Þjóðviljinn - 29.12.1990, Blaðsíða 18
Annáll 1990
Árið 1990 er senn að kveðja.
Við hæfi er að rifja upp helstu við-
burði ársins, í annál 1990.
Ársins verður helst minnst í
framtíðinni, sem Valur Sigurðsson
og Sigurður Vilhjálmsson unnu
flesta þá titla sem í boði voru. Þeir
hófu félagsskap sinn með sigri í
Reykjavíkurmótinu í tvímenning i
desember á síðasta ári. Náðu svo í
2. sæti á Bridgehátíðinni, urðu ís-
landsmeistarar í sveitakeppni, ís-
landsmeistarar í tvímennings-
keppni og loks Bikarmeistarar í
sveitakeppni í haust. Nánast ein-
stakur árangur frá upphafi hér á
landi og þótt víðar væri leitað. En
ekki hlutu þeir náð landsliðsein-
valdsins að þessu sinni og má þar
með segja að sá aðili hafi þarmeð
dæmt sjálfan sig úr leik, hvað
varðar val á landsliði okkar í fram-
tíðinni.
Árið hófst með Bridgehátíð, að
venju. 48 pör tóku þátt í tvímenn-
ingskeppni, sem lauk með sigri
Svíanna Göthe og Gullberg. 39
sveitir tóku þátt í Flugleiðamótinu,
sem lauk með sigri sveitar Flug-
leiða (Jón Bald., Aðalsteinn Jörg-
ensen, Matthías Þorv., Ragnar
Hermannss., Ragnar Magnússon
og Rúnar Magnússon).
Islandsmótið í sveitakeppni
var að venju spilað á Loftleiðum,
eftir heldur misheppnað úrtöku-
mót á Akureyri, þarsem helftin af
þátttakendum urðu veðurtepptir í 2
sólarhringa. Sveit Modem Iceland
sigraði Islandsmótið að þessu
sinni, og kom sá sigur einhveijum
á óvart. Undirritaður er á því, að
sigur sveitarinnar var afar verð-
skuldaður, og nánast mjög tíma-
bær. Sveitina leiddi Magnús 01-
afsson, en með honum spiiuðu Páll
Valdimarsson, Valur Sigurðsson,
Sigurður Vilhjálmsson og Einar
Jónsson.
íslandsmótið í tvímenning var
haldið með breyttu sniði að þessu
sinni. 32 pör tóku þátt í úrslitum,
að fádæma lélegri undankeppni
lokinni. Aðeins 71 par mætti þar til
leiks. Hvert svæðasamband hafði
rétt til að senda eitt par beint í úr-
slit. Islandsmeistarar urðu Valur
Sigurðsson og Sigurður Vil-
hjálmsson. í 2. sæti svo Ásgeir P.
Ásbjömsson og Hrólfur Hjaltason,
annað árið í röð.
Þess má geta í framhjáhlaupi,
að þeir Valur og Sigurður hafa nú
slitið félagsskap sínum.
íslandsmeistarar kvenna í
sveitakeppni urðu Esther Jakobs-
dóttir, Valgerður Kristjónsdóttir,
Hjördís Eyþórsdóttir, Ánna Þóra
Jónsdóttir.
íslandsmeistarar kvenna í tví-
menningskeppni urðu mæðgumar
Esther Jakobsdóttir og Anna Þóra
Jónsdóttir.
íslandsmeistarar í yngri flokki
(25 ára og yngri) urðu: Hrannar
Erlingsson, Matthías Þorvaldsson,
Sveinn R. Eiríksson og Steingrím-
ur Gautur Pétursson.
íslandsmeistarar í tvímenning í
yngri flokki, þriðja árið í röð, urðu
Hrannar Erlingsson og Malthías
Þorvaldsson.
íslandsmeistarar í parakeppni,
Kristjana Steingrímsdóttir og
Ragnar Hermannsson, en sigur-
vegarar siðasta árs, Esther Jakobs-
dóttir og Hrólfur Hjaltason höfn-
uðu í 2. sæti.
Ármanns Magnússonar. í sigur-
sveitinni voru: Magnús Olafsson,
Jón Þorvarðarson, Jón Baldursson,
Aðalsteinn Jörgensen, Valur Sig-
urðsson og Sigurður Vilhjálms-
son.
