Þjóðviljinn - 13.12.1991, Side 2

Þjóðviljinn - 13.12.1991, Side 2
Teygt og to g a ð Þeir eru siálfsagt gó&ir í ab klappa kettinum Hverertu? Sigurður Rúnar Magnús- son, aðaltrúnaðarmaður Dagsbrúnar í Sundahöfn. I hvaða stjörnumerki ertu? Eg er hrútur. Hvað erfólkflest? Mjög gott. Hvað er verst i fari fólks? Óáreiðanleiki. En best? Hjálpsemi og umburðar- lyndi. Ergaman i verkfalli? Það er ekki gaman að þurfa að beijast um afkomu sína. Ræður verkafólk of litlu i þjóðfélaginu? Hið almenna verkafólk gerir það. Forysta þess ræð- ur kannski miklu, en er of oft í litlum tengslum við hinn vinnandi mann. Hvemig líkar þér við at- vinnurekendur? Persónulega eru þetta margir ágætis menn og eru sjálfsagt góðir við bömin sín og að klappa kettinum. Ertu með nóg bensin á bilnum? Já, ég keyri lítið og bíll- inn eyðir litlu. Ottastu um ástkæra yl- hýra málið? Já, mjög. Ertu myrkfælinn? Já. Hefur þú séð draug? Ef undan er skilið kvik- indi sem ég sá einu sinni í Hólsdal, sem er afdalur af Fnjóskadal. I þokunni var þetta annarlegasta skepna sem ég hafði séð, en þegar betur var að gáð reyndist hún vera hrútur. Værir þú ekki þú, hver vildirþú vera? Hann afi minn. Hefur þú hugleitt að breyta lifi þínu algjörlega? Það geri ég á hveijum degi. Hvað er það pinlegasta sem fyrir þig hefur komið? Þegar ég átti ekki fyrir leigubíl, sem ég tók einu sinni. Ertu með einhverja dellu? Ég safna gömlum bílum. Attu þér uppáhalds flik? Stóru úlpunum mína. Ertu dagdreyminn? Já. Skipta peningar máli? Auðvitað skipta þeir máli, ég á alla vega aldrei nóg af þeim. Hvað skiptir mestu máli i lifinu? Konan mín og bömin. Hvar vildir þú helst búa? Norður i Fnjóskadal. Hvað er fullkomin ham- ingja? Að sjá bömin sín vaxa úr grasi heilbrigð, og finna það í lífinu sem maður hefur helst óskað. Hvaða galla áttu auð- veldast með að umbera? Ég get umborið alla galla fólks, svo framarlega sem manneskjan er góð. Hver er eftirlœtis sögu- hetjan? Skarphéðinn Njálsson. En eftirlœtis persóna sögunnar? Jesús Kristur kemur mest upp í huga mér. Hvað finnst þér skemmti- legast að gera? Að sitja undir stýri á Bu- ick Roadmaster, árgerð 1955 og hlusta á Presley í útvarp- inu. Bak við fána Dagsbrúnar dylst Sigurður Rúnar trúnaðarmaður. Mynd: Jim Smart. Hver eru persónuein- kenni þín? Ég er fljótfær, ör og ráð- ríkur. Hver er þinn helsti galli? Að leyfa fólki að komast upp með allan andskotann í kringum mig. Uppáhaldsliturinn þinn? Rauður. Áttuþér uppáhaldsnafn? Já, mitt eigið. Hvaða persónu sögunn- arfyrirlitur þú mest? Mörð Valgarðsson. Hvemig vildir þú helst deyja? Fljótt. Hvernig liður þér núna? Ágætlega. Áttu þér mottó í lífinu? Að komast af. Ertu trúaður? Já. Þorvaldur Kristjánsson gaf nýlega út Ijóðabókina Við enda sléttunnar. Mynd: Kristinn. d a g S k ú m u r 13. desember er föstudagur. Lúcíumessa. Magnúsmessa hin síðari. 