Þjóðviljinn - 17.04.1991, Qupperneq 20
Rækjukvóti
verksmiðja
verði afnuminn
Kristinn H. Gunnarsson efsti maður á framboðslista AI-
þýðubandalagsins í Vestfjarðakjördæmi hefur lagt
það til að rækjukvóti verksmiðja verði afnuminn.
Þess í stað verði rækjukvótinn svæðisbundinn, sem
þýðir að ef handhafar rækjukvóta vilja selja verði
þeir að gera það innan tiltekins svæðis, auk þess sem það mundi
leiða til samkeppni milli verksmiðja um hráefnið.
Jafnframt leggur Kristinn H.
það til að sérveiðar, eins og rækju-
veiðamar eru, verði tengdar með
ákveðnari hætti en nú er gert við
botnfiskveiðiréttindi. Það þýðir að
þegar rækjuafli dregst saman fái
viðkomandi bátar bætur í botn-
fiski, en á því hefur orðið æði oft
misbrestur.
Eiríkur Böðvarsson fram-
kvæmdastjóri bjiðursuðuverk-
smiðjunnar hf. á Isafirði er ósam-
mála þvi að rækjukvóti verksmiðj-
anna verði frá þeim tekinn. Hann
segir að það geti leitt til þess að
samkeppni verksmiðjanna um hrá-
efnið, verði óeðlilega mikil og því
sé best að hafa nuverandi fyrir-
komulag óbreytt.
Að mati Kristins H. Gunnars-
sonar hefur verksmiðjukvótinn
fært verksmiðjunum mjög svo
sterka samningsstöðu gagnvart
seljendum, sjómönnum og útgerð,
sem verksmiðjueigendur hafa nýtt
sér út í ystu æsar. Þess í stað eigi
kvótinn að vera svæðisbundinn
sem muni leiða til einhverrar sam-
keppni miili verksmiðja um hrá-
efnið. í því sambandi bendir Krist-
inn H. á að á yfirstandandi vertíð
hefur afkoman verði betri í niður-
suðu rækjunnar en í frystingu. Það
hefði því átt að vera þjóðhagslega
hagkvæmara að sjóða meira niður í
stað þess að frysta sem ekki varð
vegna verksmiðjukvótans. En eins
og kunnugt er þá hefur rækjufryst-
ingin verið rekin með umtalsverðu
tapi vegna sölutregðu og verðfalls
á undanfomum missemm.
-grh
Rækjuvertíðinni við (safjarðardjúp fer nú senn að Ijúka. Aðeins er eftir að veiða
um 200 tonn af um 3 þúsund tonna kvóta. Vegna lítils botnfiskkvóta er viðbúið
að rækjukarlarnir leigi kvóta sína í stað þess að gera út á handfæri í sumar.
Kúrdar
aðstoðaðir
Ríkisstjórnin sam-
þykkti á fundi sínum
í gærmorgun að ráð-
stafa allt að 70 milj-
ónum króna til
hjálpar Kúrdum
vegna neyðarástandsins sem nú
ríldr í Kúrdistan á landamærum
Iraks, írans og Týrklands. Ætl-
unin er að senda ullarvörur og
matvæli.
Ríkistjórnin samþykkti að veita fé til
aðstoðar Kúrdum og vinnur þetta fólk
að skipulagningunni. Frá vinstri: Ein-
ar Sigurðsson fjármálaráðuneyti,
Sveinn Björnsson utanríkisráðuneyti,
Helga Jónsdóttir forsætisráðuneyti og
Hannes Hauksson frá RKl. Mynd:
Jim Smart.
I gærdag hittust á fundi um
þetta mál fulltrúar þriggja ráðu-
neyta og Rauða kross Islands og
verður unnið eins hratt og unnt er
að framgangi málsins.
Sveinn Björnsson í utanríkis-
ráðuneytinu sagði að strax hefði
verið brugðist við vegna þess að
þörfin á flóttamannasvæðinu væri
mest núna. Nefndin sem hittist í
gær mun kortleggja stöðuna og
fara yfir alla þætti málsins en að-
stoðin verður með svipuðum hætti
og við Jórdaníu síðast liðið haust.
Sveinn sagði að of fljótt væri að
segja til um hvenær aðstoð gæti
haTist. „En við ætlum að setja
hraða í þetta,“ sagði Sveinn.
-gpm
Sjálfstæðisflokkurinn með
meirihluta í Reykjavík
Sjálfstæðisflokkurinn
vinnur verulega á í
Reykjavík og fengi
meirihluta atkvæða.
Hann tapar á Suður-
landi, sé miðað við kosn-
inparnar 1983, en bætir þó við sig
fra kosningunum 1987. G- listinn
heldur sínu á Suðurlandi sam-
kvæmt niðurstöðu skoðanakönn-
unar Gallup sem Sjónvarpið birti
í gær.
