl. 14-20 til 23.10. Björninn við Njálsgötu 4a, Krist- ján Fr. Guðmundsson sýnir mál- verk og vatnslitamyndir. Djúpið, kjallara Homsins, Birgir Snæbjöm Birgisson opnar sýn- 10-14 og su 14-18, til 9.11. FÍM-salurinn við Garðastræti 6, Anna Gunnlaugsdóttir, opið dag- legakl. 14-18, til 28.10. Gallerí 1 1, Skólavörðustíg 4a, Charles Wellmann opnar sýningu á nálaraugamyndum og -mynda- vélum i kvöld kl. 21. Opið alla dagafrákl. 14-18. Til 1.11. Gallerí 8, Austurstræti 8. Seld verk e/um 60 listamenn, olíu-, vamslita- og grafikmyndir, teikn- ingar, keramík, glerverk, vefnað- ur, silfurskartgripir og bækur um íslenska myndlist. Opið virka dagaoglaukl. 10-18 og su 14-18. Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Verkstæði V flyst að Ingólfsstræti 8 og opnar í dag. Sex konur vinna á verkstæöinu og eru þar unnin textllverk ýmisskonar, sjöl, púðar, slæður, dreglar o. fl. Opið alla virka daga kl. 13-18 og lau 10-16. ingu á tréristum, steinþrykki og teikningum á lau kl. 16. Stendur til 17.11. Opið á sama tíma og veitingastaðurinn. Epal, Faxafeni 7. Pétur Tryggva opnaði sýningu á skartgripum i gær. Opin kl. 9-18 virka daga, lau Síðumúla 32, grafik, vatnslita-, pastel- og olíumyndir, keramik- verk og módelskartgripir, opið lau 10-14. Gallerí List, Skipholti 50 B. Vatnslita og grafikmyndir, keram- ík og postulin auk handgerðra isl. Helgarveörið Horfur á laugardag og sunnudag: Suðaustlæg eöa breytileg átt, vföast fremur hæg. Skýjað um sunnan- og vestanvert landiö og dálftil rigning ööru hverju en þurrt og nokkuð bjart veður noröaustanlands. Fremur hlýtt, þó ef til vill næturfrost á N- og A-landi. skartgripa. Opið kl. 10:30-18, lau 10:30-14. Gallerí Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Sigurbjöm Jónsson opnar mál- verkasýningu á lau kl. 14. Opin virka daga nema má kl. 10-18 og umhelgarkl. 14-18, til 7.11. Hafnarborg, menningar- og listastoínun Hafnarfjarðar, sex listamenn með samsýningu. Olíu- málverk, tréristur og skúlptúrar. Opið alla daga nema þri kl. 14-19, til 28.10. Hlaðvarpinn við Vesturgötu 3b, Elísabet H. Harðardóttir opnar sýningu á myndvefnaði á lau. Op- ið lau kl. 10-16 og þri-fö 14-16, til 30.10. Kjarvalsstaðir, vestursalur: Ol- afur Lámsson sýnir þrivíð verk og málverk. Austursalur: Sýning á ljósmyndum Imogen Cunning- hams. Til 21.10. Opið daglega ffá kl. 11-18. Listasafn Borgarness, sýning á verkum Ásgerðar Búadóttur, opin alla virka daga til 21.10. Listasafn Einars Jónssonar op- ið lau og su 13.30-16, högg- myndagarðurinn alla daga 11-16. Listasafn íslands, yfirlitssýning á verkum Svavars Guðnasonar, sem stendur til 4.11. Opið alla daga nema má kl. 12-18. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, sýn. á andlitsmyndum Siguijóns. Opið lau og su kl. 14-17, þri kl. 20-22. Listhús við Vesturgötu 17, Einar Þorláksson listmálari opnar mál- verkasýningu lau. Opin daglega milli kl. 14 og 18.Til4.ll. Minjasafn Akureyrar, Landnám í Eyjafirði, heiti sýningar á fom- minjum. Opið su kl.14-16. Minjasafn Rafmagnsveitunnar, húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16. Nýlistasafnið við Vatnsstíg, Har- aldur Jónsson og Ingileif Thorl- acius sýna málverk og þrívíð verk til 21.10. Opið daglegakl. 