Þjóðviljinn - 13.12.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.12.1991, Blaðsíða 15
F r é t t i r Jöfnunargjaldið í hálft ár enn Til stóð að jöfnunargjald yrði aflagt á árinu 1992, en nú hefur ríkisstjórnin horfið frá því. Margoft hefur verið sagt að auka þyrfti tekjur ríkisins um 900- 1000 miljónir vegna þess að þetta stæði til. Nú verður hinsvegar þrjú prósent jöfnunargjald inn- heimt fyrstu sex mánuði ársins og á það að gefa ríkissjóði 3S0 miljón króna tekjur, en þetta jöfnunargjald á innfluttar iðnað- arvörur hefur á undanförnum misserum lækkað úr flmm pró- sentum í þrjú. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp þessa efnis. Þá ætlar ríkisstjómin að skatt- leggja opinbera íjárfestingarsjóði til jafns við banka og sparisjóði. Frumvarp um þetta hefiir verið lagt ffam og í greinargerð er sagt að meginmarkmið ffumvarpsins sé að jafna samkeppnisaðstöðu lána- stofnana þar sem misræmi sé í skattlagningunni. Bankar og spari- sjóðir hafa greitt tekju- og eigna- skatt síðan 1982 og einnig veð- deildir bankanna síðan 1988. Um er að ræða að skattskylda Orkusjóð, Hafhabótasjóð, Ferða- málasjóð, Fiskveiðasjóð, Stofn- lánadeild landbúnaðarins, Iðnlána- sjóð, Iðnþróunarsjóð og Lánasjóð sveitarfélaga svo nokkrir séu nefndir. Hinsvegar sleppa samkvæmt fmmvarpinu hinir, í sumum tilvik- um, fallvöltu sjóðir hins opinbera við að greiða skatt í ríkiskassann. Hér má nefna Framkvæmdasjóð Islands, Rík- isábyrgðarsjóð, Byggðasjóð, Bygg- ingarsjóð ríkisins, Byggingarsjóð verkamanna og Framkvæmdasjóði fatlaðra og aldraðra. Auk þess gilda þessi lög ekki um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Þessi fjár- öflun ríkisins á að skila 150 miljón krónum í ríkiskassann á næsta ári. -gpm Jóhanna ó undanhaldi Tillögur þær sem ríkis- stjórnin kynnti um tilflutning verkefna i málefnum fatlaðra frá ríkinu til sveitarfélaga verða ekki einsog þær hafa verið kynntar. Jóhanna Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra upplýsti þetta við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins. Hún neitaði að uppiýsa að hvaða til- iögum væri verið að vinna í stað þessara. Einsog kom fram í Þjóðvilj- anum í gær stóð til að færa verk- efiii i málefnum fatlaðra til sveit- arfélaga uppá 353 miljónir króna. Þetta hefur verið gagnrýnt harka- lega af hagsmunaaðilum. Tillög- umar komu frá ríkisstjóminni að loknum næturfúndi að morgni mánudags og vom kynntar í fjár- laganefnd þingsins i vikunni. Ekki hefúr komið fram tillaga á þingskjali, en það var boðað að svo yrði gert við þriðju umræðu. Jóhanna var að svara gagn- rýni stjómarandstöðunnar og sér- staklega gagnrýni Svavars Gests- sonar, Abl. Svavar sagði þetta þá ljótustu hugmynd sem heyrst hefði varðandi niðurskurð ríki- stjómarinnar og væri þar þó af mörgu ljótu að taka. Hann skor- aði á Jóhönnu að draga tillögum- ar til baka, enda væm þær brot á lögum. Svavar nefndi til bæði lög um verkaskiptingu sveitarfélaga og lög um málefni fatlaðra í þvi sambandi. Svavar gagnrýndi til- lögumar harkalega á þeirri for- sendu að sveitarfélögin hefðu hvorki fjárhagslegt bolmagn né faglegt til að ráða við þessi verk- efni. Hann sagði að alls ætti að spara um 400 miljónir á málefn- um fatlaðra með þessum tillögum og öðrum sem fælu í sér að öll verkefni yrðu flutt til sveitarfé- laganna utan sólarhringsstofnanir og sambýli. Jóhanna var næst í pontu og má segja að hún hafi orðið við áskoruninni um að draga tillög- umar til baka. Jóhanna talaði af miklum tilfmningahita og gagn- rýndi Svavar fyrir að hafa ekki stutt sig nægilega dyggilega í síðustu ríkistjóm og fyrir að nafa velt kostnaði af lagasetningum um grunnskóla og leikskóla yfir á sveitarfélögin. Hún margtók fram að tillögumar um flutning verkefna yfir á sveitarfélögin