Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 6
Vígbúnaður í loftvarnabyrgjum?
Óvíst hve miklu tjóni loftsóknin mikla
hefur valdið Iraksher. Gefið í skyn að Saddam
kunni að hafa falið flugher sinn og mikið
af þungavopnum í byrgjum, sem standist
sprengjuárásir
Persaflóastríð hefur nú stað-
ið í rúma viku og einkum
verið stórfelld loftsókn Banda-
ríkjamanna og bandamanna
þeirra, sem hefur verið svo að
segja linnulaus og enn er ekkert
lát á. Landherir þeir rniklir,
sem standa hvor andspænis
öðrum sinn hvoru megin Ianda-
mæra Íraks/Kúvæts og Saúdi-
Arabíu, hafa hingað til lítið að-
hafst.
Andstæðingar Iraks í ófriði
þessum eru fyrst og ftemst tvær
samfylkingar ríkja. Annarsvegar
eru það Vesturveldin; Bandaríkin,
Bretland og Frakkland, hinsvegar
þau arabaríki, sem mest hafa að
óttast af hálfú íraska herveldisins
eða eru keppinautar Iraks um for-
ustu i arabaheiminum. Helst þess-
ara ríkja eru Saúdi- Arabía, Eg-
yptaland og Sýrland.
Loftsóknin gegn Irak er í
fréttaskeytum sögð sú mesta frá
því í heimsstyrjöldinni síðari og
að aldrei hafi öflugri lofther háð
stríð. I gær höfðu verið famar um
8000 árásarferðir.
Svíar
myrtir
í Tallinn
Tveir sænskir verkalýðsieið-
togar, Bertil Whinberg og Ove
Fredriksson, fundust látnir í út-
jaðri Tallinnar, höfuðborgar
Eistlands, í gær. Sænski ræðis-
maðurinn þar i borg hefur eftir
lögreglu að þeir hafi verið barðir
uns þeir misstu meðvitund og
hafi síðan dáið úr kulda.
Sænska sjónvarpið hafði eftir
eistneskum yfirvöldum að glæpa-
menn hefðu orðið Svíunum tveim-
ur að bana. Ekki ber fregnum sam-
an um hvort þeir hafi verið rændir.
Að sögn ræðismannsins bendir
ekkert til þess að pólitískar ástæður
hafi legið að baki morðunum.
Whinberg var formaður sam-
bands sænskra byggingarverka-
manna og Fredriksson formaður
samtaka skógarverkamanna. Þeir
voru í sænskri nefnd, sem stödd var
í Tallinn til viðræðna við eistnesk
verkalýðssamtök.
írakar meö
íraskar stríðsflugvéiar, vopnað-
ar flugskeytum af gerðinni Exocet,
sem voru skæðasta vopn Argent-
ínumanna í Falklandseyjastríði,
reyndu í gær að gera árás á flota
andstæðinga sinna á Persaflóa.
Saúdiarabísk orrustuþota skaut
niður tvær flugvéla þessara, áður
en þeim gafst ráðrúm til að skjóta
skeytunum, og sú þriðja flýði.
Exocetskeytin eru frönsk ffam-
leiðsla.
Bandamenn telja sig hafa
valdið miklu tjóni á vígbúnaði Ir-
aka, enda eigi þeir auðvelt með að
finna með leitarflugvélum og
gervihnöttum hemaðarlega mikil-
væg skotmörk og ráði yfir tækni
sem geri flugliðum þeirra auðvelt
að hitta í mark. Eigi að síður er
margt á huldu um það, hve miklu
tjóni þeim í raun hefur tekist að
valda á vígbúnaði og her lraka.
Ljóst er að ekki hefur tekist að
ónýta alla hreyfanlega skotpalla
þeirra, því að í gær héldu þeir
áfram að skjóta eldflaugum á
ísrael og Saúdi-Arabíu. Þær
flaugar tókst þó að stöðva með
Patriot-gagnflaugum Bandaríkja-
manna. Þá vekur fúrðu að vöm Ir-
aka hefur hingað til verið til þess
að gera aðgerðalítil. Þeir hafa að-
allega varist með loftvamaskot-
hríð, flugher þeirra hefúr heldur
lítið haft sig í frammi (og ekki
staðið sig vel þegar hann hefur
hætt á loftbardaga).
