Þjóðviljinn - 17.04.1991, Page 12

Þjóðviljinn - 17.04.1991, Page 12
____________VIÐHOKF Erindreki „Hansakaupmannau I þessum kosningum er kosið um EB. — Það er forsætisráðherra landsins sem talar. Hver ætti að vita það ef ekki hann? Enn einu sinni er okkur boðin tröllsvernd. „Hansakaupmenn“ tutt- ugustu aldar eru enn iðnir við kolann engu síður en áður fyrr. Og heill flokkur manna - a.m.k. leiðtogar hans - vilja ekkert fremur en gerast feitir þjónar þýðversks hertogadæmis. „Feit- ur þjónn er ekki mikill rnaður." Annar flokkur sem kennir sig við sjálfstasðið hafði ekki fyrr losn- að undan Danakonungi en hann tók að falbjóða landið. Þeim flokki verður síst treyst. Davíð felur til- gang sinn með því að bjóða þjóðar- atkvæðagreiðslu. Hann hefir aldrei komið að þjóðmálum fyrr en nú, enda veit hann ekki í hvora löppina hann á að stíga og hefir enga stefnu að boða í þjóðmálum nema að selja rás 2. Ekki getur það talist merkileg kosningastefnuskrá. En Jón Baldvin veit í hvora löppina hann á að stíga. I Brussel- löppina. Tveir Jónar stýra litlum flokki. Báðir Isfirðingar, báðir fyrrverandi kúarektorar úr Ögri, báðir hagfræð- ingar, báðir óðfúsir að selja eða öllu heldur afhenda. Fyrir hvað? Kann- ski fyrir „hertogastöðu“ til eigin handa í „þýðversku keisaradæmi". Þeir bjóða „tröllsvemd". Er ekki sagan að endurtaka sig? Hagfræðin og markaðshyggjan hefir slegið ryki í augu þessara Jóna. Því hvor- ugum er vits vant. En stundum hafa greindir menn farið illa með sitt vit. Tengsl Alþýðuflokksins við verkalýð þessa lands er nú liðin tíð. Síðan hefir flokkurinn engin tengsl við nokkra íslenska stétt né íslenska hagsmuni. Flokkurinn er ekki ís- lenskur lengur. Markaðshyggja tröllriður þessum mönnum - svo mjög að því er Iíkast sem þeir séu gengnir í heiðið berg tröllskapar og myrkraaflanna. Þeir em á markaðs- torgi að falbjóða landið í kapp við flokkinn sem kennir sig við sjálf- stæði en vill samt ekkert fremur en selja. Fyrst Jón „hagspaki": Hann ku nú þegar hafa varið 600 milj. í það eitt að koma Suðumesjunum út og hylja þau álmóðu. Almenningi er til vorkunnar þótt hann eigi erfitt með að sjá við bellibrögðum og folsuð- um útreikningum hins lærða hag- fjæðings. Þó liggur málið ljóst fyrir. Útflutningur okkar er aðeins fiskur og ál (og aðeins örlítið af öðm). Það er því þegar af þeirri ástæðu fráleitt að reisa aðra álverksmiðju af öryggisástæðum. Alverðið er ótryggt. Það er einnig fráleitt að reisa allt á sama stað landsins bæði af félags- og menningarlegum ástæðum og einnig af öryggisástæð- um - Reykjanesskaginn er yngsti og ótryggasti hluti landsins. Og það er í þriðja lagi fráleitt af mengunar- ástæðum. Það er upplýst að meng- unin yrði slík að menn yrðu að draga úr bílmengun um ég veit ekki hver ósköp. Samt vill maðurinn ál og aftur ál. Er maðurinn ála? Er'ann á mála? Er hann ekki með ölium mjalla? Hvað hefir komið yfir manninn? Saga og hlutskipti Jóns Bald- vins er hörmungarsaga. Hann var einu sinni ungur, vel gefínn maður. Hann er meira að segja fæddur í Al- þýðuhúsi Isfirðinga. Sonur verka- lýðshetju. Þannig að heiman búinn hefir Jón Baldvin tekið að sér að ráða niðurlögum jafnaðarstefnunn- ar, afhenda landið og ganga erinda „Hansakaupmanna" - stórkapitalis- mans, ég vildi segja ofur-kapitalis- mans. Jón Baldvin er genginn í heiðnaberg afturhalds, auðvalds og „alþjóðahvggju" sem er finna nafn á landsölu. _ Hver á Island? Von að maðurinn hafi spurt. VIÐ eigum ísland - Jón Baldvin. Og VIÐ ætlum ekki að af- henda þér það. VIÐ ætlum að þurrka þann flokk út sem einu sinni var Alþýðuflokkur, en nú er fóta- skinn „Hansakaupmanna". Þeir Jónamir þykjast ætla að slá einhverja vamagla. Ekki til að tryggja íslensk réttindi, heldur til að slá ryki í augu bláeygra Islendinga í hugsanlegum kosningum stjömu- goðsins Davíðs. Allir vamaglar ganga þvert á Rómarsamninginn. Allir vamaglar Jónanna munu gefa sig undan mætti fjármagnsins. Það yrði hægur leikur að kaupa ein- hveija leppa úr hópi þeirra kvis- linga sem