Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
5
Fréttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri á skrifstofu sinni.
Reykj a víkurborg:
Hefur greitt 21 þúsund fyr-
ir snyrtivörur borgarstjóra
Borgarsjóður hefur greitt rúm-
lega 21 þúsund krónur fyrir hrein-
lætisvörur og snyrtivörur, svo sem
hárblásara og púður, sem ákveðið
hefur verið að hafa tiltækar á snyrt-
ingu borgarstjóra í Ráðhúsinu.
Þetta var gert samkvæmt reikningi
dagsettum í ágúst síðastliðnum frá
snyrtivöruversluninni Hygeu. Sam-
kvæmt heimildum DV er þetta í
fyrsta skipti sem borgarsjóður
greiðir reikninga af þessu tagi fyrir
borgarstjóra.
„Ég held að í Höfða hafi til
skamms tíma verið rakvél og
rakspíri til að borgarstjóri geti not-
að þá aðstöðu þegar hann kemur úr
vinnu og fer í móttöku. Móttökur
hafa færst hingað í Ráðhúsið og það
fylgir því að vera kona aðrir hlutir
en að vera karl. Þess vegna var það
skoðun okkar að það væri eðlilegt
að aðrir hlutir væru fyrir hendi hér.
Þetta er meðal annars það sem al-
þingiskonur hafa aðgang að,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri.
Undanfarin ár hefur tíðkast að
greiða reikninga vegna fatahreins-
unar fyrir borgarstjóra sem tengjast
móttökum eða öðrum opinberum at-
höfnum á vegum borgarinnar og
hefur sú óskrifaða regla gilt frá því
í borgarstjóratíð Markúsar Arnar
Antonssonar. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum DV hefur kostn-
aður vegna þessa numið nokkrum
þúsundum króna á hverju ári.
„Ég hef átt fund með skrifstofu-
stjóra borgarinnar þar sem ég lýsti
yfir efasemdum um réttmæti þess
að borgarsjóður greiddi slíkan
kostnað. Ef slíkt á að gera tel ég að
það beri að setja skriflegar reglur
þar um,“ segir Símon Hallsson borg-
arendurskoðandi.
„Þetta er ákveðinn stofnkostnað-'
ur sem lagt hefur verið út í en ég
reikna með að þetta komi mjög hægt
inn til endurnýjunar. Mér finnst að
ekki eigi að þurfa neinar skriflegar
reglur. Ef hér er snyrting er hér
sápa, sjampó, handklæði. í kaffi-
króknum er kaffi og kaffivél. Þetta
eru bara hlutir sem fylgja," segir
borgarstjóri.
„Þetta hlýtur að kalla á frekari
skýringar en ég hef ekkert i hönd-
unum til að meta það. Þetta hljómar
mjög undarlega en það á eftir að
skoða þetta betur,“ segir Árni Sig-
fússon borgarfulltrúi. -GHS
Enn skýtur Sverrir Hermannsson á viðskiptaráðherra:
Verður að eiga þetta
við sjálfan sig
- er svar Finns Ingólfssonar
„Einhverra hluta vegna hefur
Sverrir fundið þörf hjá sér til að
senda mér einhver skot öðru hverju,
að ég tel að tilefnislausu. Svona orð-
færi og framkoma lýsa Sverri miklu
frekar heldur en mér. Hann verður
bara að eiga þetta við sjálfan sig,
blessaður karlinn,“ sagði Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra við DV
en Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri í Landsbankanum, skaut föst-
um skotum að Finni í fréttatíma
Bylgjunnar nýlega. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Sverrir skýtur opin-
berlega á ráðherra bankamála í
landinu.
Bylgjumenn voru að leita álits hjá
Sverri á ummælum Finns á aðal-
fundi sparisjóðanna um málefni líf-
eyrissjóðanna og að bankar m.a.
eigi að taka við lífeyrissparnaði
landsmanna. Sverrir sagðist ekki
vilja ræða neitt um það sem Finnur
segði, hann vildi „ekki vera á sama
umræðuplani".
Finnur sagðist ekki hafa neitt yfir
Sverri að kvarta, hann hefði ekki
þurft að hafa af honum nein afskipti
frá því hann settist í stól viðskipta-
ráðherra í vor.
„Ég er vissulega bankamálaráð-
herra en Sverrir er ekki skipaður af
mér. Hann er skipaður af stjórn
Landsbankans þannig að hann er
hennar starfsmaður," sagöi Finnur.
-bjb
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Boðið filmusafn á 3 milljónir
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur
mælt með tilboði sem nefndinni
barst um kaup á filmusafni Heimis
Stígssonar. Safnið er frá árunum
1960 til 1995. Kaupverðið yrði 2,5 til
3 milljónir og myndi greiðast á allt
að 15 árum.
Filmusafnið inniheldur um 23
þúsund passamyndir, 9 þúsund
svart- hvítar myndatökur, 8.500 lita-
myndatökur, 6 möppur af 35 mm
fréttamyndum og 3 þúsund eftirtök-
ur af eldri myndum.
Seljendur safnsins áskilja sér rétt
til afnota af filmunum til eftirtöku
en með i kaupunum myndi fylgja
aðstoð Heimis Stígssonar við skrán-
ingu. Safhið er núna geymt í ófull-
nægjandi húsnæði.
^ Hveragerði:
Ok ölvaður á tengikassa
Ölvaður ökumaður stal sér bíl i
Hveragerði í fyrrakvöld og ók hon-
um á tengikassa hjá Pósti og sima
og sat þar fastur þegar lögreglan
kom að. Maðurinn gisti fanga-
geymslu lögreglunnar á Selfossi yfir
nótt enda var hann að sögn lögreglu
óviðræðuhæfur vegna ölvunar.
Töluverðar skemmdir urðu á
bílnum og eins á kassanum hjá
Pósti og síma.
-GK
Leikur nr. 15 í Lengjunni: FH - Valur
Lægsti stuðullinn táknur
líklegustu úrslitin.
Spáðu í
líkumar!
Þú velur hvaða úrshtum þú
spáir í þessum leik.
Stuðlamir sýna möguleikann á
hverjum úrshtum (1, X eða 2)
á tölfræðilegan hátt.
Nú er úr vöndu að ráða, því að jafnar líkur (sömu stuðlar)
eru taldar á heimasigri og útisigri. Minnstar líkur (hæsti
stuðuhinn) eru taldar á því að leiknum ljúki með jafntefli.
En hærri stuðull hækkar líka upphæð vinningsins sem þú
getur átt von á!
STUÐLAR
14 Mið. 25/10 19:15 Wolves - Charlton 1,70 2,85 3,25 Knatt
15 Mið. 25/10 19:30 FH - Valur 1,90 5,10 L90 Hand
16 Mið. 25/10 19:30 Grótta - Haukar ^ “'Hand
^or;f.