Þjóðviljinn - 17.04.1991, Page 7
Fjárveitinganefnd klofnaöi í þrennt
Fjárveitinganefnd Alþing-
is klofnaði í þrennt á
fundi sínum í gær þegar
átti að reyna að ná sam-
komulagi um tillögur
samgönguráðherra og
nefndarinnar um skiptingu 100
miljóna krónanna sem sam-
þykkt hefur verið að veita til
hafnarframkvæmda vegna
loðnubrests.
I atkvæðagreiðslu um málið
studdu þrír nefhdarmanna í fjár-
veitinganefhd, þau Egill Jónsson
Sjálfstæðisflokki, Margrét Frí-
mannsdóttir Alþýðubandalagi og
Málfríður Sigurðardóttir Kvenna-
lista, að tillögur nefhdarinnar um
úthlutunina yrðu endurskoðaðar
og meira tillit tekið til tillagna
samgönguráðherra. Fjórir nefnd-
armanna voru á móti og vildu að
ákvörðun nefndarinnar stæði
óbreytt. Það voru þeir Sighvatur
Björgvinsson Alþýðuflokki, Frið-
jón Þórðarson og Pálmi Jónsson
Sjálfstæðisflokki og Alexander
Stefánsson Framsóknarflokki.
Tveir nefhdarmanna sátu hjá,
þeir Olafur Þórðarson Framsókn-
arflokki og Asgeir Hannes Ei-
ríksson Borgaraflokki.
I ljósi þess að ekki varð sam-
komulag í fjárveitinganefndinni
verður það skoðað í samgöngu-
ráðuneytinu hvort ráðuneytið geti
úthlutað 100 miljónunum án
samþykkis hennar. Eins og fram
hefur komið óskaði Steingrímur
J. Sigfusson samgönguráðherra
eftir lögfræðilegri álitsgerð um
vald og vinnubrögð fjárveitinga-
nefhdar. Samkvæmt bráðabirgða-
áliti er það dregið i efa að fjár-
veitinganefhd geti úthlutað fénu í
blóra við framkvæmdavaldið.
Það styður það sem Ragnar Am-
alds, þingmaður og fyrrverandi
fj ármálaráðherra, hefur sagt, að
Qárveitinganefnd geti aðeins
samþykkt eða hafnað tillögum
samgönguráðuneytisins, en ekki
komið fram með eigin tillögur
um skiptingu fjársins, eins og
hún gerði á sinum tima. —grh
Vatn er tíu sinnum
verömeira e
Iframtíðinni gæti á íslandi
risið öflugur iðnaður vatns-
átöppunar, sem skapað gæti
miklar gjaldeyristekjur.
Þetta kemur fram í greinar-
gerð Kristjáns Jóhannsson-
ar rekstrarhagfræðings, sem
gerði ítarlega athugun á stöðu og
framtíðarmöguleikum vatnsút-
flutnings frá Islandi að beiðni
Jóns Sigurðssonar iðnaðarráð-
herra.
Þijú fyrirtæki hafa þegar hafið
tilraunaútflutning á vatni: Akva
(Mjólkursamlagið á Akureyri), ís-
lenskt bergvatn (Sól hf.) og Thor
Iceland í Reykjavík (Vifilfell hf.,
Hagkaup hf. og Vatnsveita Reykja-
víkur). Þá hafa níu fyrirtæki og
áhugamannahópar víðsvegar um
landið athugað möguleika á vatns-
útflutningi. Undanfarið hefur borið
mest á mönnum sem sýnt hafa
áhuga á að flytja vatn úr landi
Hafnarfjarðarbæjar með tankskip-
um til útlanda. Guðmundur Ami
Stefánsson bæjarstjóri sagði þær
umræður enn vera á byrjunarstigi.
Hins vegar væru umræður við
menn sem vilja koma á fót átöpp-
unarverksmiðju í bænum lengra
komnar. Hugmyndina um að flytja
vatn út í tönkum sagði Guðmundur
Ami ekki vera nýja af nálinni.
Ragnar Halldórsson, fyrrverandi
forstjóri álversins, hefði rætt þær
hugmyndir fyrir mörgum ámm að
nota skipalest álversins til þess að
flytja vatn úr landi.
I greinargerð iðnaðarráðuneyt-
isins kemur fram að vatn sem flutt
er út með tankskipum uppfýllir
ekki reglur EB um gæði, og í
Bandarikjunum yrði slíkt vatn
hreinsað og væri því ekki lengur
talið hágæðavara. Einar Kristinn
Jónsson hjá Sól hf. sagðist telja út-
flutning á vatni með þessum hætti
þjóðhagslegan skandal. Bæði gætu
Islendingar átt á hættu að vatninu
i olía
yrði blandað við vatn af minni
gæðum, en samt sem áður selt sem
íslenskt vatn, og slíkur útflutningur
myndi skapa mun minni verðmæti
hér heima. Það var einnig niður-
staða athugunar Kristjáns Jóhanns-
sonar. Þá óttast menn, sem kynnt
hafa sér útflutning á vatni, að út-
flutningur með tankskipum geti
skemmt þá ímynd sem verðmæti
íslensks vatns byggja á. Að sögn
Einars hjá Sól hf. hefur þeim tekist
að selja íslenskt vatn sem hágæða-
vöru og selst það jafnvel dýrar en
franska ölkelduvatnið Perrier.
