Þjóðviljinn - 17.11.1990, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 17.11.1990, Blaðsíða 16
þJÓÐVILIINN Laugardagur 17. nóvember 1990 218. tölublað 55. árgangur _ SPURNINGIN Er gaman í skólanum? honum. fvar Nikulásarson Fellaskóla: Mér finnst alveg ágætt í skólan- Guðný Tómasdóttir Öskjuhlíðarskóla: Meiriháttar gaman. Það eru svo skemmtilegir krakkar með mér í skólanum. Sólveig Daníelsdóttir Menntaskólanum við Hamra- hlíð: Mérfinnst æðislega gaman. Ég er á fyrsta ári, og allt er mjög spennandi. Margrét Eiríksdóttir Öskjuhlíðarskóla og Fjölbraut í Breiðholti einu sinni í viku: Öskjuhlíðarskóli er ágætur, en ég er búin að fá dálitla leið á RAFRÚN H.F. Smiðjuvegi 11 E Alhliða rafverkta kaþjónusta Símí641012 Þau eru á Hálsaborg í Hálsaseli I Breiðholti og tóku lagið fyrir þingfulltrúa á Hótel Loftleiðum I gær. Menntamálaþing Spurt um innihald Menntamalaþing, hið fyrsta í röðinni, hófst í gœr með rœðu Svavars Gestssonar menntamála- ráðherra. A undan söng barnakór tvö lög við góðar undirtektir ráðstefnugesta. Þingið sækja nálega 200fulltrúar og koma víða að. Menntamálaþing er haldið í þeim tilgangi að taka sól- arhæðina á skóla- og mennta- málum í landinu og skyggnast inn í framtíðina. Menntamála- ráðuneytið hefur látið taka saman drög að framkvæmda- áætlun í skólamálum til ársins 2000. Verða drögin til umræðu á þinginu en tilgangurinn með samningu áætlunarinnar er að gera grein fyrir samræmdri skólastefnu sem unnið er eftir, án þess þó að skóla- og mennta- málum sé fullkomlega stýrt frá degi til dags úr ráðuneyti menntamála. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra sagði meðal annars i setningarræðu sinni að ýmsir teldu ára illa til slíkra fundahalda. „Við stöndum frammi fyrir pólit- ísku áhugaleysi á skólamálum; aftur og aftur hef ég verið spurður að því þann tíma sem ég hef verið menntamálaráðherra hvort ég sé hættur í stjómmálum af því að ég tali lítið um efnahagsvandann op- inbcrlega.“ Þá sagði hann: „Þegar ég legg mál fyrir ríkis- stjómina sem snerta skólamál er aldrei spurt um annað en kostnað. Það er gott að spyija um kostnað en það á líka að spyija um inni- hald. Það er sjaldan gert. Kostn- aðurinn við að framkvæma þessa stefnu á tíu árum er tveir miljarð- ar til viðbótar við þá íjármuni upp á 14 - 15 miljarða sem nú em í skólakerfinu. Það er aukning sem svarar um 200 miljónum króna eða 1, 3% á ári. Þetta er mikið fé en þó hógvært, ekki aðeins miðað við þarflr heldur einnig miðað við liklegar spár um þjóðarfram- leiðslu og miðað við það sem hef- ur farið í þennan málaflokk á und- anfomum ámm.“ Á þinginu em fulltrúar at- vinnurekenda og samtaka launa- fólks. Meðal þeiija sem tóku til máls í gær var Ásmundur Stef- ánsson, forseti ASÍ, og fjallaði meðal annars um tengsl skóla og atvinnulífs sem hann taldi hvergi einfold. Á báðum vígstöðvum væri margföld tortryggni. Hann sagði atvinnulífið vantreysta skólanum og innan verkalýðs- samtakanna teldu margir að þeir skólar sem teldust vera að mennta fólk fyrir atvinnulífið væm famir að leggja meiri áherslu á að þjóna næsta skólastigi fyrir ofan en að skila fólki vel undirbúnu á vinnu- markaðinn. Ásmundur vakti einnig máls á þvi að í menntakerfinu væri ekki síður þörf á hagræðingu en ann- arsstaðar í þjóðfélaginu, en menn með stjómunarmenntun væm ekki eftirsóttir í menntakerfinu. Á þinginu verður fjallað um öll skólastig; leikskóla, grunn- skóla, framhaldsskóla, háskóla og fúllorðinsffæðslu. Margar spum- ingar brenna á skólamönnum og fjalla þær ekki síður um innihald en kostnað. Lengri skóli fyrir yngstu bömin, einsetinn skóli, færri nemendur í bekk og aukin áhrif foreldra em á dagskrá í nýju fmmvarpi til grunnskólalaga sem menntamálaráðherra hefúr lagt fyrir Alþingi, en auk þess hafa þegar verið kynnt eða flutt ffum- vörp til laga um almenna fullorð- insfræðslu, um leikskóla, listahá- skóla o.fl. hágé. Þingfulltrúar koma vlða að úr skólakerfinu. Hér má þekkja þá Tryggva Glslason skólameistara Menntaskólans á Akureyri og Gunnar Karisson prófessor við Háskóla (slands. ITig v I byrja á þvl að þakka^l £g haföi auövitað ý, maflunni fyrir að leyfa mér V, vj{ ^ ag fara [ sk0t 'I að ávarpa flokksþing sitt.V helt vesti áður en ég Er það ekki augljóst mál? Eg hef aldrei heyrt að framsóknarmenn væru músíkalskir, en tókstu ekki eftir þvl að stór hluti þingfulltrúa eru_J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.