Þjóðviljinn - 19.10.1990, Síða 17
Vantnadrengir
í kollsteypu
Það hafa sennilega fáar
hljómsveitir tekið eins miklar
kollsteypur á seinni árum og
enska hljómsveitin Waterboys.
Um miðjan síðasta áratug var hún
með forvitnilegri nýbylgjusveit-
um, og þegar platan „This Is The
Sea“ kom út árið 1985, voru
margir sannfærðir um að Water-
boys hefði fest sig í sessi meðal
nýbylgjusveita. „This Is The Sea“
er mjög góð plata, en í stað þess
að marka upphaf markaði hún
endalok í sögu hljómsveitarinnar.
Skömmu eftir að þessi þriðja
breiðskifa Waterboys kom út,
hætti einn áhrifaríkasti meðlimur
hljómsveitarinnar samstarfmu.
Kraunaríöl-
umpottum
Tónlistarmenn hafa eignast
nýtt athvarf á Vitastíg 3. Þar hefiir
verið sett á laggimar ný tónlistar-
krá með úrvalsaðstöðu bæði fyrir
tónlistarmenn og gesti og hefur
staðurinn hlotið nafnið Púlsinn.
í kvöld verður blúskvöld á
Púlsinum. Tregasveitin mun sjá
um að hraða æðaslættinum hjá
blúsaðdáendum, en sveitina skipa
feðgamir Pétur Tyrfingsson og
Guðmundur Pétursson, ásamt
þeim Sigurði Sigurðssyni, Bimi
Þórarinssyni og Guðna Flosasyni.
Tónleikamir heljat klukkan 22 og
leikur Tregasveitin með hléum til
klukkan 01.
Tregasveitin kemur einnig
fram annað kvöld og spilar þá til
klukkan hálf tólf. Þá tekur hljóm-
sveitin Bláir englar við. Með Blá-
um englum kemur Einar Vilberg
aflur á svið eftir nokkurra ára hlé,
en með honum í hljómsveitinni em
Gunnar Guðmundsson og Hösk-
uldur Svavarsson.
Heiti potturinn hefur fært starf-
semi sína frá Duushúsi yfir í Púls-
inn. Það verður því djassað og
blúsað á Púlsinum á sunnudags-
kvöldum. Friðrik Karlsson Mezzo-
forte-gítaristi ríður á vaðið með
hljómsveit og kynnir væntanlega
plötu sína „Point Black“. Með
Friðriki spila Eyþór Gunnarsson,
Jóhann Ásmundsson, Pétur Grét-
arsson og Gunnlaugur Briem.
Ellen Kristjánsdóttir kemur
einnig fram á sunnudagskvöldinu
með manni sínum og félögum hans
úr Mezzoforte. Þeim bætist þó
liðsauki, þar sem Sigurður Flosa-
son mun blása með þeim í saxafón.
Bróðir Ellenar, Kristján Kristjáns-
son, er liðtækur blússöngvari og
mun hann koma ffam með Þorleifi
Gíslasyni á sunnudagskvöldinu.
Púlsinn hefur það á stefnu-
skránni að sinna sem flestum lit-
brigðum tónlistarinnar. Samkvæmt
tilkynningu er unnið að því að
koma á þjóðlagakvöldi næst kom-
andi mánudag, en enn á eftir að
binda lausa enda í því máli. Púls-
inn er annars bókaður langt ffam í
desembermánuð. Pétur Östlund
kemur hingað til lands á vegum
Heita pottsins. Hann mun spila
með ýmsum meðlimum Heita
pottsins dagana 31. október og 1.
og 2. nóvember.
Kántrýið fær einnig sinn skerf.
Meiningin er að hafa kántrýkvöld
hálfsmánaðarlega og verður fyrsta
kántrýkvöldið þann 25. október.
Þar kemur fram óþekkt íslensk
kántrýsöngkona, Sigrún Sigurðar-
dóttir. Sigrún er þó enginn græn-
ingi í tónlistinni, því hún hefur ma.
unnið í kántrýsöngvakeppni í Sví-
þjóð, og hún varð í öðru sæti í ann-
arri mjög stórri söngvakeppni þar í
landi.