Sigurvegarar í Landstvímenn-
ing (samræmd tvímenningskeppni
um land allt, méð tölvuútreikning)
urðu Guðmundur Þorkelsson og
Jóhann Ævarsson frá Isafirði og
Bolungarvík. Þátt tóku 212 pör,
sem er heldur dræm þátttaka.
Sigurvegarar í Stofnanakeppni
varð sveit Istaks, en aðeins 9 sveit-
ir mættu til leiks. Lélegasta þátt-
taka frá upphafi.
Einna hæst á árinu bar árangur
kvennalandsliðsins okkar, en þær
urðu Norðurlandameistarar í ár.
Stórkostlegur árangur, þrátt fyrir
erfiða aðstöðu þeirra hér á landi.
Liðið skipuðu: Esther Jakobsdótt-
ir, Valgerður Kristjónsdóttir, Hjör-
dís Eyþórsdóttir og Anna Þóra
Jónsdóttir. Fyrirliði var Sigmund-
ur Stefánsson.
Karlaliðið endaði í 4. sæti á
sama móti, en þeir höfðu það erf-
iða hlutverk að verja titilinn frá
1988.
Einir 16 spilarar tóku þátt í
heimsmeistaramótinu, sem spilað
var að þessu sinni í Sviss. Hæst ber
þar árangur Hjördísar Eyþórsdótt-
ur og Vals Sigurðssonar, en þau
náðu 10. sætinu í parakeppninni.
Besti árangur pars héðan í heims-
meistaramóti í tvímenning.
Og landsliðið í yngri flokki tók
þátt í Evrópumótinu í sveita-
keppni, sem haldið var í Þýska-
landi. Liðið hafnaði í 9. sætinu,
sem verður að teljast góður árang-
ur. 22 lið tóku þátt í mótinu.
Og að lokum er vert að minn-
ast tveggja viðburða. Aðalhlutverk
í þeim báðum léku Jón Baldursson
og Aðalsteinn Jörgensen. Sá fyrri
er 2. sætið hjá þeim í bandaríska
Cavendish-mótinu sem spilað var í
New York. Stórkostlegur árangur
góðra spilara. Og loks sigur þeirra
í íslcnska „Cavendish“- mótinu
(Kauphallarmótinu), sem Bridge-
sambandið gekkst fyrir á dögun-
um. Yfirburðasigurþeirra varnán-
ast aldrei í hættu, eftir að Jón Bald-
ursson hafði snúið sér að spila-
mennsku, í stað þess að spá í aðra
þátttakendur. Ég legg til að skip-
aðir verði sérstakir umboðsmenn á
næsta ári, annað hvort til að hlaupa
í skarðið sem spilarar, eða til að
annast fjármál paranna.
Sá möguleiki að Island verði
keppnisstaður um Bermudaskálina
og Feneyjabikarinn 1995 styrktist
verulega með heimsókn José
Damiani forseta heimssambands-
ins á Bridgehátíð 1990. Þeir Helgi
Jóhannsson og Bjöm Eysteinsson
töltu svo til Sviss og bönkuðu upp
á hjá forráðamönnum heimsssam-
bandsins, í tengslum við heims-
meistaramótið, með bréf upp á
vasann, undirritað af þeim heið-
ursmönnum Steingrími Her:
mannssyni og Davíð Oddssyni. I
bréfinu lýstu þeir yfir eindregnum
stuðningi við hugmyndir okkar um
fyrirhugað mótahald. Var bréfinu
vel fagnað ytra, en kepppinautar
okkar um þessa keppni em Kín-
verjar.
í heild má taka undir orð for-
seta Bridgesambandssins á síðasta
ársþingi, þegar hann í greinargerð
forseta segir: „Þegar horft er til
baka er það skoðun min að
þetta ár hafi verið nokkuð
viðburðaríkt. Auðvitað hefði
mátt gera
marga hluti
^ betur og á
Olafur a n n a n
Lárusson ma,a en
hafa verður í huga að margir af
þeim sem völdust til stjómarstarfa
innan sambandsins voru þar að
stiga sín fýrstu skref á þessu
sviði.“
Svo mörg voru þau orð.
Umsjónarmaður óskar lands-
mönnum öllum gleðilegra jóla.
Það hefur verið fost venja í
Bridgeþætti Þjóðviljans frá 1977
að útnefna mann ársins í íslensk-
um bridge, um hver áramót. Að-
eins ein regla hefúr gilt: Sami
maðurinn er aldrei valinn tvisvar.