14-18. Norræna húsið, kjallari: Val- gerður Hauksdóttir opnar sýning- una Tileinkun á lau, teikningar og grafik. Opin kl. 14-19 daglega. Til 4.11. Anddyri: Ian Robertson, Skotlandi: Öðmvísi ljósmyndir. Bókasafn: Maria Heed sýnir æt- ingar og hamingjubeinakippur, til 28.10. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðastræti 74, lokað vegna við- gerða um óákveðinn tíma. Sjóminjasafn íslands, Vestur- götu 8 Hf. Opið lau og su 14-18. Slúnkaríki, ísafirði: Jón Óskar opnar sýningu á 30 smámyndum á lau. Opið fi-su kl. 16-18, til 11.11. Skagfirska söngsveitin, afmæl- istónleikar í Langholtskirkju lau kl. 16. Á efnisskrá einungis lög e/Skagfirðinga. Um kvöldið af- mælishófí Borgartúni 6 kl. 19:30. Gerðuberg, ljóðatónleikar á mánudagskvöldum, nk má kl. 20:30 Marta Guðrún Halldórs- dóttir sópran við undirleik Jónas- ar Ingimundarsonar. Lög e/Bizet, Rachmaninoff, Poulenc, Barber og Juaquu Niu. Norræna húsið, Johan Eriksson og Kerstin Bodin ffá Tónlistar- skólanum í Piteá í Svíþjóð leika á flautu og slagverk á lau kl. 16. UEIKHÚS Gerðuberg, fyrsta helgi brúðu- leikhúshátíðarinnar runnin upp. Lau kl. 14 Brúðubíllinn. Kl. 15 íslenska brúðuleikhúsið með Rauðhettu o.fl. þekktar brúður. Su. kl. 14 Brúðubíllinn, kl. 15 ís- lenska brúðuleikhúsið. Kynning á leikbrúðunámskeiði. Gamanleikhúsið, Lína langsokk- ur í gamla Iðnó á lau og su kl. 15. Leikfélag Mosfeilsbæjar, bama- leikritið Elsku Míó minn, í kvöld kl. 20, lau kl. 14 og 16:30, su kl. 14 og 16:30. Þjóðleikhúsið, Örfá sæti laus í ís- lensku ópemnni í kvöld og lau kl. 20. Pétur og úlfúrinn og aðrir dansar í ísl. óp. su kl. 20. Borgarleikhúsið, stóra svið: Fló á skinni, sýnd í kvöld og lau kl. 20. Litla svið: Ég er meistarinn í kvöld og lau kl. 20. Ég er hættur! Farinn! ffumsýnt á su kl. 20. Leikfélag Akureyrar, Leikritið um Benna, Gúdda og Manna frumsýnt í kvöld kl. 20:30,2. sýn. lau kl. 20:30. HrTTOGÞETTA Kvikmyndasýningar í MÍR, Vatnsstíg 10. Hvít sól eyðimerk- urinnar, leikstjóri er Vladimír Motyl. I myndinni segir ffá ævin- týmm Fjodors Súkhovs hermanns í sandauðnum Mið-Asíu og hvemig honum tekst að ffelsa 9 konur úr ánauð Abdúlla hins blóðþyrsta. Su kl. 16. Aðgangur ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Hana-nú í Kópavogi, samvera og súrefni á morgun lau, lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Kom- um saman upp úr hálftíu og drekkum molakaffi. Félag eldri borgara, Göngu- Hrólfar hittast á morgun lau kl. 10 að Hverfisgötu 105. Opið hús Goðheimum á su ffá kl. 14, fijálst spil og ta.fl. Dansleikur ffá kl. 20. Þri 23.10 hefst skáldakynning, lesið úr verkum Bendikts Grön- dals. Opnun Félagsheimilis eldri borgara lau 27.10, matur og dans- leikur, miðapantanir f. þri í s:28812. Norræna húsið, kvikmyndasýn- ing f. böm su kl. 14, danskar bamamyndir: Sam pá Ban- egárden, Syv-et, Tre smá Kines- ere. Aðgangur ókeypis. Ferðafélag íslands, a. fjörufcrð f. fjölskylduna su, Hvítanes- Brynjudalsvogur. b. Botnsdalur - Glymur. Brottför í báðar ferðir frá BSÍ austanmegin kl. 13. Minning - Valur Framhald afbls. 