Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
atm
Fréttir
íþróttasamband íslands ber saman félagaskrár aðildarfélaga og þjóðskrá:
Um 22 þúsund félags
menn eru oftaldir
- hefur allt of lengi viðgengist að skráðir séu jafnt lifandi sem dauðir__
„Við erum í fyrsta sinn að koma í
framkvæmd skilgreiningu á iökanda
annars vegar og félagsmanni hins
vegar. Til skamms tíma voru allir
þeir sem voru félagsmenn innan fé-
laga mælikvarði á stærð íþrótta-
hreyfingarinnar en nú erum við
farnir til að skilgreina hveijir eru
iðkendur. Það er urmull af aðilum í
félögunum sem eru ekki beint
íþróttaiðkendur í þeim skilningi sem
þátttakendur í keppnum og mótum,“
segir Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri íþróttasambands ís-
lands, um samanburð sem samband
hans er að gera á félagaskrám ein-
stakra félaga innan sérsambanda ÍSÍ
og þjóðskrá. Við samanburðinn kem-
ur í ljós að félagsmönnum fækkaði
úr því að vera 86.363 í að vera 64.492.
Fækkunin nemur því tæplega 22 þús-
und manns.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við vinn-
um þetta eftir nöfnum. Áður voru
þetta uppgefnar tölur frá einstökum
félögum. Eftir að við settum upp okk-
ar góða samskiptanet þá byggir þetta
á nöfnum, heimilisfangi og kenni-
tölum,“ segir Sigurður.
Mesta fækkunin verður meðal
þeirra sem taldir voru iðka knatt-
spymu. Þeir voru samkvæmt félaga-
tab árið 1993 alls 19.892 en við sam-
keyrslu fækkaði þeim í 11.769. Hand-
knattleiksmönnum fækkaði um tæp-
an þriðjung. Þeir voru 6.211 en fækk-
ar í 4.472. Badmintoniðkendur fækk-
ar um 38 prósent. Þeir voru 7.334 en
verða samkvæmt þessu nú 4.501. Stór
hlutí þeirra 20 þúsund einstaklinga,
sem skráðir eru í íþróttafélög um
Stuttar fréttir
Knatt-
spyrna
Karfa
Hestar
Golf
Frjátsar Badminton
Hand-
knattleikur
Fimleikar
Sund
Skíði
Annað
Gerður hefur verið samanburður á skráðum félögum innan þeirra íþróttafélaga sem eru innan ÍSÍ. Samanburðurinn, sem gerður er af starfsmanni ÍSÍ, leiðir
í Ijós að um 22 þúsund manns eru oftalin innan félaganna. Þar ber hæst að knattspyrnuiðkendur verða tæplega 12 þúsund í stað 20 þúsund áður. Þá
fækkar einnig mjög í handboltafélögum þar sem félagatalið hrynur um tæp 30 prósent.
allt land, eru ekki til. Dæmi eru um
að fólk sem er látið sé skráð í félög
en fleiri dæmi eru um að sá fjöldi sem
gefinn hefur verinn upp standist alls
ekki.
Einn viðmælenda DV innan úr
íþróttahreyfingunni, sem ekki vill
láta nafns sín getíð, sagði að títringur
væri innan hreyfingarinnar vegna
málsins. Hann segir að sú staðreynd
að félagar hafi verið oftaldir snúist
um peninga, annars vegar fyrir lottó-
ið og hins vegar styrki frá ríki og
sveitarfélögum, þar sem félagafjöldi
skiptir miklu máh.
„Það er verið að skipta peningum
þama og nú er komið að skuldadög-
um. Þeir sem hafa viöhaft ranga
skráningu verða nú að blæða. Það
hefur allt of lengi viðgengist að
skráðir séu jafnt lifandi sem dauð-
ir,“ segir viðmælandi DV.
Vigfús Þorsteinsson, net- og gagna-
stjóri hjá ÍSÍ sem framkvæmt hefur
samkeyrsluna, segir aö þau gögn sem
DV byggir á séu vinnugögn sem enn
eigi eftir að berast athugasemdir við.
„Þetta eru ekki endanlegar tölur.
Það er enn verið að vinna þetta. Fé-
lögin skila hingað inn þeim kenni-
tölum sem eru á bak viö iðkendurna,
það er eini munurinn á skráning-
unni. Áður fengum við eingöngu
upplýsingar um fjölda félaganna,"
segir Vigfús.
-rt
Irvingfalasteftirlód
Forráðamenn Irving Oil hafa
falast eftir lóð Dagsbrúnar á
horni Sæbrautar og Snorrabraut-
ar í Reykjavík. Skv. Viðskipta-
blaðinu hyggst Irving reisa bens-
instöð og höfuöstöðvar félagsins
á íslandi á lóðinni.
Ný framkvæmdaáætlun
islenskir aðalverktakar búa sig
undir enn írekari niðurskurð á
frarokvæmdum fyrir herinn en
orðið er. Skv. RÚV munu Banda-
ríkjamenn kynna nýja íram-
kvæmdaáætlun fyrir helgi.
Frystiskip útilokuð
ESB getur ekki sent frystiskip
til aö veiða 3 þúsund tonna karfa-
kvóta sinn í íslenskri lögsögu,
skv. samkomulagi sem ísland og
ESB hafa gert með sér. Á hinn
bóginn hafa ESB-skipin stærra
veiðisvæðitilumráða. -kaa
Maöur á áttræðisaldri barinn í höfuðið og rændur:
„Vonabaraað
þessi deli náist"
„Ég vona bara að þessi deli náist.
