Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Page 18
34 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 Menning Redurírós- mynstraðri skál Ámi IngóLfsson 1 Galleríi Sævars Karls og Ásmundarsal Það er orðið býsna algengt að listamenn bregöi á það ráð að skipta upp sýningum sínum. Yfirleitt er tilgang- ur listamannanna sá að sýna ólíkar áherslur í list sinni, en stundum er það einfaldlega sýningarhús- næðið sem setur viðkomandi of þröngar skorður. Svo virðist sem hið síðamefnda hafi ráðið því að Ámi Ing- ólfsson setti upp sýningar á sama tíma í Galleríi Sæv- ars Karls og í Ásmundarsal. A.m.k. tengjast verkin innbyrðis og allt heíði fallið í ljúfa löð hefðu sýningam- ar veriö á sama stað. Á báðum stöðum færir Árni sér í nyt hversdagslega hluti og tákn til að miðla hugmynd- um, oft kiisjukenndum, um samskipti kynjanna, vald, yfirborðsmennsku, siðsemi o.fl. Gálgahúmor og hráskinnsleikur í Galleríi Sævars Karls er um að ræða innsetningu sem byggist á klisjunni um það hvernig mannkynið fjölgar sér. Þrír skaufar úr hrágúmmíí teygja sig upp úr rósmynstraðri postulínsskál og í átt að þokukennd- um ljósmyndum af blómabreiðum er hvíla á stöngum úr stáli. Inntaki og efnivið er lýst á upphafinn hátt í sýningarskrá og eykur listamaöurinn þar með við gálgahúmorinn sem einkennir iimsetninguna. Hér er allt á léttum nótum hráskinnsleiks með væntingar sýningargesta og fyrir fram skilyrt viðbrögð við tákn- myndum sem ættu að vera á hvers manns borði í veisluhöldum fjölmiðla nútímans, en eru það ef til vill ekki. Til að kóróna slíka tilvísun til veisluborðs menningarinnar nefnir Ami þetta verk sitt Þrír aust- firskir geitaostar og eru þeir nafngreindir sem Mari- netti, E1 Greco og Lissitsky.. Þanþol klisjunnar Svipað er uppi á teningnum í Ásmundarsal. Gálgahú- morinn er þar allsráðandi í skeytingarleysi gagnvart siðareglum og þjóðlegum gildum. Eitt verkið nefnist Nokkur auðveld vers úr sálmum séra Hallgríms og samanstendur af þurrkuöu hrossataði í glærri plastk- úlu sem hvílir á stálgrind alsettri loftnetum. Segja má að Ami sé með þessari sýningu að reyna á þanþol hug- mynda og mörk klisja og frumlegrar hugsunar. Þó er eins og hann sé einum of upptekinn við að draga fram mögulegar hneykslunarhellur án þess að hafa til þess gildar ástasður. Bitastæðasti skúlptúrinn á sýningunni samanstendur af hermannaskóm, steyptum í ál, er sitja á stálstöngum er mynda hring og yfir trónir svört regn- hlíf. Heiti verksins virðist hins vegar gersamlega út í Þrír skaufar úr hrágúmmíi teygja sig upp úr rós- mynstraðri postulinsskál á sýningu Árna Ingólfssonar í Galleríi Sævars Karls. Myndlist Ólafur J. Engilbertsson hött, eins og reyndar fleiri á sýningunni; Ofurölvi. Reðurinn fær sitt í Ásmundarsal ekki síður en í Galleríi Sævars Karls. Hér eru þrjú verk sem byggjast á þátttöku reðursins. í verki sem ber hið undarlega heiti Frá og með 20. apríl, ókey, eltist reður er líkist slöngu úr áli við þrjú saklaus sáputyppi sem „nei“ er greypt í. Og í öðru verki sem heitir Hann kemur grænn undan vetri gefst gestum kostur á að fleygja bláum skaufa upp á vegginn og láta hann skakklappast niður á við í átt að sinni heittelskuðu sem er „sold as a no- velty only“. Verk númer fimm hefur nokkra sérstöðu á þessari sýningu fyrir þær sakir að þar er ekki kom- ið inn á kynlíf og vald, en samskipti kynjanna eru þar vissulega til meðferðar í nostalgískri uppriijun. Það er margt áhugavert á þessum sýnignum Árna Ingólfssonar og það er ekki ónýtt að hafa húmor þegar kemur að hinum stóru málum. Þó er jafnframt ljóst að meira býr í hstamanninum en hér kemur fram og verður vonandi ekki eins langt að bíða næstu sýning- ar og þessara sem standa til 29. október. Með hauskúpu á f ingrinum íslenskur píanóleikari hélt tónleika í Hafnarborg síð- astliðið miðvikudagskvöld. Þetta var Valgerður Andr- ésdóttir og hefur hún ekki verið áberandi í íslensku tónlistarlífi hingað til. Enda er hún ung að árum og hefur dvalist fjarri heimabyggð. Svo er ekki langt síð- an hún lauk námi, en fyrir þremur árum útskrifaðist hún frá tónlistarháskólanum