Samkvæmt því fengi Sjálfstæð-
isflokkurinn meirihluta í Reykjavík
eða 54% en var með 29% í kosning-
unum fyrir íjórum árum og 42,9% í
kosningunum 1983. Alþýðuflokkur-
inn fengi 11,3% en hafði 16,0%.
Framsóknarflokkurinn fcngi nú
8,9% en var með 9,6%. Alþýðu-
bandalag fengi 9,7%, var með
13,8%, Kvennalistinn 13,0% en var
með 14,0% og Frjálslyndir fengju
0,6% en í síðustu kosningum fékk
Borgaraflokkurinn 15% atkvæða. Þá
fær Þjóðarflokkurinn/Flokkur
mannsins 1,6% og aðrir flokkar
mun minna.
Samkvæmt þessu fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 10 þingmenn í
Reykjavík, Kvennalistinn 3, Al-
þýðuflokkur og Alþýðubandalag 2
þingmenn hvor floHkur og Fram-
sóknarflokkur einn. Urtakið í könn-
uninni var 850 manns og svöruðu
596 þða 70%.
A Suðurlandi fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 39,1% en var með 32,5%
1987 og 39,9% 1983. Alþýðubanda-
lag fengi 11,0% en var með 11,5% í
kosningunum 1987, Alþýðuflokkur-
inn fengi 8,1% í stað 10,6% síðast.
Framsóknarflokkurinn fengi 29,9%
en var með 26,9%, Kvennalistinn
fengi 7,5% en var með 6,6% og
Frjálslyndir fengju 3,2% en síðast
fékk Borgaraflokkurinn 10,9%.
Aðrir flokkar fá minna en eitt pró-
sent. I úrtakinu voru 850 manns,
647 svöruðu eða 76%.
Samkvæmt þessum niðurstöðum
fengi Sjálfstæðisflokkurinn 3 þing-
menn, Framsókn 2 og Alþýðu-
bandalagið
Sé hinsvegar tekið mið af þess-
um könnunum á landsvísu með öll-
um mögulegum fyrirvörum fengi
Sjálfstæðisflokkur 29 þingmenn og
bætir við sig 11 þingsætum. Al-
þýðuflokkur tapar einu og fengi 9,
Alþýðubandalag tapar 2 og fengi 6,
Framsókn stendur í stað með 13
þingsæti og eins Kvennalistinn með
6 þingsæti. -grh
Svona lítur skútan út í dag, sem Sjó-
minjasafninu stendur til boða að
kaupa.
Fríða aftur
í heimahöfn?
Sjóminjasafni Islands
hefur verið boðin til
kaups íslensk skúta frá
Englandi. Skútan, sem
áður hét Fríða RE 13,
var gerð út til fiskveiða
frá Reykjavík og Hafnarfirði á
árunum 1897-1913. Að sögn Ág-
ústs Georgssonar, starfsmanns
hjá Sjóminjasafninu, hefur safn-
ið sjálft ekki bolmagn til að
kaupa skútuna, sem metin er á
tæpar 16 miljónir króna. Ætlun-
in er því að leita eftir stuðningi
almennings og fyrirtækja til að
festa kaup á þessari sögulegu
arfleifð.
Ágúst sagði að skúta sem þessi
væri ekki til hér á landi. Að vísu
væri til skúta á Akranesi, Kútter
Sigurfari, en hún væri ekki sjófær
og yrði það sjálfsagt aldrei. Það er
skntið að fiskveiðiþjóð eins og við
höfum ekki yfir að ráða haffærri
skútu frá skútuöldinni. Færeyingar
eiga t.d. þrjár skútur frá þessum
tíma og allar eru þær í ágætu
ástandi, sagði Ágúst.
Aðspurður um not af haffærri
seglskútu hérlendis, sagði Ágúst
að skútan gæti örugglega gagnast
við ýmislegt, nú væri hún t.d.Teigð
út til skemmtisiglinga við Bretland
og Norður-Evrópu á sumrin, en á
vetuma væri hún við Kanaríeyj^r.
- Það er hægt að hugsa sér að Is-
lendingum og erlendum ferða-
mönnum gefist kostur á siglingu
með henni og fái þar með tækifæri
til að kynnast því hvernig sjó-
mennskan var hér áður íyrr. Einnig
er möguleiki að Sjómannaskólinn
fái einhver afnot af henni til
kennslu. Gamlir skútusjómenn
hafa sagt mér, að það væri hveijum
skipstjómanda hollt að reyna sig
við stjóm alvöru skútu. Þá gefst
þeim betra tækifæri til að átta sig á
pví hvernig sjávarstraumar og
vindar hafa áhrif á þau skip sem
þeir koma til með að stjóma, sagði
Ágúst. -sþ