Þjóðviljinn - 22.02.1991, Qupperneq 6
Burt með
Saddam
Bandaríkin og helstu bandamenn þeirra í
Persaflóastríði gera sig að líkindum ekki
ánægða með að Irak sleppi Kúvœf, heldur
virðist nú vera stefnt að því að slá Irak út sem
svæðisbundið stórveldi
Þegar þetta er ritað Iítur
helst út fyrir að Persaflóa-
stríð haldi áfram, hvort sem
Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra hefja sókn á landi
hið bráðasta eða halda áfram
enn um sinn að mylja íraksher
niður með loftárásum.
Bandarikjamenn, Bretar og
Frakkar hafa hafnað vopnahlé-
stillögum Gorbatsjovs og Sadd-
am Hussein, Iraksforseti, snið-
gekk þær í ræðu sinni í gær. Sagði
hann þá að Irakar myndu halda
vöm sinni áfram, þar eð banda-
menn féllust ekki á skilyrðabund-
ið tilboð hans um að sleppa Kú-
væt, sem hann lagði fram fyrir
síðustu helgi.
Sammála um eitt
Ýmislegt bendir til að ráða-
menn Vesturvelda, Saúdi-Arabíu
og bandalagsríkja hennar á Arab-
íuskaga hafi ekki harmað mjög
urnmæli Saddams í ræðunni í
gær, en í fljótu bragði séð var þá á
honum að heyra að ekki kæmi til
greina að írakar slepptu Kúvæt
skilyrðislaust. Bemd Debus-
mann, fréttaskýrandi hjá Reuter,
skrifar á þessa Ieið: Vera má að
Bandarikjamenn og Irakar séu
ekki sammála um margt, en
a.m.k. em þeir líklega nokkum-
veginn á einu máli um að stríð
þetta sé ekki fyrst og fremst háð
út af Kúvæt. Debusmann styðst
um það við bandaríska sérffæð-
inga um stjómmál þarlendis og í
Austurlöndum nær.
„Þegar þeir (bandamenn) tala
um undanhald (ffá Kúvæt) eiga
þeir við að Irak verði svipt öllu
valdi ... nú koma þeir fram með
margar nýjar kröfur á hendur okk-
ur.“ Þetta er mjög á þá lund sem
Iraksstjóm hefur lengi haldið
fram og að líkindum álítur mikill
þorri írasks almennings það
sama. Menntaðir Irakar, sem ann-
ars trúa varlega áróðri ráðamanna
sinna og hlusta fremur á erlendar
útvarpsstöðvar en innlendar,
segja eigi að síður sem svo:
Bandamenn fóm í stríð til að
hindra að írak yrði meiriháttar
veldi, efnahagslega og hemaðar-
lega (það síðamefnda var það
þegar orðið) og til að steypa
Saddam.
Bandaríkjamenn almennt
segja eitthvað svipað, séu þeir
spurðir um tilgang stjómar sinnar
með stríðinu. Bandaríkjastjóm
heldur þvi að vísu enn fram opin-
berlega að markmið hennar sé
það eitt að endurreisa Kúvæt sem
sjálfstætt ríki, og svo kann upp-
haflega að hafa verið. En nú er
búið að draga saman á Persaflóa-
svæði ógrynni liðs og vopna með
mikilli fyrirhöfn og tilkostnaði.
Það hefur að likindum leitt til
þess að bandarískir stjómmála-
menn og hershöfðingjar séu fam-
ir að hugsa á þá leið, að ailt það
umstang verði til lítils ef Saddam
sleppi ekki verr en svo frá sínu
landvinningaævintýri að hann
haldi talsverðu af hemaðarmætti
sínum, eiturgasi þar á meðal og ef
til vill möguleikum á að koma sér
upp kjamavopnum eftir nokkur
ár. Ef útkoman yrði þessi, hefði
Saddam möguleika á að verða
áfram dáður af mörgum aröbum
og öðmm múslímum sem hug-
rökk hetja arabaþjóðar og íslams,
er boðið hefði hinum voldugu
Vesturlöndum byrginn og haldið
nokkumveginn velli. Með því
móti gæti Irak e.t.v. haldið stöðu
sinni sem svæðisbundið stórveldi,
ógnað grönnum sínum áfram og
keppt héreftir sem hingað til við
Egyptaland og Sýrland um for-
ustu fyrir aröbum.