Sparað til
úrslitaorrustu?
I tilkynningum frá Iraksstjóm
segir að hún hyggist spara flugher
sinn og sem mest af þungavopn-
um til mikillar úrslitaorrustu síð-
ar, þegar landher bandamanna
leggi til atlögu. Suma fréttamenn
og bandaríska herforingja gmnar
að það sé einmitt þetta, sem Irak-
ar ætli sér. Bandamenn segjast
hafa skotið niður um 20 íraskar
stríðsflugvélar, en óvíst er hvort
þeim hefúr tekist að eyðileggja
eitthvað af íraska loflflotanum á
jörðu niðri. Fyrír stríðið var írak
talið eiga 500-750 stríðsflugvélar.
Óklárt er einnig hve miklu tjóni
hefur tekist að valda á fjarskipta-
kerfi hersins. Eitt helsta mark-
miðið með loftárásunum hefur
verið að sundra því og lama þar
með herstjómarkerfi Iraks.
í gær birtust í taílensku blaði
viðtöl við þarlenda verkamenn,
sem segjast hafa unnið t Irak við
að gera byrgi úr stáli og stein-
steypu, ætluð til vistar fyrir her-
stjómamet íraka og einnig væri
upplagt að varðveita þar flugvél-
ar, skriðdreka, eldflaugapalla o.fl.
vopn. Segja Taílendingamir að
sum byrgja þessara séu djúpt í
jörðu, önnur sprengd inn í hæðir. I
jarðveginn yfir jarðbyrgjunum
hafi verið plantað tröllatrjám
(eucalyptus) til að leyna byrgjun-
um sem best. Fjarskiptakerfi, frá-
bært til sins brúks, tengi byrgjanet
þetta saman.
Atlögur
að úrvalsliði
Saddams
Með byrgi þessi í huga sögð-
ust umræddir verkamenn ekkert
vera hissa á því að írakar skuli
hafa staðist loftsóknina svo lengi.
„Byrgin vom öll hönnuð með það
fyrir augum að þau stæðust harð-
ar sprengjuárásir,“ sagði einn
verkamannanna. „Sum þeirra
kunna að hafa skaddast eitthvað,
en ekki mikið.“
AÐUTAN
Dagur
Þorteifsson
Tveir oddvitar bandamanna, Norman Schwarzkopf, yfirhershöfðingi Bandaríkjahers á Persaflóasvæði, og
Fahd Saúdi-Arabíukonungur. Þá grunar að Saddam feli flugher sinn með það fyrir augum að beita honum
gegn landher bandamanna, þegar hann ræðst til atlögu.
Takist Saddam að varðveita
það mesta af stríðsfiugvélum sín-
um auk margra skriðdreka og
fleiri þungavopna i byrgjum þess-
um, setur það alvarlegt strik í
reikninginn fyrir bandamenn, því
að með loftsókninni fyrirhugðu
þeir að eyðileggja mestan hluta
þessara vígtóla Irakshers, til að
auðvelda landher sínum eftirleik-
inn.
Taílendingamir segja líka að
írakar hafi gert sér fjölda gervi-
byrgja. Áður hafði heyrst að þeir
hefðu víða um land sitt gerviskot-
palla, til þess að villa um fýrir
árásarflugmönnum.
Síðustu daga hafa bandamenn
beint loftárásum sínum hvað mest
að landher óvina sinna í Kúvæt og
Suður-írak, í þeim tilgangi að
lama hann fyrir sókn landhers
bandamanna. Hefúr einna helst
orðið fyrir þeim atlögum lýð-
veldisvarðlið Iraka, sem sagt er
vera harðsnúnasti hluti hers þeirra
og staðsett er á bakvið ffemstu
víglínur. Colin Powell, yfirhers-
höíðingi Bandaríkjanna, sagði I
gær að ætlunin með árásum þess-
um væri einnig að ijúfa fjar-
skiptasamband ög samgöngur við
herinn í fremstu vamarlínum ír-
aka. „Við einangrum hann fyrst,
tortímum honum svo,“ sagði Po-
well.
