Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 7 Sandkorn Fréttir Rjúpnaveiði Eins og kom fram i síðasta laugardags- blaði DV eig- um við hér á blaðinu tvo kunna rjúpnaveiði- menn, þá Per og Kristmund Atla. Við vin- ir þeirra erum alltaf hálfhrædd- ir um að þeir týnist einhverja helgina við veiðamar. Þess vegna var vel tekið eftir því sem í Vestfirska fréttablaðinu var kallað Örleiðari undir fyrir- sögninni „Rjúpnaveiðimanna- leitartíminn byrjar vel“. Ein lyfta Enn kemur saga úr safni Róberts Schmidt á Suðm-eyri. Þar segir frá tveimur göml- um körlum vestur á ísa- firði sem voru að ræða sam- an. Þeir stóðu á aðalgötu þorps- ins og ræddu um Hjallaveginn, götu sem liggur fyrir ofan eyr- ina og þykir mörgum þorpsbú- um erfitt að ganga upp hann. Þeir veltu því fyrir sér hvort ekki væri hægt að finna ein- falda lausn á málinu. Annar sagði að sennilega væri best að setja upp lyftu. Hinn karlinn stamaði nokkuð. Hann tók und- ir þetta með lyftuna og sagði. „Ég, ég tek undir að setja, setja upp lyftu, lyftu, lyftu.“ Þá svar- ar hinn. „Það er nú nóg að setja bara upp eina lyftu.“ Viðskiptablað- ið birtir stimdum lög- fræðingasög- ur. Ein var á þá leið að tveir lögfr æð ingar vora staddir í banka þegar vopnaðir ræn- ingjar réðust inn. Nokkrir ræn- ingjanna hófu þegar að krefja gjaldkerana um peninga en hin- ir snera sér að viðskiptavinun- um. Þeim var skipað upp að vegg og síðan gengu ræningj- amir á röðina og tóku allt verð- mætt af fólkinu. Meðan á þessu stóð lumaði annar lögfræðingur- inn einhverju smálegu i lófa hins. Sá þorði ekki að hreyfa sig en hvíslaði. „Hvað varstu að láta mig fá?“ Hinn hvíslaði á móti. „Þetta er fimm þúsund kallinn sem ég skulda þér.“ Biskupsveisla Biskup ís- lands, herra Ólafur Skúla- son, vísiteraði Mælifells- prestakall í vor. Að lok- inni vísiter- ingu buðu sóknarnefnd- irnar og fyrirmenn hreppsins til veislu á Hótel Bakkaflöt og um þá veislu orti Sigfús Steindórs- son á Sauðárkróki. Á Bakkaflöt er boöiö til veislu biskupnum yfir íslandi. Ýmislegt þar er til neyslu, eins og lítill grísíjandi. Fleira gott er að finna þar, fleginn humar og graflaxar. M”llerspasta og messuvín, mikiö er þessi veisla fin. Nú boröa allir sem best þeir geta. Biskup kunni þaö vel að meta að prófastur er í pólitík. Undir borðum var um þaö rætt, hvemig afkoma presta verði bætt, svo mannsæmandi þeir mættu lifa og messa söihuöum til þrifa. í svöngum manni er sálin snauð, sífellt hugsa um meira brauö. Tvö brauö og fimm fiska. Þeir fara strax á það að giska, hvort ekki mætti metta mennina sem svelta sáru hungri út í hinum stóra heimi. Drottinn þá geymi. Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson Félagsmálaráðuneytið: Ný áætlun um jafnréttismál - næstu fimm árin Jafnréttisráðherrar Norðurlanda hafa samþykkt nýja samstarfsáætl- un á sviði jafnréttismála fyrir tima- bilið 1995 til 2000. Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra kynnti áætlunina á blaðamannafundi í gær og sagði þá að jafnréttismál yrðu áfram for- gangsmál hér á landi og annars staðar á Norðurlöndunum. Hann sagðist í því sambandi binda miklar vonir við að raunhæfar tillögur kæmu fljótlega frá nefnd um starfs- mat undir forystu Sivjar Friðleifs- dóttur alþingismanns. Markmið nýju jafnréttisáætlunar- innar eru þrenns konar: að halda áffam að þróa sameiginlega lífssýn Norðurlandaþjóða og sameiginlega stefnu innan Evrópu og á alþjóða- vettvangi, stuðla að árangursríkara og öflugra jafnréttisstarfi innan- lands og að