í Berlín. Fyrsta verkið á efnisskrá tónleikanna var „Hugleið- ingar um fimm gamlar stemmur" eftir Jórunni Viðar. Það er prýðilega samið; hugmyndaríkt og tilfinninga- þrungið. Nokkur önnur íslensk tónskáld hafa samiö svona tónlist sem byggist á forníslenskri sönghefö, en tónsmíð Jórunnar er trúlega ein af þeim bestu. Val- gerður lék þetta verk af öryggi og kom því ágætlega til skila. Næst á dagskrá var prelúdían „Sokkna dómkirkj- an“ og síðan etýða nr. 11 eftir Debussy. Þar kom styrk- ur Valgerðar sem píanóleikara hvað best fram. Hún hefur einstaklega fallegan tón og tókst að skapa alls kyns htbrigði með túlkun sinni. Tónhst Debussys var líka fuh dulúðar og var unaður á að hlýða. Við nokkuð annan tón kvað í tveimur ballöðum eft- ir Chopin, sem á eftir fylgdu. í gegnum tíðina hefur skapast hefð fyrir að leika verk þessa tónskálds með endalausum hj-aðabreytingum og helst eins hratt og mögulegt er. Sjaldnast er beðið um þennan órólega hraða í upphaflega textanum, og þegar svona er spilað verður útkoman hræðhega khsjukennd. Tónhst Chop- ins er skáldskapur beint frá hjartanu og þarfnast ekki þeirrar afskræmingar sem svo oft er viðhöfð. Því mið- ur viröist Valgerður að einhverju leyti hafa falhð í þessa gryfju, þó margt gerði hún mjög fallega. Hún býr hka yfir mikilli tækni og virðist geta spilað nokk- um veginn hvað sem er. Það sannaði hún í fyrra verk- inu eftir hlé, sem var sónata í D-dúr, KV. 576 eftir Mozart. Þetta er ein erfiöasta sónatan eftir meistar- ann, en samt lék hún í höndunum á Valgerði. Hún spilaði hana líflega og af miklum þokka. Eftir heiðríkjuna í tónhst Mozarts skah á sól- myrkvi, því síðasta verkið á tónleikunum var hin svo- Valgerður Andrésdóttir. Tónlist Jónas Sen kallaða Dante-sónata eftir Liszt. Liszt átti það til aö mála sig náhvítan í framan og ganga með hauskúpu- hring, enda samdi hann verk eins og Dauðadans, Djöflavals og önnur slík ljúflingslög. Dante-sónatan er í þessum stíl, hún er innblásin af Hinum guðdómlega 'gleðileik eftir Dante, og þá sérstaklega þeim hluta verksins sem gerist í víti. Valgerður lék sónötuna ágætlega og sýndi það og sannaöi að hún er á góðri leiö með að komast í fremstu röð íslenskra tónhstar- manna. Norðurljósa- barokk Musica Antiqua stendur fyrir þrennum tónleikum í samvinnu við Ríkis- útvarpið um þessar mundir og ganga þessir tónhstardagar undir heitinu Norðurljós. Fyrstu tónleikarair í þessari röð voru haldnir á sunnudaginn var og kom þar fram Bachsveitin í Skálholti ásamt einleikurunum Cam- ihu Söderberg á blokkflautu, Sörúh Buckley á víólu og Martial Nardeau á barokkþverflautu. Það var Alessandro Scarlatti sem átti fyrsta orðið með Konsert í a- moh fyrir blokkflautu, tvær fiðlur og fylgirödd. Alessandro er fyrst og fremst þekktur fyrir hinar fjölmörgu # óperur sínar, kantötur og söngtón- Tónlist hst. Hann var faðir Domemcos, _____________________________________ semvarmikhlsnilhnguráharpsic- - .. ... ord og þekktastur fyrir tónsmíðar ASkell MaSSOn fyrir það hljóðfæri. -------------------------------- Þetta ágæta verk Alessandros er í fimm stuttum þáttum og var það vel leikið af Bachsveitinni, sem verður stöðugt betri, og ekki brást Camilla fremur en endranær og skilaði hún frábærum leik í aha staði. Konsert í G-dúr fyrir víélu, strengi og fylgirödd eftir Georg Phihp Tele- mann var leikið næst og var einleikari Sarah Buckley! Þetta er sérlega skemmtilegt og fallegt verk. Flutningurinn var þó full líflaus og hljómaði t.d. fyrsti þátturinn fremur dapur. Sarah lék þó af öryggi og með fína intonation en verkið var þó á heildina htið tæplega næghega vel mótað. Martial Nardeau lék síðan með Bachsveitinni Konsert í G-dúr fyrir þverflautu, strengi og fylgirödd eftir Johann Joachim Quants. Hér gekk allt upp og lék Bachsveitin mjög vel með Martial, sem fór á kostum. Tónleikunum lauk með Konsert í e-moh fyrir blokkflautu, þverflautu, strengjasveit og fylgirödd eftir Telemann. Þetta er bráðskemmtileg tón- smíð og nutu flautuleikaramir tveir sín til fuhs hvort sem var í syngj- anda largo-þáttanna tveggja eða leifturhröðu allegroinu