Loftárásir á
Basra
Miklar loftárásir vom og í
gær og fyrradag gerðar á Basra,
aðra mestu borg Iraks og helstu
hafnarborg þess, sem nýbúið var
að reisa úr rústum eftir stríð íraks
og írans 1980-88, en þá var sú
borg mjög illa leikin. Sprenging-
amar í Basra vom svo miklar í
gær að hús léku á reiðiskjálfi í ír-
önsku borginni Khorramshahr,
um 40 km í burtu, að sögn írönsku
fféttastofunnar IRNA.
Fréttir af manntjóni íraka em
óljósar og þeim ber illa saman.
Bandamenn segjast ráðast ein-
ungis á hemaðarlega mikilvæg
skotmörk og eiga vegna miðunar-
tækni sinnar mikillar tiltölulega
auðvelt með að forðast að
sprengjur og eldflaugar lendi á
íbúðarhverfúm. Vegna takmark-
aðra og óljósra frétta ffá Irak er
ekki vitað hve hemaðarreglu
þessari er framfylgt stranglega,
auk þess sem alltaf er möguleiki
að flugmenn villist á skotmörkum
eða að hemaðarlega mikilvæg
skotmörk séu staðsett í íbúða-
hverfúm. Ummæli Powells og
fleiri bandarískra hershöfðingja
benda til þess að loftsóknin kunni
að standa lengi enn, áður en land-
her bandamanna ráðist til atlögu.
En eins og sakir standa em horfúr
á því að hann eigi harðan slag fyr-
ir höndum. Þótt hér sé öflugasti
floti lofthemaðarsögunnar að
verki, vaxa líkumar á að enn einu
sinni komi það ffam að ekki gangi
að vinna stríð öðmvísi en með
sókn öflugs landhers.
Þvskaland
Samyrkjusvín þjást af offitu
Austurþýskur
landbúnaður stenst
ekki samkeppnina að
vestan
íu af hverjum tíu ríkisbúum
í austurhluta Þýskalands
verður lokað á þessu ári að
mati fagfólks, segir vikuritið
Der Spiegel.
Ástæðan er sú að landbúnað-
urinn stenst ekki samkeppnina að
vestan. Samyrkjubúin em þegar
rekin með miklu tapi, en búa þar
fyrir utan við falskt bókhald, seg-
ir blaöið. Þannig sé kýrverðið
metið 7000 mörk í bókhaldinu,
þótt markaðsverðið sé aðeins tí-
undi hluti þess. Bankar em því
hættir að lána þessum fyrirtækj-
um vegna skorts á tryggingum.
Eitt vandamál landbúnaðarins
í austurhlutanum er holdafar
svinanna: þau em of feit fyrir
smekk neytenda. Þá standast sa-
myrkjukýmar ekki þær vestur-
þýsku í mjólkurffamlegð, og sa-
myrkjuhænumar em ekki jafh
varpglaðar og þær vesturþýsku.
Samyrkjubúin hafa hins vegar
ekki efni á að endumýja dýra-
stofninn, auk þess sem sagt er að
fjós og stíur séu almennt ekki í
því ástandi að geta boðið upp á
arðvænlegan landbúnað.
Samyrkjubúin reyna nú að
losa sig við búsmalann í slátur-
húsin eða á húsdýramarkaði þar
sem góð mjólkurkýr fer á 800
mörk eða tæpar 30 þúsund krón-
ur, svínið á litlar 3700 kr, varp-
hænan á 500 kr. og sauðkindin á
200 kr. Mikið framboð á austur-
þýskum sláturdýmm hefur jafn-
ffamt valdið verðfalli á kjöti í
Þýskalandi, við litlar vinsældir
bænda í vesturhlutanum. Hafa
stjómvöld gripið til þess ráðs að
takmarka alla flutninga á sláturfé
til vesturs við næturflutninga.
Der Spiegel segir að lokum
að hin stjómlausa útsala sa-
myrkju- og ríkisbúanna komi
þeim eða fyrrverandi starfsmönn-
um að litlu gagni; það séu emb-
ættismennimir sem hagnist mest.
-ólg/Der Spiegel
6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. janúar 1991