19 að þar mætti hús þeirra standa um mörg ókomin ár. Fyrstu tveir kaflamir í lífsbók Vals Amþórssonar vom helgaðir samvinnuhreyfingunni. Segja má, að þriðji kaflinn hafi hafizt í Landsbankanum í ársbyijun 1989. Enginn þarf að efa, að í fyllingu tímans hefði hann skilizt við þann kafla með þeirri farsæld og giflu, sem einkenndi fyrri kafl- ana tvo. En nú hafa forlögin brot- ið blað með þeim hætti, að ekki gefst kostur á framhaldi. Ég þakka Val Amþórssyni allt það sem hann var íslenzku samvinnustarfi og kveð hann hinzta sinni með þessum ljóðlín- um nágranna hans í Öxnadalnum: „...svo vermirfögur minning manns margt eitt smáblóm um sveitir lands, frjóvgar og blessun færir" J.H. Frú Sigríði, bömum hennar og bamabömum, aldurhnignum föður Vals og öllum ættingjum öðmm fæmm við lnga dýpstu samúðarkveðjur. Megi sá Drott- inn, er gæðir blómin lífi, styrkja þau öll á þessum erfiðu tímamót- um. Sigurður Markússon Kveðja frá Landsbanka íslands „Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund á snöggu augabragði af skorið verðurfljótt, lit og blöð niður lagði, - lif mannlegt endar skjótt. " Þegar dauðinn kveður óvænt dyra, eins og sálmaskáldið Hall- grímur Pétursson lýsir í þessu al- kunna erindi, veldur koma hans miklum sársauka og trega og skil- ur oft eftir sig skörð í mannlegu samfélagi, sem erfitt er að fýlla. I dag er til moldar borinn Val- ur Amþórsson, bankastjóri Landsbanka íslands, sem fórst í flugslysi við Reykjavíkurflugvöll 13. þ.m. Hann varð aðeins 55 ára gamall, en hafði mikla reynslu að baki í stjómun fyrirtækja og ábyrgðarmiklum trúnaðarstörf- um. Hann var ráðinn bankastjóri Landsbankans í ársbyijun 1989. Á þeim skamma tíma sem síðan er liðinn, kom það glöggt í ljós, að í því stafi nutu sín vel mann- kostir og víðtæk reynsla Vals Amþórssonar. Með honum, bankaráði, bankastjóm og starfs- fólki tókst ágæt samvinna sem hið sviplega fráfall hans hefir nú skorið af. Valur var gjörvulegur maður, sem sópaði að hvar sem hann kom. Hann lagði sig allan ffam í starfi, vann langan og strangan vinnudag og hlífði sér hvergi. Hann var fljótur að átta sig á erf- iðum verkefhum og fúndvís á rétta lausn í hverju máli. Því mátti jafnan treysta, að þau verkefni, sem honum vom falin, myndi hann leysa af hendi með festu og sanngimi. Á þeim skamma tíma, sem Landsbankinn naut starfskrafla hans, var hann þegar orðinn einn af máttarstólp- um stofnunarinnar. Hið snögga fráfall Vals Amþórssonar er því mikið áfall fyrir Landsbanka ís- lands og okkur, sem áttum því láni að fagna að kynnast honum og starfa með honum. Við sökn- um góðs drengs og mikilhæfs samstarfsmanns. Aðrir munu rekja lífs- og starfsferil Vals Amþórssonar nánar en hér er gert, en íyrir hönd Landsbanka Islands votta ég eftir- lifandi konu hans Sigríði Ólafs- dóttur, bömum þeirra, bamaböm- um, öldruðum föður og öðmm aðstandendum innilegustu sam- úð. Eyjólfur K. Sigurjónsson Formaður bankaráðs Landsbanka íslands 22 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.