Þjóðviljinn - 13.12.1991, Blaðsíða 17
L e i k h ú s
Helgarrúnturinn
Rætt um hamingjuna í jólastressinu
Rannsóknastofa í sið-
fræði stendur fyrir mál-
þingi um hamingjuna á
morgun kl. 13 í Háskóla-
bíói, nánar tiltekið í sal 4.
Málþing þetta er hugsað
fyrir almenning en þar
verða meðal annars rædd-
ar hugmyndir kristninnar,
goðafræðinnar og heim-
spekinnar um hamingj-
una.
Dagskrá þingsins er
sem hér segir:
Kl. 13 ræðir Vilhjálm-
ur Amason, dósent í
heimspeki, um listina að
lifa, foma speki um ham-
ingjuna.
kl. 13.40heldurl>órir
Kr. Þórðarson, prófessor í
guðfræði, erindi um lífs-
haminguna. Eftir kaffihlé
kl. 14.25 er komið að Jóni
Bjömssyni, félagsmála-
stjóra á Akureyri, að tala
um hamingjuhugtakið og
tilbrigði þess.
Kl. 15 ræðir Eyjólfur
Kjalar Emilsson, dósent í
heimspeki, um hamingju
og rétlæti í riki Platons,
og þá er aftur stutt kaffi-
hlé.
Kl. 15.40 heldurséra
Ólöf Ólafsdóttir, prestur í
Skjóli, erindi sem hún
nefnir Líf i fullri gnægð.
Síðastur stígur Páll Skúla-
son, prófessor í heim-
speki, í pontu og heldur
tölu um hamingjuna sem
fúllnægingu, gleði, far-
sæld og gæfu. Að því
loknu verður þinginu slit-
ið.
Aðgangseyrir er kr.
500 og er allt áhugafólk
um hamingjuna velkom-
ið.
Jólauppókomur ó
Laugavegi
Todmobile
Risajólarokk
Kórar skemmta fólki
sem öslar Laugaveginn í
leit að gjöfúm á morgun
og surmudag.
Skemmtunin byijar á
laugardag kl. 13 og mætir
þá kór Æfmgadeildar
Kennaraháskólans.
Þegar sá fagri söngur
hættir hefúr ffést að Stúf-
ur mæti á svæðið og
verði hann með ærsl og
læti ásamt bræðrum sín-
um um stund. Skólakór
Garðabæjar hrekur síðan
sveinka á brott,_____
Kvöld-
lokkur ó
jólaföstu
Laugardaginn 14.
desember kl. 17 hefjast
10. árlegu jólatónleikar
Blásarakvintetts Reykja-
víkur, sem hlotið hafa
nafnið „Kvöldlokkur á
jólafþstu", í Kristkirkju .
A tónleikunum verður
flutt stærsta og metnaðar-
fyllsta blásaraserenaða
Mozarts sem er í B-dúr og
leikin af þrettán
blásurum.
Daginn eftir verða
fleiri kórar á ferð og jóla-
sveinar dreifa gjöfum til
góðra bama.
Verslanir eru opnar á
morgun ffá kl. 10 til 18
og á sunnudag ffá kl. 13
til 18.
Vivaldi-
hótíö í
Askirkju
Sunnudaginn 15. des-
ember heldur Kammer-
sveit Reykjavíkur sína
árlegu jólatónleika í Ás-
kirkju og hefjast þeir
klukkan 17.
Efnisskrá tónleikanna
verður helguð tónskáld-
inu Antonio Vivaldi, en á
þessu ári eru liðin 250 ár
ffá fæðingu hans. Auk
Kammersveitarinnar
kom ffam á tónleikunum
einleikaramir Auður
Hafsteinsdóttir, Camilla
Söderberg, Rut Ingólfs-
dóttir, Bryndís Pálsdóttir,
Unnur María Ingólfsdótt-
ir og Inga Rós Ingólfs-
dóttir.
Rokkdeild Félags ís-
lenskra hljóðfæraleikara
gengst fyrir tónleikum í
Hinu húsinu (Þórskaffi)
sunnudaginn 15. desem-
ber. Húsið verður opnað
klukkan 18, en tónleik-
amir hefjast klukkan 19.
Á þessum tónleikum
koma ffam flestar þekkt-
ustu hljómsveitir landsins
og kynna efhi af nýút-
komnum hljómplötum
sínum. Þær em: Sálin
hans Jóns míns, Todmo-
bile, Geiri Sæm, Ný
Dönsk, Eldfuglinn pg
söngvaramir EgiII Olafs-
son og Bubbi Morthens.