Frá 1977 hafa eftirtaldir hlotið út-
nefningu:
1977: Skúli Einarsson
' 1978: Ásmundur Pálsson
1979: Þórarinn Sigþórsson
1980: Öm Amþórsson
1981: Stefán Guðjohnsen
1982: Jón Baldursson
1983: Guðmundur Páll
Amarson
1984: Guðmundur Sv.
Heimannsson
1985: Guðmundur Kr.
Sigurðsson
1986: Sigurður Sverrisson
1987: Hjalti Elíasson
1988: Bjöm Theodórsson
1989: Agnar Jörgensson
1990: ?
Og bridgemaður ársins, tví-
mælalaust, er Valur Sigurðsson.
Val er óþarft að kynna. Hann
og fymim félagi hans síðasta árið
eða svo, Sigurður Vilhjálmsson,
hafa nánast unnið alla þá titla sem
í boði vom á síðasta ári (þessu ári).
íslandsmeistarar í sveitakeppni og
tvímenning. Bikarmeistarar í
sveitakeppni. Reykjavíkurmeistar-
ar í tvímenning og 2. sæti á
Bridgehátíð í tvímenning. Er hægt
að biðja um meira á einu ári? Eg
held ekki.
Undirstrikað skal þó, að árang-
ur manna í bridge er ávallt af sam-
félagslegum toga spunninn. Sig-
urður Vilhjálmsson á því sinn
hluta af þessum heiðri. En einn
skal útvalinn, þó fleiri séu til kall-
aðir.
Umsjónarmaður óskar Val til
hamingju með liðið ár. Skagamað-
urinn sterki er vel að heiðrinum
kominn.
Lesendum óska ég árs og frið-
ar á komandi ári, með þökk fyrir
samfýlgdina á árinu sem er að
kveðja.
Reykjavíkurmótið í sveita-
keppni hefst fimmtudaginn 3.
janúar Skráning er hjá BSI. Áætl-
aðir spiladagar í janúar eru: 3., 7.,
8., 10., 12., 13., 16. jan. Keppnis-
gjald pr. sveit er kr. 16 þús.
Mótið verður reiknað út í Butl-
er, sem þýðir að sömu spil verða
spiluð. Sem er afspymuvond
ákvörðun í móti af þessu tagi. 12
efstu sveitirnar vinna sér rétt til
þátttöku í Islandsmótinu, en 4
efstu munu spila til úrslita um
Reykjavíkurhomið, helgina 26.-
27. jan. Spilarar eru hvattir til að
vera með.
Á fundi stjómar BSI 6. desem-
ber, var fjallað um bréf frá J. Dam-
íani, forseta Alþjóðasambandsins,
þar sem fram komu einhveijir arrn-
markar á þeim möguleika að ís-
land fái heimsmeistaramólið 1995,
sem rætt hefur verið um. Fram
komu hugmyndir um að lsland
héldi Evrópumót í náinni framtíð.
Á þessum sama fundi lagði El-
ín Bjamadóttir, starfsmaður BSI,
fram gögn, sem sýndu að BSl
skuldar Reykjavíkurborg hátt í
eina milljón króna og hluti þess
gömul skuld sem vegna einhvers
misskilnings eða mistaka hafði
ekki borist tilkynning um. Ekki
batnar það.
Og landsliðsmál vom einnig
rædd. Forseti skýrði frá því, að ef
til vill væri möguleiki að fá Zia
Mahmood til að koma til íslands
þegar nær dregur Evrópumótinu
1991, til að reka endahnútinn á
þjálfún landsliða. Vonandi tekst
þetta hjá Helga.
Einnig var rædd tilhögun á vali
landsliða, en ákvarðanatöku frest-
að til næsta fúndar.
Og ný dómnefhd BSI hefur
verið tilnefnd. Hana skipa: Jón
Steinar Gunnlaugsson, Hjalti El-
íasson og Einar Jónsson. (Mig
minnir að einhver landsliðsnefnd-
in hafi verið skipuð sömu mönn-
um, hér um árið. Eða er þetta
spumingin um lækinn og vatnið?)
Athygli vekur að Kristján
Hauksson verður keppnisstjóri í
Reykjavíkurmótinu, en ekki Ágnar
Jörgensson. Agnar hefur stjómað
þessum mótum á vegum Reykja-
víkursambandsins um ca. 20 ára
skeið og landsmótunum hartnær
sama tíma. Er Agnar hættur?
