Þjóðviljinn - 19.07.1991, Síða 19

Þjóðviljinn - 19.07.1991, Síða 19
Bréf frá Völu HÆNSNAPRIKINU barst á dögunum skemmtilegt bréf frá tæplega 11 ára Reykjavíkur- stelpu, sem er í sveit fyrir norð- an á sumrin. Og um leið og ég þakka Völu fyrir bréfið, hvet ég aðra krakka til að senda okkur á prikinu sögur og frásagnir af því sem þið eru að fást við í sumar. Utanáskriftin er: HÆNSNAPRIKIÐ Þjóðviljanum Síðumúla 37 108 Reykjavík Kæra HÆNSNAPRIK Ég heiti Vala Gísladóttir og er í sveit í Svarfaðardal á bæ sem heitir Hofsárkot. Ég vakna kl. 7.30 til þess að fara út í Ijós. Það eru 2 hundar, 1 köttur og 40 kýr. Svo eru 4 litlir kálfar og 3 naut. Ég gef þeim alltaf mjólk að drekka, og svo þegar búið er að mjólka allar kýrnar, (sem ég geri náttúrlega ekki ein) eru þær reknar út á tún. A milli máltíða er ég oft að laga girðingar eða gera hitt og þetta. En þegar ég þarf ekki að vinna, heimsæki ég vinkonu mína á næsta bæ eða fer að lesa eitthvað. Mér finnst gam- an að vera í sveitinni vegna þess að það er svo gott loft, nóg að gera og svo mörg dýr. að lokum vildi ég koma með litla skrýtlu: Dísa er í baði og allt í einu er hringt dyrabjöllunni. Dísa: Hver er þar? Að utan: Þetta er ég, Albert. Dísa hugsar: Albert er blind- ur, þá get ég alveg boðið hon- um inn án þess að klæða mig. Dísa: Kom inn. Þau tala saman. Dísa: Jæja, eitthvað að frétta? Albert: Já, ég er búinn að fá sjónina. Bless, bless Vala SJÁLFSMYNDIN Estrid Cederby heitir tæplega 12 ára sænsk stelpa, sem er á Islandi núna (fyrsta sinn. Hún er mikill teiknari. Og hún er llka mjög áhugasöm um hesta. Þessa mynd teiknaði hún eftir reiðtúr I Norðurárdal. Hafnarfjaröar- brandarar Það eru fleiri krakkar en hún Vala Gísladóttir, sem hafa laumað skrýtlum og bröndurum að konunni á Hænsnaprikinu. Þessir Hafnarfjarðarbrandarar eru í umferð um þessar mund- ir: Veistu af hverju Hafnfirðing- ar taka alltaf hurðina af klósett- inu, þegar þeir fara á það? Svar: Svo enginn kíki í gegnum skráargatið. Veistu af hverju Hafnfirðing- ar taka alltaf með sér stiga í búðina? Svar: Af því verðið er svo hátt. Svar: Þeir eru að leita að lágu verði. Veistu af hverju Hafnfirðing- ar opna alltaf mjólkurfernurnar í búðum? Svar: Af því það stendur: Opna hér. Veistu af hverju Hafnfirðing- ar búa í kringlóttum húsum? " Svar: Svo hundarnir mígi ekki í hornin. Kunnið þið fleiri? Kveðja - Þetta er ís í brauðformi. Hann er harður á yfirborðinu, en þegar hlýnar, bráðnar hann. Droparnir geta verið tár - maður er harður á yfirborðinu, en samt getur maður stundum verið leiður. Annika Veistu af hverju Hafnfirðing- ar skríða alltaf á gólfu í búð- um? Föstudagur 19. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.