Þjóðviljinn - 19.07.1991, Side 7

Þjóðviljinn - 19.07.1991, Side 7
Bandarískar stórmyndir eru að kafna í kostnaði Stórmvndirnar sem eiga að slá aðsóknarmetin eru orðnar svo dýrar að það verður æ ólík- legra að þær geti borgað sig. Fyrir nú utan það, að þær byggja söluvonir á örfáum rán- dýrum stjörnum og miklum gauragangi í dýrum tækni- brögðum - og verða því hver annarri leiðinlega líkar. Það er á sumrin sem helstu „metsölumyndir" hvers árs koma á markaðinn. A þessu ári eru það þijár hetjusögur bandarískar sem eiga að gera það gott. Ein er „Hudson Hawk“ með Bruce Will- is - saga af þjófi (sem er um leið mesti heiðursmaður eins og Hrói höttur) - þessi þjóíur kemur á sið- ustu stundu í veg fyrir að djöful- leg klíka nái í sínar hendur lyklin- um að heimsyfirráðum. Þessi kvikmynd kostar rúmlega 50 miljónir dollara. Önnur myndin er „Terminator 2“ með vöðvabákn- inu Schwarzenegger. Þar segir frá því hvemig garpurinn bjargar Messíasi næstu aldar frá tortím- ingu. Það ævintýri kostar hvorki meira né minna en 94 miljónir dollara. Þriðja myndin er svo Hrói höttur Kevins Costners, sem þeg- ar er til Islands komin og hefur reyndar þegar gefið fyrirheit um að skila góðum arði. En fram- leiðsluskotnaður hennar er „að- eins“ 45 miljónir dollarar. En hvort sem stórmyndimar nálgast 100 miljónir dollara í framleiðslukostnaði eða sleppa við helmingi minna, þá er hér um upphæðir að ræða sem feikna erf- itt er að láta skila sér. Auglýsinga- og kynningarkostnaður er gríðar- legur, 50 - 100 prósent af fram- leiðslukostnaðinum. Þar með er búið að leggja t.d. í Terminator 2 sem svarar 150 miljónum dollara. Og ef reikna má með því að um það bil þriðjungur þess fjár sem alls kemur inn fyrir myndina fari til kvikmyndafyrirtækisins (tveir þriðju fara til dreifingaraðila) þá verður sú sama Schwarzenegger- mynd að hala inn 450 miljónir dollara í aðgangseyri til að fram- leiðendur standi á sléttu. Og svo mikið kom ekki einu sinni inn fyrir „Batman“ árið 1989, en sú mynd sló mörg aðsóknarmet. Batman varð mikil freisting til að halda áfram með hina rán- dýru stórmyndaframleiðslu. En það mistókst að verulegu leyti í fyrra. Helstu stórmyndir ársins eins og Dick Tracy, Godfather III, Havanna og fleiri, létu ekki þær gróðavonir rætast sem við þær voru tengdar. Sumar snarféllu. Mun ódýrari myndir höluðu hins- vegar inn mikið fé, eins og t.d. „Dansað við úlfa“, „Aleinn heirna" og hin slóttuga lífslyga- saga um vændiskonuna heppnu, „Pretty Woman“. En þegar þessar myndir (sem kostuðu kannski ca 20 miljónir dollara hver) verða metsölu- myndir, þá gerist það, að þær verða til þess að ýta undir sihækk- andi ffamleiðslukostnað væntan- legra vinsældamynda. Þeir sem leikið hafa í slíkum myndum eða komið þar við sögu, þeir hafa hækkað í sér hlutabréfín, þeir krefjast mun hærri þóknunar fyrir að koma fram næst, hlutdeild í að- gangseyri og þessháttar. Stórmyndaæðið hefúr þar fyr- ir utan lamandi áhrif á kvik- myndaframleiðslu yfir höfuð. Smærri framleiðendur geta ekki keppt við þessar risamyndir, hvorki í stjömukaupum, dýrum brögðum, dýrum fjöldasenum, né heldur í dýrri sölumennsku. Há- vaðinn og gauragangurinn kring- um fáeinar Hollywoodmyndir sem þarf að selja um heim allan ef að mikil spilaborg á ekki að hrynja, þessi gauragangur stendur allri fjölbreytni og skapandi hugs- un mjög fyrir þrifum. Jeffrey Knatzenberg, sem tók fyrir nokkr- um ámm við Disneyframleiðslu- bákninu og lagði mikið undir við gerð Dick Tracey, hefur hvatt sína menn til að hverfa frá „snarhækk- andi kostnaði og hugsunarlausum yfirboðum“. Auk þess sem sú ár- átta að festa sig við metsölu- myndir sé sama og að lýsa „sköp- unargáfuna gjaldþrota" áb byggði á Spiegel. Hudson Hawk: Á síðustu stundu er heiminum bjargað úr klóm glæpakllku.... Hefur einhver heyrt það áður? ,Nöfn skattsvikara á Italíu gerð lýðum liós Italska fjármálaráðuneytið hefur gripið til þess ráðs að birta nöfn hálfrar miljónar skattborgara þar í landi sem ekki hafa hirt um að greiða keisaranum það sem honum ber. Ráðuneytið telur sig til- nevtt að grípa til þessara óyndi- súrræða til þess að ýta við mönnum svo þeir greiði skatt- inn sinn á tilsettum tíma, en innheimta þess opinbera hefur lengi verið í hinum mesta lama- sessi. Á lista fjármálaráðuneytisins ítalska er að finna nöfn ýmissa þeirra sem almúginn álítur alla jafnan að tilheyri máttarstólpum samfélagsins, s.s. nafntogaða við- skiptajöfra, leikara og fjölmiði- unga. Allt í allt telur ríkissjóður- inn ítalski sig eiga vanheimtar 33 triljónir ítalskra líra hjá þessari rúmu hálfú miljón undanskots- manna. Það er ekki að sökum að spyrja að sum itölsku blaðanna hentu strax á lofti nöfn sumra þeirra sem eru á listanum, enda kærkomið fréttaefni mitt í gúrku- tíðinni. Á meðal þeirra nafna sem fjölmiðlum þykir fengur að er nafn athafnamanns í Tórínó, Renzo Sosso, en sá er skuldseig- astur allra þeirra sem á listanum eru. Rikissjóður telur sig eiga ein- ar 27 biljónir líra hjá þeim heið- ursmanni. Á listanum er einnig að finna argentínsku fótboltahetjuna Daníel Passarella, sem sakaður er um að hafa „gleymt“ að telja fram umtalsverðar fjárhæðir, eða 540 miljónir líra. Að sögn Reuters-fréttastof- unnar eru skattsvik og undanskot jafn sjálfsagður hlutur ítalsks þjóðlífs og pastaréttir. -Reuter/rk Föstudagur 19. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 7 Keflavíkurganga 10. ágúst 1991 Skrifstofan í Þingholtsstræti 6 er opin alla virka daga frá kl. 14 til 18. Komið eða hringið og skráið ykkur í gönguna, einn- ig vantar sjálfboðaliða til að vinna. Hringið í síma 620273 og 620293. HEILBRIGÐIS - OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Laus lyfsöluleyfi, sem forseti íslands veitir Laus eru til umsóknar lyfsöluleyfi í: 1. Efra-Breiðholti, Reykjavík (Lyfjaberg) 2. Hveragerði (Ölfusapótek) Hægt er að krefjast þess að viðtakandi lyfsali kaupi birgðir, húsnæði, áhöld og innréttingar apóteksins, sbr. 11. gr. laga nr. 76/1982, um lyfjadreifingu. Viðtakandi lyfsali skal hefja rekstur frá og með 1. janúar 1992 í Efra-Breiðholti, Reykjavík, og frá og með 1. október 1991 í Hveragerði. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um lyfjafræðimenntun og lyfjafræðistörf skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 20. ágúst n.k. Heiibrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 17. júlí 1991 Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Ath. minnt er á að kynningu og fresti til að skila inn athugasemdum ef ein- hverjar eru, lýkur 24. júlí n.k. Suður Mjódd Hjá Borgarskipulagi eru nú til kynningar teikn- ingar að íbúðum aldraðra í Suður Mjódd, dags. júní '91, sem lagðar hafa verið fyrir skipulags- nefnd og byggingarnefnd. í tillögunum er gert ráð fyrir tveimur 13 hæða háum húsum með alls 102 íbúðum ásamt 600 m" þjónustumiðstöð, (í beinum tengslum við fyrirhugað hjúkrunarheimili) nyrst á svæðinu. Uppdrættir og líkan verða til sýnis á Borgar- skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, kl. 9.00- 13.00 alla virka daga frá miðvikudeginum 26. júnítil 24. júlí 1991.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.