Þjóðviljinn - 19.07.1991, Side 8
NÝTT
þlÓÐVILIINN
Útgefandi: Útgáfufélagiö Bjartti h.f. Auglýsingadeild:« 68 1310-6813 31
Framkvæmdastjórl: Hailur Páll Jónsson Ritsijórar: Ámi Bergmann, Helgi Guömundsson, Símfax: 68 19 35 Verð: 150 knónur i lausa sölu
Fréttastjóri: Siguröur Á. Friðþjófsson Söfcníny öq untbrot. Pit .. Prentun: Oddi hf. íntsmiöja Pjóðviljans hf.
Auglýslngastjóri: Stelnar Haröarson Afgreiðsla: » 68 13 33 Aösetur: Slöumúla 37, I08 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýöshreyfingar og þjóðfrelsis
Heræfingar Bandaríkjamanna
Fyrir dyrum standa miklar heræfingar
Bandaríkjamanna hér á landi. „Markmið
æfinganna er að æfa liðs- og birgðaflutn-
inga til landsins," er haft eftir fulltrúa varn-
armálaskrifstofunnar í Þjóðviljanum í gær.
Sami maður sagði einnig legu okkar á
Norður- Atlantshafi vera þess eðlis „að við
getum ekki horft fram hjá því sem í kring-
um okkur er.“
Þetta eru nokkuð kyndugar upplýsingar
og vekja m.a. þær spurningar hvaða
stefnu íslensk stjórnvöld hafa í alþjóða-
málum. Eins og kunnugt er leitar NATO nú
logandi Ijósi að nýju hlutverki fyrir sjálft
sig. Þetta er skiljanlegt, séð með augum
þeirra sem mega ekki til þess hugsa að
bandalag þetta verði óþarft, eins og veru-
leikinn „í kring um okkur“ er að sýna fram
á, en ekki að sama skapi skynsamlegt í
Ijósi sama veruleika. Svo langt eru NATO-
sinnar þó komnir á þróunarbrautinni að
þeir hafa tekið eftir því að „óvinurinn" í
austri mun hafa um annað að hugsa á
næstu árum en að gera vesturlandabúum
skráveifu. Þess vegna er þörf á nýju hlut-
verki, nýjum óvinum til að glíma við. Hverj-
ir nýju óvinirnr eru hefur ekki verið ákveð-
ið ennþá, en samkvæmt upplýsingum
sem borist hafa frá höfuðstöðvum NATO
má reikna með að þá verði að finna á
ýmsum stöðum utan bandalagssvæðisins
í náinni framtíð. Þetta þýðir að þróunar-
löndin eru líklegasti bardagavettvangur
NATO-herja. Talað er um að hafa til taks,
snaggaralegt lið sem senda má út fyrir
svæði bandalagsins. Þannig er í reynd
ætlunin að koma upp einhverskonar heim-
slögreglu, sem til að byrja með hefur það
hlutverk að skipa málum í næsta nágrenni
við bandalagið, en getur hæglega þróast
yfir í annað og meira. Af sjálfu leiðir að
sama liði má að beita ef innalandsástand-
ið í bandalagsríkjunum fer eitthvað úr
böndunum.
Ef íslensk stjórnvöld tækju eftir því sem
er að gerast í kring um okkur og hefðu
sjálfstæða afstöðu til mála hefðu þau
komið í veg fyrir þessar heræfingar. Frá
herfræðilegu sjónarmiði hljóta þær að
vera algerlega óþarfar og í pólitísku sam-
hengi úr öllum takt við þróun öryggis- og
friðarmála. Vandinn er hins vegar sá að
ríkisstjórnin hefur aðeins þá skoðun á ör-
yggismálum sem NATO og Bandaríkja-
mönnum hentar hverju sinni. Þetta stefnu-
leysi kemur líka fram í þeirra afstöðu sem
allir utanríkisráðherrar svokallaðra „lýð-
ræðisflokka" hafa haft gagnvart kjarnorku-
vopnum á íslensku yfirráðasvæði. í orði
kveðnu eru íslendingar andvígir því að slík
vopn séu í íslenskri lögsögu. Flotar stór-
veldanna, sigla um heimshöfin hlaðin
kjarnorkuvopnum, enda væri „fælingar-
máttur" þeirra harla lítill ef svo væri ekki.
Þegar til kastanna kemur eru íslensk
stjórnvöld hins vegar svo aum í afstöðu
sinni að þau láta sér vel líka loðin svör um
kjarnorkuvopnabúnað skipa sem hingað
koma og gildir einu þótt sannað sé að í
skipunum hafi verið kjarnorkuvopn.
Það er því í samræmi við ósjálfstæði ís-
lenskra yfirvalda, gagnvart Bandaríkja-
mönnum og NATO, að ríkisstjórnin uni því
vel að hér sprangi um vopnum búið lið og
æfi sig í að glíma við fjandmenn sem ekki
eru til en í þeim tilgangi einum að vera til-
búið til að berjast við nýja óvini sem ætlun-
in er að koma sér upp annarsstaðar. Með
þessum hætti er ríkisstjórnin að taka
ábyrgð á stefnumótun innan NATO sem er
ekki í nokkru samræmi við íslenska hags-
muni.
hágé.
0-ALIT
•'V W//I Hi ,
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. júlí 1991