Starfsemi Skagfirðinga á þessu
ári lauk með Jólasveinakeppni
þriðjudaginn 18. des. Tæplega 30
pör mættu til leiks, í boði deildar-
innar, án endurgjalds. Efstu skor
kvöldsins (jólasveinar ársins)
fengu Ármann J. Lámsson og
Ragnar Bjömsson.
Skagfirðingar hefja starfsemi á
ný þriðjudaginn 8. janúar, með
eins kvölds tvímenningskeppni.
Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson sigmðu Butler- tví-
menning Bridgefélagsins, sem
lauk miðvikudag fýrir jól. 48 pör
tóku þátt í keppninni, sem tók yfir
7 kvöld.
Næsta keppni félagsins er
barometer. Skráð er m.a. á skrif-
stofu BSI, og hjá Jóni Baldurssyni.
Mótaskrá Bridgesambands Is-
lands 1991 verðurþessi:
íslandsmót kvenna og yngri
spilara, sveitakeppni 1.-3. febrúar.
Bridgehátíð 15.-18. febrúar á
Hótel Loftleiðum.
Undankeppni Islandsmóts í
svk, 27.-30. mars (páskar) á Loft-
leiðum.
Undankeppni íslandsmóts í
tvím. 13.-14. apríl.
Urslit Islandsmóts í tvim. 27.-
28. apríl.
íslandsmót í parakeppni
(tvím.) 4.-5. maí.
Og meistarastig verða að hafa
borist skrifstofú BSÍ fyrir 10. jan.,
ef þau eiga að ná inn í næstu meist-
arastigaskrá, sem kemur út fyrir
15. febrúar. Á sama tíma eiga fé-
lögin að hafa greitt árgjöld, fýrir
spilamennsku í haust, til áramóta.
Nýtt Bridgeblað er komið út.
Meðal efnis í blaðinu er (sem
merkter5/l 1990): Kauphallarmót
BSI í sagnakeppni, sagnaþrautir,
auk fastra liða. Ritstjóri blaðsins er
Guðmundur Páll Amarson.
Og að lokum er minnt á jóla-
mótið hjá Hafnfirðingum, sem
spilað verður á morgun (laugar-
daginn 29. desember) í Víðistaða-
skóla og hefst kl. 12 á hádegi.
Áætlað er að keppni ljúki um kl.
18. Góð peningaverðlaun eru í
boði. Spilaður verður Mitchell-
tvímenningur. Silfurstig.
Bikarmeistarar 1990 varð sveit
Landsbréfa, eftir úr-
slitaleik við sveit S.
18.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 29. desember 1990
r
Arni
Björnsson
þjóðháttafræðingur
hefur tekið saman
uppflettirit
um
íslenska
vœtti
Minnis-
blað
áramótanna
Áramótafagnaöir
Eins og endranær um áramót
verður mikið um að vera á
skemmtistöðum. í flestum öldur-
húsum borgarinnar verður stiginn
dans undir morgun á nýársdag.
Þar á meðal má geta þess að á
Hótel íslandi verður haldinn dans-
leikur á gamlárskvöld. Þijár
hljómsveitir leika fýrir dansi,
hljómsveitimar Ný dönsk, Tvö-
falda bítið og Blúsmenn Andreu.
Aldurstakmark er 18 ár.
Að kvöldi nýársdags verður
haldinn á Hótel íslandi nýársfagn-
aður, með fordrykk, mat og öðm
tilheyrandi. Herlegheitin hefjast
kl. 18.00.
Að loknu borðhaldi verða
skemmtiatriði, þar sem m.a.
Spaugstofan mun flytja grínþátt,
Bergþór Pálsson óperusöngvari
tekur nokkur valin lög og íslands-
meistaramir í samkvæmisdönsum
sýna dans. Að afloknum skemmti-
atriðum sér hljómsveitin Stjómin
um að halda uppi fjörinu.
Þeir á Hótel Sögu efna einnig
til sérstaks nýársfagnaðar að
kvöldi nýársdags. Þar mun margt
manna troða upp og skemmta
gestum. Má þar nefna leikarana
Egil Olafsson, Eddu Heiðrúnu
Backmann, Ásu Hlín Svavars-
dóttur og Jóhann Sigurðarson sem