Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Side 36
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fulirar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NYTT SÍMANÚMER MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995. Verkamannasambandið: Formlegra viðræðna krafist? Talið er líklegt að framkvæmda- stjóm Verkamannasambandsins taki á morgun ákvörðun um að fariö verði fram á formlegar viðræður við Vinnumálasambandið og Vinnuveit- endasambandið um kjarasamninga. „Það væri ekkert óeðlilegt í fram- haldi af því sem gerst hefur að sam- band eins og Verkamannasambandið fari fram á formlegar viðræður ein- hvern tíma á næstunni. Við erum með stórt þing í lok þessa mánaðar og auðvitað þurfum við að vita hvar við stöndum gagnvart atvinnurek- endum. Ég er ekki sammála því að þeir séu stikkfrí í þessu máli,“ segir Björn Grétar Sveinsson formaður Verkamannasambandsins. Björn kveðst ítrekað hafa beðiö opinberlega um gögn frá kjaradómi og beðið forsætisráðherra um aðstoð í því máli. „Það er ekkert sem segir mér að kjaradómur taki ekki mið af þessum almenna markaði í efri lög- unum þar. Ég hef bara fengið hnútukast um að það sé langt út úr kortinu að við séum að biðja um gögn frá þessum æruverðuga dómi. Þarna er ekki verið að íjalla um morð, þarna er ekki verið að fjalla um nauðganir heldur kjör og viðmiðanir þannig að mér fmnst að þessir júrist- ar megi ekki líta á sig sem einhvern hæstarétt sem starfar fyrir luktum dyrum í einhverju ægilegu máli. Þetta er ekki þannig mál.“ Keflavík: Þrír teknir med fíkniefnatól Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum; Lögreglan í Reykjanesbæ stöðvaði þrjá menn í bíl innanbæjar í Keflavík í gærmorgun, grunaða um fíkniefna- misferli. A tveimur mannanna fund- ust tól til fíkniefnanotkunar og við húsleit hjá einum þeirra kom meira í ljós. Þar fundust fleiri tól og leifar af fíkniefnum í sumum þeirra, auk þess sem töflur fundust sem ekki höfðu verið efnagreindar í gærkvöld. Við yfirheyrslur viðurkenndu mennirnar að hafa átt tólin og telst málið upplýst. Tveir mannanna eru um fertugt en einn nokkru yngri. Allir eru þeir búsettir í Keflavík og hafa áður komiö við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála, samkvæmt heimildum DV. -bjb íslendingar sigruðu Rúmena með eins marks mun, 24-23, í Evrópukeppni landsliða i handknattleik í Kaplakrika í gærkvöld. Á myndinni skorar Ólafur Stefánsson eitt marka islenska liðsins. Sjá nánar um leikinn og aðrar íþrótt- ir helgarinnar á bls. 21-28. DV-mynd ÞÖK - reyndi að ræna mig, segir gamli maðurinn _ „Þetta var alveg voðalegt, Ég var ur, en gamla manninum tókst að góða lýsingu á árásarmanninum á leiðinni aö bílnum mínum og hrista árásarmanninn af sér eftir en í gærkvöldi hafði hann ekki stoppaði til aö skoða bækur í búð- mikil átök inni í húsasundi. Gamli náðst. Árásarmaðurinn var á aldr- arglugga. Þá kom allt í einu maður maðurinn hlaut nokkra áverka. inum 20-30 ára, með dökkt, úfið hár aftan að mér sem öskraði „helvítið Má þar nefna blæðingu úr öðru ogalskegg.Hannvariljósumgalla- þitt“ og lét síöan höggin dynja á hné, skurð á höfði, mar á nefí og buxum og dökkum leðurjakka, um mér. Eg reyndi að veita mótspyrnu