Þjóðviljinn - 31.01.1992, Síða 23
10 ára gamall piltur baráttunni ófi?iSOn
Lárus Jóhannesson og Sævar
Bjamason eru efstir á Skákþingi
Reykjavíkur þegar þrjár umferðir
em eftir. Þeir hafa hlotið 6 1/2
vinning úr átta skákum. Baráttan
um meistaratitilinn virðist ætla að
vera geysihörð og spennandi, en
þegar þetta er ritað er ólokið
nokkmm biðskákum sem geta haft
mikil áhrif á lokaniðurstöðuna.
Undanfarin ár hafa eldri skák-
menn minna sést á skákmótum sem
haldin hafa verið inann veggja
Taflfélags Reykjavíkur. Nú hefur
sú gleðilega breyting orðið, að
gamalkunnir meistarar á borð við
Sævar Bjamason, Björgvin Víg-
lundsson, Hauk Angantýsson, Júlí-
us Friðjónsson og Jóhann Þórir
Jónsson em mættir til leiks og hafa
flestir látið að sér kveða í mótinu.
Staða efstu manna eftir úrslit mið-
vikudagskvöldsins var þessi: 1.-2.
Lárus Jóhannesson og Sævar
Bjamason 6 1/2 v. 3.-4. Guðmund-
ur Gíslason og Kristján Eðvarðsson
6 v. 5.-7. Sigurður Daði Sigfússon
Björgvin Víglundsson og Haukur
Angantýsson 5 1/2 v. og eina bið-
skák hver. 8.- 10. Heimir Ásgeirs-
son, Jóhann H. Sigurðsson og
Bragi Þorfmsson 5 1/2 v. 11. Hann-
es Hlífar Stefánsson 5 v. og betri
biðskák gegn Sigurði Daða Sigfús-
syni.
Haukur Angantýsson átti betri
biðskák gegn Björgvini Víglunds-
syni og gæti því náð Lámsi og
Sævari. Þá er of snemmt að af-
skrifa stigahæsta keppandann
Hannes Hlífar Stefánsson þrátt fýr-
ir tap hans gegn Guðmundi Gísla-
syni í sjöttu umferð. Guðmundur
komst við það einn í efsta sætið, en
tapaði klaufalega fyrir Lámsi i átt-
undu umferð.
Stórfrétt mótsins er vitaskuld
frábær frammistaða hins 10 ára
gamla Braga Þorfinnssonar. Bragi
náði afbragðs árangri í keppni
ungra skákmanna við Mchess- for-
ritið um síðustu helgi og frammi-
staða hans á Skákþinginu sannar
ótvírætt að hér er mikið efni á ferð-
inni.
Frammistaða Guðmundar
Gíslasonar frá Isafirði hefúr vakið
nokkra athygli þó varla sé hægt að
segja að hún hafi komið vemlega á
óvart. Hann hefur um lagt skeið
verið einn öflugasti skákmaður
landsbyggðarinnar. Sigur hans yfir
Hannesi Hlífar kom eftir mikla bar-
áttu:
6. umferð:
Guðmundur Gíslason-
Hannes Hlífar Stefánsson
Kóngsindversk vörn
1. c4 g6 2. d4 Rf6 3. Rc3 Bg7
4. e4 d6 5. Be2 0-0 6. Bg5 Rbd7
7. Dd2 c6 8. Hdl c6 9. RO b5 10.
a3 bxc4 11. e5 Re8 12. Bxc4 Rb6
13. Ba2 Bg4 14. Df4 Bf5 15. Dh4
Ha7 16. 0-0 d5 17. g4 Be6 18.
Bh6 f6 19. h3 Dc8 20. Be3 a5 21.
Rel Hb7 22. f4 f5 23. Rf3 Rc4 24.
Rg5 h6 25. Rxe6 Dxe6 26. Bxc4
dxc4 27. Hf2 Rc7 28. Bcl Hb3 29.
Hg2 Kh7 30. Kh2 Rd5 31. gxf5
Dxf5 32. Rxd5 cxd5 33. Hdgl c3
34. Hxg6 Dxg6 35. Hxg6 Kxg6 36.
Dg3+ Kf7 37. bxc3 Hbl 38. Bd2
Hfb8 39. Dd3 H8b2 40. Kg3 e6
(í þessari stöðu fór skákin í
bið.)