Lögreglan tók málið þegar fóstum
tökum og sporhundur þeirra rakti
slóð árásarmannsins út á Reykjanes-
braut. Þar virðist hann hafa verið
tekinn upp í bíl,“ segir Ásbjörn
Magnússon, 71 árs gamall Hafnfirð-
ingur, sem rændur var í fyrrakvöld
þar sem hann var við vinnu sína í
sjoppu við Suðurgötu.
Árásarmaðurinn stökk yfir af-
greiðsluborðið meðan Ásbjöm sneri
baki að inngöngudyrum sjoppunnar.
Ásbjöm hafði nýlokið við að afgreiða
viðskiptavin og stóð peningakassinn
opinn og þaðan hafði ræninginn með
sér nokkur þúsund krónur. Mest af
fjármununum.eftir sölu dagsins var
ekki í kassanum.
„Þetta var stór sláni og klæddur í
hálan búning eins og kafari. Ég náði
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já III
Á að lögleiða
bílbelti í rútum?
Alllr I stafrana korflnu roet tðnvalssiwa geta nýtt »ér |ies»a þjðnu»tu.
Asbjörn Magnússon, 71 árs gamall
Hafnfiröingur, var barinn í höfuðiö
þegar ókunnur maður rændi hann í
sjoppu viö Suðurgötu í Hafnarfiröi.
DV-mynd GVA
því hvergi taki á honum. Áður en ég
náöi að snúa mér aö honum sló hann
mig í höfuðið meö barefli og ég vank-
aðist," segir Ásbjöm.
Eftír að árásarmaðurinn hafði
hrifsað til sín mestallt úr peninga-
kassanum stökk hann út og hljóp í
átt að Reykjanesbrautínni. Ásbjörn
reyndi að kalla á hjálp en enginn
heyrði enda klukkan farin að ganga
tólf og ró komin á í hverfinu. Ásbjöm
hringdi á lögreglu sem kom með
sporhund en hann tapaði slóð
mannsins við Reykjanesbrautina.
Hann var ófundinn enn þegar síðast
fréttist.
„Árásin kom mér mjög á óvart
enda er ég ekki slíku vanur. Hér
hefur aldrei neitt komið fyrir öll þau
ár sem ég hef verið með sjoppuna,"
sagðiÁsbjöm. -GK
Óhugur í fólM á Vestfjörðum:
„Þessi vetur, sem nú er greini-
lega genginn í garð, sker úr um
hvort hér verður einhver búseta í
framtíðinni. Það er óhugur í fólki;
það er kvíðið og útlitið ekki björgu-
legt eins og núna blæs,“ segir Jón
Ragnarsson, vélsfjóri í frystihús-
inu Frosta í Súðavík, í viötali við
DV.
Honum og öörum Vestfirðingum
sem DV hefur rætt við ber saman
um aö veðurfar sé almennt að
versna og nú hefur staðið linnulaus
stórhríð með snjóflóðum og ófærð
frá því ura helgi. Ekki er útlit fvrir
aö skáni fyrr en undir vikulokið.
„Það era bara tveir möguleikar
með veðrið í vetur. Aimaðhvort
verður vetminn eins og í fyrra eða
verri,*' segir Guömundur Sigurðs-
son, íbúi víð Ólafstún á Flateyri.
Þar eru hús á hættusvæði og Guð-
mundur sagði að hann væri alvar-
lega aö hugsa um að flytja. Ekkert
er þó hægt að fara, húsið óseljan-
legt og Ofanflóöasjóður kaupir ekki
hús á Flateyri eins og í Súöavík og
Hnífsdal. Vegna þessa er reiöi í
mörgum Flateyringum.
„Það er engin vandi fyrír skrif-
stofubangsa í 500 kílómetra fjar-
lægð að stressa sig ekki yfir ástand-
inu, Við sem búum hér finnum fyr-
ir öðru; við vitum hvernig það er
að sjá ekki einu sinni í næsta Ijósa-
staur vikum saman,“ sagði Guð-
mundur.
Aðrir vilja líta á óveöur síðustu
daga sem einstakt hret þótt þeir
verði einnig að viðurkenna að það
er erfitt að líta björtum augum til
framtíöarinnar.
„Menn eru orðnir mjög hvekktir
á þessu. Ef tíl vill er þessi lands-
hluti kominn norður fyrir mörk
hins byggilega heims en ef ég tek
mig upp þá fer ég heldur til útlanda
en að fara í rigninguna og suddann
í Reykjavik," segir Steinþór B.
Kristjánsson, skrifstofumaður hjá
Kambi hf. á Flateyri. Hann bjó á
hættusvæöinu við Ólafstún en er
nú fluttur á öruggari stað í bænum.
Veöurofsi síðustu daga nyrst á
Vestfiörðum varö til jiess að al-
mannavamanefndin á ísafirði var
kölluö saman í gær. Ekki var þó
um beint hættuástand að ræða en
snjóflóö hafa falliö nærri byggð og
spáð var ofsaveöri.
„Þetta mynstur sem nú er komið
upp ermjög líkt því sem var í fyrra-
vetur. íslandslægðin hefur stöðvast
viö landið og hæð er yfir Græn-
landi, Það þýðir norðan fárviðri á
Vestfiörðum," sagði Einar Svein-
björnsson veðurfræðingur í sam-
tali við DV.
Hann hefur í haust kynnt niður-
stöður athugana á breytingum á
veðrakerfinu við ísland frá því um
1990. Þar er allt á sömu lund og nú
er í hreti síöustu daga. Einar vildi
þó vara við að dregnar væra álykt-
anir af einstökum atburðum og
veturinn gæti þess vegna oröið góð-
ur þótt nú blési kröftuglega meö
vetrarkomunni. -GK