Þrjú dansverk, Tóm eftir Guðbjörgu Amardóttur, tum on, tum off eftir
Sharmilu Mukeiji og Nóvember eflir Lilju lvarsdóttur, verða sýnd í Kramhúsinu á
mánudagskvöld kl. 20.30. Dansari í sýningunni, auk höfundanna þriggja, er Marta
Rúnarsdóttir.
Foreldrar
floga-
veíkra
LAUF, Landssamtök
áhugafólks um flogaveiki,
gangast fyrir stofnun for-
eldradeildar nk. þriðjudag.
Markmið deildarinnar
verður ráðgjöf, fræðsla og
stuðningur við flogaveik
böm og aðstandendur
þeirra.
Á fundinum á þriðju-
dag mun Pétur Lúðvíksson
bamalæknir flytja erindi
um flogaveiki hjá bömum.
Foreldrar og ættingjar
flogaveikra bama eru ein-
dregið hvattir til að mæta á
stofnfundinn, sem verður
haldinn kl. 20 í Hlaðvarp-
anum, Vesturgötu 2, ann-
arri hæð.
Lúsíuhátíð
í Norræna
húsinu
Jólasveinn kemur í
heimsókn með sælgæti í
poka og dansað verður
kringum jólatréð í Nor-
ræna húsinu í kvöld. Þar
verður þá haldin hin ár-
lega Lúsíuhátíð og munu
Lúsía og þemur hennar
syngja íslensk og sænsk
jólalög ásamt kór Kárs-
nesskóla undir stjóm
Þómnnar Bjömsdóttur.
í kaffistofu Norræna
hússins verða hefð-
bundnir Lúsíukettir og
piparkökur á boðstólum.
Jól í Hlaó-
varpanum
Á mogun, laugardag,
verður milið um að vera
í Hlaðvarpanum.
Nemendur Söngskólans
syngja kl. 1.30 og aflur
kl 16.00, Grýla flengir
óþekktaranga kl 15.00
og hljómsveitir hússins
leika; Jarþrúður kl. 16.30
en „Hver þekkir þær?“
kl 15.30. Einnig lesa
höfundar nokkurra bóka
úr verkum sínum á milli
atriða og Margo Renner
blæs gler yfir gasloga,
gestum og gangandi til
fróðleiks og
skemmtunar.
Grí’la kerlingin heilsar upp á gesti Hlaðvarpans
Fenrisúlfur
gengur laus
Leikbrúðuland
Bannað að hlæja! eftir
Hallveigu Thorlacius
Leikstjórn:
Þórhallur Sigurðsson
Tónlist: Eyþór Arnalds
Leikendur: Bára L. Magn-
úsdóttir, Bryndis Gunn-
arsdóttir, Erna Guðmars-
dóttir, Hallveig Thorlaci-
us, Helga Arnalds
Raddir: Anna S. Einars-
dóttir, Bára L. Magnús-
dóttir, Margrét Ólafsdótt-
ir, Þórhallur Sigurðsson
Brúðugerð: Bryndís
Gunnarsdóttir, Erna Guð-
marsdóttir, Hallveig
Thorlacius, Helga Arnalds
Leikbrúðuland frum-
sýndi siðastliðinn sunnudag
nýtt verk eftir Hallveigu
Thorlacius, eins konar sköp-
unarsögu frá nútímasjónar-
miði - eða öllu heldur foma
norræna sköpunar- og þró-
unarsögu túlkaða með hlið-
sjón af atburðum líðandi
stundar.
Hallveig leitar fanga í
Snorra- Eddu og Völuspá og
út frá þeim gmnni er leikur-
inn byggður, skapanomimar
þrjár em kynntar, Askur og
Embla, og Loki Laufeyjar-
son, og upp úr því kjami
málsins: Fenrisúlfur, sem
nærist á öllu því msli og
drasli, sem mennimir láta
frá sér fara, eflist af því og
stækkar og er mikið hrifinn
af sólinni.
Sýningin Bannað að
hlæja! fer hægt af stað. Hún
hefst á sköpun jarðar og síð-
an er stiklað á stóm, uns
kemur að því, að Fenrisúlfur
verður vandamál og er þá
sýningin um það bil hálfn-
uð, enda efnið viðamikið.