Hann nefndi sem dæmi að í
Bandaríkjunum kostaði lítil dós af
íslensku bergvatni jafnmikið og
gallon af bensíni.
Mikil samkeppni ríkir á vatns-
markaðinum, flest stærstu fyrir-
tækin í vatnsátöppun treysta á
sterka heimamarkaði. Má nefna
sem dæmi að einungis 3 prósent af
þeim 7600 miljónum lítra sem
Bandaríkjamenn innbyrða á ári eru
innflutt. Hérlendis er átöppun og
útflutningur á vatni enn á tilrauna-
stigi. Hjá Sól hf. fengust þær upp-
lýsingar að fyrirtækið gæti fram-
leitt allt að 700 þúsund lítrum af
vatni og selzer á mánuði. Væri nú
unnið að því í áföngum að þrefalda
þessa afkastagetu.
Er hér kannski komin töfra-
lausn framtíðarinnar í atvinnumál-
um landsins? Einar hjá Sól hf. taldi
mikilvægt að kunnáttumenn kæmu
á fót verksmiðjum og sæju um út-
flutning á vatni héðan. Hann benti
á að þau þrjú fyrirtæki sem hafið
hafa vatnsútflutning hefðu samtals
200 ára reynslu í framleiðslu
drykkjarvara. Vatnsútflutningurinn
var ræddur á ríkisstjómarfundi í
gærmorgun, en ekki náðist í iðnað-
arráðherra vegna málsins.
BE
Skrifað undir samning um smfði nýs Herjólfs. I gær var merkum áfanga náð I samgöngumálum Eyjamanna þegar skrifað
var undir smíöasamning um nýjan Herjólf. Skipið veröur tilbúið næsta vor en þaö er 70,5 metrar að lengd. Það mun taka
um 500 farþega og 70 fólksbíla. Nýja ferjan veröur smíðuð hjá skipasmíðastöðinni Simek I Flekkefjord f Noregi og mun
kosta um 1100 miljónir króna. Gangharði verður um 17 sjómílur á klukkustund og ferðin á milli Þoriákshafnar og Eyja
mun því taka um 2 tíma og 40 mínútur. Á myndinni eru f.v. Öyvind Ivarsen, framkvæmdastjóri Simek, Ragnar Óskars-
son, stjórnarformaður Herjólfs, og Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra. Mynd: Jón Ottó Gunnarsson.
Brot á mannréttindum að
flytja heimili einhverfra
Stjórnir Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkja-
bandalags íslands skora á bæjarstjórn Seltjarnarness að
afturkalla áskorun sina til félagsmálaráðherra um að
flytja heimili einhverfra frá Seltjarnarnesi. Stjórnirnar
átelja harðlega afstöðu bæjarstjórnarinnar og benda á að
það að eiga heimili sé grundvallarmannréttindi sem allir
þegnar landsins eigi að njóta, einnig fatlaðir.
Þá segir í áskorun stjómanna
að afstaða bæjarstjómarinnar sé
með öllu óskiljanleg í ljósi þess að
verulega hafi verið komið til móts
við tillögur til lausnar á málinu.
Það var að undirlagi nágranna
meðferðarheimilisins að Sæbraut
sem meirihluti bæjarstjómar sam-
þykkti áskomn sína.
„Við teljum mjög alvarlegt að
það skuli tekið tillit til þess að íbú-
ar í nágrenninu halda þvi fram að
það sé nauðsynlegt að heimili sem
þetta flytjist brott meðal annars til
þess að verðgildi húsanna haldist,“
sagði Amþór Helgason, formaður
Öryrkjabandalagsins. „Þess vegna
spyrjum við hvort sé dýrmætara,
verðgildi íbúðarhúsa eða mann-
gildi,“ sagði hann.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur sagt að heimil-
ið verði ekki flutt en hinsvegar
verður hcimilisfólki fækkað úr sex
í íjóra og heimilinu breytt í sam-
býli. Amiþór sagði að bmgðist væri
hart við í þessu máli vegna þess að
þetta væri spuming um grundvall-
armannréttindi.
Stjómimar ályktuðu að þær
myndu standa vörð um þessi
mannréttindi fatlaðra með öllum
tiltækum ráðum.
-gpm
Leitað leiða til að bæta hag þeirra allra lægst launuðu
Undirnefnd undir-
búningsnefndar hjá
Alþýðusambandi
íslands hefur að
undanförnu verið
að ræða leiðir til að
breyta skattkerfinu á þann veg
að byrðar verði færðar af lág-
launafólki á þá sem hærri tekjur
hafa. Innan nefndarinnar eru
skiptar skoðanir um hvaða leiðir
sé best að fara. Málið er samt
langt frá því að vera komið á til-
lögustig.