41. f5 Hgl 42. Kf4 h5 43.
fxe6+ Kxe6 44. Da6+ Kf7 45. Kf5
Hxd2 46. Dc6+ Kf8 47. Dc8+ Ke7
48. Dc7+ Ke8 49. Ke6 Hg6+ 50.
Kxd5 He2 51. Dc8+ Ke7 52. c4
Hg3 53. c5 Bxe5 54. De6 Kf8 55.
Df5+ Kg7 56. Dxh5 Hee3 57. dxe5
Hd3+ 58. Kc4 Hc3+ 59. Kb5 Hb3+
60. Ka6 Hg6+ 61. Ka7 Hc3 62.
Dh4 Hc6 63. De7+ Kh6 64. Df8+
Kg5 65. e6 He3 66. Dd8+ Kf4 67.
e7 Hce6 68. c6 Hxe7 69. c7 H3e6
70. Dd4 Kg3 71. Dg4+
- og Hannes gafst upp.
Þjóðviljinn kveður
Og þá er komið að þeirri stund
að maður dregur niður flaggið og
ekki úr vegi að rifja upp sitthvað
sem maður hefur látið sig varða.
Það var vorið 1976 að þáverandi
ritstjóri Svavar Gestsson réð mig til
að skrifa um skák fýrir Þjóðviljann
og það hef ég gert óslitið síðan, að
ámnum 1984-’86 undanskildum.
Samskipti- mín við starfsmenn
Þjóðviljans hafa ávallt verið góð. Á
þessum langa tíma hefur margt ver-
ið brallað, enda Þjóðviljinn alla tíð
skáklega sinnað blað.
Fyrstu árin em mér minnis-
stæðust; tekist var á um ýmis mál
innan skákhreyfmgarinnar hér á
landi og erlendis. Kannski byrjaði
þetta í júli 1976 er Viktor Kortsnoj
„stökk yfir“, eins og það var kallað.
Þá var eins og færi af stað undarleg
atburðarás sem virtist engan enda
ætla að taka. Blaðamaður Þjóðvilj-
ans, Gunnar Steinn Pálsson, var
staddur í Amsterdam vegna móts
þar sem Kortsnoj var meðal þátt-
takenda og náði fýrstur vestrænna
blaðamanna viðtali við „stroku-
manninn". Uppfrá því var það al-
veg sérstakt baráttumál Þjóðviljans
að Kortsnoj sameinaðist fjölskyldu
sinni, þó hann hefði sosum ýmsum
öðmm hnöppum að hneppa i hin-
um frjálsa heimi.
Veturinn 1977 stóð stjóm SÍ ís-
lands fýrir einvígi Spasskijs og
Horts og var liður í áskorenda-
keppninni, og það var einnig „ein-
vígi hatursins" milli Kortsnojs og
Tigran Petrosjan á Ítalíu. Kortsnoj
vann, en Petrosjan féll í ónáð og
var sviptur embætti ,ritsjóra þess
víðlesna blaðs „64“. í árslok 1977
mætti Kortsnoj svo Boris Spasskij í
einvígi urn réttinn til að skora á
heimsmeistarann Anatoiij Karpov
og þá var búinn til dálkur í mál-
gagninu sem hlaut nafnið „Að
leikslokum“. Þetta vom dálítið
grallaraleg skrif þar sem aðallega
var pundað á dálkahöfúnda hinna
blaðanna. Sumum fannst gamanið
grátt.
Um líkt leyti ákvað Friðrik 01-
afsson að bjóða sig íiram til emb-
ættis forseta FIDE. Kosning fór
ffam í Buenos Aires haustið 1978,
stuttu eftir maraþoneinvígi Kar-
povs og Kortsnojs um heimsmeist-
aratitilinn. Friðrik vann nauman
sigur á helsta andstæðingi sínum,
Svetozar Gligorc, í fýrstu umferð
atkvæðagreiðslu og í seinni umferð
vann hann yfirburðasigur. Strax að
lokinni kosningu kom upp mikið
hegómamál sem varðaði stöðu
gjaldkera FIDE. Sveinn Jónsson
var valinn í það embætti, en forsag-
an vakti gífúrlega athygli og átti
eftir að draga dilk á eftir sér. Frið-
rik bað Gísla Ámason, sem átti
sæti í stjóm skáksambandsins, að
taka að sér þetta starf, en Einar S.