og sveitadansi lokaþáttarins. Hugmyndaflug Sýningaopnanir eru um margt merkir mannfundir. Th þeirra er boðið listamönnum, kvenskörungum og þéttingskörlum þjóðlífsins. Þangað slæðast og margir óboðnir fyrir forvitnisakir, nokkrir af veislugleði og sýnihneigö og loks einhveijir af helberum áhuga fyrir listinni. Lík þessu er samsetning gesta á Kjarvalsstöðum, í Listasafni íslands og öðrum góðbúum þegar verið er að opna samsýningar eöa yfirlitssýningar af ein- hveiju tagi. Þegar einstakhngur opnar sýningu fer fjöldi virðingarfólks eftir orðstír hans en ættingjum og vinum fjölgar í hlutfahi við aðra gesti eftir því sem frægð hans er minni og á fyrstu sýningar unglistamanna mæta oftast ekki aðrir en uppveðruð ættmenni og nánir vinir auk hörð- ustu samkvæmisljónanna. Eins og gefur að skhja er ég einhvers staðar þama í flokki og fer því oft á mannfundi sem þessa. Á Kjarvalsstöðum standa yfir Atburðir Úlfar Þormóðsson þrjár sýningar þessa dagana. Ein þeirra var opnuð fyrir nokkru síð- an. Það er sýning á ýmsum verkum eftir meistara Kjarval. Tvær sýn- ingar voru opnaðar um helgina; sýning á verkum Einars Sveins- ------------------------------------ sonar arkitekts og yfirlit verka 16 ungra myndlistarmanna. Er skemmst frá því að segja að eftirvænting mín beið skipbrot á báðum þessum nýju sýningum en fékk nokkra fró á Kjarvalssýningunni. Vegna vonbrigðanna festi ég hugann ekki nema stutta stund við sýningamar en fór að gefa mig að fólkinu og spjalla, því opnanir eru ekki síður sýning á fólki en öðrum listaverkum. Margar samræður snerust einvörðungu um hvernig hefurðu það og þakka þér fyrir síðast og hvernig líst þér á og hvað ertu að bauka og gott er blessað veðrið og vertu ævinlega blessaður. Þær tek- ur fljótt af og hægt að hehsa upp á aragrúa fólks með þessum hætti á örstuttum tíma. Ég var einhvern veginn ekki í formi til slíkra viðræðna í miklum mæh og settist því fljótt í skammarkrókinn en það er hthl bás í kaffistofunni þar sem annars flokks borgurum og reykingafólki er heim- ht að dekra við nautnir sínar á meðan fyrsti flokkur A spígsporar um sýningarsvæðið í nautnagælum sínum við freyðivín, talar saman eins og að framan greinir eða ræðir eðalkúnst af viti og þekkingu. Sannast sagna hef ég langalengi ekki skemmt mér eins vel á opnun og ekki áður haldist jafn lengi við á atburði af þessu kyni; skyndilega voru liðnir tveir og hálfur klukkutími, gestimir famir og byijað að vaska upp kaffibolla og tertudiska. Það bar þannig til að fyrst hitti ég fyrir í skammar- króknum nokkra brennivínsgerðarmenn (og konur) ofan úr Borgarnesi. Þeir voru í snarpri menningarreisu th borgarinnar og höfðu meiri tíð- indi að segja en aörir sem ég hafði rætt við fyrr um daginn. En þetta fólk gerði stuttan stansþví það var að fara að skoða osta og síðan á óform- legt stefnumót á Hótel Islandi við hehan rútufarm af konum frá Þormóði ramma í Siglufirði. En það gaf á að líta i básnum þegar Borgnesingamir voru famir því inn í krókinn komu fjórar konur héðan og hvaðan og þekktu hvor aðra mism- ikið og minnst mig. En samræður hófust skjótt af slíkri andagift, gleði- blöndnu lífsháði, kersknisfuhri þjóðfélagsgagnrýni og myndugleik að tíminn flaug fjaðralaus hjá við kraftbirtingu kvensálarinnar. Hefði ég skrifað frá þessu kvennafari fyrir daga jafnréttisins myndu ummæhn hafa verið að fornum hætti; konur þessar höfðu mannsvit. Ég var því upphafinn þegar ég gekk út og enn þegar vatt sér að mér einn síðfóruh sýningargestur sem sagði: „Þér hafa greinilega þótt þetta góðar sýningar." Vegna ávarpsins fór ég í huganum yfir sýningarnar tvær. Viö það sá ég fyrir mér htla frétt af verðlaunasamkeppni um nafn á nýja sjónvarps- stöö. Þar var skýrt frá bestu hugmyndinni sem fram hafði komið á land- inu öhu og vissi þá hvað mér hafði fundist um sýningarnar. En ég svar- aði manninum ekki, heldur brosti th hans því ég var ennþá haugfuhur af því sem opnunin hafði fært mér og óskaplega feginn aö þurfa ekki að skrifa myndlistagagnrýni af hugmyndaflugi yngstu myndhstarmanna þjóðarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.