væm ekki með breytingartillög- um meirihluta í fjárlaganefndar við þessa aðra umræðu fjárlaga- frumvarpsins. Hún sagði að lík- legasta niðurstaðan í þessu máli vrði önnur en sú sem þingmenn hefðu verið að gagnrýna í undan- fömum ræðum. Hún sagði að það væri verið að skoða alla þætti tiessa máls og að það yrðu lík- ega engar breytingar á verka- skiptingunni. Þessu undu þingmenn stjóm- arandstöðunnar illa. Töldu það ófært í miðri umræðu að boða breyttar tillögur sem ekki væm þó kynntar. Hjörleifúr Guttorms- son, Abl., fagnaði því að sam- viska félagsmálaráðherra væri farin að mmska, en kraföist þess að fá upplýst um hinar nýju nug- myndir, enda væri spuming á hverja ríkistjómin ætlaði að leggjast næst. Verða það ef til aldraðir? spurði Hjörleifúr. Jón Kristjánsson, Frfl., fagnaði und- anhaldi ráðherrans, einsog hann orðaði það. Svavar sagði ljóst að allar forsendur umræðunnar væm orðnar aðrar en bara einni klukkustund áður og vonaðist hann til að spilaborg nkisstjópm- arinnar héldi áfram að hrynja á þennan hátt þótt hann tæki fram, að hann treysti því alls ekki að Jóhanna heföi algerlega snúðið baki við þessum ófæm hugmynd- um. -gpm Lögreglan var kvödd til þegar verkfallsverðir Dagsbrúnar læstu og hindruðu aðgang að bensindælu i Kópavogi. Frá vinstri eru: Valdimar Jónsson yftrlögregluþjónn, Sigurður Bessason, starfsmaður Dagsbrúnar, og Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar. Mynd: Jim Smart. Löggan kvödd til vegna verkfallsaögeröa Tveir lögreglubílar renndu upp að biðskýlinu við Kópavogs- braut 115 í gær vegna verkfalls- aðgerða Dagsbrúnar. Sá sem þar rekur bensínsölu hafði þrisvar klippt í sundur lása sem verk- fallsverðir höfðu komið fyrir á bensíndælu. Þegar Dagsbrúnar- menn stilltu sér upp við dæluna og hindruðu aðgang að henni, kallaði bensínsalin.. til lögregl- unnar og kærði viðkomandi verkfallsverði. Þetta er í fyrsta skipti sem lög- regla er kölluð til vegna yfirstand- andi skyndiverkfalla Dagsbrúnar. Halldór Bjömsson, varafor- maður Dagsbrúnar, sagði eftir skýrslutöku lögreglunnar að sjálf- sagt yrði hann kallaður fyrir dóm- ara vegna þessa. Það skipti hins vegar engu máli, því fyrir öllu væri að koma í veg fyrir bensínsölu á félagssvæði Dagsbrúnar. Olafúr Karl, verslunareigandi og rekandi einnar bensíndælu, sagðist ekki vera neinn verkfalls- brjótur. - Það er enginn Dagsbrúnar- maður í vinnu hjá mér og hefúr aldrei verið. Einu rökin sem þeir hafa íyrir því að ég loki, em að ég eigi að beijast fyrir kjörum bensín- afgreiðslumanna. Hingað til hafa atvinnurekendur ekki barist fyrir kjömm verkafólks, sagði Olafúr. Aðspurður um hvort hann myndi kæra þennan atburð, sagði hann að orð Guðmundar J. Guð- mundssonar væm engin lög. - Þessir menn koma hingað í algjöm heimildarleysi og læsa bensíndælunni. Þegar ég neita að lúta þeirra aðgerðum vama þeir viðskiptavinum biðskýlisins að- gang að því. Eg sá þvi ekki annað ráð en að kæra mennina, sem að mínu mati em að brjóta lög, sagði Ólafúr. Sigurður Bessason, starfsmaður Dagsbrúnar, var á vettvangi. Hann sagði að Dagsbrún heföi samið við rekendur nokkurra bensínstöðva um að selja ekki bensín meðan á verkfallinu stæði. Þeir heföu hins vegar gefið þá yfirlýsingu að ef einn færi að selja bensín, myndu þeir gera það einnig. - Þessi aðgerð skiptir því höf- uðmáli fyrir okkur. Fyrir verslunar- eigandann skiptir það litlu máli hvort hann selur bensín eða ekki þessa þrjá daga sem um ræðir. Hann sagði að þrátt fyrír öll rök væri vonlaust að semja við manninn. - Við höfum þrisvar sinnum sett lás á dæluna og hann hefúr jafnóðum klippt þá i sundur. Verkfallsverðir munu því verða héma meðan á þarf að halda, sagði Sigurður. Valdimar Jónsson, yfirlög- regluþjónn í Kópavogi, sagði að lögreglan skipti sér aldrei af