Þjóðviljinn - 31.01.1992, Blaðsíða 18
Emil í
Þjóðleikhúsi
Inæstu viku verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu leikrit um
þann góðkunna Emil í Katt-
holti sem var óforbetranleg-
ur prakkari og ærslabelgur, en
endaði með því að verða hrepp-
stjcri þegar hann varð stór.
Meðal leikara eru Bessi
Bjamason sem hefur gert garðinn
frægan í bamaleikritum, eða hver
man ekki Mikka ref. Bessi leikur
pabba Emils. Margrét Pétursdóttir,
sem margir þekkja úr Söngvaseið,
leikur Línu vinnukonu.
Þórhallur Sigurðsson leikstýrir
og ljórar ungar stjömur sjá um að
leika þau systkinin Emil og ídu.
-kj
Þessi fjögur sjá um að leika Emil
og ídu. Þau heita Álfrún Örnólfs-
dóttir, Jóhann Ari Lárusson,
Sturla Sighvatsson og Aníta Bri-
em. Mynd: Jim Smart.
KRINGLUNNI 5 • SÍMI 692500
VÁTRY6G1NG
SEMBRÚAR
Þar sem velferðarkerfinu sleppir taka Sjóvá-Almennar við
og tryggja fjárhagstöðu þína ef starfsorkan skerðist
af völdum slyss eða veikinda.
Kynntu þér málið.
Málverk
við ljóð
Matt>
híasar
Sveinn Bjömsson listmálari
opnar máiverkasýningu í Hafhar-
borg á morgun. A sýningunni
verða 65 málverk við ljóð Matthí-
asar Johannessens, Sálmar á atóm-
öld. Sveinn hefúr málað mynd við
hvert ljóðanna og leitast við að
túlka þær myndhverfú líkingar sem
koma þar fyrir. Myndimar em unn-
ar í pastel og olíupastel og allar
málaðar á árinu 1990.
Sveinn Bjömsson hefúr haldið
fjölda einkasýninga bæði hér
heima og erlendis og tekið þátt í
samsýningum.
Ljóðaflokkur Matthíasar, Sálm-
ar á atómöld, birtist fyrst í ljóða-
bókinni „Fagur er dalur“ árið 1966
og var endurútgefinn á síðasta ári.
-kj
Sveinn Björnsson listmálari.
Mynd: Jim Smart.
Hinrt
eini
sanni
seppi
Stúdentaleikhúsið frumsýnir í
kvöld leikritið Hinn eini sanni
seppi eftir Tom Stoppard.
Guðjón Ólafsson þýddi en Jakob
Bjamar Grétarsson leikstýrir í sam-
vinnu við Steinunni Ólafsdóttur.
Hinn eini sanni seppi er morð-
gáta í stíl Agötu Christie en bland-
ið gamansemi.
Sýnt verður í Tjamarbæ við
Tjamargötu og sýningar heíjast kl.
21.00. Leiksýningin tekur rúman
klukkutíma. - kj
ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992
Síða 18