Staif undimefndarinnar hefur
beinst að því að finna færa leið til
þess að bæta hag þeirra sem lægst
em launaðir í þjóðfélaginu eða
innan ASI, sagði Snær Karlsson
hjá Verkamannasambandinu en
hann á sæti í nefndinni. Þar koma
til álita margir hópar og þeir em
ekki allir undir skattleysismörkun-
um, bætti hann við. Leiðimar sem
ræddar hafa verið em meðal ann-
ars að færa til skattbyrðina, sjá út
sanngjamar tekjuöflunarleiðir svo
sem með skattkúrfu eða hátekju-
skatti, sagði Snær og bætti við að
einnig hefði verið rætt um fjár-
magnstekjuskatt og afnám hluta-
bréfaafsláttarins. Menn em ekki
einu sinni famir að ræða hvemig
því svigrúmi sem við þetta skapað-
ist yrði varið, sagði hann.
Menn vom sammála um að
þessi umræða væm á algeru byrj-
unarstigi og benti Snær á að þetta
ætti alveg eftir að ræðast innan
verkalýðshrey fingarinnar.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASI sagði að fyrsta skrefið væri að
átta sig á hlutunum. Hann sagði að
fyrst og fremst væri verið að ræða
um tekjuskattinn, virðisaukaskatt-
inn og þá sérstaklega matarskatt-
inn. Þá benti hann á að skattleysis-
mörkin hafi í raun lækkað úr
65.000 krónum 1988 í 57.000
krónur nú og væri afar eðlilegt að
þessi hækkun gengi til baka. Ás-
mundur sagði að kostnaður ríkis-
sjóðs við að hækka skattleysis-
mörkin í 70.000 krónur myndi
verða um sjö miljarðar króna.
Hann sagði tekjutap rikissjóðs af
því að fella niður virðisaukaskatt
af til dæmis fatnaði myndi verða
4,5-5,0 miljarða króna.
Ásmundur ítrekaði þó að þessi
umræða væri einungis um einn þátt
og bæði hann og Snær sögðu að
ekki væri verið að falla frá kröfum
um launahækkanir þó þetta væri
rætt.
Guðmundur Þ. Jónsson for-
maður Iðju sagði að hækkun skatt-
leysimarka dygði ekki ein og sér
fyrir þá sem raunvemlega þurfa á
kjarabótum að halda það er að
segja þeim allra lægst launuðu.
Guðmundur á sæti í undimefndinni
og tók fram að ekki væri eining
innan nefndarinnar um allar hug-
myndimar.
Ásmundur tók undir þetta og
sagði að fyrir þá allra tekjulægstu
væri enginn ávinningur af hækkun
skattleysismarka. Það er reiknað
með að um 18-20 prósent land-
verkafólks innan ASÍ sé undir
skattleysismörkum og yrði um
þriðjungur landaverkafólks undir
mörkunum ef þau yrðu hækkuð í
70.000 krónur. Ásmundur benti þó
á að hærri mörk myndu nýtast ein-
hveijum hluta þessa fólks sem frá-
dráttur hjá maka. Ásmundur sagði
að ljóst væri að þessu fólki kæmi
betur að lækka skattlagningu á
matvöm og jafnvel fatnaði.
-gpm
Sjómenn ávíta forsætisráðherra
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur lýsir yfir áhyggjum sín-
um og undrun á þeim ummælum Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra í fjölmiðlum, að hvalveiðistefna íslendinga
geti orðið landanum fjötur um fót á heimssýningunni í Se-
villa á Spáni.
Að mati Sjómannafélagsins
hefur forsætisráðherra augljóslega
látið glepjast af öfgakenndum
áróðri þar sem reynt er að blanda
saman eðjilegri umhverfisvemd og
nýtingu Islcndinga á sjávarspen-
dýmm við landið. Sjómannafélag
Reykjavíkur telur að málflutningur
erlendra öfgasinna af þessu tagi
eigi lítið skylt við vemdun lífríkis
jarðarinnar og byggist á annarleg-
um forsendum ýmissa samtaka
sem kenna sig við umhverfisvemd.
Sjómannafélagið krefst því skýr-
inga forsætisráðherra og ráðgjafa
hans á því hvaða nýju „ímynd“
þeir hyggist búa til af Islendingum
í Sevilla til að kynna fyrir um-
heiminum. Félagið vill undirstríka
að á heimssýningunni á Spáni
megi ekki undir neinum kringum-
stæðum eyðileggja mikilvæga
hagsmuni þjóðarinnar. Jafnframt
áréttar Sjómannafélagið að gmnd-
völlur efnahagslegs sjálfstæðis ís-
lands og menningar séu veiðar og
nýting auðlinda hafsins og þeirri
heiðarlegu ímynd sé algjör óþaríl
að 'breyta. íslendingum sé nefhi-
lega\alveg óhætt að koma til dyr-
anna eins og þeir era klæddir.
-grh
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. apríl 1991