Þó virðist kynning þessi
helst byggð á þeim forsend-
um að menn þekki þessa
sögu og geti því munað
samhengið þó látið sé nægja
að rifja upp einstaka þætti
hennar - suma þeirra í
óljósum tilgangi. Við annan
tón kveður í seinni hlutan-
um, þá vofa Ragnarök yfir,
það er horfíð frá fomri
norrænni trú til ævintýris og
áhorfendur beðnir að leggja
leikpersónum lið. Það má
því segja að fyrri hluti
verksins sé miðaður við
fullorðna, eða þá sem hafa
forsendur til að þekkja þann
gmnn sem byggt er á, en
seinni hlutinn til þeirra sem
yngri em og kannski til-
kippilegir til að leggja sitt af
mörkum til að bjarga per-
sónum leiksins úr vondum
málum.
Nú er vissulega ekki
nema gott eitt um það að
segja að brúðuleikhússýning
miðist við bæði böm og
fullorðna þó í sitt hvomm
hlutanum sé, og minni
þannig á að brúðuleikhús er
ekki síður list ætluð fúll-
orðnum en bömum. Eins má
benda á gildi þess að vekja
áhuga bama á norrænum
menningararfí og gefa um
leið foreldrum þeirra eða
uppalendum tækifæri til að
uppfræða þau þegar og ef
þau fara að leita skýringa á
samhengi sýningarinnar. En
þetta jafnvægisleysi hlut-
fallanna í byggingu verksins
væri engu að síður alvarleg
brotalöm ef sýningin væri
ekki eins falleg og vel unnin
og raun ber vitni, og þrátt
fyrir allt i góðu samræmi
við sjálfa sig.
Bannað að hlæja! er
fyrst og fremst myndrænt
verk og sem slíkt myndar
það heild. Leikstjóri hefur
unnið gott verk við að sam-
eina ólíka þætti sýningar-
innar, listilegar leikbrúður
og góð notkun ljósa og
skuggamynda gera leikinn
að sannkallaðri veislu fyrir
augað, kryddaðri með ljúf-
um tónlistamndirleik. Það
væri annars að æra óstöðug-
an að ætla sér að telja upp
eintaka framlög þátttakenda
og aðstandenda sýningar-
innar, það gera margir
margt í þessum leik, ekki
síst á bak við tjöldin og er
visað til upplýsinga við
upphaf þessa pistils því til
sönnunar.
Hér verður auðvitað
ekki upplýst hvers vegna
það er bannað að hlæja, en
kannski óhætt að segja frá
því, að Loki Laufeyjarson er
stjama leiksins. Eins má
benda á að túlkun Leik-
brúðulands á spádómi völ-
unnar er sett fram af hugar-
flugi, verkviti og kunnáttu
og er þar að auki allrar at-
hygli verð - það skyldi þó
ekki vera að það hafi verið
þetta sem hún átti við sú
gamla?
Hörpuleikur
Einleikur á hörpu í himna-
ríki eftir Sjón
Einleikari:
Harpa Arnardóttir
Harpa Arnardóttir lék
einleik fyrir gesti í Kram-
húsinu síðastliðið sunnu-
dagskvöld, rétt rúmlega
hálftíma verk í Ijómm stutt-
um þáttum við texta eftir
Sjón.
Textinn er einhvers stað-
ar á mörkum ljóðs og leik-
verks og á örlög sín og ekki
síst leikhústilvem algerlega
undir túlkun leikkonunnar,
sem að þessu sinni hafði
kunnáttu til að nýta sér
möguleika hans til fullnustu.
Harpa Amardóttir túlkaði á
skömmum tíma fjölda ólíkra
hlutverka á sannfærandi
hátt, allt frá ellihrumri kerl-
ingu til bams í draumi og
hélt athygli áhorfenda
óskiptri allt frá upphafi til
enda.
Leikur Hörpu var yfir-
leitt góður og persónusköp-
un hennar skemmtileg.
Leiktjöld eða sviðsmynd var
engin, nema tjöld sem huldu
spcglana í leikfimisal Kram-
hússins og harmónikkuleik-
arann ágæta, sem ekki lét
nafns síns getið.
Tveir gallar vom þó á
þessari sýningu og er sá
fyrri að ekki mun standa til
að leika leikinn aftur. Sá
síðari var aðbúnaður meiri
hluta áhorfenda, þó það sé
sjálfsagt hægt að láta fara
sæmilega um sig á þessum
bekkjum í hálftíma eða svo
ef ekki stendur til að horfa á
annað en bakið á þeim fyrir
framan.
Lilja
Gunnarsdóttir
skrifar
NYTT HELGARBLAÐ
17
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991