Þjóðviljinn - 19.07.1991, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 19.07.1991, Qupperneq 2
Gamla pakkhúsið hefur verið gert upp að utan ( sem næst upphaflegri mynd. Gamla, pakkhúsið í Ólafsvík Eitt hús öðrum fremur fangar athygli þeirra sem leggja leið sina um Ólafsvík. Húsið sem hér um ræðir er Gamla pakkhúsið, eins og það er gjarnan nefnt af heima- mönnum. Gamla pakkhúsið var upphaf- lega reist 1844 af Hans A. Clau- sen kaupmanni og er elsta húsið í Ólafsvík. Upphaflega var húsið hugsað sem pakkhús og þjónaði því hlutverki með sóma um langt skeið. Með breyttum kröfum tím- ans missti húsið það hlutverk sem því var í upphafi skapað og húsið varð nánast allra manna gagn án þess þó að þjóna í rauninni nokkru föstu hlutverki. Nú er öldinn önnur og þetta þetta aldna og virðulega hús hefur gengið í endurnýjun lífdaga. End- urbætur hafa verið gerðar á hús- inu á undanfömum árum. Það hefur verið klætt upp að utan í sem næst upphaflegri mynd og jarðhæð hússins hefur verið tekin í gegn og er nú svo komið að að- eins loft og hanabjálki upp undir súð eru enn með sömu innviðum og þegar húsið var reist 1844. Sá sem fer með húsbóndavald í Gamla pakkhúsinu er ungur „Ólsari“ Páll Hrannar Hermanns- son að nafni. Páll, sem er að hálfu starfi ferðamálafulltrúi Ólafsvík- ur, hefur aðsetur í Gamla pakk- húsinu og rekur þar upplýsinga- miðstöð fyrir ferðamenn sem leið eiga um utanvert Snæfellsnes með viðkomu í Ólafsvík. Auk upplýsingamiðstöðvarinnar er vísir að byggðasafni fyrir Ólafs- vík kominn upp í Gamla pakk- húsinu. A neðri hæðinni gefur að líta ýmsa muni sem tengjast sögu Ólafsvíkur. - Mikill fjöldi ferðamanna staldrar orðið við hér í Ólafsvík og flestir þeirra koma hér við. Það á þó sérstaklega við um Is- lendingana, enda vekur húsið óskipta athygli þeirra, segir Páll. - Áhugi útlendinganna bein- ist aðallega að jöklinum og því mikla fuglalífi sem er hér við alla strandlengjuna. Þetta er fyrsta sumarið sem sérstakur ferðamálafulltrúi er í Ólafsvík. Páll segir að mikið og gott samstarf hafi tekist milli sveitarfélaganna á Snæfellsnesi um ferðamál og ráðinn hafi verið sérstakur ferðamálafulltrúi fýrir Snæfellsnes, sem aðsetur hafi í Stykkishólmi. - Mitt starf er því hugsað sem smá viðbót við fram- lag Ólafsvíkinga til sameingin- legs starfs sveitarfélaganna að ferðamálum og mér sýnist ekki hafa verið vanþörf á því að hér væri einhver tiltækur til að Ieið- beina ferðamönnum og beina þeim á áhugaverða staði, segir Páll. Hann segir að ferðamanna- straumur um utanvert Snæfells- nes hafi verið með meira móti í ár. - Útlendingar hafa fram lil þessa mestanpart ætt hugsunar- laust hér í gegn. Með því að setja upp þessa upplýsingamiðstöð hér bjóðast þeim margvíslegar upp- lýsingar, s.s. um áhugaverða staði til að skoða, auk þess sem við skipuleggjum dagsferðir með leiðsögn á áhugaverða og sögu- fræga staði, sagði Páll. En hvað skyldi Páll hafast annað að þann hluta dagsins sem hann er ekki í hlutverki ferða- málafúlltrúans. - Ég vinn við að steypa gagnstéttir og kanta þegar ég er ekki hér, segir Páll, en í haust mun hann hefja nám í raf- eindavirkjun. -rk Páll Hrannar, ferðamálafulltrúi Ólafsvlkur gægist ofan af hanabjálka I Gamla pakkhúsinu. Myndir Kristinn Á pakkhúsloftinu gefur að líta „signeratúr" pakkhúsmanna. Hér hefur Sigurður Gunnarsson nokkur párað nafn sitt og sett dagsetninguna við 24. september 1919. ÍRÓSA- •GARÐINUM UPPHEFÐ MATAR OG DRYKKJAR Perlan hlaut blessun kirkj- unnar við hátíðlega athöfn í gær, sunnudag... Séra Þórir Stephen- sen sagði húsið vera tákn um há- leitar hugsanir og óskaði þess að það yrði til að þjóna hamingj- unni og stuðla að jákvæðum hliðum lífsins. DV um vígslu Perl- unnar ÞAÐ ER FULL- KOMNAÐ, SAGÐI FRELSARINN Það er dásamlegt að enda ferilinn með þessum hætti. Hér eru mörg hundruð manns við- staddir og segja má að húsið sé fullkomnað, sagði Davíð Odds- son DV um sama atburD OG SAMA FÝLAN I' ÞESSUM FRAMSÓKNAR- MONNUM! Kirkjan.. ætti ffemur að víta bruðlið og foreyðsluna en segja hégómann þjóna hamingjunni. Að minnsta kosti ætti kirkjan að hafa eitthvert hóf á smekkleysi hræsninnar meðan hún er þjóð- kirkja. Tíminn um sama atburð. HANN ÁTTI ÞENNAN UNDRA- HATT, EKTA MEXÍKANAHATT.. Einna hreinskilnastur var án efa Jón Baldvin en í stuttri ræðu sem hann flutti líkti hann Sjálf- stæðisflokknum við mexíkóskan bófaflokk. DV HÉR ER VERKEFNI FYRIR DAVIÐ Hvaða vit er í því að skírdag- ur, laugardagur fyrir páskadag og annar í páskum séu ffidagar? Hvaða vit er í því að sumardag- urinn fyrsti sé frídagur? Og svo mætti lengi telja. Morgunblaób ER HANN EITT- HVAÐ FYRIR FUGLINN? Fuglafræðingur gripinn við gluggagægjur MorgunblaóÖ EN ALLTOF MARG- AR SITJA SEM FASTASTí LÍFSINS VEISLU . Spariklædd sauðkind slapp úr afmælisboði. Morgunbiaöib 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.