Það mun því krauma vel í öll-
um tónlistarpottum á Púlsinum
næstu vikumar. -hmp
Karl Wallinger bassa- og hljóm-
borðsleikara fannst sér ofaukið í
nálægð söngvarans Mike Scott,
sem samdi nær öll lög og texta á
„This Is The Sea“. Wallinger
stofhaði sina eigin hljómsveit,
World Party, sem notið hefur
vaxandi virðingar og fékk kast-
ljósunum beint að sér fyrir
„Goodbye Jumbo“, sem kom út
fyrr á þessu ári.
Eftir brottfor Wallingers var
hljótt um Waterboys í þijú ár.
Mike Scott vissi ekki almennilega
i hvora áttina hann átti að halda
og ákvað loks að fara til Banda-
ríkjanna. Hann breytti þeirri ráða-
gerð á síðustu stundu og fór til ír-
lands í staðinn og sú ákvörðun átti
eftir að reynast Waterboys af-
drifarik.
írland hafði vægast sagt mikil
áhrif á Scott. Eftir um ársdvöl á
írlandi var hann tilbúinn að leiða
hljómsveit sína í hljóðver og
„Fishermans Blues" varð til árið
1988. Breytingin frá „This Is The
Sea“ var mikil. Það var greinilegt
að írsk þjóðlagatónlist hafi hnoð-
að Scott til, ásamt landslaginu og
persónuleika írsku þjóðarinnar.
Enn mátti þó greina Waterboys
fyrri tíðar inn á milli í rokkaðri
lögum. En fiðlan og flautan vom
komin til að vera.
Á nýjustu plötu Waterboys
„Room To Roam“ verður síðan
enn ein stökkbreytingin í tónlist
Waterboys. Hún er samt ekki eins
óvænt og fyrri vendingar. Hér er
írski tónninn fágaður enn ffekar
og betur unnið úr honum. Scott er
orðinn gersamlega heillaður af
þjóðlagahefð íra og skilar henni
betur og af meiri einlægni en á
„Fishermans Blues“. Fiðlan og
flautan em ekki lengur hljóðfæri
sem notuð era til að krydda rokk
ffá Englandi, heldur skipa þessi
tvö hljóðfæri öndvegi. Mike Scott
syngur líka betur en áður á „Ro-
om To Roam“.
Platan byijar á stuttu inn-
gangsstefi, „In Search Of A
Rose“. Því er fylgt eftir með fjör-
ugum þjóðlagarokkara, sem heitir
hvorki meira né minna en „Song
From The End Of The World“.
Strax þama er sá sem hlustar grip-
inn fostum tökum af írskum tón-
Nýjasta plata Waterboys, „Room To Roam“, er listasmíð og besta plata hljómsveitarinnartil þessa og hafa fyrri
sklfur þó ekki verið af verri endanum.
listaranda, og maður sér fyrir sér
hóp þreyttra kvenna og karla
teyga öl og dansa í kring um fiðl-
ara sem stendur á miðju gólfi.
Síðan er slappað af í ballöðu, „A
Man Is In Love“. Þetta er virki-
lega ljúft lag sem ásamt mörgum
öðmm lögum á plötunni setur
Scott í hóp bestu ballöðusmiða.
Það em alls sautján lög á „Ro-
om To Roam“. Platan er í heild
mjög samkvæm sjálffi sér og
engu lagi er ofaukið, en það er
ffemur fágætur eiginleiki. Nokk-
ur lög standa þó upp úr eftir fyrstu
kynni. Fyrir utan þau lög sem
þegar em upptalin, má td. nefna
„The Star And The Sea“. í þessu
lagi líkist Waterboys dálítið
sjálffi sér í upphafi ferils síns, og
þama em fiðlan og flautan lögð til
hliðar. Mjög gott lag.