ekkert skilja nema pen- inginn. Hann þykist ætla að spara tug- miljarða á landbúnaði. Ætli honum hefði ekki verið nær að spara tug- miljónimar sem hann er búinn að sóa í Brussel. Jón Baldvin er það greindur maður að hann veit manna best að þessi plata hans um land- búnaðinn er blekking. Fyrst maður- inn þekkir eitthvert patent til að reka landbúnað án úgjalda, hvers á þá faðir hans og bróðir að gjalda að Jón skyldi halda „patentinu" leyndu fyrir þeim þegar þeir stúnduðu landbúnað í Selárdal? Eg veit ekki betur en eljumaðurinn og sóma- maðurinn Olafur bróðir Jóns sé uppgjafa- bóndi. Hvað eiga upp- gjafa bændur á íslandi að stunda? Eiga þeir allir að hverfa að Helgar- póstinum eins og Olafur bróðir? I stuttu máli: Allar þjóðir styðja sinn landbúnað. Mér er tjáð flestar meira en íslendingar. Það á sam- kvæmt „Alþýðuflokknum" sáluga (sem nú er búinn að skipta um naín að hálfu) að flytja inn evrópska hollustu-snauða offramleiðslu í samkeppni við lítt eða ekkert styrkta íslenska ffamleiðslu hollra landbúnaðarafurða. Síðan eiga bændur að herða sultarólina uns þeir flosna upp til að snópa í ál- brælu Jóns „hagspaka" atvinnulaus- ir, „barðir þrælar“. íslenskar sveitir yfir að líta einn yfirgefmn og mann- auður Selárdalur. Hugsýn utanrikis- ráðherrans sem fæddist undir heilla- stj ömu j aftiaðarstefnunnar. Hann er vissulega dýr landbún- aðurinn. En bændur sjálfir fá ótrú- lega lítinn hluta verðsins í sinn hlut. Mest fer í milliliði. Milliliðakostn- aðurinn stafar auðvitað fyrst og ffemst af offjárfestingu (hún er í öllu allstaðar - það er hagspekin sem þeir boðuðu komnir ffá skóla- borðinu). OfTjárfestingunni verður ekki kippt burt, hún verður ekki af- skrifúð, hana verður að borga, þrátt fyrir dagskipun ffá Jóni Baldvin að spara tug- miljarða. Jón Baldvin kann ekki að spara eina krónu í landbúnaði. Hann er nógu greindur maður til að sjá það sjálfur. Það eina sem Jón Baldvin kann til landbúnaðar er að reka alþýðu- flokks-kýr - ef hann kann það þá. Hann styðst aðallega við brott- hlaupna undanvillinga. Engir eiga síður uppá pallborðið hjá honum en gamlir alþýðuflokksmenn og er ekki kyn þareð maðurinn hefír gengið að jafnaðar- hugsjóninni dauðri. En hinir brotthlaupnu kom- ast í framboð hjá honum einsog á færibandi með splunkunýtt flokks- skírteini uppá vasann. Því miður - örlög Jóns Baldvins em hörmuleg. Atti menn sig á einfoldum aðal- atriðum verður enginn vandi að krossa á kosningadaginn. Það er einn flokkur sm gegnum alla tíðina hefur staðið fastast á landsréttind- um. Jú vissulega - forverar hans gerðu þau miklu mistök að vera hallir undir Rússa og marxisma. En sá tími er löngu liðinn. Eftir „Vorið í Prag“ og örlög þess 1968 losaði flokkurinn sig við síðustu dreggjar kommúnismans. jSíðan er hartnær aldarfjórðungur. I dag er Alþýðu- bandalagið eðlilegur, venjulegur, þjóðemissinnaður jafnaðarmanna- flokkur („sósíal- demókrat“). „Al- þýðuflokkurinn" sálugi er hins veg- ar afsalsflokkur landsréttinda. Steingrímur hefir lýst yfir að EB komi ekki til greina. Hann á heiður skilinn fyrir þá afdráttar- lausu yfírlýsingu sína. En hér í Reykjavík kjósum við ekki óheilla- krákuna Finn. Persónulega er ég ekki hallur undir núvrandi formann Alþýðu- bandalagsins. En eitt verður samt að játa og virða: Ólafúr Ragnar hef- ir sem fjármálaráðherra stöðvað er- lendar lántökur og rétt við hallann á fjárlögum ríkisins. Með stöðugri skuldasöfnun (einsog hjá Þorsteini) hljótum við að glata sjálfstæðinu - það skilur hvert mannsbam. ÓR hefir því sem fjármálaráðherra rek- ið raunvemlega „sjálftæðisstefnu“ til handa þjóðinni. Það hefir kostað óvinsælar og harðar aðgerðir - og hlýtur alltaf að gera það hver sem heldur um stjómvölinn. Hann hefir því rekið ábyrga stefnu. Ég hef áður vikið að kvennalistanum. Hann hef- ir góða stefnu í mörgu og vissulega þjóðlega. Én hann vill bara ekki ffamkvæma stefnu sína - a.m.k. ekki í samvinnu við þá sem hann ætti samleið með. Hann vill bara varðveita meydóminn. Fyrren Ingi- björg Sólrún