Þjóðviljinn - 28.06.1991, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 28.06.1991, Blaðsíða 6
Víetnamska forustan yngd upp Aukin einkavæðing á döfinni. Sunnlendingar aukast að áhrifum Haldið upp á sigurinn (Víetnamstrfði f Ho Chi Minh-borg (Saigon) -fimm af 13 f stjómmálaráði eru nú frá Suð- urlandinu. Víctnamski kommúnista- flokkurínn, sem er alráður þariendis, skipti í gær um menn í mörgum helstu stöðum og embættum flokks og ríkis. Var forustan yngd upp að nokkrum mun og hlutur Sunnlendinga í henni aukinn. Breytingar þessar voru gerðar á yfirstandandi þingi flokksins í Hanoi, höfuðborg landsins. Flokknum var í gær kjörinn nýr aðalritari, þ.e.a.s. ffam- kvæmdastjóri, sem samkvæmt venju í löndum undir stjóm kommúnista er helsti valdamaður landsins. Hinn nýi aðalritari heitir Do Muoi og er 74 ára að aldri. Honum er lýst sem kyrrlátlegum sáttamanni og er talið að honum sé ætlað að jafna ágreininginn milli íhaldsmanna, sem halda vilja fast við fýrri stefnu flokks- ins, og breytingasinna. Er Do Muoi talinn hlynntari þeim síðar- nefndu, sem auka vilja samkeppni í atvinnulífi. Þeir em nú í sókn í flokknum og benda breytingamar á flokksforustunni til þess, auk annars. Do Muoi er af bændaættum, starfaði á unga aldri sem húsa- málari og hefur verið í flokknum síðan 1939, er landið var enn und- ir yfirráðum Frakka. I stjómmála- ráði flokksins, sem mestu ræður um stefnu hans, hefúr hann verið síðan 1960 og forsætisráðherra síðan 1988. Hann er aðeins ári yngri en fráfarandi aðalritari, Nguyen Van Linh, og er hafl eftir mönnum kunnugum í Hanoi að hann muni ekki verða lengi við völd, heldur aðeins þangað til flokkurinn hafi sæst á yngri mann í stöðuna. Embætti forsætisráð- herra gegnir hann áffam. Af þeim, sem flokksþingið kaus í 13 manna stjómmálaráð flokksins em átta nýir og Sunn- lendingar em þar fimm, tveimur fleiri en áður. Flestir fomstu- manna vietnamskra kommúnista hafa hingað til verið úr norður- og miðhémðum landsins, en ljóst má vera af íjölgun Suður-Víetnama í stjómmálaráðinu að áhrif þeirra í fomstu flokks og ríkis fara vax- andi. Er það í samræmi við það að Sunnlendingar, léttari á bámnni yfirleitt taldir en Norðlendingar, em áhugasamari en þeir um ein- staklingsframtak i atvinnulifi. Meðalaldurinn í nýja stjóm- málaráðinu er og talsvert lægri en í hinu ffáfarandi, sem setið hefúr að völdum frá flokksþinginu 1986. í ffáfarandi ráði vom flestir fulltrúa á áttræðisaldri en í því nýja em nokkrir kringum hálfsex- tugt. Það er ekki hár aldur á ráða- mönnum í ríki, sem bæði er kommúniskt og konfúsíanskt. Einn þeirra ráðamanna sem formlega létu af völdum á flokks- þinginu er Nguyen Co Thach, ut- anríkisráðherra síðan 1980. Hefúr hann á þeim árum orðið þekktur á alþjóðavettvangi fyrir að tala máli lands síns af skömngsskap og fijálslega framkomu. Hann talar ensku og frönsku reiprennandi. Það flýgur fyrir að hann hafi hætt vegna þess að ráðamenn í flokkn- um kenni honum um að Víetnam hefúr ekki tekist að koma á eðli- legu sambandi við fyrri fjendur, Bandaríkin og Kina. Nguyen Co Thach er 68 ára. Suður-Afríka hyggst undirrita NPT- sáttmála Innanríkis- ráðuneyti genn Gorbatsjov? Gorbatsjov Sovétrikjaforseti telur að árás svarthúfúliða á aðal- símstöðina í Vilnu, höfuðborg Litháens, í fyrradag kunni að hafa verið gerð með það fyrir augum að spilla fyrir honum meðal vesturlandamanna. Skýrði Vítalíj Ignatenko, talsmaður for- setans, frá þessum gmn hans í gær. Gorbatsjov hefur verið boð- íð á fúnd leiðtoga sjö mestu iðn- ríkja