Einarsson forseti SÍ hafði ætlað sér
það. Um þær mundir vom sam-
skipti mín við Einar og Högna heit-
inn Torfason varaforseta SÍ við
frostmark m.a. vegna deilna um
fréttaflutning frá Olympíumótinu í
Buenos Aires, sem fór ffam sam-
hliða þingi FIDE. Frétt sem ég
sendi um skæmmar vegna gjald-
kerastöðunnar vöktu eigi alllitla at-
hygli, og má segja að upp ffá þvi
hafi allt logað innan skákhreyfmg-
arinnar og
fjölmargir aðilar ótengdir skák-
hreyfingunni komu þar við sögu.
Vorið 1980 féll Einar í forsetakjöri
innan SI á einu atkvæði og við tók
dr. Ingimar Jónsson. í kjölfar þess
spmttu upp deilur um stöðu gjald-
kera innan norræna skáksambands-
ins og Högni Torfason vakti þjóð-
arathygli með því að kreQast þess
að fá að taka þátt í Skákþingi Is-
lands í kvennafokki.
Deilumar sem stóðu um Einar
S. Einarsson og Högna Torfason
em löngu hljóðnaðar. Þeir vom
ávallt cinlægir fýlgismenn skáklist-
arinnar og hmndu af stað skákvið-
burðum sem vöktu feikna athygli.
En það var aldrei nein lognmolla í
kringum þá.
Sem forseti FIDE fékk Friðrik
Ólafsson arf: mál Kortsnojs. Viktor
„grimmi“ kom hingað til lands vet-
urinn 1981 og deildi hart á Friðrik
fýrir slæleg vinnubrögð í máli sinu,
en þrátt fyrir það var tekið á móti
Kortsnoj með kostum og kynjum.
Stuðningsnefnd var sett á laggimar
og þar vom ffemstir i flokki Einar
S., Högni og „brödrene Blöndal“
Haraldur og Halldór. Vom ýmsar
samþykktir gerðar þá apríldaga
sem Kortsnoj dvaldi hér. Að vísu
var tekið harðar á ýmsum minni
spámönnum eins og þeim ffanska
þijót Patreki Gervasoni sem var
vísað úr landi í ársbyijun 1981, en
farið hefúr fé betra vildu sumir
meina.
Sumarið 1981 tilkynnti Friðrik
Ólafsson þá ákvörðun sína að
fresta einvígi Kortsnojs og Kar-
ovs, sem átti að fara ffam um
austið í Merano á Ítalíu, um einn
mánuð, „svo að Sovétmenn gætu
fundið ásættanlega lausn á fjöl-
skyldumálum áskorandans,“ eins
og það var orðað. Vorið 1982 kom
svo fjölskylda Kortsnojs til Vínar,
en mál hans kostaði Friðrik emb-
ætti forseta FIDE. Florencio Camp-
omanes fór ffam gegn Friðrik á
þingi FIDE um haustið, og með til-
styrk austurblokkarinnar vann hann
öruggan sigur og situr enn.
Umhverfi skáklistarinnar hefúr
tekið miklum stakkaskiptum frá
1976. Kröfúmar aukast á öllum
sviðum og skáklistin hefúr ekki
farið varhluta af því. Hér eru haldn-
ir metnaðarfúllir skákviðburðir og
er skemmst að minnast heimsbikar-
móts Flugleiða sl. haust. Því má
ekki gleyma að skák er ekki síst af-
þreying þúsunda manna og kvenna
og hefur mikið skemmtigildi og
skákhreyfmgin má ekki missa sjón-
ar af því, - né heldur þeir sem fást
við skrif og aðra fjölmiðlun á veg-
um skáklistarinnar.
BHDDGE
Oruggur sigur Landsbréfa
Ólafur
Lárusson
Sveit Landsbréfa varð Reykja-
víkurmeistari í sveitakeppni 1992,
eftir sigur á sveit Tryggingamið-
stöðvarinnar.
I undanrásum mætti sveit
Landsbréfa sveit Hjalta Elíassonar.
Þeir fyrmefhdu hreinlega „rústuðu"
leikinn og sigruðu 160 gegn 37.
í hinum undanrásaleiknum sigr-
aði sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
sveit V.Í.B. með 114 gegn 83.
Úrslitaleikurinn var jafn ffaman
af, og eftir 32 spil (af 64) var stað:
an 70 gegn 59 Landsbréfum í vil. í
þriðju lotunni gerðu svo Landsbréf
út um leikinn og sigruðu 67 gegn
30. Þá var staðan orðin 137 gegn
89. Lokalotan fór svo 66 gegn 43
og úrslit leiksins því 203 gegn 132.
Sannfærandi sigur hjá bestu sveit
landsins, þessa dagana. Sveitina
skipa: Magnús Ólafsson fýrirliði,
Bjöm Eysteinsson, Aðalsteinn
Jörgensen, Jón Baldursson, Sverrir
Ármannsson og Matthías Þorvalds-
son.
Sveit T.M. skipa: Sigtryggur
Sigurðsson fýrirliði, Bragi Hauks-
son, Páll Valdimarsson, Ragnar
Magnússon, Hrólfur Hjaltason og
Sigurður Vilhjálmsson.
I leik um þriðja sætið, sigruðu
Verðbréfin sveit Hjalta með 135
gegn 62.
Nú fer að styttast frestur til að
láta skrá sig í tvímenning bridgehá-
tíðar 1992. Fresturinn rennur út
fostudaginn 31. jan. og það er skráð
á skrifstofú Bridgesambands ís-
lands í síma 91- 689360.
Nú er gestalistinn að verða til-
búinn, að þessu sinni kemur sveit
ffá Danmörku með spilurunum Jens
Auken - Dennis Koch og Steen
Möller - Lars Blakset. Zia
Mahmood kemur með blandaða
sveit þar sem hann spilar við Eric
Rodwell frá USA og með þeim í
sveit verða Neil Silverman og Russ
Ekeblad ffá USA. í þriðju sveitinni
verða væntanlega Karen McCallum
USA og Sally Horton sem voru
eina kvennaparið í Sunday Times
Tvímenningnum í London á dögun-
um, en það kemur í ljós alveg á
næstu dögum hverjir verða sveitar-
félagar þeirra. Frestur til að til-
kynna sveit i sveitakeppnina er til
10. febrúar.
Aðaltvímenningskeppni Skag-
firðinga, sem verður 4-5 kvölda
barometer-kcppni, hefst á þriðju-
daginn kemur. Fyrirfram skráning
para er hjá Ólafi í síma 16538. Öll-
um heimil þátttaka.
Evrópumót í parakeppni (blönd-
uðum flokki) verður í enda mars.
Að þessu sinni verður spilað í Belg-
íu. Nokkrar umsóknir hafa þegar
borist BSI. Má þar nefna pör eins
og: Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir
Ásbjömsson, Jaqui McGreal - Þor-
lákur Jónsson og Hjördís Eyþórs-
dóttir - Jakob Kristinsson. Fastlega
má búast við að fleiri pör hugsi sér
til hreyfings á þetta Evrópumót.
Nánari uppl. á skrifstofú BSÍ.
Á síðasta fúndi BSÍ, 7. janúar
sl., var rætt um þann möguleika að
BSI hafi forgöngu um útvegun á
tölvum fýrir aðildarfélögin. Leitað
verði eftir tilboðum í þessi kaup,
m.a. frá Einari Skúlasyni hf. Einnig
var samþykkt að kaupa spilaforrit
Ásgeirs P. Ásbjömssonar, þannig að
aðiídarfélögin geti leitað beint til
BSI um hugsanleg kaup á þeim.
Heimsmeistarapörin tvö, Aðal-
steinn og Jón, - Guðmundur Páll og
Þorlákur, höfnuðu fyrir neðan
miðju á árlegu stórmóti Sunday
Times í London í síðustu viku.
Mótið var geysisterkt, og til við-
miðunar urðu besta enska parið,
Forrester og Robson í 10. sæti. Sig-
urvegarar urðu brasilísku meistar-
amir, Chagas og Branco.
