Þjóðviljinn - 14.12.1990, Síða 14
Fordómar
byggja á
fáfræði
Sagan af ísgerði Huld í Fábeinskoti segir frá
sambandi feðgina, og ofsóknum á hendur þeim
sem skera sig úr í samfélaginu
„Mér finnst sorglegt hvað bamabækur eru vanmetnar. Nú þegar ég hef gefið út bók fyrir fullorðna þyki ég vera
fullgildur rithöfundur." Kristln Loftsdóttir, sem er ( hópi yngstu rithöfunda landsins. Mynd: Jim Smart.
Kristín Loftsdóttir er ungur rit-
höfúndur sem vakti fyrst athygli
þegar hún hlaut Islensku bama-
bókaverðlaunin fyrir tveimur árum.
Meðal bókanna í flóðinu þessi jól er
skáldsaga fyrir fúllorðna eftir Krist-
ínu, sem kallast Fótatak tímans.
Nýtt Helgarblað heimsótti
Kristínu fyrir skemmstu og rabbaði
við hana um Fótatakið og fleira.
Sagan gerist í fornöld, ein-
hverntímann þegar íslendingar
blótuðu enn Oðin og Þór. Blóti,
verkháttum fólks, meðferð og lit-
un ullar er nákvæmlega Iýst. Er
þessi áhugi þinn á menningu fyrri
alda eitthvað tengdur námi þínu í
Háskólanum?
- Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á fortíðinni, og bókina skrif-
aði ég áður en ég byijaði í mann-
fræði í Háskólanum. Það væri
fremur rétt að segja að ég hefði val-
ið mannfræði vegna áhuga míns á
menningu þjóða. Auk þess er ég að
hugsa um að fara í þjóðffæði, og er
það í beinu samhengi við áhuga
minn á lífí fólks á árum áður, hvort
sem það er á söguöld eða á síðustu
öld, og hvar sem er í heiminum.
Sérstaklega er spennandi hversu
mikið líf okkar hefúr breyst á und-
anfomum áratugum. Líf kynslóð-
anna á undan okkur, þótt ekki sé
farið lengra afitur en til kynslóðar
afa og ömmu, var svo frábrugðið
því sem það er nú.
Lastu þér mikið til um forna
búskaparhætti, blótsiði og annað
sem þú segir frá í bókinni?
- Fótatak tímans er ekki sagn-
ffæðileg skáldsaga, en sagnffæði er
ákveðin undirstaða. Ég las mér vel
til áður en ég skrifaði söguna, þótt
oft reyndist erfitt að finna heimildir.
Hugmyndin að sögunni er göm-
ul. Hún hefúr tekið ýmsum breyt-
ingum á þeim fimm árum sem liðin
eru síðan ég fékk hugmyndina.
Þótt bókin gerist á söguöld,
fannst mér oft að sögusviðið gæti
allt eins verið miðaldir. Skiptir
tíminn ekki öllu máli?
- Sumt af því í sögunni sem lýt-
ur að daglegu lífi og háttum fólks
fékk ég úr heimildum sem lýsa
miðöldum og yngri tímum. í Is-
lendingasögunum er lítið sagt ffá
fátæku fólki og daglegu amstri
þess, þess vegna vitum við lítið um
þann þátt í lífi manna á söguöld. Ég
geng út ffá því að vinnulag hafi
ekki verið ólíkt því þá og á síðustu
öld. Við vitum að starfshættir
manna breyttust lítið ffam á þessa
öld, og ég geri ráð fyrir að meðferð
ullar, litun og fleira á söguöld hafi
ekki verið mikið ffábrugðið því
sem síðar varð.
Hvert er efni Fótataks tím-
ans?
- Þetta er erfiðasta spumingin
sem ég fæ. í aðalatriðum má segja
að hún fjalli um litla fjölskyldu,
samskipti fólks innan hennar, og
mikil átök, bæði innan fjölskyld-
unnar og milli hennar og samfé-
lagsins. Þá er fengist við átök milli
þess góða og illa í hveijum manni.
Mest er fjallað um samband foður
og dóttur, feðginanna Fábeins og
ísgerðar Huldar.
Meginhluti sögunnar gerist í
barnæsku ísgerðar, henni lýkur
þegar hún er gjafvaxta. Liggur
það þér nær að skrifa um börn og
unglinga en fullorðið fólk?
- Atburðir sögunnar og persón-
eru séðar með augum bams. Sjálf
er ég nýbúin að slíta bamsskónum,
og er ekki búin að gleyma því
hvemig er að vera bam. Margir
gleyma því fljótlega eftir að þeir
vaxa úr grasi hvemig það er, og sjá
æsku sína í Ijósrauðu ljósi. Aðrir
geyma bamið í sér alla ævi. Ég
hefði aldrei þorað að skrifa fúllorð-
insbók fyrir nokkrum ámm, þegar
ég skrifaði bamabókina Fugl í búri.
Er munur á því að skrifa
barnabók og fullorðinsbók?
- Mér finnst sorglegt hvað
bamabækur em vanmetnar. Nú
þegar ég hef gefið út svonefnda
fúllorðinsbók þá þyki ég vera á leið
með að verða fúllgildur rithöfúnd-
ur. Mér finnst þessi afstaða til
bamabóka, að þær séu ekki eins
merkilegar, hreinlega hættuleg því
að ef einhveijir þurfa að fá góðar
bækur þá em það böm. Þótt ég hafi
skrifað fúllorðinsbók núna þá hef
ég ekki snúið baki við bamabókum.
Ég ætla mér að skrifa fleiri slíkar
seinna. Böm þurfa að fá fjölbreyttar
bækur, og enginn einn fúllorðinn
gehn: sagt að böm og unglingar
hugsi ekki svona eða hinsegin, eins
og Fugl í búri var gagnrýnd fyrir.
Böm em hugsandi vemr, ekki síður
en fúllorðnir.
Ætlarðu að skrifa framhald
að Fótataki tímans?
- Ég hef ekki hugsað mér það,
þótt upphaflega hugmyndin að sög-
unni sé miklu lengri. Sú saga sem
nú kemur út er í raun allt önnur en
ég hafði hugsað mér að semja, en
ég vona að ég skrifi ekki ffamhald.
Ég var einnig oft spurð að þvf hvort
ekki kæmi ffamhald af Fugli í búri,
en að mínu mati myndi það
skemma sögumar. Endirinn að báð-
um sögunum er mjög opinn, en
þannig er það einnig f lífinu. Þegar
einum áfanga sleppir hefst annar,
sérhver endir er upphafið að ein-
hveriu öðm.
I sögunni er nokkuð um of-
sóknir á þá sem ekki blóta hin
heiðnu goð, eða eru á einhvern
hátt öðruvisi en fólk er flest. Voru
menn ofsóttir á söguöld fyrir að
vera í tygjum við hin illu öfl, eins
og einu sinni er sagt í bókinni?
- Á öllum tímum sögunnar hafa
þeir sem á einhvem hátt skera sig úr
verið ofsóttir. Ég er að segja í sög-
unni að ein trú sé ekki annarri
ffemri, ekki einu sinni kristin trú.
Ofsóknir byggja á fáffæði, ekki á
grimmd og illsku, og ég vona að
það komi ffam að ofsækjendur em
alls ekki vondir menn. Boðskapur
sögunnar um ísgerði Huld er helst
sá að allir menn hafa rétt til þess að
vera eins og þeir eiga að sér, og eiga
þá trú í ffiði sem þeir kjósa sér. Fá-
ffæði er rót tortryggni og ofsókna,
og það á ekki síður við nú á dögum
en fyrr á öldum. Ég ferðaðist um
Ekvador síðastliðið sumar, það var
mjög lærdómsríkt. Þar kynntist ég
fólki sem er á margan hátt ólíkt
okkur, en samt svo ótrúlega líkt.
Eftir að viðtal þetta var tekið
var skáldsaga Kristínar tílnefnd, ein
átta bóka, til Islensku bókmennta-
verðlaunanna. BE
HEFUR SIMINN ÞINN HAPPANUMER?
ylLIS
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 91-652266
Vinningar eru skattfrjálsir
VERÐ KR.
600.00
Upplýsingar um vinninga I slmsvara
91-686690 og á skrifstofu félagsins I síma
91-84999
Dregiö 24. desember 1990
Ford Fiesta
SÍMAHAPPDRÆTTI 1990
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRA OG FATLAÐRA1
Háaleitisbraut 11-13 Reykjavík
Kaup á þessum happdrættismiða styðja framkvæmdir félagsins í þágu fatlaðra barna
14.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