Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
Fréttir
3
Flakasnyrting í frystihúsum:
Eilíft vandamál með
karlmenn í þetta starf
4
- segir Þórunn Kristinsdóttir, formaöur verkalýösfélagsins í Grundarfirði
ARMORCOAT-ORYGGISFILMAN
ER LÍMDINNAN Á VENJULEGT GLER
• Breytir rúðunni í öryggisgler
• Sólarhiti minnkar um 75%
• Upplitun minnkar um 95%
• Eldvarnarstuðull F-15
ARMORCOAT
SKEMMTILEGT
SÍMI587-6777
BÍLDSHÖFÐA 8
„Ég kannast við þetta eilífa deOu- heldur vinna. Og þá kemur á móti og ófingralipra karla að flæðilín- eru nefnilega tvær hliðar á málinu
mál um hvort karlmenn eigi að að konurnar sem vinna allt árið við unni því óvanir og seinir snyrtar sem ekki er svo auðvelt að sam-
vinna við flakasnyrtingu í frystihús- þessar flæðilínur vilja ekki óvana draga þær niður í bónus. Þess vegna ræma,“ sagði Þórunn Kristinsdóttir.
um eða ekki. Ég veit dæmi þess að
karlmönnum hefur verið hafnað í
snyrtingu. Ég veit líka dæmi þess að
karlmenn, sem beðið hafa um vinnu
í frystihúsum, hafa neitað að fara í
snyrtinguna hafi ekkert annað starf
verið laust,“ sagði Þórunn Kristins-
dóttir, formaður Verkalýðsfélagsins
Stjörnunnar í Grundarfirði, í sam-
tali viö DV.
DV hafði af því spurnir að karl-
manni hefði verið neitað um vinnu
við snyrtingu í frystihúsi í Grundar-
firði nýlega. Þórunn sagðist ekki
kannast við það mál, það hefði ekki
komið á sitt borð. Aftur á móti vissi
hún um mann sem neitaði að vinna
í snyrtingu í frystihúsi i Grundar-
firði ekki alls fyrir löngu.
„Þetta er dálítill vítahringur.
Karlmenn hafa lítinn áhuga á snyrt-
ingu og líta flestir niður á starfið
sem dæmigert kvennastarf. Þeir
ætla sér aldrei að vinna við það til
frambúðar ef þeir á annað borð taka
því. Það er mjög algengt að þeir séu
tilbúnir að hlaupa í það nokkra
daga á meðan þeir eru að bíða eftir
einhverju öðru starfi sem þeir vilja
ur barinn
„Þeir sögðu bara við mig að þetta
væri til mín vegna Smugunnar og
byrjuðu svo að lúskra á mér,“ segir
ungur íslendingur sem lenti í átök-
um í Ármúlanum í fyrrinótt við
norska sjómenn sem nú eru á skipi
sínu í Reykjvíkurhöfn.
íslendingurinn nefbrotnaði á
átökunum og kærði málið til lög-
reglunnar. Hann segir að vel hafi
farið á með sér og Norðmönnunum
í fyrstu en þegar kom að kveðju-
stund vildu þeir ræða Smugudeil-
una en hann ekki. Lauk orðaskipt-
unum svo að hendur voru látnar
skipta. -GK
Sölumet ljónakonungs:
Tuttugu þúsund
eintök seld
Eftir aðeins níu daga í sölu á
myndbandi hefur Konungur ljón-
anna (The Lion King) selst í 20.000
eintökum sem er sölumet hér á
landi. Teiknimynd þessi frá Walt
Disney, sem er ein allra vinsælasta
kvikmynd sem gerö hefur verið, var
ekki sett á myndbandaleigur heldur
beint í sölu.
Að sögn Eyþórs Guðjónssonar,
markaðsstjóra hjá Sam-myndbönd-
um, er þessi velgengni því ekki síst
að þakka að myndin höfðar til allra
aldurshópa. „Fullorðnir kaupa
myndina bæði fyrir sig og börnin
sín.“
Konungur ljónanna er gefin út í
tveimur útgáfum, önnur er með ís-
lensku tali en hin ensku tali með ís-
lenskum texta og sagði Eyþór að
hann vissi um marga sem hefðu
keypt báðar útgáfurnar. Eyþór sagð-
ist búast við að með jólasölunni
mætti áætla að Konungur ljónanna
seldist i 25-35 þúsund eintökum.
vegna
Smugunnar
íslending-
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur, sem enn hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu
og tryggingagjaldi til og með 9. tímabili með eindaga 15. október 1995 og virðisaukaskatti til og með
32. tímabili með eindaga 5. október 1995 og gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum er féllu
í gjalddaga til og með 15. október's.l. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti
í tolli, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti
skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi,
virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, vinnueftirlits-
gjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir,
verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdóma-
gjaldi, jarðaafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, en þau eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, slysatiyggingagjald vegna heimilisstarfa,
tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. laga nr. 67/1971, slysatrygginga-
gjald atvinnurekanda skv. 36. gr., atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð
aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Gjaidendum skal bent á að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu
áskorunar þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum
og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda, að þeim tíma liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda.
Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hverja fjámámsgerð. Þinglýsingargjald er 1.000 kr.
og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til
að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Jafnframt mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vörugjald og virðisauka-
skatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara.
Reykjavík, 25. október 1995
Gjaldheimtan í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Gjaldheimtan á Seltjamarnesi
Gjaldheimtan í Garðabæ
Sýslumaðurinn í Hafnarfírði
Gjaldhéimtan í Mosfellsbæ
Sýslumaðurinn í Keflavík
Gjaldheimta Suðumesja
Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgamesi Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn í Búðardal Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á ísafirði Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn á Patreksfirði Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Hólmavík Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn á Siglufírði Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Sýslumaðurinn á Blönduósi Gjaldheimta Vestfjarða
Sýslumaðurinn á Akureyri Gjaldheimta Austfjarða
Sýslumaðurinn á Húsavík Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum