Þjóðviljinn - 31.01.1992, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.01.1992, Blaðsíða 1
Forsíðuleiðari Horft til framtíðar f dag eru tímamót í sögu vinstri hreyf- ingarinnar, með því að Þjóðviljinn kemur út í síðasta sinn. Sem vonlegt er bregður vel- unnurum blaðsins í brún. Svo lengi hefur tekist að halda úti blaðinu að margir voru famir að reikna með að alltaf tækist að leysa úr flárhagserfiðleikum augnabliksins. Langvarandi hallarekstur hefur nú leitt til þess að ekki verður lengra haldið. Reynd- ar hafa verið allar færar leiðir til að bæta stöðu blaðsins og þó þær aðgerðir hafi skilað miklum árangri f rekstri hefur það ekki dugaðtil. Þeir eru vissulega til sem fagna þess- um tímamótum og láta sig um leið litlu varða þótt með Þjóðviljanum hverfi mikil- vægur vitnisburður um fijálsa fjölmiðlun og skoðanaskipti í landinu. Vandi Þjóðviljans er ekki bundinn við hann einan, lítil blöð eiga víða mjög erfitt uppdráttar, svo undar- lega sem það kann að hljóma þegar þess er gætt að fjölskrúðug blaðaútgáfa er sjálf- ur homsteinn lýðræðis og fijálsra skoð- anaskipta í þjóðfélagi nútímans. Menn verða þó að horfast í augu við þá stað- reynd að um leið og blöð þjóna þessum til- gangi eru þau markaðsvara sem lesendur kaupa eða hafna eftir því hvemig þeim lík- ar við blaðið. Þannig munu blöð framtíðar- innar verða að reiða sig á eigin styrk og áhuga lesenda til að lifa af, því ekkert bendir til þess að innan tíðar fáist skilning- ur á nauðsyn þess að styrkja blaðaútgáfu myndariega eins og gert er í grannlöndun- um. Líklegt er að á næstu mánuðum verði miklar breytingar á íslenskum blaðamark- aði og bendir margt til þess að Morgun- blaðið og DV geti fyrr en varir orðið alls- ráðandi. Vinstrimenn hafa eðlilega áhyggj- ur af þessari þróun, en áhyggjurnar eru ekki bundnar við þá eina. Fjölmargir aðilar, sem rætt hefur verið við vegna undirbún- ings að stofnun nýs blaðs, hafa látið í Ijós sömu skoðanir. Jafnframt benda kannanir til að meðal þjóðarinnar sé mikill áhugi á nýju dagblaði sem gæti á myndugan hátt verið mótvægi við veldi Morgunblaðsins og DV. Því virðist Ijóst að skilyrðin til varan- legra breytinga á fjölmiðlamarkaði séu góð um þessar mundir. Við sjáum auðvitað eftir Þjóðviljanum og hefðum kosið að geta eflt hann og aukið útbreiðslu hans á komandi árum, en þegar þess gefst ekki kostur ber aðstandendum blaðsins að kanna aðra möguleika sem þjóna þeim tilgangi að verja málfrelsið og tiyggja að þjóðin eigi greiðan aðgang að fjölbreyttum sjónarmið- um og upplýsingum. Að sjálfsögðu kemur nýtt dagblað aldrei í staðinn fyrir Þjóðviljann, enda þótt aðstandendur hans ættu hlut í því blaði. Það verður blað af allt öðru tagi og vænt- anlega miklu stærra og fjölbreyttara en Þjóðviljinn hefur nokkru sinni haft aðstöðu til að vera. Fari á hinn bóginn svo að ekki takist að hleypa nýju blaði af stokkunum, í þeim anda sem unnið hefur verið að, munu vinstri sinnar ekki sætta sig við að verða ofurseldir hægri blöðunum um aðgang að lesendum. Þá ber þeim skylda til að safria aftur liði og hefja útgáfu á blaði á sínum vegum og það munu þeir gera. Næstkomandi föstudag kemur út nýtt vikublað, byggt á sérstöku samkomulagi sem gert hefur verið við félag fjögurra blaðamanna af Þjóðviljanum. Þessu blaði er ætlað að byggja brú inn [ framtíðina, með því m.a. að gefa kaupendum Þjóðvilj- ans kost á að kaupa það í áskrift. Mikil- vægt er að þeir bregðist vel við og tryggi þannig að ekki verði hlé á útgáfu blaðs sem hefur vöm velferðarkerfisins, baráttu fyrir bættum lífskjörum og hagsmunum þeirra sem minna mega sín f samfélaginu að leiðarijósi. Við þessi tímamót þakkar Þjóðviljinn öllum þeim sem á margvíslegan hátt hafa stuðlað að útgáfu blaðsins, fyrir mikilsvert framlag þeirra. Síðast en ekki síst ber að þakka lesendum, sem margir hafa verið trúir blaðinu um marga áratugi, fyrir sam- fylgdina. Helgi Guðmundsson 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.