247. dagur ársins. Sólarupprás í Reykja- vik kl. 11.12 - sólarlag kl. 15.32. Viðburðir Jón Þorláksson á Bæg- isá fæddur 1744. Fiórtán ára aodáandi Rimbaud Yngsti höfundur í bóka- flóðinu er sennilega Þorvald- ur Kristjánsson, nemandi í Hlíðaskóla. Hann gefúr út ljóðabók sem hann kaljar „Við enda sléttunnar“. Ut- gáfu sína kallar hann Listhús. Þorvaldur kvaðst yrkja um hlutskipti mannanna al- mennt, stundum um ástina, en það er þó ekki mikið um hana í þessari bók, sagði Þor- valdur. Ljóðabókina sagðist Þor- valdur gefa út af því að hann hefði gaman af því, en sagð- ist hins vegar ekkert um það vita hvort áhugi sinn á ljóð- um væri óvenjulegur. Hann var spurður að því sérstak- lega hvort það væri ekki satt sem allir segðu að unglingar hcfðu eingöngu áhuga á dæg- urlögum og kvikmyndum og svaraði stutt og laggott að hann hefði ekki kynnt sér það. Uppáhaldsljóðskáldið mitt er Rimbaud, sagði Þor- valdur. (Arthur Rimbaud, 1854-1891, hafði mikil áhrif á súrrealista og byltingar- skáld á sínum tíma.) Rim- baud hcfur Þorval^lur lesið í þýðingum Jóns Oskars og segir að þau ljóð séu töff og mikill kraftur í þeim. Hann sagðist vona að sín ljóð væru lík ljóðum Rimbaud. Þorvaldur les mikið, að- allega þýðingar á erlendum fagurbókmenntum. Þær finnst honum betri en þær ís- lensku sem hafa engan áhuga vakið hjá honum. Ekki sagð- ist hann eiginlega vita hvers vegna hann hefði byijað á þessu, en 12 ára las hann sög- una af Sívagó lækni, eftir Pastemak, í þýðingu Geirs Kristjánssonar, og heillaðist líka af þeim höfundi. Ekki sagðist Þorvaldur hafa nein tækifæri til að sinna erlendum góðbókmenntum í skólanum. Sú vinna fer öll fram utan skólatíma. Skáldið las góðfúslega eitt kvæði fyrir blaðamann í símann og er vonandi rétt með farið: Skím Fólkið sajhaðist i hnapp i rigningunni yfir ginandi gröf. Grátur og ekki og siðasta setning sálumessunnar út úr eggi sinu óútspningið yndi var hér grátið og óreynd móðurást féll sem tárajlaumur niður stilk blómsins. Mosavaxttir veggir kirkjunnar mergsugu allt líf sem teygði anga sína í átt til sólu og skildi aðeins jolvan eftir og fólblátt blóm dó við hvitan vegg. Sú sorg verður ekki numin með sjáöldrum sjónaukanna. Aðeins hjartað skilur tungumál sálarinnar. Fótspor hestsins, draumur um geisla sólarinnar á tœni vatni. Gulur, rauður og grœnn veggur, múr. sem verður ekki brotinn. Visar klukkunnar hreyfast og kraftur hugans fœr ekki við því spomað, að sólin tekur það, sem hún gaf, með uppgufun sjávar. Hnotuskógur í rigningu, obláta bráðnar á tungubroddi, skírn er numin, enni grátandi barns er vætt i vigðu vatni. Vort líf er ekki virði túskildings, er hinstu stundu er náð. Sólin vermir bak krypplingsins, er hann tilbiður heilagan anda yftr hafið. Andlit hans verður aldrei greypt í ásjónu helgimyndar, en sál háns vex sem vafningsvíður inni upprisuná: Sú tónlist sem Þorvaldur hlustar á er aðallega jass og „Doors“. Með titli ljóðsins, „Skím“, sagðist hann frekar vera að vísa til aukinnar þekk- ingar, eins konar „manndóms- vígslu" en hefðbundinnar skímar. Hann er enginn Níhi- Iisti þó að nútíminn sé andlaus, og stefnir að því að gefa bráð- lega út aðra bók. -kj NÝTT HELGARBLAÐ 2 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.