Fiðlan er hins vegar aftur
mætt til leiks í „The Raggie
Taggle Gypsy“ og flautan fylgir á
eftir í laginu „The Trip To Brod-
ford“. Þetta em hvort tveggja
mjög álitleg lög sem grípa þann
sem heyrir í fyrsta skipti.
Þjóðlagarokkið átti fylgi að
fagna fyrir fimm til tíu árum, en
það fylgi stóð stutt við. Water-
boys hefur það eftirminnilega til
vegs og virðingar á „Room To
Roam“. Mér liggur við að segja
að hugtakið „þjóðlagarokk“ fái
ferska merkingu við það að hlusta
á þessa plötu. Víst er írsk þjóð-
lagahefð rik af göldmm, en mel-
ódískar lagasmíðar Mike Scott
skapa henni vængi sem er þægi-
legt að svífa með. ,JRoom To Ro-
am“ fer undir nálina og geislann
til að vera. -hmp
ÁKslegi írinn
O’Connor
Á öðmm stað hér á siðunni er
fjallað um írsk áhrif á ensku
hljómsveitina Waterboys. Einn er
sá íri sem hefur hertekið hlustir
manna öðmm fremur undanfarin
misseri og það er Sinéd O’Conn-
or. Önnur breiðskífa hennar, „I
Do Not Want What I Haven’t
Got“, sló eftirminnilega í gegn í
hitteð- fyrra. En þá hafði þessi
álfslega kona fremur vont orð á
sér fyrir hvassyrtar yfirlýsingar í
garð breskra stjómvalda og var
talin vera eldheitur stuðnings-
maður IRA.
Snoðklipptur kollurinn á
O’Connor ýtti frekar undir þá
ímynd að hún væri hálfgerður
hryðjuverkamaður. Það kom því
mörgum á óvart hversu hugljúf
O’Connor var á annarri breið-
skífu sinni. Hún náði að syngja
sig inn í hjörtu milljóna manna
með Prince laginu „Nothing
Compares 2U“ og túlkun hennar
þeytti henni upp í efstu sæti vin-
sældalista um allan heim.
Þrátt fyrir þetta var O’Connor
ekkert að skapa sér betra veður
með því að draga úr hvassyrtum
yfirlýsingum. Vikuna sem „Not-
hing Compares To You“ fór í
fyrsta sæti á breska vinsældalist-
anum, kom hún í viðtal í Irska
sjónvarpinu og játaði að vísu að
einarðar stuðningsyfirlýsingar
hennar við IRA hefðu verið
bamalegar og vanhugsaðar,
„enda var ég varla nema ungling-
ur þegar ég gaf þær,“ sagði
O’Connor. Sem Iri væri hún ein-
lægur óvinur breskra stjómvalda,
hún þekkti afleiðingamar af af-
skiptum þeirra af írskum málefn-
um, en hún gæti þó engan veginn
stutt kaldrifjuð morð á saklausu
fólki. í sama viðtali sagði hún:
„Mér er það óskiljanlegt hvers
vegna almenningur í Bretlandi
gerir ekki byltingu þegar alþýða
Austur- Evrópu er að rísa upp og
Berlínamúrinn að falla. Það ætti
að draga Margréti Thatcher á hár-
inu út úr Downingstræti 10.“
Sinéd O’Connor hefur nýlega
sent frá sér smáskífu með fjómm
Sinéd O'Connor.
lögum. Skífan heitir eftir gamal-
kunnu titillagi hennar, „Three Ba-
bys“. En lögin hafa öll komið út
áður, á fyrstu breiðskífunni „The
Lion And The Cobra“ og „I Do
Not Want What I Hgven’t Got“.
Ahrifarikasta lag smáskífunnar er
„Troy“. Upptakan af því er ffá
tónleikum í London og er útsetn-
ingin á því mjög kröftug.
O’Connor hefur rödd og tilfinn-
ingahita til að skila fyrirlitning-
unni á valdahrokanum á sannfær-
andi hátt og gott ef þessi tónleika-
útgáfa er ekki betri en upphaflega
útsetningin. -hmp
Föstudagur 19. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17