gerði í bólið sitt þegar hún steig í vænginn við Davíð (mann sem hún ætti að þekkja öðr- um betur) og vill nú alveg eins vinna með þeim sem alltaf hafa reynt að losna við sjálfstæðið þrátt fyrir nafnið. IS virðist ætla að fýrir- koma hugsjónum kvennalistans. Kjósendur verða að gera sér grein fyrir aðalatriðunum: Kosning- amar snúast um sjálfstæði íslands - einsog Steingrímur gerir sér ljóst. VIÐ eigum ísland ennþá. Og VIÐ ætlum okkur að eiga ísland áfram. Og þess vegna ætlum VIÐ hvorki að kjósa Jón Baldvin né nokkum annan erindreka „Hansa- kaupmanna“ ffá Bmssel. Höfundur er yogakennari „Tengsl Alþýðuflokks við verkalýð þessa lands er nú liðin tíð. Síðan hefir flokkurinn engin tengsl við nokkra íslenska stétt né íslenska hagsmuni" Menningarvaka G-listans í kvöld, 17. apríl á Hótel Borg í orðum og tónum Auður Sveinsdóttir: Okkar hjartans mál Ljóð - upplestur - hljómsveitir! TæVút*rlprttvík- dran Húsið opnað kl. 21 Dagskrá hefst kl. 22 Búið kl. 00.30 Allir velkomnir! Aðgangur ókeypis ▲ Guðmundur Georssson skrifar Herstöðvamálið er á dagskrá S umræðunni um utanríkismál fyrir þessar kosningar hefur mest borið á umfjöliun um samninga um evrópskt efna- hagsvæði og hvort aðild ís- lands að Efnahagsbandalag- inu (EB) sé á dagskrá. Her- stöðvamálið og aðildin að NATO hefur fallið nokkuð í skuggann, þó að þau mál hafi að vísu ekki legið algjörlega í þagnargildi. Þetta er að vissu leyti skiljan- legt, því að með því að gangast und- ir þau skilyrði sem fylgja aðild að evrópska efnahagssvæðinu og /eða EB afsala íslendingar sér sjálfræði í ýmsum mikilvægum málum og fela yfirþjóðlegum stofnunum. Enda þótt aðildin að NATO og herstöðva- samningurinn hafi ætíð verið okkur þymir í augum, sem höfum fylgt hlutleysi og með síðamefnda samn- ingnum hafi Bandaríkjunum verið aíhent landsvæði til umráða, þá er það svo að í báðum samningunum eru ákvæði sem tryggja rétt ís- lenskra stjómvalda til að segja þeim upp einhliða. Það er því ljóst að ís- lendingar hafa það á sínu valdi, hvemig þessum málum er háttað. Annað sem dregið hefur úr um- ræðunni er þróunin í Evrópu. Það sýnist þverstæðukennt, að sú þróun sem hefur leitt til þess að upphafieg- ar forsendur fyrir tilvist NATO og hertöðvum hérlendis, a.m.k. þær sem haldið var að þjóðinni, em brostnar, virðist hafa dregið úr um- ræðunni. Skýringar á því kunna að vera ýmsar, en þó kann að vega þungt, að því hefur verið haldið fram af ýmsum, m.a. af félögum sem hafa sagt skilið við baráttuna fyrir herlausu og hlutlausu landi, að hermálið sé ekkert mál lengur því að herinn muni fara af sjálfdáðum á næstu 10 til 15 ámm. Þessi fullyrð- ing, sem er til þess fallin að draga úr umræðunni og slæva baráttuna, er hættuleg og villandi. Það ætti að vera öllum fullljóst að bandaríski herinn fer seint eða aldrei af sjálfs- dáðum. Því til stuðnings skal minnt á útvarpsviðtal við Brehment fýrmrn sendiherra Bandaríkjanna hérlendis í fyrra, þar sem hann lét þau orð falla, að herstöðin hér yrði ein af þeim síðustu,,sem Bandarikjamenn legðu niður. Ótrúleg ósvífni en kannski skiljanleg, að láta sem svo aðþað sé einkamál Bandaríkjanna og Islend- ingar ráði þar engu um. Og í fréttum útvarpsins fyrir nokkmm dögum var ffá því greint að landvamarráðu- neytið bandaríska hefði ákveðið að leggja niður á fjórða tug herstöðva af spamaðarástæðum, en herstöðin á Miðnesheiðinni var ekki á þeim lista. Það ber því alit að sama bmnni. Herinn fer ekki héðan nema fyrfrfrumkvæði okkar íslendinga. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að til að ná árangri þurfi sem öflugasta andstöðu bæði utan- þings og innan. Um næstu helgi gefst okkur tækifæri til að hafa áhrif á styrk andstöðunnar á alþingi. Nýt- um það tækifæri. Baráttan fyrir hlut- lausu og herlausu landi mun vera á dagskrá á meðan hér dvelst erlendur her og ísland er aðili að hemaðar- bandalagi. Höfundur er læknir ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. apríl 1991 12

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.