Á þetta líst a.m.k. ekki Saúdi-
Arabíu og Arabíuríkjum i banda-
lagi við hana. Þau virðast því
nokkumveginn sammála Vestur-
veldunum um að nauðsynlegt sé
að losna við Saddam og her hans.
„Mjög fljótlega eftir að
sprengjuárásimar hófúst, byrjuð-
um við (Bandaríkin) að reyna að
ná markmiðum, sem koma Kúvæt
ekkert við,“ segir Yahia
Sadowski, sérfræðingur um Aust-
urlönd nær við Brookings Ins-
titution í Washington. Þau mark-
mið em að dómi Sadowskis: Að
Iama her og vígbúnað íraks, svo
að það geti í framtíðinni ekki ráð-
ið miklu um gang mála utan
landamæra sinna. Og að Iama
efhahagsstyrk þess, svo að hann
verði ekki notaður til að halda
hemaðarmættinum við eða end-
urreisa hann.
Sadowski og fleiri álíka sér-
ffæðingar gefa í skyn, að skiln-
ingur á viðhorfum bandarísks al-
mennings kunni að hafa valdið
nokkm um að Bush og aðrir ráða-
menn þarlendir hafi farið að láta
að því liggja, að stríðsmarkmið
Bandaríkjanna væm þau sem að
ofan greinir. Bent er á að banda-
rískur almenningur hafi alltaf ver-
Rústir í Bagdað eftir loftárás - Bandarfkjamenn og (rakar em sammála um að strfðið sé ekki fyrst og fremst
háð út af Kúvæt.
ið því ffábitinn að lenda í meiri-
háttar stríðum langt ffá landa-
mæmm sínum og eftir Víetnam-
stríðið gildir það alveg sérstak-
lega um þriðja heiminn.
78 af hundraði með stríði
Þetta geti hinsvegar breyst,
segja sérfræðingamir, ef Banda-
ríkjamenn fáist til að trúa því að
þeir heyji réttlátt stríð, stríð hins
góða gegn því illa. Þesskonar
sannfæring, bæði með Banda-
ríkjamönnum og öðrum, magnast
oft ef hægt er að persónugera and-
stæðinginn, beina athyglinni að
forkólfi hans sem sterkum og
jafnframt illum og djöfúllegum
persónuleika, er haldi öllum þráð-
um meðal óvinanna í hendi sér.
Enginn sigur, ekkert réttlæti, ekk-
ert öryggi sé því mögulegt nema
að forkólfur þessi sé kveðinn nið-
ur í eitt skipti fyrir öll.
Eitthvað á þessa leið fór Bush
að þegar hann sendi her sinn gegn
Panama í árslok 1989. Þá sögðu
bandarískir ráðamenn: Við fómm
ekki í stríð við Panama, heldur
Noriega, illan harðstjóra og eitur-
lyfjasala (sem þessi panamski
valdhafi vissulega var). Og þorri
Bandaríkjamanna taldi að þetta
hefði verið vel og vasklega gert af
stjóm þeirra.
Það má vera að Bush hafi haft
þetta í huga er hann beindi sviðs-
íjósinu að Saddam sem höfúðpaur
illra afla. Það hefur Bush líka gert
með góðum árangri, enda sá leik-
ur einkar auðveldur þegar foringj-
ar eins og Saddam eiga í hlut.
Samkvæmt niðurstöðum nýrrar
skoðanakönnunar em 78 af
hundraði Bandaríkjamanna sam-
mála því að farið var í stríð við Ir-
ak.
Af síðustu ummælum breskra
og ffanskra ráðamanna er helst að
skilja að þeir séu i þessu nokkum-
veginn á sama máli og þeir
bandarísku.
