Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.10.1990, Blaðsíða 16
Enginn kæmiað hlusta Skemmtilega Iýsir Magnús Stephensen dómstjóri því í Ferðarollu sinni, þegar hann sá og heyrði Töfraflautu Mozarts leikna 1826 í Kaupmannahöfn. Hrifning þess manns sem upp- götvað hefur fegurð æðri tón- listar er augljós, hriíhing og undrun þess sem kemur frá tón- listarsnauðu landi, þar sem ein- ungis er til einhver slatti af lang- spilum og fiðlum, en aðeins tutt- ugu og sex ár frá því hann sjálf- ur flutti fyrsta stofuorgelið til landsins. „Svo bytjaði comoedia ný, Trylleflöjten nefnd, söngstykki dýrðlegt í 4 töktum með óvið- jafnanlegri músík og allsháttar hljóðfærasöngi undir eftir meistarans Mozarts söngspili. Það var allt óviðjafnanlega dýrðlegt bæði að heyra og sjá.“ Og þegar Magnús hefur lýst þessum viðburði rækilegar í Ferðarollunni, segir svo: „Mig langaði til að ættfólk mitt ffá Viðey og Hólmi hefði þá verið hjá mér til að sjá og heyra alla þá dýrð, því hana var vert að sjá og verður þetta stykki víst 12 sinnum leikið og vilja allir ná í að sjá það og heyra.“ Hann tilfærir mikinn kostnað, en kveður einnig mikið koma inn í aðgangseyri. Þá voru liðin þijátíu og fjög- ur ár frá dauða Mozarts og rúm- lega það frá samningi þessarar nýju „comoedíu" sem hefur reynst ný allt fram á okkar daga. Það leynir sér ekki hve næmur Magnús hefur verið á tónlistina og fegurð óperunnar. Hann ósk- ar þess að ættfólk hans gæti hreyrt og séð slíka dýrð. Ef ein- hver hefði sagt við hann, að þetta „söngstykki“ yrði væntan- lega flutt heima á Islandi síðar meir, hefði hann trúlega brosað að slíkum draumórum, hversu vongóður sem hann kann að hafa verið um að lyffa mætti þjóðinni upp úr niðurlægingu fátæktarinnar. Og það er sannast mála, að jafnvel um næstu alda- mót eftir dauða hans voru slíkir draumórar handan við sjón- deildarhringinn. Enn voru að- eins fáar tegundir hljóðfæra til í Iandinu og ekkert leikhús, þar sem hægt hefði verið að setja slíkt verk á svið, að ég held, þótt ég sæi reyndar aldrei salinn í Fjalakettinum sem rifinn var fyrir nokkrum árum fyrir virt- ustu manna víðsýni! Nei, þótt húsnæði hefði fundist, var engin hljómsveit til á Islandi, ekkert nema flokkur lúðurþeytara. Það var ekki fyrr en tveir áratugir voru liðnir af þessari öld, að fýrsti lærði íslenski fiðluleikarinn, Þórarinn Guð- mundsson, stofnaði fyrstu hljómsveitina á Islandi, en þegar ríkisútvarpið tók til starfa 1930 og tónlistarskólinn í Reykjavík var stofnaður, hófst fyrir alvöru tónlistaruppeldi þjóðar sem fram á þessa öld hafði lítið heyrt annað en rímnastemmur og sálmalög. Tveir frábærir tónlist- armenn, Páll Isólfsson dómorg- anisti og Ami Kristjánsson pi- anóleikari, tóku til starfa ásamt fleiri góðum mönnum að kynna þjóðinni gegnum útvarpið svo- nefnda æðri tónlist. Þeir leyfðu þjóðinni að hlusta á létt fiðlu- verk (eins og eftir Kreisler), pí- anóverk auðskilin (eins og Ast- ardraum eftir Liszt) og ariur úr ffægum óperum, en einnig erfið hljómsveitarverk og sinfóníur. Jafnframt fékk fólk sín dægur- lög inn á milli og Hljómsveit Bjama Böðvarssonar lék dan- slög fyrir fólk á öllum aldri. Samt vom margir óánægðir og vildu ekkert heyra nema dans- og dægurlög. Allt hitt var garg í eyrum þeirra. En tónsnillingam- ir í Ríkisútvarpinu vissu að þeir höfðu á valdi sínu að mennta þjóðina í þessum efnum, og þeir létu ekki af því. Hollt er að gefa gaum þessu uppeldishiutverki Ríkisútvarps- ins nú, þegar við íslendingar eigum sinfóníuhljómsveit og hægt er að safna saman kom- ungu fólki á hveiju ári í hljóm- sveit til að leika merkustu verk tónbókmenntanna. Og það er ekki aðeins ættin frá Viðey og Hólmi sem á þess kost að sjá og heyra ópemr Mozarts og ann- arra snillinga eða hlusta á ís- lenska sinfóníuhljómsveit leika meistaraverk Beethovens, held- ur allur almenningur. Slík menning í fámenni vekur undr- un og aðdáun útlendinga sem vit hafa á tónlist. En ef Ríkisútvarp- ið hefði frá upphafi verið á sama stigi og Rás tvö eða Bylgjan, væri engin sinfóníuhljómsveit starfandi hér og engar ópemsýn- ingar. Svo einfalt er það. Enginn nema fáeinir tónlistarmenn hefðu heyrt neitt nema dægur- lög, enginn vissi hvað um væri að ræða, enginn kæmi að hlusta. Keliþó Alþýöuleikhúsið sýnir í skólum: KELI ÞÓ eftir Iðunni og Krístinu Steinsdætur. Lög og Ijóð: Ólafur Haukur Símonarson. Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Leikmynd og búningar: Gerla. Útsetningar: Gunnar Þórðarson. Leikendur: Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir, Gunnar Rafn Guð- mundsson, Baltasar Kormákur. Þessa dagana er Alþýðuleik- húsið að hefja starfsemi sína. Æfingar hafa staðið yflr á tveim verkefnum, Medeu eftir Evripi- des og kennsluleikriti um böm í umferðinni. Það síðamefhda var frumsýnt í síðustu viku bömum í Breiðholtsskóla og heitir Keli þó. Alþýðuleikhúsið nýtur til- styrks menntamálaráðuneytis, Umferðarráðs og Landsbankans við sviðsetningu leiksins og má líta á frumkvæði leikhússins í þessu máli sem hlut af framlagi leikhússfólks fyrir bættri um- ferðarmenningu. Ekki veitir af. Sýningunni fylgir kennslu- efni ætlað bömum frá sex til níu ára aldurs, límmiðar, teikningar og spumingar fyrir kennara. Öllu er haganlega komið fyrir í litprentaðri möppu sem geymir líka ljóð Olafs Hauks við lög úr sýningunni. Keli verður á ferð- inni næstu vikumar um skóla- kerfið og vonandi skilar sýning- in tilætluðum árangri í aukinni varúð áhorfenda i hörðum heimi. Það er ánægjulegt að kennsluleikrit um þarft efni skuli komast á fjalimar. Ekki að- eins sökum þess hve efnið er brýnt, heldur líka vegna þess að þannig er leiklist komin inn í skólana þar sem hún hefur verið homreka nema í hátíðahaldi nemendanna sjálffa. Við höfum enn ekki náð svo langt í uppeld- ismálum að leikurinn sé notaður á vísvitandi hátt í skólum okkar sem kennslutæki. Leikur á sér Baltasar Kormákur ( hlutverki Kela. Mynd: Jim Smart. ekki stað í menntastofnunum kennara og verður því ekki tæki i höndum þeirra við nám og starf. Sem er miður. Ekkert tæki er jafn frelsandi í beitingu bama, leiðir þau á nýjar slóðir ytra sem innra í landnámi. Leikrit þeirra systra um Kela sem er nýfluttur að vestan og vinkonu hans Völu sem er týnd virtist bömunum þekkileg skemmtun. Tónlist Ólafs Hauks og útsetningar Gunnars lífga mikið upp á það. Flutningur þre- menninganna er fjörlegur. Það er hvorki frumlegt né skrifað af hugkvæmni, byggir á einfaldri formúlu sem er þokkalega unnn- in. Ekki krefst það mikillar þátt- töku ffá bömunum og hefði að ósekju mátt byggja leikinn meira upp með beinum spum- ingum til þeirra og laða þau þannig til þátttöku í framvindu Íeiksins. En erindið er brýnt og áhorfendum var skemmt svo til- gangnum er náð. pbb Lillý og Heiðbjartur I mjúkri danssveiflu (Eggert Þorleifsson og Edda Heiðrún Backman). Ekki eru tilburðir Ásláks og Bergþóru í bakgrunninum sfðri (Sigurður Skúlason og Hanna Maria Karlsdóttir). Myndina tók Jim Smart á æfingu á leikritinu Ég er hættur! Farinn! sem frumsýnt verður hjá Leikfélagi Reykjavlkur á stóra sviðinu í Borgarieikhúsinu næstkomandi sunnudagskvöld. Ég er hættur! Farinn! Borgarleikhúsið ffumsýnir næstkomandi sunnudagskvöld nýtt íslenskt leikrit eftir Guð- rúnu Kristínu Magnúsdóttur, sem kallast Ég er hættur! Far- inn! (Ég er ekki með í svona asnalegu leikriti.) Leikritið hlaut fýrstu verð- laun í flokki leikrita fýrir full- orðna í leikritasamkeppni Leik- félags Reykjavíkur, sem efnt var til í tilefhi af opnun Borgarleik- hússins. Leiktextinn er sagður fínleg- ur og fýndinn. Yrkisefnið er ís- lenskt nútímalíf, fár fjölskyldu- lífsins, ólgandi átök undir niðri, en kímnin gleymist samt ekki. Þótt efniviðurinn sé kunnugleg- ur er verkið og uppsetning þess mjög nýstárleg. Leikstjóri er Guðjón P. Ped- ersen, dramatúrg er Hafliði Am- grímsson, en leikmynd og bún- inga hannaði Gretar Reynisson. Lýsingu annast þeir Egill Áma- son, Gretar Reynisson og Guð- jón P. Pedersen. Ahrifahljóð sér Jóhann G. Jóhannsson um. Leikarar í sýningunni em Guðrún Ásmundsdóttir, Karl Guðmundsson, Hanna María Karlsdóttir, Sigurður Skúlason, Harpa Amardóttir, Helgi Bjömsson, Bára Lyngdal Magn- úsdóttir, Stefán Jónsson, Edda Heiðrún Backman, Eggert Þor- leifsson, Ragnheiður Amardóttir og Þröstur Guðbjartsson. 16 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.