eymsli í vinstri öxl. Gert var að 170 sentímetrar á hæð. og á endanum tókst mér að hrista sármn hans á slysadeild og fékk Skömmu eftir átökin fór gamli manninn af mér,“ sagöi 72 ára hann að fara heim að því loknu. maðurinn á lögreglustöðina við Reykvíkingur i samtali við DV en Þá brotnaði gleraugnaumgjörð í Hverfisgötu. Þaðan var honum ungur maður réðst á hann við átökunum. Þegar DV ræddi við komið á slysadeild. í átökunum Hverfisgötu snemma í gærmorgun. manninn síðdegis í gær sagðist náði hann poka með kassettum og Reynt var að ræna hann peninga- hann vera óðum að ná sór. fleiru af árásarmanninum. veski, sem í voru 10 þúsund krón- Maðurinn gaf lögreglu greinar- -bjb Norðfjörður: Ung stúlka lést í bflslysi Tuttugu og eins árs gömul stúika úr Norðfirði lést í umferðarslysi á Norðfjarðarvegi, skammt vestan við Neskaupstað, aðfaranótt sunnudags- ins. Stúlkan var farþegi í framsæti í bíl sem endastakkst og fór nokkrar veltur eftir að hafa lent á háspennu- staur. Talið er að hún hafí látist sam- stundis. Ökumaðurinn, 21 árs piltur úr Norðfirði, slapp frá slysinu án tölu- verðra meiðsla en hann er grunaður um ölvun við akstur. Þau voru bæði í bílbeltum. Banaslysið varð um klukkan rúm- lega fjögur aðfaranótt sunnudagsins. Bílnum var ekið vestur Norðfiarðar- veg þegar ökumaðurinn missti stjórn á honum. Bíllinn hafnaði á há- spennustaur við vegarkantinn. Við höggið tvíbrotnaði staurinn en bíll- inn hélt áfram nokkurn spotta sam- síða veginum. Talið er að bíllinn hafi endastungist nokkrum sinnum þar til hann stöðvaðist. Önnur háspennulínan datt niöur og hékk yfir Norðfiarðarveg í það lít- illi hæð að lögregla varð að stöðva umferð um veginn þar til rafmagn hafði verið tekið af línunni. Ekki er hægt að greina frá nafni hinnar látnu að svo stöddu. -bjb ísafjörður: Ungmenni tekin meðfíkniefni -20. máliðáárinu Lögreglan á ísafirði stöðvaði bíl með nokkrum ungmennum á föstu- dagskvöldið vegna gruns um fíkni- efnamisferli. Við leit í bílnum fund- ust 7 grömm af amfetamíni og tæki til fikniefnaneyslu. Tveir karlmenn úr þessum hópi heimamanna og aðkomufólks voru einkum grunaöir um fíkniefna- neyslu. Viö húsleit á heimilum þeirra beggja fannst smáræði af hassi og tól til neyslu fíkniefna og annarra ólyfia. Þetta er tuttugasta fíkniefnamálið sem upp kemur hjá lögreglunni á ísafirðifrááramótum. -bjb Breiðadalsheiði: Tvö snjóf lóð Tvö snjóflóð féllu á veginn við Kinn á Breiðadalsheiði á laugardaginn. Annað flóöið var nokkuð stórt en engin slys urðu á fólki. Lögreglan á ísafirði lokaði heiðinni þar til veðrinu slotaði og Vegagerðin gathreinsaðsnjóinnafveginum. -bjb B LOKI Banna myndatökur, læsa gögn inni - hvaða myrk- fælni er þetta eiginlega? Veðriðámorgun: Norðaust- lægátt Búist er við norðaustlægri átt og víða kalda. Um landið norðan- og austanvert verður súld eða rigning með köflum en víöa létt- skýjað um landið sunnan- og vestanvert. Hiti verður á bihnu 2 til 8 stig, kaldast norðvestan til en hlýjast um landið sunnanvert. Veðrið í dag er á bls. 44. ! ........ PT-7000 Merkivél m/íslensku letri Ir/ilsl Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 K I N G Lffli alltaf á Miðvikudögum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.