heims i Lundúnum í næsta mánuði og bindur miklar vonir við þann fund. OMON-Iiðið, öðm nafni svarthúfumenn, heyrir undir innanríkisráðuneytið og Borís Pugo, innanríkisráðherra, sem er einn af forustumönnum Isovéskra íhaldsmanna. Gorbatsjov hefur fyrirskipað Pugo að láta rannsaka málið. Svarthúfúliðar þeir, sem sím- stöðina tóku, sögðust gera það að skipun Gorbatsjovs sjálfs. Mannrán í Kasmfr Vopnaðir menn, að líkindum kasmírskir skilnaðarsinnar, námu í gær á brott sjö erlenda ferðamenn, sex ísraela og hol- lenska konu. Israelamir vörðust og drápu,einn mannræningjanna, en einn ísraeli var og drepinn í þeirri viðureign. Kasmír er fylki í Indlandi en meirihluti landsmanna múslímar, sem margir vilja annaðhvort sjálfstæði fyrir fylkið eða sam- einingu við Pakistan. Skilnaðar- sinnar, sem reyna að koma sínum málum áleiðis meö skærum og hryðjuverkum, virðast nú teknir upp á því að ráðast á útlendinga til að vekja athygli á sér. Tveir sænskir verkfræðingar, sem skæruhópur einn kasmírskur rændi í marslok, eru enn fangar liðsmanna hópsins. Eitraður reykur varð 19 að bana 19 manns, fiest ferðafólk á efri árum, létu lífið í gær á hress- ingarhæli á heilsulmdarstað í Frakklandi, um 80 km vestur af Toulouse. Varð þetta með þeim hætti að eldur kom upp í þaki hælisins er verkamenn, sem þar unnu að viðgerðum, misstu á þakið bráðnandi tjöru. Fylltist þá sundlaugasalur hælisins, þar sem margt fólk var statt, af eitruðum reyk. Sagði af sér og lést Jacques Correze, forstjóri dreifingarkerfis franska stórfyr- irtækisins l’Oreal, sem framleið- ir snyrtivörur, í Bandaríkjunum, sagði af sér þeirri stöðu á mið- vikudag. Hafði hann þá verið sakaður um að hafa tekið þátt í yðingaofsóknum i París á árum eimsstyijaldarinnar síðari. Correze sagði það ósatt, en við- urkenndi að hafa á fjórða og fimmta áratugnum starfað í ítölskum og frönskum fasista- samtökum, sem stunduðu m.a. hryðjuverk. Correze kvaðst segja af sér til ess að koma í veg fyrir að mál etta spillti fyrir I’Oreal. Nokkr- um klukkustundum eftir afsögn- ina var hann látinn. Tilkynnt var að banameinið hefði verið krabbamein. Correze varð 79 ára. Stjóm Suður-Afríku hét því í gær að láta aldrei ffamleiða kjamavopn, þar eð þeirra væri ekki lengur þörf vegna breytinga í alþjóðamálum. Jafnffamt til- kynnti Pik Botha, utanríkisráð- herra landsins, að stjóm hans hefði ákveðið að undirrita sátt- málann gegn útbreiðslu kjama- vopna (NPT). Margra mál er að Suður-Afr- íka hafi þegar ffamleitt kjama- sprengju og sprengt hana í til- raunaskyni, en Botha kvað það ekki vera sannleikanum sam- kvæmt. AD UTAN Dagur Þorleifsson 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. júní 1991 AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1977-2.fl. 10.09.91-10.09.92 kr. 891.074,72 1978-2.fl. 10.09.91-10.09.92 kr. 569.264,03 1979-2.fl. 15.09.91-15.09.92 kr. 371.129,25 INNLAUSNARVERÐ *) FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL Á KR. 10.000,00 1985-1 .fl.A 10.07.91-10.01.92 kr. 48.160,44 1985-1.fl.B 10.07.91-10.01.92 kr. 31.023,86**) 1986-1.fl.A 3 ár 10.07.91-10.01.92 kr. 33.196,34 1986-1 .fl.A 4 ár 10.07.91-10.01.92 kr. 35.837,94 1986-1 .fl.B 10.07.91-10.01.92 kr. 22.881,23**) 1986-2.fl.A4 ár 01.07.91-01.01.92 kr. 30.626,10 1987-1.fl.A2 ár 10.07.91-10.01.92 kr. 26.476,01 1987-1 .fl.A 4 ár 10.07.91-10.01.92 kr. 26.476,01 *)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. **)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, júní 1991. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.