sjálfsagt verði að gæta jafnréttissjónarmiða í stefnumótun í þjóðfélaginu og starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar. Norræna ráðherranefndin mun á næstu fimm árum beina samstarfi sínu að starfsemi sem stuðlar að því að kynin fái jafnan aðgang að ákvarðanatöku í stjórnmálum og efnahagsmálum, jafnri stöðu og áhrifum kvenna og karla í efnahags- málum og varðandi launajafnrétti kynjanna, jafnri stöðu kynjanna í atvinnulífi, gefur bætt tækifæri til að sameina foreldrahlutverk og launavinnu og hefur áhrif á þróun jafnréttismála innan Evrópu og á al- þjóðavettvangi. -GHS ANÆSTA SÖLUSTAÐ AÐEINS 895 kr. OG ENNÞÁ MINNA í ÁSKRIFT í T' • > ' ; í -- ■ ^'pennanbi bék - Ttálíííð ÝÓtoantLsk - en tintfrant aUt tétt eg fijéUeg IIS^KBÆKUR TPi*“ Páll Pétursson félagsmálaráðherra kynnti á blaðamannafundi í gær nýja jafnréttisáætlun á Norðurlönd- um næstu fimm árin og sagðist þá meðal annars binda miklar vonir við tillögur nefndar um starfsmat sem Siv Friðleifsdóttir alþingismaður leiðir. Von er á tillögunum fljótlega. Á myndinni frá vinstri er Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri, Elsa Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs, Páll og Elín R. Líndal, formaður Jafnréttisráðs. DV-mynd GS Kópavogur: Samið um að bjarga skóg- rækt við Rjúpnahæð Samningaviðræður eiga sér stað milli bæjaryfirvalda í Kópavogi og forsvarsmanna Hitaveitu Reykjavík- ur og Vegagerðarinnar um lagningu hitaveituæðar og vegar um skóg- ræktarland í Rjúpnahæð í Kópa- vogi. Tæknimenn hjá Kópavogs- kaupstað hafa lagt til að hitaveitu- æðin og vegurinn liggi samhliða þannig að hægt verði að þjónusta æðina frá veginum. Með því verði komist hjá veralegu raski í skóg- ræktarlandinu. DV greindi frá því fyrir nokkru að leggja ætti stofnæð á vegum Hita- veitunnar og veg um land Skógrækt- arfélags Kópavogs í Rjúpnahæð í Kópavogi og rífa þyrfti upp ríflega 78 þúsund trjáplöntur vegna þessa. Formaður Skógræktarfélagsins mót- mælti raskinu við bæjaryfirvöld í Kópavogi bréflega og benti á að rífa þyrfti upp með rótum um helming af þeim plöntum sem væru á landi félagsins. Samkvæmt heimildum DV hefur Hitaveitan lýst sig velviljaða fram- komnum hugmyndum en ekkert svar hefur borist frá Vegagerðinni. -GHS Við tökumjtaf • ■ mm æðiskðisf ..tryggðu þér sölupláss um helgina Um helgina verður "æðisleg" markaðshátíð í Kolaportinu með fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum, heimilislistafólki, barnabásum og kompudóti. ISLENSKI HEIMILISLISTA- MARKAÐUR UM HELGINA Sérstök dómnefnd mun velja fallegasta íslenska handverksbásinn um helgina og fær sá aðili hagkvæma viðurkenningu. Ennþá eru lausir sölubasar nokkrar helgar í nóvember og vid byrjum ad taka nidfur pantanir inn á helgar í desember frá og med næstu mánaðarmótum. Vid minnum einnig á laus pláss á jolamarkadi Kolaportsins sem verdur opinn alla daga i desember. KOMPU KEPPNI Á KOMPUDÖGUM Valinn verður besti kompubásinn og besti sölumaðurinn og veittar hagkvæmar og skemmtilegar viðurkenningar. BREYTTUR SÖLUTÍMI Á LAUGARDÖGUM Opið laugardaaa / 09 sunnudaaa / kl. NjOO^/jOO / BARNA- OG UNGLINGABÁSAR Börn og unglingar 16 ára og yngri geta leigt sér aðstöðu um helgina. Valinn verður besti barna- og unglingabásinn og besti sölumaðurinn í þeirra hópi. Þessir aðilar fá viðurkenningarskjal ásamt skemmtilegum og hagkvæmum verðlaunum. TAKMARKAÐ PLASS ER FYRIR HVERN HÓP PÖNTU NARSÍMI ER 562 50 30 KOLAPORTIÐ MARKAÐSTO R C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.