Von er á nýrri mcistarastigaskrá
í byrjun febrúar. Stigefstu spiiarar
skv. nýju skránni em: Jón Baldurs-
son 1504, Valur Sigurðsson 1266,
Guðlaugur R. Jóhannsson 1256,
Öm Arnþórsson 1249, Sigurður
Sverrisson ,1115, Þórarinn Sigþórs-
son 1106, Ásmundur Pálsson 1080,
Guðmundur Páll Amarson 1073,
Aðalsteinn Jörgensen 1062 og Karl
Sigurhjartarson 1039.
Fleiri era ekki yfir 1000 stiga
múrinn. Alls er að finna nöfn 2454
spilara í nýju skránni. Þar af 29
spilara, sem áunnið hafa sér nafn-
bótina stórmeistarar (með 500 stig
eða meir). Þeir sem skoraðu mest á
síðasta tímabili, voru: Matthías Þor-
valdsson 166, Sverrir Ármannsson
151 og Aðalsteinn Jörgensen 142.
Mannflestu félögin innan BSÍ
era: Bridgefélag Reykjavíkur 156,
Akureyrar 130, Breiðfirðinga
Reykjavík 117 og Kópavogs 104.
Ib Lundby er okkur íslending-
um að góðu kunnur. Prímus Mótor
þeirra Dana um árabil og ritstjóri
Dansk Bridge. Ib hefur komið
nokkram sinnum til íslands sem
kcppandi á Bridgehátið og blaða-
maður. 1 nýjasta hefti D. Bridge, fer
lb lofsamlegum orðum um Jón
Baldursson. Þeir mættust einmitt 1
e.k. Evrópukeppni flugfélaga í nóv-
ember á síðasta ári. Jón er spilafé-
lagi Bjöms Theodórssonar i þessum
samskiptum félaganna, og einatt
hafa Flugleiðir borið sigur úr býtum
(lentu reyndar í 2. sæti í þessu
móti).
1 lcik Flugleiða gegn SAS kom
þetta spil fýrir;
4D9872
¥: D854
♦: ÁG4
*:4
4:1043 4: Á
♦:6 ♦: ÁK10973
♦: D9865 ♦: 1073
*: K863 ♦: G92
4: KG65
V: G2
♦ :K2
♦: ÁD1075
Á öðra borðinu létu SAS-menn
sér nægja 2 spaða og fengu eina 11
slagi. En Bjöm Theodórsson lét
reyna á Jón í þessu spili og nam
ekki staðar fýrr en í 4 spöðum. Út
kom hjartaeinspilið, upp á kóng og
síðan þriðja hjartanu spilað. Jón
trompaði með kóng í spaða og spil-
aði tígli inn á ás. Smár spaði kost-
aði ás hjá Austur og enn kom
hjarta. Jón trompaði með spaða-
gosa. Þá koma laufaás og laufa-
drottning, lágt hjá Vestur og Jón
trompaði í borði. Tígull inn á kóng
og þriðja laufið trompað á borði.
Tígulgosi trompaður heim, með
síðasta spaðanum. í lokastöðunni
átti Vestur S. 104 en Norður S: D9
og Jón átti ekki í miklum erfíðleik-
um að galdra 10. slaginn í lokastöð-
unni. Slétt staðið. Ib Lundby var
reyndar keppnisstjóri á þessu móti
og þetta spil var reyndar eitt af við-
fangsefnum hans í mótinu. Bjöm
var reyndar sagnhafinn í spilinu, en
andstæðan spilaði út rangri hendi.
Viðurlögin við slíku eru fjórir val-
möguleikar: 1. Láta útspilið halda
sér og fá blindan upp. 2. Biðja um
útspil ffá réttri hendi og þá fer sekt-
arspilið upp á höndina. 3. sektarspil
(sérstök viðurlög taka hér við). 4.
Að leggja eigin hendi upp og gera
félaga (blindan) að sagnhafa.
Það var einmitt fjórði kosturinn
sem Bjöm valdi (án aðstoðar frá IB,
því Bjöm var búinn að leggja eigin
spil niður, er 1B kom næst að borð-
inu). Og með þessum líka glimrandi
árangri.
Þótt þetta sé síðasti Bridge-
þátturinn á Þjóðviljanum, þá verður
gefið áfram í Helgarblaðinu sem
kemur út að viku liðinni. Hittumst
heil á síðum Helgarblaðsins.
Síða 23
ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 31. janúar 1992