Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995
13
Fréttir
Utanríkis-
ráðuneytið
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Slökkviliðið á Keílavíkurflugvelli
brenndi til grunna tvö íbúðarhús í
eigu íslendinga 25. september, að
beiðni vamarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins. DV fékk þær
upplýsingar hjá ráðuneytinu að bæði
húsin hefðu verið ólöglega byggð og
án lóðarsamninga.
Ódýrasti kosturinn var að brenna
þau, eigendum að kostnaðarlausu.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja fór
fram á að húsin yrðu fjarlægð enda
heilsuspillandi og samkomustaður
fyrir ketti og rottur. Eigendum var
gefmn kostur á að íjarlægja þau.
Þarna var búið fyrir 26 árum. Annar
eigandinn hafði farið fram á fyrir 8
áram að ríkið keypti hús hans á 500
þúsund krónur. Ríkið hafði ekki
áhuga en húsið var brunatryggt þar
til fyrir 2 árum. Lögreglan tók mynd-
ir af húsunum áður en kveikt var í
þeim.
íþróttamannvirki
Auglýsingar
stjórnmála-
flokka bannaðar
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Engar stjórnmálaauglýsingar
verða leyfðar á gólfum íþróttahúsa
eða veggjum íþróttahúsa í Reykja-
nesbæ samkvæmt nýjum reglum
íþróttaráðs um auglýsingar í íþrótta-
mannvirkjum Reykjanesbæjar.
Fyrir síðsustu alþingskosningar
auglýstu stjórnmálaflokkarnir mjög
og voru hálfu íþróttagólfin og veggir
þakin andlitum frambjóðenda flokk-
anna.
íþróttaráð fór nú eftir samþykkt
framkvæmdastjórnar íþróttasam-
bands íslands frá í sumar um auglýs-
ingar í íþróttamannvirkjum. Þar seg-
ir í 1. grein. „Auglýsingar sem varða
stjórnmál eða trúmál eða sem brjóta
í bága við jafnrétti kynjanna eða al-
mennt velsæmi eru ekki leyfðar."
ÞjófaráÓlafsfirði
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Mikill þjófnaðarfaraldur hefur
gengið yfir Ólafsíjörð síðustu vik-
urnar og kveður svo rammt að ófögn-
uðinum að fólk þorir varla að yfir-
gefa hús sín án þess að læsa. Það er
af sem áður var.
Talsvert hefur borið á því að pen-
ingar hafi horfið - hæsta upphæðin,
sem heyrst hefur um, er 70 þúsund
krónur. Lögreglan hefur fengið fjöl-
mörg mál inn á borð sín en ekki hef-
ur þó neinn verið handtekinn. Sagt
er að þessir bífræfnu þjófar hringi í
hús til að athuga hvort einhver sé
heima.
Afgreiðslutímar
B Y K O
r frá 1. október
Timbursala Breiddinni
I
S: 515-4100
Mánudaga - fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
Verslun Breiddinni
I
\ S: 515-4001 J
Mánudaga - föstudaga
Laugardaga
BYKO Hafnarfirði
I
\S: 555-4411 J
Mánudaga - föstudaga
Laugardaga
BYKO Hringbraut
í
X S: 562-9400 J
Mánudaga - föstudaga
» Laugardaga
8:00-12:00/13:00-17:00
8:00-12:00/13:00-18:00
Lokað
8:00-18:00
10:00-16:00
8:00-18:00
9:00-13:00
9:00-18:00
10:00-16:00
BYKO
w
Viö byggjum á breiddinni
~S: 515-4000 ~
FACMENNSKA I FYRIRRÚMI
FLOKKS
NATTURUAFURÐ