vinnu- deilum, nema ef til handalögmáls kæmi. - í þessu tilfelli var einungis um skýrslutöku að ræða. Með því staðfestir Iögreglan aðstæður á vettvangi, ef aðilar vilja fara í mál seinna meir, sagði Valdimar. Síðdegis í gær náðust sættir milli Dagsbrúnarmanna og Ólafs Karls um að hann myndi ekki selja bensín meðan verkfallið stæði. Við það hurfú verkfallsverðir á braut. ________________________ Jólasöfnunin gekk vel Hátt í fjórar miljónir króna söfnuðust í jólasöfnun Mæðra- styrksnefndar, Hjálpræðishersins, Rauða krossins og Rásar 2 í gær og er þá ekki meðtalið það fé sem var lagt beint inn á reikninga við- komandi félaga. Einnig barst mik- ið af gjöfum, fatnaði og matvæl- um. Því sem safnaðist verður deilt út af samtökunum þremur til þeirra sem þurfa aðstoð fyrir jólin. Aðilum ber saman um að vaxandi örf sé fyrir slíka aðstoð. Þótt essu söfnunarátaki með þátttöku Rásar 2 sé lokið, munu samtökin halda áfram að safna fyrir bág- stadda og verður hægt að leggja beint inn á reikninga þeirra. -ag Atvinnubílar bera lúxustolla Hækkun aðflutningsgjalda á einkabifreiðum bitnar verst á þeim sem vegna vinnu eða búsetu þurfa á öflugri bifreiðum að halda. Leigubifreiðar munu hækka meira í verði en venjulegar einkabifreið- ar, sérstaklega hækka þó díselbflar þar sem þeir bera hærri aðflutn- ingsgjöld. Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra, Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Bflgreinasam- bandið hafa mótmæit þessum að- gerðum ríkisstjórnarinnar. ,Á sama tíma og verið er að boða skattahækkun á bifreiðaeigend- ur þá er fyrirhugað að draga úr vega- ffamkvæmdum með ffestun ffam- kvæmda við Vestfjarðagöngin," seg- ir í tilkynningu ffá FÍB. Þeirri rök- semd stjómvalda að þessi aðgerð leggist þyngst á þá sem kaupa stærri bíla er vísað á bug af FÍB. Bent er á að ástand vega og dreifbýli landsins geri stærri aldrifsbíla nauðsynlega sem samgöngutæki fyrir marga landsmenn. Einnig þurfa margir á slíkum bílum að halda vegna vinnu sinnar. Leigubiffeiðar bera hærri að- flutningsgjöld í dag en venjulegar einkabifreiðar og í tilkynningu ffá bandalagi leigubiffeiðastjóra kemur ffam að aðgerðir stjómarinnar valdi því að leigubiffeiðar muni hækka enn meira í verði. „Er það óskiljan- legt að það skuli vera stefna stjóm- valda að leigubiffeiðastjórar skulu þurfa að sæta því að greiða lúxus- tolla af sínum atvinnutækjum," segir í tilkynningu ffá leigubiffeiðastjór- um. Þeir lýsa einnig furðu sinni á því að díselbifreiðar skuli bera hærri að- flutningsgjöld en bensínbifreiðar. Bílgreinasambandið mótmælir fyrirhuguðum hækkunum harðlega og lætur í ljósi efasemdir um að þessar aðgerðir hafi tilætluð áhrif, enda oft verið reyndar áður með litl- um árangri. í tilkynningu Bílgreina- sambandsins er bent á að innflutn- ingur biffeiða hafi dregist mjög sam- an og líklegt að hækkun aðflutnings- gjalda valdi enn ffekari samdrætti. Sambandið telur vandséð hvemig stjómvöld ætla að tryggja að hækk- unin skili sér i auknum tekjum til rik- issjóðs. -ag Skemmtileg og fróðleg bók ÆSKAN Með alþýðlegum og glettnum hætti segir Vilhjálmur Hjálmarsson frá samferðamönnum, sér og slnum og fjölbreyttri sýslan sem al- þingismaður, ráðherra, kennari, blaðamaður, ritstjóri, bókavörð- ur, oddviti, vegarruðslumaður, rithöfundur og bóndi. Hann hefur gegnt formennsku í útvarpsráði og skólaráði hús- mæðraskóla og átt sæti f fjölda annarra nefnda og ráða. Auk þess hefur hann annast fermingarundirbúning bama og unnið að stldar- söltun, fiskaðgerð og jarðvinnslu. Þá er hann eftirsóttur ræðumaður, ekki sist ef vænst er gaman- yrða. Hátt f hundrað Ijósmynda skreyta skemmtilega frásögn Vilhjálms. „Hann er sagður bóndi“ er skemmtileg bók ! NÝTT HELGARBLAÐ 15 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.