Fjöldamorð á fuglum
Persaflói er mikill viðkomustaður farfugla, og hœtta er á að olíubrákin
grandi þeim í hundruðþúsundatali
Olíubrákin mikla á Persaflóa
hefur þegar drepið þúsund-
ir fugla og gæti orðið hundruð-
um þúsunda að bana á næstu
vikum. Þetta er álit dýravernd-
unarfélagsins World Society for
the Protection of Animals
(WSPA).
„Þetta er án vafa skæðasti ol-
íuleki sögunnar," segir John
Walsh, aðstoðarframkvæmda-
stjóri félagsins, sem verið hefur í
Saúdi-Arabíu síðan 10. þ.m. og
fylgst með olíubrákinni og tjón-
inu sem hún hefur valdið.
Þegar olía
lak úr tankskip-
Dagur
Þorieifsson
inu Exxon Valdez út i Prince
William Sound við Alaska 1989
varð hún að bana a.m.k. um
90.000 fúglum, e.t.v. um 270.000,
að áiiti aðila á vegum Bandaríkja-
stjómar. WSPA telur líklegt að
tjónið á fúglalífi af völdum ol-
íunnar á Persaflóa verði miklu
meira, þar sem olíubrákin þar nái
yfir stærra svæði. Þar að auki er
Persafiói mikill viðkomustaður
farfugla.
„Eftir nokkrar vikur, þegar
farfuglar á norðurleið koma á fló-
ann, fjölgar þeim sem verða í
hættu upp í hundmð þúsunda,“
segir Walsh. Brákin er þegar
komin suður fyrir stríðssvæðið og
farin að menga flóaströnd Saúdi-
Arabíu.
Bandaríkin og Saúdi-Arabía
saka íraka um að hafa af ráðnum
hug veitt út í flóann sjö til ellefú
miljónum tunna af olíu. írakar
segja að olían hafi mnnið út í fló-
ann úr hreinsunarstöðvum, sem
flugher bandamanna hafi sprengt
í sundur.
I A1 Jubail á Saúdi-Arabíu-
strönd er stöð til að hreinsa fúgla,
sem lent hafa í olíunni, en hún
hefúr hvergi nærri undan og er
áríðandi að fleiri slíkum verði
komið á fót, að sögn Walsh.
Hann sagðist hafa horft á
fjölda fúgla, sem þegar vom atað-
ir í olíu og létu fyrirberast á kóral-
rifi skammt ffá ströndinni. Þá var
útfall og þegar aldan skall á rifinu
hreif hún fuglana með sér.
„Þeir börðust um í þykkri
brákinni en gátu ekki synt,“ segir
Walsh. „Þeir bmtust um meðan
þeir sukku smámsaman, aðeins
höfuðin stóðu upp úr og að síð-
ustu aðeins nefin. Saklausir em
þeir af stríðinu en þó fómarlömb
þess.“
6 S(ÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. febrúar 1991
Evstrasaltsríkin
MarkaÖs
lögmál í
hernum
Þótt þeir stæri sig af því að
vera harðlínukommúnistar, þá
eru ýmsir háttsettir yfirmenn
sovéska hersins ekki yfir það
hafnir að taka við kapítah'skum
ávinningi.
Lettneska dagblaðið Diana seg-
ir ffá því að Vodopyanov herfor-
ingi, varayfirmaður stjómmála-
deildar Eystrasaltsumdæmis sov-
éska hersins, hafi neitað að tala við
blaðamenn um yfirstandandi her-
æfingar án þess að fá eitthvað fyrir
sinn snúð. Segir blaðið að Vodopy-
anov herforingi hafi haldið því
ffam, að vel væri greitt fyrir slík
viðtöl á Vesturlöndum.
Svipaðar sögur hafa gengið í
Vilnius að sögn eistneska blaðsins
The Estonian Independent, en þar
er sagt að sovésku hermennimir í
Sjónvarpstuminum krefji erlenda
fféttamenn um amerískar sígarettur
í aðgangseyri að tuminum. Og þeg-
ar inn sé komið verði blaðamenn-
imir að greiða þóknun fyrir viðtal.
Haft er eftir fmnskum blaðamanni
að slíkt viðtal kosti 100 þýsk mörk,
en ffanskur blaðamaður kvaðst
hafa sloppið með 50 Bandaríkja-
dali.
El/ólg.